Morgunblaðið - 27.05.1994, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 27.05.1994, Qupperneq 2
2 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994____________________________ FRÉTTIR Ríkisskattstjóri segir að bankar eigi að gefa kvittun fyrir þjónustugjöldum Skuldfær slulína á yfirliti ekki nóg BRYNJÓLFUR Helgason, aðstoðarbankastjóri Landsbankans, segir að bankamir verði að fá nánari útskýringu ríkisskattstjóra á þeirri afstöðu hans að skuldafærslulína á yfirlit reikningseigenda sé ekki nægileg kvittun fyrir greiðslu útskriftar- og þjónustugjalda. Ríkis- skattsjóri hefur útskurðað, að beiðni Neytendafélags Akureyrar og nágrennis, að bönkunum beri að gefa út fullgilda reikninga fyrir gjöldunum. Brynjólfur bendir einnig á að greiðslukortafyrirtæki hafí innheimt útskriftargjald í mörg ár með þessum hætti. „Greiðslukortafyrirtækin hafa verið með gjaldtöku vegna út- skriftargjalds mánaðarlega í nokk- ur ár,“ segir Brynjólfur.-„Það hef- ur ekki verið gefin út nein önnur kvittun fyrir því en kemur fram á yfírlitinu. Ég veit ekki til að það hafí verið gerð athugasemd við það.“ Hann segir að fyrst Og fremst sé um að ræða 45 krónu út- skriftargjald sem sé innheimt með svipuðu fyrirkomulagi hjá öllum bönkum og sparisjóðum. Því búist hann við því að þessir aðilar skoði málið í' sameiningu. Hvað telst nægjanlegt? Brynjólfur segir að spurningin sé hvað sé nægjanleg kvittun fyr- ir gjöldin, hvort það sé nóg að bæta við viðbótarupplýsingum á yfirlitið eða hvort gefa þurfi sér- staka kvittun. Hann segir að sú lausn sé hvorki þægileg né hagkvæm í notkun fyrir nokkum mann. Bankaþjón- ustan sé smám saman að verða sjálfvirkari og tæknitengdari og því geti verið að menn þurfi að huga að því hvað teljist fullnægj- andi skjöl fyrir bókhald og annað. „Það þarf að skoða þetta strax og reyna að fá einhveija skynsam- lega lausn,“ segir hann. „Það er ekki mjög sniðugt ef bankarnir þurfa að gefa kvittun fyrir hverri einustu skuldfærslu." ■ Bankarnir stunda/14 Sjálfstæðisflokkur kvartar undan Rás 2 Vill svara „rógburði“ Sj álfstæðisflokkurinn fór þess á leit í gær við útvarpsstjóra og for- mann útvarpsráðs að fá til umráða 20 mínútur til að útvarpa málflutn- ingi sínum á Rás 2 eigi síðar en í fyrramálið. Ástæða þess er sú að sögn Kjart- ans Gunnarssonar, framkvæmda- stjóra flokksins, að Illugi Jökulsson flutti óslitinn róg um forystu Sjálf- stæðisflokksins í Reykjavík og óslitnar árásir á borgarstjórann í 20 mínútna föstum pistli sinum á Rás 2 í gærmorgun. Auk þess hefði Illugi flutt sérstaka hvatningu til borgarbúa um að kjósa ekki Sjálf- stæðisflokkinn heldur R-listann. „Við höfum óskað eftir því við þessa forráðamenn Ríkisútvarpsins að okkur verði tryggður jafn og sambærilegur aðgangur að dag- skrá útvarps ríkisins á Rás 2 ekki seinna en á laugardagsmorguninn til þess að flytja erindi af þessu tagi. Okkur hefur ekki ennþá bor- ist svar við þessu sagði Kjartan í samtali við Morgunblaðið síðdegis í gær. Ekki tókst að ná í Heimi Steins- son, útvarpsstjóra, í gærkvöldi. ■ Útskriftir/12 Morgunblaðið/Kristinn 204 MR-stúdentar NÝSTÚDENTAR, 204 að tölu, voru útskrifaðir frá Menntaskólanum í Reykjavík í Háskólabíói í gærdag og lauk þar með 148. starfsári skólans. Dúx í árganginum varð Styrmir Sigurjónsson í 6. X, eðlisfræðideild I, með 9,08 í meðaleinkunn. Semidúx varð Brynhildur Thors í 6. S, náttúrufræðideild I, með 9,01 í meðaleinkunn. Við athöfnina flutti rektor, Guðni Guðmundsson, ávarp og afhenti prófskírteini. Einnig mæltu fulltrúar 25 og 40 ára afmælisárganga fyrir hönd skólasystkina sinna og gerðu grein fyrir gjöfum. Gaf sá fyrrnefndi skólanum faxtæki og varð rektor þá að orði að verið væri að hrekja sig með valdi af bréfdúfustiginu. Einnig má geta þess að tveir nemendur til viðbótar fengu ágætiseinkunn og eru þrír af fjórum nemendum skólans sem hæstar ein- kunnir hlutu búsettir á Seltjarnamesi. MORGUNBLAÐIÐ Hæstiréttur > Sjómenn sýknir af ísbjarn- I ardrápi 1 HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær sýknudóm Héraðsdóms Vestfjarða yfir skipveijum á Guðnýju ÍS, sem ákærðir höfðu verið fyrir að bijóta dýravemdunarlög með því að beita v ólögmætum aðferðum við að aflífa * ísbjörn sem skipveijamir fönguðu f og drápu með því að bregða nælon- | tógi um háls hans og hengja hann. Skipveijarnir voru við veiðar um 67 sjómílur norður af Horni í júní sl. sumar þegar þeir urðu varir við ísbjörn á sundi. Þeir kváðust hafa ætlað að fanga dýrið og færa lif- andi til hafnar. í ákæru var mönnunum ekki gefið að sök að hafa brotið lög með því að fanga ísbjöminn og deyða hann heldur fýrir fyrr- J greinda aðferð sem þeir beittu og ákæruvaldið taldi bijóta gegn ákvæðum dýraverndunarlaga. Eins og Héraðsdómur lögðu tveir þriggja hæstaréttardómara til grundvallar þann framburð skipveijanna að þeir hafi ætlað að færa ísbjörninn lifandi til hafnar og hafi ætlað að ná dýrinu um borð í skipið en ekki hengja það. „í málinu nýtur hvorki gagna um áverka á dýrinu né skýrslu um krafningu þess. Ekki hefur verið sýnt fram á að ákærðu hafi með aðferðum sínum valdið ísbiminum meiri þjáningum en efni voru til. Þá verður eigi talið að þeir hafi hlotið að sjá það fyrir að tilætlun þeirra myndi ekki takast,“ segir í dómi Péturs Kr. Hafstein og Ingi- bjargar Benediktsdóttur hæsta- réttardómara, sem sýknuðu skip- veijana. Þriðji dómarinn, Hjörtur Torfason, skilaði sératkvæði og vildi sakfella en fresta skilorðs- bundið ákvörðun refsingar. Niðurstaðan skoðuð ÞÓRÐUR S. Gunnarsson hrl. og séra Geir G. Waage kynna sér niðurstöður Héraðsdóms Ingibjörg Sólrún í sjónvarpskappræðum R-listinn er vinstri flokkur LEIÐTOGAR beggja framboðslistanna í borgarstjórnarkosningunum skipt- ust á skoðunum í sjónvarpskappræðum sem Stöð 2 stóð fyrir í gærkvöldi. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir sagði þar að hægt væri að skilgreina R-listann sem vinstri flokk ef félagshyggja og kvennapólitík væru vinstra megin. Héraðsdómur Reykjavíkur Ríkið sýkn- að af kröf- um Geirs Waage HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur sýknaði í gær fjármálaráðherra fyrir hönd ríkissjóðs af kröfum Geirs G. Waage, sóknarprests í Reykholti og formanns Prestafélags íslands, sem krafðist þess að sér yrðu greiddar þær kjarabætur sem kjaradómur ákvað prestum með úrskurði í júní 1992 en sá úrskurður var afnuminn með bráðabirgðalögum, sem Geir taldi að ekki hefðu verið sett með réttum stjómskipulegum hætti þar sem enga brýna nauðsyn hefði borið til lagasetningarinnar. Geir G. Waage sagði eftir dómsuppkvaðn- ingu í gær að hann væri ósáttur við forsendur dómsins en mundi taka ákvörðun um áfrýjun að höfðu sam- ráði við félaga sína í Prestafélaginu. í niðurstöðum dómsins segir að dómurinn telji sig hafa úrskurðar- vald um hvort bráðabirgalögin hafi samrýmst ákvæðum 28. greinar stjómarskrárinnar og hvort brýna nauðsyn hafi borið til setningar þeirra. Síðan er rakið það uppnám sem úrskurður Kjaradóms hafi vald- ið í þjóðfélaginu og sagt að veruleg- ur hluti almennrar löggjafar byggi á því að hvaða stjómmálalegu mark- miðum stefnt sé að hveiju sinni og mat á nauðsyn útgáfu bráðabirgða- laga sé á sama hátt háð stjómmála- legum tilgangi bráðabirgðalöggjaf- ans. Álit dómsins er að ekki hafi ver- ið sýnt fram á að mat bráðabirgða- löggjafans hafí verið rangt þannig að valdi ógildingu laganna og að ekki hafi verið sannað að lögin hafi að geyma ólögmæti gagnvart Geir. Kröfur Geirs vora um 552 þúsund krónur, sem er upphæð þeirra kjara- bóta sem hann varð af frá seinni úrskurði Kjaradóms og fram að út- gáfu stefnu í október sl. Dóminn kvað upp Sigurmar K. Albertsson, setudómari, sem skip- aður var í kjölfar þess að allir héraðs- dómarar í Reykjavík lýstu sig van- hæfa til að fjalla um málið þar sem úrslit þess gætu varðað hagsmuni þeirra. Meðdómendur Sigurmars vora hæstaréttarlögmennimir Andri Ámason og Jóhann H. Níelsson. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borg- arstjóraefni R-listans sagði að á kjör- tímabilinu hefði glundroði og smá- kóngaveldi einkennt stjórnarfar Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík. Þrír borgarstjórar hefðu stýrt borginni og í mikilvægum málefnum hefði flokkurinn skipt um skoðun. Hins vegar hefði fólk úr mörgum áttum sameinast um borgarstjóraefni R- listans og það gengi þvert á allt tal um glundroða. Árni Sigfússon borgarstjóri sagði að Sjálfstæðisflokkurinn hefði staðið við þau loforð sem gefin voru fyrir kjörtímabilið og markið hefði verið sett hátt fyrir Reykjavík næsta kjör- tímabil, meðal annars í atvinnumál- um. Hann sagði aðra stjórnmála- flokka hafa bundist samtökum um að bjóða fram gegn Sjálfstæðis- flokknum og þeir vildu hefja sam- starfstilraun. Vandinn er sá að Reyk- víkingar væru tilraunadýrið og siíkar tilraunir væru alltaf að mistakast. Ingibjörg Sólrún svaraði spum- ingu um hvar Reykjavíkurlistinn væri í hinu pólitíska litrófí þannig, að ef félagshyggja og kvennapólitík teldist til vinstri þá væri listinn vinstri flokkur. Arni Sigfússon sagðist alltaf hafa haft þá skoðun á einkavæðingu að þar sem ekki væri samkeppni ætti ekki að einkavæða. Hann sagðist hafa efasemdir um einkavæðingu Strætisvagna Reykjavíkur og vera kynni að þar hefði verið farið of geyst í sakimar af núverandi borgar- stjómarmeirihluta. Viðhorfskönnun Á meðan kappræðunum stóð var efnt til viðhorfskönnunar meðal áhorfenda sem ÍM Gallup hafði valið sérstaklega. 86 þátttakendur voru spurðir hvor frambjóðandinn hefði staðið sig betur og síðan beðnir að gefa frambjóðendunum einkunn- Vegin niðurstaða úr fyrri spuming- unni var sú að 48% töldu Ingibjörgu Sólrúnu hafa staðið sig betur en 38,1% töldu Árna hafa staðið sig betur. 13,9% töldu frammistöðu þeirra svipaða. Þá gáfu áhorfendurn- ir Ingibjörgu Sólrúnu einkunnina 7,6 af 10 mögulegum fyrir sína frammi- stöðu en Áma einkunnina 7,4. Því var lýst yfir af forsvarsmönnum ÍM Gallup að munurinn væri ekki mark- tækur tölfræðilega.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.