Morgunblaðið - 27.05.1994, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994 13
UTSKRIFTIR
DUXAR
Framtíðin
óráðin
SALVOR Þórs-
dóttir varð dúx
í Ármúlaskóla í
nýloknum stúd-
entsprófum en
er ekki búin að
reikna út með-
altal einkunn-
anna ennþá.
„Églagðiámig
töluverða vinnu
en prófin gengu
annars slétt og
fellt. fyrir sig,“
Morgunb./Kristinn
Salvör
Þórsdóttir
segir Salvör sem er óráðin um
framtíðina en er búin að fá vinnu
í sumar hjá Landsvirkjun og
Lyfjaverslun ríkisins.
Erfiðast að
lesa svona
mikið í einu
INGIBJÖRG
Magnúsdóttir
dúxaði á stúd-
entsprófi í
Menntaskólan-
um við Sund í
vor með ein-
kunnina 9,06.
Hún kláraði
skólann á þrem-
ur árum, sem er
óvenjulegt í
bekkjarkerfi.
„Ég býst við að
það hafi verið erfiðast að þurfa
að lesa svona mikið í einu,“ segir
Ingibjörg. Aðspurð segist hún
kvíða fyrir prófum, „en þegar ég
sé að ég kann næstum allt líður
mér betur," segir hún.
Ingibjörg er á leið í útskriftar-
ferð til Benidorm en verður að
vinna hjá Fasteignamati ríkisins í
sumar. Hún ætlar að leggja fyrir
sig nám í kennilegri eðlisfræði
næstu árin en eðlis- og stærðfræði
eru í miklu uppáhaldi.
Morgunb./Kristinn
Ingibjörg
Magnúsdóttir
Menntaskólinn í Kópavogi
Þúsundasti stúdentinn
fékk gjöf
UTSKRIFAÐIR voru 56
nýstúdentar frá Mennta-
skólanum í Kópavogi síð-
astliðinn laugardag. Einnig
brautskráðust sjö nemend-
ur af skrifstofubraut. Þor-
valdur Víðisson, eðlisfræði-
braut, lauk flestum eining-
um og Ragnhildur Frey-
steinsdóttir, náttúrufræði-
braut, hlaut flest verðlaun.
Margrét Friðriksdóttir
skólameistari, sem tók við
því embætti um áramótin,
flutti skólaslitaræðu, af-
henti prófskírteini og þús-
undasta stúdentinum, Kol-
brúnu Þ. Sveinsdóttur, sér-
staka gjöf. Einnig söng
skólakór MK við athöfnina
undir stjórn Skarphéðins
Hjartarsonar og fimm
stúdentum var veitt viður-
kenning frá Köpavogsbæ
fyrir frábæran námsárang-
ur. Auk þeirra sem fyrr 'er
getið fengu verðlaun Hjalti
M. Þórisson, Guðmundur
B. Friðriksson og Bjarni
Þ. Eyvindsson.
ÞÚSUNDASTI stúdentinn, Kolbrún Þ. Sveinsdóttir,
fær viðurkenningu frá skólameistara.
Morgunb./Kári Jónss.
Einar
Sigmarsson
Með 10
í öllum
tungumálum
Laugarvatni -
Einar Sigmars-
son heitir piltur
i máladeild 4.
bekkjar ML sem
stal senunni við
útskrift skólans.
Einar hlaut 9,61
í meðaleinkunn
á stúdentsprófi
sem er jafnt
hæstu einkunn
sem gefin hefur
verið á stúd-
entsprófi við Menntaskólann að
Laugarvatni.
Eins og gefur að skilja sópaði
Einar til sín verðlaunum við út-
skriftina. Hann fékk til að mynda
einkunnina 10 í öllum tungumál-
um sem kennd eru við skólann.
En hvernig næst slíkur árangur?
„Fyrst og fremst með því að leggja
sig allan fram,“ sagði Einar.
Honum eru tungumálin mest
hugleikin og stefnan er sett á HI
næsta vetur í ensku. „Stefnan er
að læra fleiri tungumál í framtíð-
inni.“ Um framtíðarstarf vildi Ein-
ar lítið segja: „Eitthvert húman-
ískt starf, reikna ég með. Kannski
að kennsla í samanburðarmál-
fræði verði mitt fag, en það verð-
ur allt að koma í ljós.“
Einar sagði félagsskapinn góð-
an í skólanum og vel staðið að
uppbyggingu námsins innan skól-
ans, kennslan væri yfirleitt mjög
góð.
M 9405