Morgunblaðið - 27.05.1994, Side 12
12 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ÚTSKRIFTIR
Menntaskólinn við Sund
Aldar fj ór ðungnr að baki
MENNTASKÓLANUM við
Sund var slitið laugardaginn
21. maí í Háskólabíói og
voru brautskráðir 170 stúd-
entar.
Dúx skólans var Ingibjörg
Magnúsdóttir sem var með
9,06 í meðaleinkunn en með
þessari útskrift lauk 25.
starfsári skólans. Flutt voru
ávörp og einnig söng kór
skólans og stýrði fjöldasöng.
Fram kom að veturinn hefði
einkennst af líflegu starfi
sem hæst bar á afmælishátíð
skólans 3.-7. mars. Einnig
var opið hús 5. mars og er
talið að á fjórða þúsund
gesta hafi sótt skólann heim.
Einnig voru reyndar ýmsar
nýjungar í skólastarfi og er
þess vænst að þær muni efla
starfsemina á komandi
árum.
„ Morgunblaðið/Jón Svavarsson
LANGÞRÁÐU takmarki náð.
Morgunblaðið/Bjöm Blöndal
STÆRSTI hópurinn sem brautskráðist frá Fjölbrautaskóla Suðurnesja á vorönn
voru stúdentar og er myndin tekin þegar þeim hafði verið veitt heimild að setja
upp hvítu kollana.
Fjölbrautaskóli Suðurnesja
Utskrift líkt við
landnám kríunnar
Keflavík - Fjölbrautaskóla
Suðurnesja var slitið við
hátíðlega athöfn á sal skól-
ans laugardaginn 21. maí
að viðstöddu fjölmenni. Að
þessu sinni voru 77 nemend-
ur brautskráðir, þar af voru
40 stúdentar, 28 af tækni-
sviði, 4 meistarar, 3 af
tveggja ára bóknámsbraut
og tveir í sjávarútvegi. Auk
þess voru 3 skiptinemar í
skólanum í vetur. Flest
verðlaun fyrir góðan náms-
árangur hlaut Magnús
Konráðsson og hlaut hann
ásamt Starkaði Barkarsyni
peningaverðlaun frá Lið-
veislu Sparisjóðsins í Kefla-
vík fyrir góðan árangur í
námi.
Fram kom í máli Hjálm-
ars Ámasonar skólameist-
ara við þetta tækifæri að
fjöldi brautskráðra væri
með mesta móti að þessu
sinni. Skólinn væri nú að
ljúka sínu 18. starfsári og
hefði brautskráð 1.945 nem-
endur. í ávarpi sínu til
brautskráðra fjallaði skóla-
meistari um flug kríunnar
yfir hafið og líkti útskrift
nemenda við landnám
kríunnar á vorin. Skóla-
meistari lagði áherslu á að
bera djúpa lotningu fyrir líf-
inu sjálfu, einstaklingum
þess, hópum og umhverfi.
Gildi menntunar fælist í að
rækta þau gildi.
í skólanum á vorönn voru
675 nemendur í dagskóla
og 99 í öldungadeild. Auk
þess voru ýmis námskeið
haldin í skólanum og með
bættum húsakosti hefur
hann einnig verið nýttur til
ráðstefnuhalds í auknum
mæli. Kennarar í fullu starfi
á önninni voru 44.
Fjölbrautaskólinn
við Ármúla
Menntaskólinn að Laugarvatni
50 stúdentar
og 33 með
starfsréttindi
SKÓLASLIT Fjölbrauta-
skólans í Ármúla voru síð-
astliðinn laugardag í Lang-
holtskirkju. Brautskráðir
voru 83 nemendur, þar af
50 stúdentar. Alls luku 33
starfsréttindaprófi. Bestum
árangri náði Salvör Þórs-
dóttir.
Einnig luku námi fjórir
lyfjatæknar, átta aðstoðar-
menn tannlækna og níu
sjúkraliðar, og tólf sjúkra-
liðar luku framhaldsnámi.
Stúdentar skiptast þannig á
brautir að einn lauk námi
af nýmálabraut, fjórir af
íþróttabraut, átta af nátt-
úrufræðibraut, tíu af hag-
fræðibraut og 26 af félags-
og sálfræðibraut. Dúx skól-
ans var Salvör Þórsdóttir
sem einnig hlaut verðlaun
fyrir bestu kunnáttu í ís-
lensku. Athöfninni lauk með
því að allir nemendur sungu
Island ögrum skorið.
Hæsta einkunn í sögu skólans
Morgunblaðið/Kári Jónsson
HÓPUR nýstúdenta sem brautskráðist frá Menntaskólanum að Laugarvatni laug-
ardaginn 21. maí, alls 40 manns, ásamt Kristni Kristmundssyni, skólameistara.
Laugarvatni - Fjörutíu ný-
stúdentar voru brautskráðir
frá Menntaskólanum að
Laugarvatni á laugardaginn
var. Hæstu einkunn á stúd-
entsprófi og yfir skólann all-
an, 9,61, hlaut Einar Sig-
marsson frá Sauðhúsvelli,
V-Skaftafellssýslu. Næst-
hæstu einkunn fékk Ingibjörg
Helgadóttir á Laugarvatni,
9,24.
Óvenju stór hópur nemenda
útskrifaðist frá ML að þessu
sinni eða 40 talsins. í máli
skólameistara, Kristins Krist-
mundssonar, kom fram að
námsárangur við skólann
hefði verið nokkuð góður þeg-
ar á heildina væri litið og í
nokkrum tilfellum framúr-
skarandi.
Flensborgarskólinn í Hafnarfirði
NÝSTÚDENTARNIR 42 frá Flensborg.
Fjörutíu
og tveir
braut-
skráðir
SKÓLASLIT Flensborgar-
skóla voru föstudaginn 20.
maí síðastliðinn í Víðistaða-
kirkju í Hafnarfirði. Alls
voru 42 nemendur braut-
skráðir.
Bestum námsárangri
náði Elísabet Óladóttir, sem
brautskráðist af náttúru-
fræðibraut. Annars braut-
skráðust 19 af félagsfræði-
braut, 12 af hagfræðibraut,
6 af náttúrufræðibraut, 5
af málabraut, 1 af eðlis-
fræðibraut og 1 af íþrótta-
braut. Tveir bráutskráðust
af tveimur brautum í senn,
annar af eðlisfræði- og nátt-
úrufræðibraut og hinn af
hagfræði- og málabraut.
Kristján Bersi Ólafsson
skólameistari afhenti próf-
skírteini og bækur fyrir
góðan námsárangur. Einnig
var flutt ávarp fyrir hönd
50 ára gagnfræðinga og
skólanum færð peningagjöf
til bókakaupa. Loks söng
Kór Flensborgarskólans við
athöfnina undir stjórn Þór-
unnar Guðmundsdóttur.
Einar Sigmarsson hlaut
hæstu einkunn í sögu skólans
á stúdentsprófi, 9,61. Það
hefur gerst einu sinni áður
að nemandi hafi fengið svo
háa einkunn á stúdentsprófi
við ML, það var 1968.
Tvö hundruð og tveir nem-
endur stunduðu nám við ML
í vetur, nokkru fleiri en áður
hefur verið. Félagslíf í skólan-
um var blómlegt að vanda,
átti iþróttalífið þar lang-
stærstan hlut, kórstarf er
einnig orðið mjög blómlegt
auk leiklistarinnar.
Við skólaslitin voru flutt
ávörp afmælisárganga, 10, 20,
25, 30 og 40 ára stúdenta frá
ML. En nú eru einmitt rétt
40 ár frá brautskráningu
fýrstu stúdenta skólans. Voru
skólanum færðar gjafir og
árnað heilla í starfi. Kór skól-
ans undir stjórn Hilmars Arnar
Agnarssonar söng nokkur lög
við athöfnina og vakti athygli
gesta sem voru fjölmargir.