Morgunblaðið - 12.05.1994, Side 12
12 FIMMTUDAGUR 12. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
AKUREYRI
Einleiktir
á orgel
DAGNÝ Pétursdóttir heldur út-
skriftartónleika í Akureyrar-
kirkju á föstudagskvöld en tón-
leikarnir eru liður í 8. stigs prófi
sem hún er að ljúka frá Tónlist-
arskólanum á Akureyri.
Dagný leikur einleik á orgel
verk eftir Buxtehude, Bach,
Franck og Gigout, auk Adagio
í g-moll eftir T. Albinoni með
stengjasveit skólans.
Dagný fæddist í Langadal í
A-Húnavatnssýslu og stundaði
píanónám á Akureyri. Að loknu
stúdentsprófi hóf hún orgelnám,
en hefur einnig verið í söngnámi
við Tónlistarskólann og er að
ljúka 8. stigi.
Tónleikarnir í Akureyrar-
kirkju hefjast kl. 20.30 annað
kvöld og er aðgangur ókeypis.
Málverka-
uppboðá
Hótel KEA
GALLERÍ Borg og Listhúsið
Þing á Akureyri halda málver-
kauppboð í samvinnu við List-
munauppboð Sigurðar Bene-
diktssonar hf.
Uppboðið fer fram á Hótel
KEA kl. 20.30 á sunnudags-
kvöid. Verkin verða sýnd þar á
uppboðsdaginn frá kl. 14-18.
Boðin verða um 70 verk, flest
eftir þekkta listamenn, s.s. Jó-
hannes Kjarval, Ásgrím Jóns-
son, Gunnlaug Scheving og
Gunnlaug Blöndal.
Framsókn-
armenn
styðja Dag
„FRAMSÓKNARMENN styðja
útgáfu Dags, eina dagblaðsins
sem gefið er út á landsbyggð-
inni,“ segir orðrétt í stefnuskrá
B-listans, lista Framsóknar-
flokksins fyrir bæjarstjórnar-
kosningarnar á Akureyri síðar
í þessum mánuði, „og benda á
að blaðið hefur þýðingarmiklu
hlutverki að gegna í bæjarlíf-
inu.“
Stuðningsyfírlýsingin kemur
fram í menningarmálakafla
stefnuskrárinnar. Guðmundur
Stefánsson, einn frambjóðenda
Framsóknarflokksins, sagði
þegar stefnuskráin var kynnt
að vissulega væri það ekki
stefna flokksins að útdeila fé til
blaðsins kæmist hann til valda
á Akureyri. Fremur hefði verið
um stuðningsyfirlýsingu að
ræða og auðvitað hefði eins ver-
ið hægt að setja inn í stefnu-
skrána sams konar stuðningsyf-
irlýsingar við til dæmis Svæðis-
útvarp Norðurlands og þá fjöl-
miðla aðra sem reglubundið
flyttu fréttir af svæðinu.
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Vorsýning myndlistamema
ÁRLEG vorsýning Myndlist-
arskólans á Ákureyri verður
opnuð í dag, fimmtudaginn
12. maí, kl. 14 í húsakynnum
skólans við Kaupvangsstræti
16 og Deiglunni, Kaupvangs-
stræti 23. Á sýningunni eru
verk eftir nemendur dag-
deilda skólans og jafnframt
sýnishorn af því starfi sem
unnið er á barna- og fullorð-
insnámskeiðum.
Dagdeildirnar eru þrjár,
fornámsdeild, sem er eins árs
undirbúningsnám, málunar-
deild, þriggja ára sérnám þar
sem lögð er áhersla á list-
ræna og tæknilega ögun, og
deild í grafískri hönnun, sem
er þriggja ára sérhæft. nám.
Þar er lögð áhersla á nýja
tækni, tölvuteiknun, án þess
þó að missa sjónar á þeim
grunni sem góð hönnun
byggist á.
Lokaverkefni þeirra sem
útskrifast úr málunardeild
að þessu sinni verða sýnd í
Deiglunni, en úrskriftarnem-
endur eru Guðrún Þórisdótt-
ir og Sigurdís Harpa Arnars-
dóttir.
Vorsýning Myndlistarskól-
ans á Akureyri verður opin
frá fimmtudegi til sunnudags
frá kl. 14 til 20. í gær vöktu
myndlistarskólanemar at-
hygli bæjarbúa á sýningunni
þegar þeir stormuðu á Ráð-
hústorg með trönur sínar og
máluðu af kappi.
Alþýðuflokkurinn um fráveitumál
Verkið
unnið á
þreföld-
um hraða
ÁHERSLA á að flýta fyrirhuguðum
framkvæmdum við holræsakerfi
bæjarins og vinna það verk á 5
árum í stað 15 eins og áætlað hef-
ur verið er eitt stærsta verkefnið
sem Alþýðuflokkurinn á Akureyri
vill beita sér fyrir á næsta kjörtíma-
bili og stefnir að verði flokkurinn í
meirihluta íbæjarstjórn. Flokkurinn
kynnti stefnuskrá sína á blaða-
mannafundi í gær og kom þar m.a.
fram að úrbóta væri þörf 1 atvinnu-
málum strax.
Gísli Bragi Hjartarson sem skipar
fyrsta sæti á lista flokksins sagði að
kostnaður við fráveituverkefnið væri
um 800 milljónir og er hlutur vinnu-
iauna þar af um 320 milljónir. „Þetta
eru afar viðamiklar framkvæmdir,
m.a. vegna þess að við höfum sofið
á verðinum. Það er alveg Ijóst að ef
Akureyri ætlar að skipa sér sess sem
matvælaframleiðslubær þá verður
ekki liðið að þessi mál séu í ólestri,"
sagði Gísli Bragi og benti á að rétt-
lætanlegt væri að taka lán til að
geta hraðað þessum framkvæmdum.
Heildarstefna í
umhverfismálum
Umhverfismál, skipulags- og
byggingamál eru fyrirferðarmikil í
stefnuskrá Alþýðuflokksins og vill
Morgunblaðið/Rúnar Þór
HREINNI Pollur er eitt af
stefnumálum frambjóðenda
Alþýðuflokksins.
listinn að þegar eftir kosningar verði
mörkuð heildarstefna í umhverfis-
málum. Þá kemur einnig fram að
virkja þurfi almenning í umfjöllun
um skipulagsmál m.a. með stofnun
hverfasamtaka. Stærsta verkefni á
sviði skipulagsmála verði að efna til
samkeppni vegna nýs bæjarhluta
syðst á brekkunni. Þá er lögð áhersla
á að vinna að skipulagi er til lítils
ef ekki er unnið eftir því en slíkt
hafi of oft viljað brenna við.
Þá má nefna að A-listinn vill koma
á ferðum strætisvagna inn á flug-
völl yfir sumartímann. Flokkurinn
vill að þegar verði stofnað útibú frá
Amtsbókasafninu í Glerárhverfi og
endurbætur verði gerðar á Sam-
komuhúsinu. Forgangsverkefni í
dagvistarmáium verði að bjóða upp
á dagvistun fyrir börn frá 6 mánaða
aldri.
Morgunblaðið/Golli
Skírður
fyrirjóm-
frúrferð
SVALBAKUR EA-2, nýr frystitog-
ari í eigu Utgerðarfélags Akur-
eyringa, fór í sína fyrstu veiðiferð
á sunnudag. Af því tilefni blessaði
séra Pálmi Matthíasson skip og
áhöfn . Þórbergur Torfason annar
stýrimaður á Svalbak og eigin-
kona hans Anke María Steinke og
skírðu son sinn við þessa athöfn
og fékk hann nafnið Sæbjörn Þór.
Það var systir hans, Kristína Ösp,
sem hélt litla bróður undir skírn.