Morgunblaðið - 27.05.1994, Page 10
10 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Kópavogur
Sigurður í BYKO — Sigurður Geirdal bæjarstjóri
og efsti maður á lista Framsóknarflokksins; t.h., heilsaði
upp á starfsfólk BYKO í fylgd Halldórs Asgrímssonar,
formanns Framsóknarflokksins, og fleiri frambjóðenda.
Málstaðurinn
kynntur
EFSTU menn á framboðslistunum fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingamar í Kópavogi hafa ásamt öðrum frambjóðendum ver-
ið á ferð um bæinn upp á síðkastið og heilsað upp á fólk á
vinnustöðum og við önnur tækifæri. Líkt og annars staðar
á landinu kjósa frambjóðendurnir að hitta kjósendur augliti
til auglitis og kynna þeim málstað sinn og helstu baráttu-
mál og jafnframt skiptast á skoðunum við þá um málefni
bæjarfélagsins í fortíð og framtíð. Á myndunum sjást oddvit-
ar flokkanna ræða við fólk á vinnustöðum sem þeir heim-
sóttu í vikunni.
Morgunblaðið/Kristinn
Sigrún í Sunnuhlíð — Sigrún Jónsdóttir sem skip-
ar 2. sæti á framboðslista Kvennalistans heimsótti og
ræddi við starfsfólk og íbúa í Sunnuhlíð, og á myndinni
sést hún dreifa stefnuskrá frambjóðenda flokksins.
Morgunblaðið/Bjami
Valþór í BYKO — Valþór Hlöðversson efsti maður
á lista Alþýðubandalagsins í Kópavogi heimsótti starfs-
menn í timburafgreiðslu BYKO og kynnti þeim stefnu
og markmið alþýðubandalagsmanna í bæjarmálefnunum.
Morgunblaðið/Bjarni
Guðmundur í áhaldahúsi - Guðmundur Odds-
son sem skipar 1. sæti á framboðslista Alþýðuflokksins
í Kópavogi skiptist á skoðunum við starfsmenn bæjarins
í matartíma í áhaldahúsinu.
Morgunblaðið/Bjami
Gunnar á Gjábakka — Gunnar Birgisson efsti
maður á framboðslista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi
heimsótti félagsmiðstöð aldraðra, Gjábakka, og skiptist
á skoðunum um málefni bæjarfélagsins við gesti þar.
Morgunblaðið/Kristinn
„VIÐ erum bara að leika. Stundum suilast. En það fer strax,“ sagði Sigurgeir, 4 ára (t.h.), á Engja-
borg. Með honum eru Selma Dögg, 2 ára, og Bjarni Þór, 4 ára, í miðjunni.
Ævar, 4 ára, og Ragnar, 3
ára, voru í óða önn að byggja
nýstárlegan turn þegar komið
var í Rauðaborg við Viðarás.
Sólarleikir
bamanna
AÐALSTEINN, Ársæll, Axel og Daníel voru sammála um að
rennikastalinn væri „bestur“.
ÓLÍKT þorra fullorðinna hefur
ungu kynslóðinni gefist gott
tækifæri til að njóta veðurblíð-
unnar frá því um helgi. Boltar,
skóflur, fötur og sippubönd
hafa verið tekin til handargagns
og óhætt að segja að líf og fjör
hafi ríkt við tvo nýja ieikskóla
borgarinnar í gær.
Oll starfsemi Engjaborgar
við Reyrengi hafði færst út í
veðurblíðuna þegar þangað var
komið uppúr hádegi í gær. Leik-
skólakennarar og starfsmenn
nutu sólarinnar um leið og þeir
aðstoðuðu og höfðu auga með
litla fólkinu allt um kring. Mik-
ið var sullað, klifrað, hlaupið,
mokað og rólað og fáir gáfu sér
tíma til að líta upp. Vinsælastur
var rennikastalinn eða svo
nefndu þeir Aðalsteinn, Ársæll,
Axel og Daníel stóran leikkast-
ala í einu horni lóðarinnar.
Strákarnir eru á aldrinum
tveggja til fjögurra ára, en tek-
ið er á móti börnum á aldrinum
eins til sex ára. Leikskólinn tók
til starfa í byijun mars og er
gert ráð fyrir að í honum verði
um 105 börn í fjögurra, fimm,
sex og átta tíma vist. Ekki eru
allir komnir í fulla vist enn og
eru 3 til 4 börn í aðlögun í leik-
skólanum á hverjum degi um
þessar mundir.
í Rauðaborg við Viðarás
höfðu nokkrir krakkar valið
inniveru og gerðu sér ýmislegt
til dundurs. Þijár stelpur voru
að föndra með dyggri aðstoð
starfsmanns og jafn margir
strákar voru að byggja úr kubb-
um. Einhveijir höfðu líka valið
að busla í einu horni sameigin-
legs rýmis í miðju húsinu.
Ásta Bima Stefánsdóttir, leik-
skólastjóri, sagði að vel hefði
gengið að koma starfseminni af
stað og bömin þrifust nyög vel.
Fyrstu bömin voru tekin inn í
leikskólann 21. febrúar og smám
saman hefur verið að bætast í
hópinn eins og í Engjaborg. Nú
em börnin í leikskólanum orðin
70 til 80 og verða væntanlega
93 í framtíðinni. Tvær deildir
em fyrir þriggja til sex ára böra.
Vegna langra biðlista ungra
barna hefur líka verið tekið á
móti nokkmm tveggja ára börn-
um.
Lögmannafélagið
Réttar-
öryggií
hættu?
STJÓRN Lögmannafélags ís-
lands hefur skorað á dómsmála-
ráðherra að skipa nefnd til að
kanna dóma héraðsdómstóla og
Hæstaréttar í því skyni að meta
hvort þau markmið um réttarör-
yggi sem að var stefnt með gild-
istöku nýrra laga um meðferð
opinberra mála hafi náðst en
nokkrir nýlegir dómar veki upp
spurningar um hvort réttarör-
yggi sé stefnt í hættu.
I greinargerð með ályktuninni
er sérstaklega vikið að dómi
Hæstaréttar frá 19. apríl þar
sem komist var að þeirri niður-
stöðu að lögin heimiluðu að úti-
loka ákærðan mann frá að vera
viðstadur yfirheyrslur í eigin
máli og þar með til að spyija
sjálfur vitni í málinu.
Stjórn LMFÍ telur að með
þessu kunni réttaröryggi að vera
stefnt í hættu og sé nauðsynlegt
að grípa til löggjafaraðgerða
þegar í stað til að aflétta því
óvissuástandi sem til hafí verið
stofnað.
Kaldur vetur
HITASTIG á landinu í vetur var
heilli gráðu kaldara í vetur en í
meðalári. Hiti var mjög svipaður
og veturinn 1988-89.
Hiti á Akureyri í desember til
mars var -2,2° sem er tæpri lo
undir meðalhitá. Hiti í Reykjavík
var -1,2° sem er rúmri gráðu
undir meðallagi. Desember og
janúar voru kaldir en febrúar
var hins vegar hlýr. Mars var
óvenju kaldur og olli mestu um
að meðalhiti í vetur er svona
lágur.