Morgunblaðið - 14.05.1994, Blaðsíða 44
44 LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Dýraglens
( Þé TTA HL1ÓTA AÐ
H&M J
v/e efö )
HViuie TÍMA~ Yhon 1
SÓOHJ J——( U3ÚF,
■—v----' yiHHÆG
Ferdinand
V£5, MAAM.. UJE U)ANT
TO BUV A NEW 006
DI5H FOR MY 006..
METAL OR PLA5TIC?
RED? YELLOU)? BLOE?
6EE, I DON'T KNOLO...
U)HAT KINP OF DI5H DO
YOU THINK YOU U)ANT?
-------zc
Já, frú ... okkur langar
að kaupa nýjan hundsdall
handa hundinum mín-
Málm eða plast? Rauðan? Gul-
an? Bláan? Vá, ég veit ekki...
Hvers konar dall heldurðu
að þú viljir?
um .
BREF
TIL BLAÐSINS
Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329
Lögreglan, hjólreiða-
fólk og alþjóðlegur
fjölskyldudagur Sam-
einuðu þjóðanna 15. maí
Frá Ómarí Smára Ármannssyni:
í SAMEIGINLEGU umferðarátaki
lögreglunnar á Suðvesturlandi dag-
ana 12.-17. maí nk. verður athygl-
inni sérstaklega beint að umferð
hjólreiðafólks og búnaði þess. Lög-
reglan á svæðinu mun fylgjast með
hjólreiðafólki á þessum tíma með
tilliti til gildandi ufmerðarreglna,
auk þess sem hún mun taka virkan
þátt í hjóladegi ijölskyldunnar á
alþjóðlegum íjölskyldudegi Samein-
uðu þjóðanna sunnudaginn 15. maí.
í umferðarlögunum er kveðið á
um, auk almennra ákvæða um
umferð, sérstakar umferðarreglur
fyrir hjólreiðafólk. Fólk er hvatt til
þess að kynna sér þessar reglur og
tileinka sér þær svo skapa megi hér
betri umgengni á þessu sviði um-
ferðarmálanna. Líklegt má telja að
því fleiri sem það gera því minni
líkur á slysum.
Athygli er vakin á því að skv.
umferðarlögum má barn yngra en
7 ára ekki hjóla á akbraut nema
undir leiðsögn og eftirliti manns
sem náð hefur 15 ára aldri. Þrátt
fyrir 7 ára aldursmörkin mælir lög-
reglan þó gegn því að börn yngri
en 9-10 ára hjóli einsömul á vegum
þar sem vænta má umferðar vél-
knúinna ökutækja. Þá er rétt að
benda á að óheimilt er að flytja
farþega á reiðhjóli. Þó má hjólreiða-
maður sem orðinn er 15 ára flytja
barn yngra en 7 ára á reiðhjóli,
enda sé barninu ætlað sérstakt
sæti og þannig um búið að því stafi
ekki hætta af hjólteinunum. Val
slíkra „stóla“ þarf ætíð að vanda
og þeir þurfa að vera af viður-
kenndri gerð.
Hjólreiðafólk, sérstaklega það
yngra, ætti alltaf að nota viður-
kennda hjálma. Notkun þeirra getur
komið í veg fyrir meiðsli ef óhapp
verður.
Ávallt þarf að gæta þess að bún-
aður reiðhjólsins sé eins og best
verður á kosið. Þá þarf stærð reið-
hjólsins að henta hveiju sinni svo
viðkomandi geti haft fullt vald á
hjólinu.
Reiðhjólafólki er heimilt að hjóla
á gangstétt og gangstíg, enda valdi
það ekki gangandi vegfarendum
hættu eða óþægindum. Hjólreiða-
fólk á gangstétt eða á gangstíg á
alltaf að víkja fyrir gangandi veg-
farendum. Fremur en að hjóla á
akbrautum þar sem umferð vélknú-
inna ökutækja er veruleg vill lög-
reglan hvetja reiðhjólafólk til þess
að nota ávallt sérstaka reiðhjóla-
stíga, þar sem þeir eru, eða gang-
stéttar og göngustíga þar sem því
verður við komið. Einnig vill hún
hvetja hjólreiðafólk, sem og aðra
vegfarendur, til þess að fara var-
lega og sýna öðrum tillitssemi.
Þannig, og án þess að þurfi að
koma til til verulegs kostnaðar,
geta allir stuðlað að betri og örugg-
ari umferð.
ÓMAR SMÁRIÁRMANNSSON,
aðstoðaryfirlögregluþjónn.
Brostnar vonir
Frá Þórði E. Halldórssyni:
SAMKVÆMT auglýsingum frá
Háskóla íslands hefur „Gullnám-
an“, fjárhættuspil Háskólans greitt
út í vinningum 24. - 29. mars og
30. mars til 6. apríl rúmar níutíu
milljónir. Þessa ugphæð á aðeins
tveimur vikum. Á ársgrundvelli
gerir þetta 2.349.568.832 kr. Þetta
er aðeins einn þriðji af því sem fólk
hefur borgað inní kassana, því sé
greitt til vinningshafa að því að
sagt er um 30% af brúttó innkomu
hlýtur hreinn ágóði að vera sem
næst 5.000.000.000 (fimm milljarð-
ar króna).
Áður en þessir kassar, um 300
að tölu, voru settir upp brugðust
margir hart við og mótmæltu þess-
ari framkvæmd á þeim forsendum
að þarna Væri án efa um fjárhættu-
spil að ræða, enda hefur það áþreif-
anlega sannað sig. Með lögum er
fjárhættuspil bannað á íslandi. Á
Ijölda manna virkar þátttaka í slíku
fjárhættuspili sem argasta eiturlyf.
Margir gerast áhættuþrælar þess-
ara athafna, enda dregur Háskóli
Islands ekki úr ginningarauglýsing-
um um þátttöku í þessari tegund
eiturlyfjaneyslu. Fall „Gullpottsins“
í gær uppá hálfa níundu milljón
króna dregur síst af öllu úr þessu
bjrálæði, enda fylgt vel eftir með
skrautauglýsingu og áróðri af hálfu
Háskólans. Það er hins vegar hvergi
tíunduð talan yfir þá einstaklinga
Margir hafa gerst þrælar
spilafíknarinnar.
sem hafa tapað aleigunni og e.t.v.
lífinu í vímu vonanna um vinninginn
sem aldrei kom. Virðingin fyrir
heiðri Háskóla íslands hefur orðið
úti í fárviðri brostinna vona.
ÞÓRÐUR E. HALLDÓRSSON,
Sólheimum 25,
Reykjavík.