Morgunblaðið - 14.05.1994, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 14.05.1994, Blaðsíða 25
MORGUNBLA'ÐIÐ LAUGARDAGUR 14. MAÍ1994 25 AÐSEIMDAR GREINAR Um svefnró Hæstaréttar STUNDUM er sagt að íslend- ingar séu eins og ein fjölskylda - og vel má það til sanns vegar færa. Meðal þess, sem hafa má til sannindamerkis um fjölskyldueðli samfélagsins, er meðferð okkar á málefnum hinna mikilsverðustu stofnana. Víða annars staðar þykir nauðsynlegt að halda opnum skoð- anaskiptum um stofnanir samfé- lagsins, einkanlega þær sem heyra til grundvellinum undir lýðræðis- lega stjórnarhætti. Með öðru móti hefur gagnrýnin hugsun engan aðgang að þessum mikilvægu stofnunum. En á hinn bóginn er Þögnin um málefni Hæstaréttar er komin á það stig, að mati Þor- geirs Þorgeirsonar, að jaðrar við hreinustu rit- skoðun. hætt við því, að valdastofnanir hrörni og visni í fjærveru allrar gagnrýni. Þannig virðist einmitt hafa farið fyrir Hæstarétti íslands. Öll umræða um málefni Hæsta- réttar - og dómskerfisins alls - hefur löngum þurft að læðast hvís- landi um herbergi samfélagsins á flókaskóm. Sem óneitanlega bendir til þess að þar sé einhver lasinn, eða fjarskalega svefnþurfi af öðr- um ástæðum. Þegar frá er talin umræða um byggingar utan um r£@fi ■■II kcmwn mn ■ ■■■■■■■« ■■■■■■■■ ■ ■ ■■■■■■«■■■■■■■■ ■ ■ MIIBIlVaiMM Suðurveri, Stigahlíð 45, sími 34852 Ljósmyndastofa Gunnars Ingimarssonar TAKID MED i i 1 i i TAKID MEÐ -tilboð! -tilboð! Jarlinn Sjábu hlutina í víbara samhengi! réttinn og launakjör dómaranna hefur þessi mikilsverða stofnun fengið að sofa í næði. Opinská umræða um réttarfarsmálefni hef- ur þótt óviðeigandi hávaði á heim- ili þjóðarinnar, og ég sé ekki betur en þar sitji virðulegur fjölmiðill; blað, útvarp eða sjónvarp í hveiju herbergi og sussi á þá hávaðaseggi sem til sín láta heyra. Eiginlega mætti segja, að misskilin um- hyggja fyrir þeim sjúka væri komin á það stig að enginn þori lengur að hleypa lækninum inn í húsið af ótta við bölvaðan hávaðann í honum. Þögnin um málefni Hæstaréttar íslands er nú í seinni tíð kom- in á það stig, að jaðrar við hreinustu ritskoð- un. Og það verstu teg- und ritskoðunar. Sjálfsritskoðun. Það ætti vitaskuld að sæta tíðindum þeg- ar einn af virtustu hæstaréttarlögmönnum Þorgeir Þorgeirson þess að umhverfi dómsmála hérlendis sé ekki frambærilegur vinnustaður. Þá finnst manni að einhver ætti að sperra eyrun, ein- hver ætti jafnvel að svara og stofna til málefnalegrar um- ræðu. Fjölmiðlar ættu að telja það skyldu sína að gera sem ná- kvæmasta grein fyrir forsendum lögmanns- ins og fyrirliggjandi skjölum málsins. En þeirrar athygli hefur deila Tómasar Gunn- landsins arssonar við Hæstarétt íslands rís upp og tilkynnir að hann sé ekki notið, heldur er hann með- hættur málflutningsstörfum vegna höndlaður eins cg hávaðasamt brekabarn á heimili sjúklings, sem umfram allt verður að fá að sofa. Umhyggja fjölmiðlanna fyrir þögninni er hreint með ólíkindum. En það versta er að hún vekur enga furðu - nema síður sé - og hjá fréttastofu Ríkisútvarpsins; þar sem gerð var nokkuð heiðarleg til- raun til að greina hlutlaust frá málinu mun nú liggja ádrepa frá förseta Hæstaréttar vegna þess fréttaflutnings, merkt trúnaðar- mál. Um þetta má enginn vita nema innvígðir meðlimir þagnargildisins. - Heimilisböl, þyngra en tárum taki, sagði biskupinn forðum. Og Lögmannafélagið er þögult eins og borðtuska. Höfundur er rithöfundur. - kjarni málvinv! SUÐURLANDSBRAUT 16 • SÍMI 880 500
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.