Morgunblaðið - 30.03.1994, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994
15
• •
Oflugt starf iiinan Alþjóða-
þingmannasambandsins
eftir Geir H. Haarde
í lok mars var haldið í París reglu-
legt þing Alþjóðaþingmannasam-
bandsins, Inter-Parliamentary Uni-
on, en þar eiga sæti fulltrúar yfir
120 þjóðþinga. Helstu leiðtogar í
frönskum stjórnmálum heiðruðu
þingið með nærveru sinni og Mitter-
rand forseti, Balladur forsætisráð-
herra og Chirac borgarstjóri í París
ávörpuðu þingfulltrúa.
Alþjóðaþingmannasambandið,
sem er 105 ára á þessu ári, er elsti
alþjóðlegi samstarfsvettvangur á
sviði stjórnmála sem starfandi er.
Fulltrúar Alþingis hafa sótt þing
sambandsins um áratuga skeið. Þeir
alþingismenn sem sóttu þingið að
þessu sinni voru Einar K. Guðfinns-
son, Gunnlaugur Stefánsson og
Olafur Þ. Þórðarson auk greinarhöf-
undar. Þessari grein er ætlað að
veita lesendum örlítinn fróðleik um
Alþjóðaþingmannasambandið og
störf þings þess í París.
Deilt á Breta og Frakka
A þingum sambandsins eru að
jafnaði samþykktar þrjár megin-
ályktanir um mikilvæg alþjóðleg
málefni. í París var m.a. ályktað í
ítarlegu máli um hvernig beita mætti
Sameinuðu þjóðunum til að koma í
veg fyrir átök, um umhverfismál og
um stöðu samningsins til að koma
í veg fyrir útbreiðslu kjamorku-
vopna. Venju samkvæmt voru einnig
almennar umræður um stöðu heims-
mála. Þá samþykkti ráð sambands-
ins, sem er æðsta stofnun þess, m.a.
sérstaka yfirlýsingu um hvernig
staðið skuli að fijálsum, lýðræðisleg-
um kosningum. Þótti það mikilvægt
framlag og gagnlegt ýmsum þeim
ríkjum sem lítt þekkja til slíks.
Gunnlaugur Stefánsson gagn-
rýndi í ræðu á þinginu harðlega
áform Breta um endurvinnslustöðina
í Sellafield og vakti ræða hans at-
hygli bresku þingmannanna. Áttu
Gunnlaugur og Oli Þ. Þórðarson síð-
an fund með fulltrúa þeirra, Lindsay
lávarði, til að ræða þetta mál frek-
ar. Má gera ráð fyrir frekari upplýs-
ingaskiptum í kjölfarið. Einar K.
Guðfinnsson fjallaði í ræðu sinni
m.a. um GATT-samkomulagið og fór
hörðum orðum um nýlegar aðgerðir
Frakka til að hefta fiskinnflutning.
Margþætt starfsemi
í nafni Alþjóðaþingmannasam-
bandsins er hverju sinni unnið að
margvíslegum málefnum er varða
alþjóðleg deilumál eða framþróun
lýðræðis í heiminum. T.d. hefur sér-
stök nefnd þingmanna frá sex lönd-
um unnið að því undanfarin misseri
í samstarfi við Sameinuðu þjóðirnar
að reyna að greiða fyrir lausn Kýpur-
deilunnar sem hefur verið í hnút síð-
ustu tvo áratugi. Þá hefur verið
unnið að áætlun um hvernig auka
megi hlut kvenna í stjórnmálum svo
eitthvað sé nefnt. Sérstök áætlun
um það efni var samþykkt nú í Par-
ís. Kosningaeftirlit víða um heim er
einnig fastur liður í starfseminni og
var t.d. sendinefnd þriggja þing-
manna nýverið við slík störf í E1
Salvador.
Sambandið hefur einnig ákveðið
að senda í sumar nefnd þriggja þing-
manna til fyrrverandi lýðvelda Júgó-
„Sambandið hefur einn-
ig ákveðið að senda í
sumar nefnd þriggja
þingmanna til fyrrver-
andi lýðvelda Júgóslav-
íu til að kynna sér að-
stæður þar, ekki síst
með tilliti til mannrétt-
indabrota, og kanna
með hvaða hætti sam-
bandið getur orðið að
liði í uppbyggingar-
starfi sem við tekur að
loknu stríðinu í Bosn-
íu.“
slavíu til að kynna sér aðstæður
þar, ekki síst með tilliti til mannrétt-
indabrota, og kanna með hvaða
hætti sambandið getur orðið að liði
í uppbyggingarstarfí sem við tekur
að loknu stríðinu í Bosníu. í sendi-
nefndina voru valdir þingmenn frá
Argentínu og Ástralíu auk greinar-
höfundar, sem hefur á þessu og síð-
asta ári verið formaður í hópi þing-
manna vestrænna ríkja innan sam-
bandsins.
Nýr forseti kjörinn í haust
Núverandi forseti Alþjóðaþing-
mannasambandsins, Bretinn Sir.
Michael Marshall, lætur af störfum
í Kaupmannahöfn eftir þijú ár í
starfi. Þegar er vitað af tveimur
Geir H. Haarde í ræðustól á þingi
Alþjóðaþingmannasambandsins.
frambjóðendum í forsetaembættið,
Gabriel Valdes Subercaseaux, for-
seti öldungadeildar þingsins í Chile,
og Ahmed Fathy Sorour, forseta
þjóðþings Egyptalands. Valdes er
kristilegur demókrati, fyrrum utan-
ríkisráðherra lands síns og aðstoðar-
framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð-
anna. Hann er þó ekki síst kunnur
heima fyrir vegna andstöðu við
stjórn Pinochets, en hann var tvíveg-
is fangelsaður á valdatíma hennar.
Sorour á að baki langan feril sem
fræðimaður og lagaprófessor auk
þess að hafa verið háttsettur stars-
maður hjá UNESCO, menningar-
málastofnun SÞ. Báðir þessir menn
eru fulltrúar hófsemdarafla í heima-
löndum sínum og hvor um sig myndi
sóma sér vel sem forseti sambands-
ins.
Þess má geta til gamans að fram
kom í samtali mínu við Valdes að
hann þekkir vel til fyrirtækisins Fri-
osur, samstarfsaðila Granda hf. í
Chile, og forsvarsmanna þess og var
kunnugt um samstarf Friosur og
Granda.
Höfundur er formaður Islands-
deildar Alþjóðaþingmanna-
sambandsins.
Útifund-
ur á Aust-
urvelli
SAMTÖK heírstöðvaandstæð-
inga efna til útifundar á Aust-
urvelli miðvikudaginn 30.
mars kl. 17.
Fundurinn er haldinn til þess
að minnast þess að þá verða 45
ár liðin frá þeim atburðum sem
urðu við Alþingishúsið þegar
íslendingar gengu í Norður-Atl-
antshafsbandalagið.
Dagskrá fundarins verður
sem hér segir: Erlingur Gíslason
leikari les ljóð, Gunnar Karlsson
prófessor flytur ávarp, borin
verður upp ályktun fundarins
og fjöldasöngur (Land míns föð-
ur). Fundarstjóri verður Anna
Olafsdóttir Björnsson, þingkona
Kvennalistans.
Karíus og Baktus
vaka á nóttunni
eftir Margréti Rósu
Grímsdóttur
Tannlæknar vilja að fyrsta
heimsókn barnsins til þeirra sé um
eins árs aldurinn. Hvers vegna í
ósköpunum, spyija margir. Þýðir
nokkuð að tjónka við börnin hvort
eð er fyrr en þau eru þetta 3 til
4 ára? Skemmast tennurnar í
svona litlum börnum? Svarið er
sorglegt. Já, því miður er allt of
mikið um skemmdar tennur í þetta
ungum börnum. En hvers vegna
skemmast tennurnar og hvenær
byija þær að skemmast? Bakter-
íurnar þurfa sykur til þess að geta
skemmt tennurnar. Sykur leynist
nær alls staðar, ekki bara í sæl-
gæti og gosdrykkjum. Meira að
segja er töluverður sykur í mjólk-
inni sem kallast mjólkursykur og
er móðurmjólkin sætari en kúa-
mjólkin.
Við vitum öll að móðurmjólkin
(þurrmjólkin þar sem ekki er völ
á móðurmjólkinni) er það besta
sem við getum gefið börnunum
okkar fyrstu 6-8 mánuði ævinn-
ar. Þennan tíma þurfa flest börn
að nærast mjög oft á sólarhring,
einnig á nóttunni. Sem betur fer
lengist alltaf næturdúrinn og þar
af leiðandi fækkar á næturgjöfun-
um. Það eru einmitt þessar nætur-
gjafir mjólkur, svo ekki sé minnst
á allskyns safa og aðra sykraða
drykki, sem eru hættulegar tönn-
unum eftir að þær koma í munn-
inn. Ástæðan er sú að það skrúf-
ast nær alveg fyrir munnvatns-
rennslið okkar þegar við sofnum.
En munnvatnið er einn af varnar-
þáttunum gegn Karíusi og Bakt-
usi. Þessir óvinir okkar hafa því
næga fæðu og starfa óáreittir ef
„Bakteríurnar þurfa
sykur til þess að geta
skemmt tennurnar.“
barnið nærist á áðurnefndum
vökvum að vild af pela eða móður-
mjólk á nóttunni. Hættan vex með
aldrinum því það tekur smá tíma
að vinna á tönnunum, jafnframt
því sem bakteríunum fjölgar í
munninum.
Tannskemmdir af þessum sök-
um eru vel þekktar (nursing cari-
es) því þær mynda_ákveðið munst-
ur í munninum. Á þrennan hátt
kemur náttúran vel til móts við
okkur í þessum efnum. í fyrsta
lagi kemur fyrsta tönnin, að með-
altali, ekki í munninn fyrr en um
6-7 mánaða aldurinn. I öðru lagi
hafa 7-8 mánaða gömul börn
mjög gott lag á því að drekka úr
stútkönnu. Þegar hefur verið
minnst á þriðja þáttinn, en hann
er sá að þörfin á næturgjöfunum
minnkar snarlega á þessum aldri.
Þorsta er best að svala með vatni.
Hér hefur aðeins verið minnst
á einn þátt, lítt þekktan meðal
almennings, sem er hættulegur
tönnum barna okkar. Eru þá
ónefndir mikilvægir þættir s.s.
mataræði, munnhirða, lyfjagjafir
o.fl. Æskilegast er að fyrsta heim-
sókn barnsins til tannlæknis felist
fyrst og fremst í því, að fræða
foreldrana um það hvernig þeir
geti komið í veg fyrir að tennur
barns þeiira skemmist.
Höfundur er tannlæknir.
Ný hljómflutningsstæða úr POWER PLUS línunni fró Pioneer
I&-
N-50 samstæ&an býóur
50 W RMS umhverfismagnara (su
s" ! ía.-;
Útvarp —- Tvöfalt segulbandstæki ♦ Fjarstýringu
ábyrgö
Fullkominn geis
Verð 66.655.- eða 59.990,- stgr
Umboðsmenn um l ind allt
f§§§ HVERFISGOTU 103 : SiMI 62S999