Morgunblaðið - 14.05.1994, Page 47
MORGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 14. MAÍ 1994 47
I DAG
Árnað heilla
jósmyndastofan Nærmynd
HJONABAND. Gefin
voru saman í hjónaband í
Dómkirkjunni 2. apríl sl.
af sr. Jakobi Hjálmarssyni
þau Hrafnhildur Halldórs-
dóttir og Smári Ríkharðs-
son. Heimili þeirra er í
Dalalandi 9, Reykjavík.
Ijósmyndastofan Nærmynd
HJONABAND. Gefin
voru saman í hjónaband í
Árbæjarkirkju 16. apríl sl.
af sr. Sigfinni Þorleifssyni
þau Anna Ingvadóttir og
Einar Hilmarsson. Heimili
þeirra er í Rofabæ 31,
Reykjavík.
Ljósm. - Jóhannes Long
HJÓNABAND. Gefin
voru saman 16. apríl sl.
í Fríkirkjunni af sr. Pálma
Matthíassyni Jóhanna
Lind Jónsdóttir og Þór-
hallur Sverrisson. Heimili
þeirra er í Arahólum 4,
Reykjavík.
Með morgunkaffinu
Þetta var þér líkt. Ég
bað þig að gera við
þvottavélina og þarna
eyðir þú tímanum í að
skemmta þér.
HÖGNIHREKKVÍSI
.þ4KNA FER HANN ... 06 PKsriFlR VOR-EIRÐAi?-
LeYSINU OGLeTlNNI."
Ást er... .
... að mætast á miðri
leið.
TM Roa. U.S Pat Ott.—all rights toservad
«> 1993 Los Angeles Tlmes Syndtcatc
LEIÐRÉTT
Hörpuútgáfan
gaf út bókina
í frétt af láti Hrefnu
Tynes í Morgunblaðinu á
fimmtudag var sagt að
Bandalaga íslenskra skáta
hafi gefið út bókina
„Tendruð ljós“. Það er
ekki rétt, því að útgefand-
inn var Bragi Þórðarson í
Hörpuútgáfunni á Akra-
nesi. Beðist er velvirðingar
á þessu.
Missögn í við-
tali við Arna
Kristjánsson
Kristján Árnason fékk
verslun sína, Eyjafjörð,
hjá Magnúsi Sigurðssyni á
Grund þegar Olafur Ey-
jólfsson, tengdasonur
Magnúsar, flutti suður til
Reykjavíkur ásamt konu
sinni Jónínu Ragnheiði, en
þar tók hann við skólastjó-
rastöðu við Verslunar-
skóla Reykjavíkur árið
1905. Ólafur lést árið
1938 en Jónína lifði mann
sinn um tæpan áratug en
lést ekki langt á undan
honum eins og missagt var
í viðtalinu, sl. sunnudag.
Refsað fyrir að
afhenda kerr-
urnar
Missagt var í frétt
Morgunblaðsins á laugar-
dag af dómi í máli Erlings
Óskarssonar, fyrrum
sýslumanns á Siglufirði,
að hann hefði verið sýkn-
aður af öllum sakargiftum
sem sneru að innflutningi
á hestskerrum og reiðtygj-
um. Rétt er að sýslumað-
urinn var sakfelldur fyrir
brot í opinberu starfi í einu
ariði, sem að þessu sneri,
en þar var um að ræða
afhendingu til innflytj-
anda á tveimur kerrum
áður en aðflutningsskýrsla
hafði verið gerð eða lög-
boðin innflutningsgjöid af
þeim greidd.
Velta Essemm
án birtingar
1 umfjöllun viðskipta-
blaðs sl. fimmtudag um
auglýsingamarkaðinn var
birt tafla yfir veltu stofa
innan Samtaka íslenskra
auglýsingastofa undan-
farin ár. Þar láðist að geta
þess að velta auglýsinga-
stofunnar Essemm er sýnd
án birtingakostpaðar hjá
fjölmiðlum árin 1991,
1992 og 1993, en hjá öðr-
um SÍA stofum var þessi
kostnaður meðtalinn í
veltunni.
skák
bmsjón Margeir
I’étursson
Þessi staða kom upp í stór-
mótinu í Linares í mars í við-
ureign ungu stigaháu stór-
meistaranna Veselins Top-
alov (2.640), Búlgaríu, sem
hafði hvítt og átti leik, og
Vladímirs Kramnik (2.710).
Eitt af því fáa sem Gary
Kasparov, heimsmeistari
PCÁ, og Anatólí Karpov,
heimsmeistari FIDE, virðast
vera sammála um, er að
Kramnik sé líklegastur til að
verða ai-ftaki þeirra. En hon-
um eru stundum mislagðar
hendur. Hér var hann að enda
við að leika tapleiknum 28. -
Ile8-c8. Hann hafði aðeins
reiknað þrjá leiki fram í tím-
ann eins og Topalov var fljót-
ur að sýna fram á: 29. Rxd6!
- Rxd5 (Með tvöfaldri hótun
-- 30. - Rxf4+ og 30. -
Dxd6 - en Búlgarinn hafði
reiknað lengra:) 30. Rxc8! -
Rxf4+, 31. Kfl (Nú rann upp
ljós fyrir Kramnik. Eftir 31.
- Rxe2 leikur hvítur auðvitað
32. Re7+ sem vinnur drottn-
inguna til baka og hefur hirt
hrók i leiðinni.) 31. - Df6,
32. Re7+! - Kh8, 33. Ddl
og með heilum hrók undir
gafst Kramnik fljótlega upp.
STJÖRNUSPÁ
eftir Frances Drake
*
NAUT
Afmælisbarn dagsins: Þú vilt
fá að njóta frjálsræðis og fara
eigin leiðir en ekki að binda þig.
Hrútur
(21.mars-19. apríl) 9*
Góðar fréttir af fjármálum
varða alla fjölskylduna. Þótt
þér bjóðist áhugavert starf
þarft þú að fara að öllu með
gát.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Sumir eru að undirbúa óvenju-
legt ferðalag. Þú hefðir gaman
af að fara með ástvini í heim-
sókn til góðra vina.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Ilafðu augun opin fyrir nýjum
tækifærum sem kynnu að
bjóðast í dag. Fjármál og vin-
átta fara ekki alltaf vel saman.
Krabbi
(21. júní — 22. júlí) H8B
Þú færð tækifæri til að
skemmta þér vel í dag, og
góðar fréttir berast frá barni.
Varastu óþarfa eyðslu í kvöld.
Ljón
(23.júlí-22.ágúst) <ef
Sumir eru að íhuga að skipta
um vinnu. Pjölskyldumálin
þróast til betri vegar. Njóttu
kvöldsins heima með ástvini.
Meyja
(23. ágúst - 22. september)
Ástvinir eiga saman góðan
dag og skemmta sér vel. Þeg-
ar kvölda tekur ættir þú að
reyna að fara sparlega með
peninga.
LÖGGARÐUR HF.
Frá 1. maí 1994hefur Lára V. Júlíusdóttir, hdlM
gengið til samstarfs við lögmenn Löggarðs hf.
Löggarður hf.,
Kringlunni 6, Reykjavík.
Sími 681636.
Brynjólfur Eyvindsson, hdl.
Guðni Á. Haraldsson, hrl.
Benedikt Sigurðsson, hdl.
Lára V. Júlíusdóttir, hdl.
Við bjóðum öllum vinum Kolaportsins til *
sérstakra hátíðarhalda þessa síðustu helgi
Kolaportsins í gömlu bílageymslunni, þar sem
seljendur og starfsfólk munu fara á kostum.
Á sunnudaginn kl. 16 efnum við til sérstakrar
athafnar þegar andrúmsloftinu á gamla
staðnum verður tappað á flösku, ryki safnað í
poka og nágrönnum okkar í Arnarhólnum,
huldufólki, álfum og öðrum góðum vættum,
boðið að flytja með á nýja staðinn t mikilli
skrúðgöngu sem vonast er til að sem flestir
velunnarar Kolaportsins muni taka þátt í. «
Fjölmennið í góöa, gamla Kolaportið
og takið þátt í skrúðgöngunni
á sunnudag kl. 16!
KOLAPORTIÐ
MARKAÐSTORG
Opið laugardag og sunnudag kl 10-16
Vog
(23. sept. - 22. október)
Þú gætir þurft að vinna auka-
lega í dag til að tryggja þér
frama í starfi. Sumum berst
góð gjöf frá foreldri.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóvember)
Þú hefðir gaman af að skreppa
í ferðalag eða líta.inn til góðra
vina í dag. Sumir eru í trúlof-
unarhugleiðingum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. desember) m
Þú leysir áríðandi verkefni
heima í dag, og þér gefst tæki-
færi til að bæta afkomuna.
Eyddu samt ekki of miklu í
kvöld.
Steingeit
(22. des. - 19.janúar)
Stattu við loforð sem þú hefur
gefið ættingja. Dagurinn er
sérlega hliðhollur elskendum
og ástarsamband styrkist.
Vatnsberi
(20. janúar - 18. febrúar) ðh
Þú setur þér það markmið að
bæta stöðu þína í vinnunni.
Ofurkapp getur leitt til rangra
ályktana þegar kvöldar.
Fiskar
(19. febrúar - 20. mars) iSí
Þú tengist nýjum vinaböndum
í dag vegna starfa í félaga-
samtökum. Þú liefur ástæðu
til að fagna í kvöld með góðum
vinum.
Stjörnuspóna ó aö lesa setn
dægradvöl. Sþdr af þessu tagi
byggjast ekki d traustum
grunni visindalegra staö-
reynda.
TJALDVAGNASYNING
um helgina
Tjaldvagninn sem kemur á óvart
Verð aðeins 299.000 kr.
Hefur marga
kosti sem aðrir
vagnar hafa ekki
Auðveldur í
uppsetningu,
hlýr, notalegur
og hlaðinn
aukahlutum
INESCA tjaldvagninn sá ódýrasti - Gerið verðsamanburð
DRÁTTARBEISLI - KERRUR
ÍSLENSKT, JÁ TAKK!
Allir hlutir til
kerrusmíða.
Allar gerðir
af kerrum
og vögnum.
Dráttarbeisli
á allar gerðir
bíla.
Gerið
verðsamanburð. / Víkur Vagnar
Póstsendum KERRUSALURINN
Opið alla \ Síðumúla 18-108 Reykjavík
laugardaga w sími 684911 - Fax 684916