Morgunblaðið - 27.05.1994, Page 25

Morgunblaðið - 27.05.1994, Page 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. MAÍ1994 25 BORGAR- OG SVEITARSTJÓRNARKOSNINGARNAR 28. MAÍ Blab allra landsmanna! - kjarni málsins! Ingibjörg Sólrún er mann- eskja, sem við getum treyst REYKVIKINGAR ganga nú til kosninga við afar óvenjulegar að- stæður. Annars vegar eiga þeir völ á að endurkjósa meirihluta Sjálf- stæðisflokksins, hins vegar gefst þeim kostur á að gefa nýjum meiri- hluta tækifæri til að spreyta sig. Kosningabandalag þriggja flokka hefur komið sér saman um heil- steypta og vandaða stefnuskrá og borgarstjórnarlista, sem nýtt borg- arstjóraefni leiðir. Allt hefur þetta gerzt í friði og sátt og ekkert er eðlilegra en þannig sé staðið að málum. Það er því von til, að að- standendur listans séu bjartsýnir á að Reykvíkingar noti nú tækifærið Það er fátítt að þing- menn í eldlínu stjóm- málanna gerist pólitísk- ir samnefnarar íjölda fólks úr öllum flokkum, segir Sigurður E. Guð- mundsson, en það hafi nú gerst með Ingibjörgu Sólrúnu. alþingismanna á lýðveldistímanum, er brotizt hafa beint úr orrahríðinni á Alþingi og tekið forystu í fylking- um þúsunda manna úr öllum flokk- um, er hafa beitt sér fyrir kosningu þeirra til hárra embætta; hún er nú í kjöri til embættis borgarstjóra, hinir tveir tóku þátt í forsetakjöri, svo sem menn muna. Ekki man ég til að þetta eigi við um fleiri. Vissu- lega sýnir þetta yfirburða hæfileika hennar til forystu, rétt eins og hinna tveggja. Alþýðuflokkurinn í Reykjavík á aðild að kosningabandalagi R-list- ans og er ekki annað en gott eitt um það að segja. Fulltrúaefni okk- ar jafnaðarmanna ofarlega á listan- um eru bæðir fæddir og uppaldir í flokknum, ef svo mætti segja, og njóta fulls og óskoraðs stuðnings allrar forystusveitar flokksins í Reykjavík. Þar eru í fremstu röð- ráðherrar okkar og forystumenn, þau Jón Baldvin Hannibalsson, ut- anríkisráðherra og formaður flokksins, Jóhanna Sigurðardóttir, félags- málaráðherra, og Öss- ur Skarphéðinsson, umhverfisráðherra, er öll hafa gengið fram fyrir skjöldu og lýst yfir stuðningi við list- ann. Að baki. þeim stendur þétt sveit flokksfólks, sem ekkert hik er á og lætur ekki rugla sig í ríminu. Við alþýðuflokksmenn get- um treyst því, að Sól- rún mun reynast at- hafnasöm og dugmikil húsfreyja á borgar- stjórnarheimilinu, er sýna mun sjónarmiðum okkar fyllstu alúð og tillitssemi; og styðja þau eftir mætti; það get ég fullyrt eftir ára- Sigurður E. Guðmundsson löng kynni og pólitískt samstarf. Hún hefur ætíð komið til dyranna eins og hún er klædd og aldrei verið uppi með neina sýndar- mennsku í sinni póli- tík; hún hefur aldrei skipt um stefnu eða tón, eftir því hvernig vindar hafa blásið. Maður veit því hvar maður hefur hana, eins og sagt er, og slíku fólki er auðvelt að treysta. Það vefst því ekki fyrir okkur alþýðuflokksmönnum hvað við kjósum á laugardag. Höfundur er fyrrverandi borgarfulltrúi og varaþingmaður Alþýðuflokksins í Reykjavík. m og breyti til. Nýir vendir sópa bezt. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir al- þingismaður er borgarstjóraefni R-listamanna. Ég var nánast sessu- nautur hennar í borgarstjórn Reykjavíkur árin 1982-1986 og starfaði mikið með henni þar. Þótt mannval væri mikið í borgarstjórn á þeim árum fór ekki milli mála, að hún var í fremstu röð borgarfull- trúa, enda naut hún almennrar virðingar og trausts, hvar í flokki, sem menn stóðu. Leiðtogahæfileik- ar hennar voru augljósir, fannst mér þá þegar, svo sem nú hefur berlega komið í ljós, þegar þúsund- ir manna í öllum flokkum hafa leit- að til hennar með beiðni um for- ystu fyrir R-listanum. Ég get nefnt merka innlenda og erlenda stjórn- málaleiðtoga, sem ég hef kynnzt, er borið hafa þessa hæfileika jafn greinilega með sér, en læt það samt ógert. Það er fátítt, að þingmenn í eldlínu stjórnmálanna nái því, jafnframt og samtímis, að gerast pólitískir samnefnarar mikils fjölda fólks úr öllum flokkum. En það hefur nú gerzt. Það er athyglis- vert, að Sólrún er í hópi þriggja Kosnmqaloforð Gott á grillið Fjölbreytt úrval Hagstætt verð Alltaf ferskt Auðvelt að grilla Hentar við öll tækifæri Hrærið öllu saman og látið kjötið liggja f marineríngunni i'12tíma. Strjúkið marineringuna af, grillið kjötið og kryddið með salti. c Frambooslisti 1. Grísahnakki 2. Grísarif 3. Grísakótilettur 4. Grísabógur 5. Grísalundir 6. Grísalæríssneiðar 1 krukka Mango Chutney 1 lítil dós ananaskuri án safa 1 tsk. saxað engifer 1-2 fínt saxaðir hvrtlauksgeirar 1 tsk. rautt papríkuduft 1 msk. sftrónusafi 1/2 tsk. mulinn svartur pipar 5) Sumarbústaða eigendur Gott úrval Efna til vatns- og hitalagna úr járni, eir eöa plasti. Einnig rotþrær o.m.fl. Hreinlætistæki, stálvaskar og sturtuklefar A VATNSVIRKINN HF. -jT, Ármúla 21, Símar 68 64 55 & 68 59 66 Kosmnqaréttur qiHlmeistaianna Nota má grísahnakka, grísakótilettur eða grísarif í kosningaréttinn. Marineringin dugar fyrir 1-1,5 kg. af grísakjöti.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.