Morgunblaðið - 30.03.1994, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. MARZ 1994
19
Starfsmaður ráðinn til Handverks
Verkefni til að efia inn-
lendan handverksiðnað
STJÓRN Handverks, sem er reynsluverkefni með eflingu innlends
handverksiðnaðar að markmiði, hefur ráðið starfsmann til starfa sem
mun m.a. sjá um rekstur skrifstofu verkefnisins og uppbyggingu gagna-
banka. Fjárveiting til verkefnisins er frá forsætisráðuneytinu og er
ætlað til rekstrar Handverks næstu þijú árin. Tilgangur verkefnisins
er að efla hefðbundinn heimilisiðnað, handverks- og iistmunagerð sem
stunduð er af einstaklingum og smáfyrirtækjum. Markmiðið er m.a.
að stuðla að vöruþróun í handverki og efla gæðavitund.
í verkefnisstjórn Handverks sitja mennt sem valgrein, framhaldsnámi
. Helga Thoroddsen, verkefnisstjóri í
Þingborg, formaður, Eyjólfur Páls-
son, hönnuður, og Jóhanna Pálma-
dóttir, kennari á Hvanneyri.
Nýráðinn starfsmaður Handverks
er Guðrún Hannele Henttinen, en
hún lauk stúdentsprófi frá MT árið
1976, B.Ed.-prófi frá Kennarahá-
skóla íslands árið 1995 með hand-
frá handmenntakennaradeild Há-
skólans í Helsinki 1991 með smáfyr-
irtækjarekstur í handverkefni sem
lokaverkefni. Guðrún hefur unnið
við námsefnisgerð í handmennt fyrir
Námsgagnastofnun, kennt við
grunnskóla í Reykjavík, og starfað
fyrir Rauða krosshúsið.
Verkefnisstjórn Handverks hefur
komið upp tengiliðaneti um landið
og er hlutverk þeirra að afla upplýs-
inga um handverksfólk á sínu svæði
og miðla upplýsingum og fræðslu til
þeirra. Á Vesturlandi eru Ólöf Erla
Bjarnadóttir og Elísabet Haralds-
dóttir, Hvanneyri, á Vestfjörðum er
Anna Margrét Valgeirsdóttir,
Hólmavík, á Norðurlandi er Bryndís
Símonardóttir, Laugalandi, á Aust-
urlandi er Þóra Þórarinsdóttir,
Bakkafirði, á Suðurlandi er Hildur
Hákonardóttir, Selfossi, og á Stór-
Reykjavíkursvæðinu og Suðurnesj-
um er Eyjólfur Pálsson, Reykjavík.
Skrifstofa Handverks er í húsi Heim-
ilisiðnaðarfélags íslands við Laufás-
veg 2 í Reykjavík.
Tímamót 1. apríl Morgunblað,ð/Knstinn
EINAR Olgeirsson, forstjóri Flugleiðahótelanna, lét þess m.a. getið
að 1. apríl yrðu hótelin hluti af Scandic-hótelkeðjunni. Hann sagði
að breytingin fælist fyrst og fremst í sameiginlegri markaðssetn-
ingu. í Scandic-keðjunni eru yfir 100 hótel í tíu löndum.
Tíu ráðstefnusalir teknir í notkun á Hótel Loftleiðum
Ný og betri aðstaða
í NÝJU þjónustumiðstöðinni á skíðasvæði IR hefur skapast margvís-
leg aðstaða fyrir gesti.
SSfiip ;
1
Salirnir eru þegar meira og
minna bókaðir fram á sumar
TIU ráðstefnusalir sem kallaðir eru neðri og efri þingsalir voru teknir
í notkun í kjallara og á fyrstu hæð Hótel Loftleiða fyrir skömmu. Ein-
ar Olgeirsson, hótelsljóri Flugleiðahótelanna, segir að ætlunin sé að
markaðssetja þingsalina fyrir inniendar og erlendar ráðstefnur. Hann
segir að enda þótt markaðssetningunni hafi ekki verið hleypt af stokk-
unum hafi breytingarnar spurst út og ráðstefnusalirnir séu meira og
minna bókaðir fram á sumar. Salirnir eru afar vel tækjum búnir.
Einar sagði að framtíðarbreyting-
um á Hótel Esju væri lokið. „Og síð-
ustu mánuði höfum við einbeitt okk-
ur að því að gjörbreyta ráðstefnuað-
stöðunni hér á Hótel Loftleiðum. Við
höfum útbúið tíu ráðstefnusali fyrir
5 til 500 manns hvern og búið þá
afar fullkomnum tæknibúnaði.
Morgunblaðið/Stefán Bjarnason
Frá skíðasvæði ÍR-inga í Hamragili
SKÍÐASVÆÐI ÍR í Hamragili hefur tekið stakkaskiptum, brekkur
fleiri og lengri og ný þjónustumiðstöð var tekin í notkun fyrir mánuði. _
Miklar umbætur á skíðasvæði ÍR-inga í Hamragili
Ný þjónustumiðstöð og
barnalyfta tekin í notkun
Gestamóttökuna höfum við gert upp
og stúkað Kynnisferðir af fyrir aðra
en hótelgesti. Lónsbar er nýr bar á
hótelinu og ráðstefnumiðstöð sér:
staklega ætluð ráðstefnugestum. í
ráðstefnumiðstöðinni verður alltaf
starfsmaður frá okkur, konur sem
við höfum kosið að kalla þingfreyjur.
Ráðstefnustjóri verður Haukur
Ragnarsson," sagði Einar.
Fullkominn tæknibúnaður
Breytingarnar kostuðu samtals um
40 milljónir og er tæknibúnaður innif-
alinn í þeirri upphæð. í honum felst
m.a. svokallaður „ræðuvarpi". Ræðu-
maður kemur með ræðu eða ávarp á
tölvudiski og er textinn ritaður inn á
stjórntölvu kerfisins. Hann kemur síð-
an upp á tölvuskjá með mjög stóru
letri og speglast þaðan upp í glerplöt-
ur fýrir framan ræðustólinn. Áheyr-
endur sjá aðeins gegnsæar glerplötur
og er því líkast að ræðumaður horfi
allan tímann fram í sal og mæli af
munni fram. Ræðumaður getur sjálf-
ur stýrt hraða textans.
Af öðrum tæknibúnaði má nefna
venjulega myndvarpa, sjónvarps-
myndvarpa, færanlegan tölvumynd-
varpa, myndbands-myndvarpa og
þrívíddarmyndvarpa. Hægt er að
samtengja mynd- og hljóðkerfi allra
ráðstefnusala og sýna t.d. í sjón-
varpstækjum í neðri þingsölum allt
sem sýnt er á tjaldi í efri þingsölum.
Sérstök aðstaða er fyrir allt að sjö
túlka og aðsetur fjölmiðlafólks.
Nefna má að í öllum neðri þingsölun-
um er ákveðinn fastur staðalbúnað-
ur. Meðal þess er tússtafla, fletti-
tafla, sími, sjónvarpstæki og mynd-
bandstæki.
„ÞAÐ má nánast segja að hér sé um nýtt skíðasvæði að ræða, brekk-
urnar voru lagaðar stórlega í sumar, komin er barnalyfta og nýver-
ið vígðum við nýja þjónustumiðstöð," sagði Auður Björg Sigurjóns-
dóttir hjá skíðadeild ÍR í samtali við Morgunblaðið.
ÍR-ingar urðu fyrir því fyrir ári
að snjóflóð féll á lyftuhús á skíða-
svæði þeirra í Hamragili fyrir ofan
Kolviðarhól. Strax var hafist handa
um endurbætur og var ný 76 fer-
metra þjónustumiðstöð vígð í lok
febrúar. „Þar verður stjórnstöð fyr-
ir lyfturnar, snyrting fyrir gesti og
eldhús ásamt sal þar sem gestir
skíðasvæðisins geta sest niður og
snætt nesti sitt eða keypt veitingar
sem í boði eru,“ sagði Áuður Björg.
„í fyrrasumar áttu sér stað mikl-
ar jarðvegsframkvæmdir. Brekk-
urnar í Karlagili, Kvennagili og
Skálabrekku eru gjörbreyttar og
mun betri til skíðaiðkunar. Og með
tilkomu barnalyftunnar neðst í gil-
inu hefur öll aðstaða tekið stakka-
skiptum," sagði Auður Björg.
Brekkur og göngubrautir
Að sögn Auðar Bjargar eru fjór-
ar lyftur á skíðasvæði IR, alls tæp-
ir tveir kílómetrar. I þeim er hægt
að komast á tind Skarðsmýrarfjalls.
Þaðan er um kílómetra brekka nið-
ur í gilbotninn í Hamragili. „Þaðan
má einnig renna sér yfir á skíða-
svæði Víkings sem við eigum í góðu
samstarfi við um rekstur svæð-
anna,“ sagði Auður Björg. Þegar
upp úr Hamragilinu kemur opnast
göngubrautir inn á Hellisheiðina
fyrir þá sem kjósa fremur að ganga
á skíðum en renna sér í brekkunum.
„Héðan er vinsælt að fara upp á
brún með lyftu, ganga um Hellis-
heiði niður að Skíðaskálanum í
Hveradölum og aftur upp í Hamra-
gil um Kolviðarhól, alls um 10 kíló-
metra vegalengd,“ sagði Auður
Björg að lokum.
Ráðstefnusalir
NÝJU þingsalirnir voru sérstaklega kynntir á miðvikudag.
miövikudag og fimmtudag
Píta m/buffi (erkr.469.-> nú kr. 250,
Píta m/grænmeti (erkr.38o.-> nú kr. 200,
Önnur tilboö í gangi yfir
páskana.
Opið helgidagana
nema páskadag.
Afsláttarkort gilda ekki í
sambandi viö tilboö.
12.0°
\\3°
(VfO'
\\v>na