Morgunblaðið - 27.05.1994, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994 43
MINNIIMGAR
SIGBJORN ÞORÐARSON
FERMINGAR
+ Sigbjörn Þórðarson var
fæddur á Einarsstöðum,
Stöðvarfirði, 27. júní 1915.
Hann lést í Reykjavík 18. þessa
mánaðar. Útför hans fór fram
frá Fossvogskirkju í gær.
SIGBJÖRN bróðir minn er dáinn,
Bjössi bróðir eins og mér var tam-
ast að kalla hann. Fullu nafni hét
hann Sigbjörn Þórðarson og var
fjórði í röð átta systkina. Var ég
næstur að aldri, tveimur árum
yngri. Fór því ekki hjá því að við
ættum mikið saman að sælda. Vor-
um við miklir vinir, þó slettist upp
á vinskapinn við og við. En þegar
við áttum í útistöðum við aðra
stráka þá stóðum við saman og kom
þá í hans hlut að vera minn hlífi-
skjöldur.
Mikið þurfti að vinna á stóru
heimili, þar eð faðir okkar stundaði
sjó, en hafði auk þess æði stórt
landbú, bæði með kýr og kindur.
Tókum við mikinn þátt í öllum
störfum sem fyrir lágu og alltaf
reyndi hann að hlífa mér við því
sem erfiðast var.
Þegar Bjössi var 14 ára, en ég
tólf ára, var elsti bróðir okkar,
Þorsteinn, farinn af landi til Bos-
ton, þá urðum við að fara að róa
með föður okkar á trillunni og vor-
um við áreiðanlega stundum syfjað-
ir og lúnir.
Haustið 1932 þegar Sigbjörn var
17 ára hleypti hann heimdraganum
og fór til Reykjavíkur og settist í
Verslunarskólann, en var á sjó á
sumrin. Þegar námi lauk fór hann
að vinna á skrifstofu, en undi því
ekki til lengdar og fór því á sjó
aftur. Var hann um tíma hjá Land-
helgisgæslunni og Ríkisskipum, en
réðst svo á hollenskt skip og síðan
til Eimskips og var á Fossunum
þar til hann var 70 ára gamall.
Ekki eiga margir lengri sjómanns-
feril að baki.
Efst er mér í huga þakklæti fyr-
ir alla hjálp sem hann veitti mér
þegar ég fór að heiman í skóla.
Fiskur var í mjög lágu verði á
kreppuárunum, svo að ekki var
auðvelt að kosta sig til náms. En
Bjössi lánaði mér peninga, svo að
ég komst í Samvinnuskólann og
síðar á Loftskeytaskólann og örv-
aði hann mig til námsins. Eftir loft-
skeytanámið fór ég að vinna á
Lóranstöðinni á Reynisfjalli, gifti
mig og eignaðist börn. Kom hann
þá oft í heimsókn til okkar og var
þá hátíð hjá okkur og ekki síst
börnum mínum, því alltaf kom
Bjössi frændi færandi hendi.
Árið 1959 kvæntist hann elsku-
legri konu, Sigrúnu Hansen, sem
varð jafnframt ijölskylduaðili og
fjölskylduvinur, sem allir í minni
ijölskyldu elskuðu og virtu. Ekki
varð þeim hjónum barna auðið.
Beindist því barngæska þeirra að
bróður- og systurbörnum Sig-
björns, og tóku þau öll mikilli
tryggð við Bjössa og Rúnu.
Alla tíð áttu tónlist og söngur
sterk ítök í Sigbirni. Þegar hann
var 14 ára eignaðist hann fiðlu,
lærði að leika á hana og náði æði
góðum árangri. Síðar eignaðist
hann harmóniku, mandólín og bal-
alaika og lék á þau hljóðfæri sér
og öðrum til ánægju. Alla tíð not-
aði hann öll tækifæri til að fara á
tónleika og óperur. Einnig kom
hann sér upp miklu plötusafni og
spilaði mikið og hlustaði.
Mikið reyndi á sjómenn á stríðs-
árunum, en Sigbjörn sigldi öll
stríðsárin. En þegar hann fór í land,
70 ára að aldri, var eins og hann
yndi sér ekki fyllilega, en stytti sér
stundir með því að hlusta á tónlist
og svo að stunda sund í laugunum.
Og þegar Sigrún dó 1993, varð
hann eirðarlaus og gerðist einfari.
Þá flutti hann úr íbúð sinni á Háa-
leitisbraut 107 og til mágs síns,
Halldórs Hansen yngri, á Laufás-
vegi 24. Erum við systkinin þakk-
lát Halldóri fyrir þá vinsemd sem
hann sýndi honum til hins síðasta.
Nú er Sigbjörn búinn að láta
akkerið falla í síðasta sinn og lagst-
ur í lygna höfn.
Magnús Þórðarson.
TRA USTIJONSSON
+ TraustI Jónsson var fæddur
26. júní 1907. Hann lést 17.
maí síðastliðinn á Hrafnistu í
Hafnarfirði. Útför hans var
gerð frá Fossvogskirkju 24.
mai.
Á SÓLBJÖRTU föstudagseftirmið-
degi fyrir rúmri viku var ég á leið
upp í Borgarnes að hitta fjölskyldu
mína sem var þar í fríi. Ég var
full tilhlökkunar að njóta sveitasæl-
unnar með þeim og sjá nýfæddu
lömbin sem eru sannkallaðir vor-
boðar og minna okkur á kraftaverk
sköpunarinnar. Yið hlið mér á leið-
inni upp eftir í rútunni sat ijögurra
ára snáði á leið upp á Akranes að
hitta föður sinn. Við spjölluðum um
heima og geima og m.a. sagði hann
mér að hann ætti fullt af ömmum
og öfum. Ég sagði honum að það
ætti ég ekki. Hann brosti þá breiðu
brosi og sagði að ég gæti alveg
fengið lánað hjá sér, hann ætti svo
mikið. Ég brosti á móti en afþakk-
aði höfðinglegt boð því ég ætti einn
afa og hann væri á við marga afa
og ömmur. Mig grunaði ekki þá að
ævikvöld hans væri senn á enda,
það kom mér í opna skjöldu erfrétt-
in barst. En afi átti 86 ár að baki,
oftast við góða heilsu. Því þökkum
við Guði fyrir að hann fékk hægt
andlát.
Afi minn hafði alltaf tíma fyrir
okkur barnabörnin og í húsið hans
litla á Vesturbrautinni bauð hann
okkur alltaf velkomin. Afkomendur
hans eru orðnir margir en við vorum
ekki þau einu sem kölluðum hann
afa. I hverfinu hans voru mörg
börn sem þekktu „afa“. Hann lét
sig heldur ekki muna um að sinna
þeim. Gæska hans og gjafmildi er
það sem mér dettur fyrst í hug
þegar ég hugsa um hann nú, svo
og léttur hlátur og stríðnisglampi í
augum, en hann kunni svo vel að
slá á létta strengi.
Fyrir nokkrum árum kom sú
hugmynd upp að haida jólaball með
öllum börnunum hans afa og fjöl-
skyldum þeirra. Það var jólagjöfin
hans afa til okkar allra að bjóða
okkur á það. Það eru ógleymanleg-
ar stundir sem við höfum átt þarna
saman og gleðilegt að sú hefð hafi
skapast og tækifærin til að sjá svo
marga ættingja a.m.k. einu sinni á
ári. Afi var stoltur af öllum „barna-
hópnum“ sínum og fylgdist grannt
með högum allra. Við munum að
sjálfsögðu halda áfram að hittast á
hátíð ljóss og friðar og minnast
með gleði í hjarta þeirra samveru-
stunda sem okkur varð auðið með
þeim kærleiksríka manni.
Ég vil þakka sr. Ólafi Jóhanns-
syni fyrir vel valin orð í minningar-
ræðu hans um afa minn Trausta
Jónsson. En hann talaði um endur-
komu Krists og hve lánsöm við
værum að eiga kost á eilífu lífi með
honum. Móðir mín var að ræða við
eldri son minn og útskýra fyrir
honum að nú sæi hann ekki lang-
afa sinn aftur en þá svaraði hann
fljótur í bragði: „Jú, þegar ég dey.“
Ég bið þess þó að söknuðurinn sé
sár nú að fagrar minningar og til-
hlökkun um endurfundi síðar og
vonin um eilíft líf verði sorginni
yfirsterkari.
Dagbjört systir mín, dóttir henn-
ar Hrafnhildur og ijölskyldur þeirra
í Noregi eiga eins og við öll margar
góðar minningar um afa Trausta
og vilja senda honum hinstu kveðju
sem og samúðarkveðjur til allra
ættingja okkar.
Guð varðveiti þig.
Alda og fjölskylda.
HÖSKULDUR EYJÓLFSSON
+ Höskuldur Eyjólfsson var
fæddur 3. janúar 1893.
Hann lést 9. maí 1994. Útför
hans var gerð frá Reykholts-
kirkju 14. maí.
HORFINN er af þessari jörð frændi
minn og vinur Höskuldur Eyjólfsson
frá Hofsstöðum í Hálsasveit. Veður-
guðirnir kvöddu Höskuld með virkt-
um í glampandi sól og sumarblæ.
Höskuldur var 101 árs er hann lést
og ég veit að hann er hvíldinni frá
þessari jörð feginn.
Hafðu þökk fyrir öll þín spor.
Það besta setn fellur öðrum í arf,
er endurminning um göfugt starf.
Moldin er þín
Moldin er trygg við börnin sín,
sefar alian söknuð og harm
og svæfír þig við sinn móðurbarm.
Grasið hvíslar sitt ljúfasta ljóð
á leiðinu þínu. Moldin er hljóð
og hvíldin góð...
5/I finjtgHDavíð S.)
Ekki efast ég um að margir hafi
beðið komu Höskuldar í Landi sæl-
unnar með söðlaða gæðinga og víst
mun frænda þykja jörðin góð og
grasgefið þar.
... Nú ríðið þið saman á reiðskjótum fráum
í rökkvuðum skógi mót himninum bláum...
(S.G.)
Ég ætla í þessum fátæklegu orð-
um að þakka frænda fyrir allar
góðu stundirnar, öll góðu árin, allar
góðu heimsóknirnar þegar gott var
að setjast niður með vænt sherrý-
staup og ræða málin.
Hvað varðar þá um vatnið,
sem vínið rauða teyga?
Hvað varðar þá um jörðina,
sem himininn eiga?
(Davíð S.)
Einnig vil ég þakka góð orð og
indælar vísur til mín og minna.
Þú komst i hlaðið á hvítum hesti,
þú komst með vor í augum þér.
Víða fermt á sunnudag
Ferming Dalvíkurprestakalls I
Urðakirkju í Svarfaðardal á trín-
itatis kl. 13.30. Prestur sr. Svavar
A. Jónsson. Fermd verða:
Bergþóra Sigtryggsdóttir,
Helgafelli.
Bylgja Hrönn Ingvadóttir,
Þverá í Skíðadal.
Húni Heiðar Hallsson,
Skáldalæk.
Ferming í Skálholtskirkju kl. 14.
Prestur sr. Guðmundur Oli Olafs-
son. Fermdar verða:
Elma Rut Þórðardóttir,
Akri, Laugarási, Bisk.
Gunnur Ösp Jónsdóttir,
Launrétt 1, Laugarási, Bisk.
Ferming í Landakirkju kl. 14.
Fermd verða:
Andri Sigurðsson,
Vestmannabraut 22d.
Alda Guðjónsdóttir,
Illugagötu 3.
Bogi Hreinsson,
Faxastíg 33.
Einar Örn Þórsson,
Áshamri 35.
Elín Þóra Ólafsdóttir,
Kirkjubæjarbraut 5.
Elva Björk Einarsdóttir,
Áshamri 12.
Gísli G. Tómasson,
Túngötu 24.
Guðmundur Ingi Guðmundsson,
Höfðavegi 43c.
Hjálmar Jónsson,
Heiðarvegi 49.
Hjörtur Sigurðsson,
Hásteinsvegi 60.
Hlynur Már Jónsson,
Hásteinsvegi 41.
Hrefna Gunnarsdóttir,
Búhamri 58.
Ingimar Ágúst Guðmarsson,
Goðahrauni 11.
Jóhanna B. Guðmundsdóttir,
Boðaslóð 2.
Kristján Gunnarsson,
Foldahrauni 31.
Kolbrún Indíana Auðunsdóttir,
Hátúni 4.
Sigurlaug Björk Böðvarsdóttir,
Foldahrauni 39e.
Sigurlás Gústafsson,
Skólavegi 13.
Ferming í Húsavíkurkirkju.
Prestur sr. Sighvatur Karlsson.
Fermd verða:
Aðalgeir Þorgrímsson,
Háagerði 14.
Andri Valur ívarsson,
Grundargarði 6.
Börkur Bjarnason,
Sólbrekku 22.
Einar Daði Halldórsson,
Garðarsbraut 67.
Elísa Rún Heimisdóttir,
Uppsalavegi 6.
Ellert Stefánsson,
Árholti 12.
Guðrún Erla Guðmundsdóttir,
Holtagerði 10.
Hjálmar Bogi Hafliðason,
Garðarsbraut 53.
Ingólfur Pálsson,
Garðarsbraut 41.
Kolbrún Sara Larsen,
Urðargerði 6.
Kristín Sigríður Pétursdóttir,
Holtagerði 6.
Lilja Friðriksdóttir,
Stórhóli 39.
Magnús Halldórsson,
Garðarsbraut 37.
Ómar Þorgeirsson,
' Baldursbrekku 13.
Pálmi Rögnvaldsson,
Baughóli 36.
Pétur Veigar Pétursson,
Baughóli 2.
Sara Rós Þórðardóttir,
Vallholtsvegi 7.
Svanlaug Pálsdóttir,
Stórhóli 37.
Vignir Stefánsson,
Arholti 12.
Ég söng og fagnaði góðum gesti,
og gaf þér hjartað í bijósti mér.
Ég heyri álengdar hófadyninn.
Ég horfi langt á eftir þér.
Og bjart er ávallt um besta vininn,
og blítt er nafn hans á vörum mér.
Þó líði dagar og líði nætur,
má lengi rekja gömul spor.
Þó kuldinn næði um daladætur,
þær dreymir allar um sól og vor.
(Davíð S.)
Hafðu þökk fyrir allt og allt elsku
frændi.
Því get ég kvatt mín gömlu föðurtún
án geigs og trega, þegar yfir lýkur,
að hupr leitar hærra fjallsins brún,
og heitur blærinn vanga mina strýkur.
I lofti blika ljóssins helgu vé
og lýsa mér og vinum mínum öllum.
Um himindjúpin horfi ég og sé,
að hillir undir land með hvítum fjöllum.
(Davíð S.)
Far yel,
þín Steinunn.
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson
Reykvíkingar
unnu kjör-
dæmakeppni
BSÍ1994
UM hvítasunnuhelgina fór fram
í fyrsta sinn kjördæmakeppni í svei-
takeppni í brids. Keppnin fór fram
á Akranesi og voru þar saman
komnir bestu spilarar hvers kjör-
dæmis. Mótið fór vel fram og vfst
má telja að þetta mót verður fastur
liður á bridsalmanakinu.
Lokastaðan
Reykjavík 569
Suðurland 451
Vesturiand 429
Norðurlandvestra 425
Reykjanes 409
Austurland 400
Norðuriandeystra 337
Vestfirðir 302
Á næsta ári verður mótið deilda-
skipt, þannig að fjögur efstu kjör-
dæmin leika í fyrstu deild en þau
sem höfnuðu í sætum 5-8 leika í
2. deild.
Sumarbrids í Reykjavík
hafinn
Sumarbrids í Reykjavík hófst um
hvítasunnuhelgina. Samtals mættu
um 30 pör til leiks, sem telst ágæt
byrjun á þessum dögum. Úrslit urðu
(sunnudagur):
Jacqui McGreal/Hermann Lárusson 263
Þorleifur Þórarinsson/Þórarinn Ámason 263
Jóhannes Eiríksson/Halldór Magnússon 245
Ársæll Vignisson/PállÞ.Bergsson 231
(mánudagur):
Dan Hansson/Þórður Sigfússon 208
Sigrún Jónsdóttir/Ingólfur Lilliendahl 197
Elin Jónsdóttir/Lilja Guðnadóttir 186
Bjöm Þorláksson/Eggert Bergsson 178
Tímasetning í sumarbrids er
þessi:
Mánudagar kl. 19-23,
þriðjudagar kl. 14-18 og 19-23,
miðvikudagar kl. 19-23,
fimmtud. kl. 16.30-20.30 og
19-23,
föstudagar kl. 19-23
og sunnudagar kl. 14-18 og
19-23.
Sérstök athygli er vakin á dags-
spilamennskunni, á þriðjudögum og
sunnudögum og tímasetningunni á
fimmtudögum, en þá hefst leikurinn
kl. 16.30 með því að A-riðillinn er
endurvakinn (eldri spilarar muna
þetta fyrirkomulag, sem tíðkaðist
hér á árum áður). Hægt er að skrá
sig til leiks í A-riðilinn fyrirfram á
milli kl. 11 og 12 á fimmtudögum
hjá Ólafi í s. 16538. Spilagjald er
500 kr. og spilað er um bronsstig.
Bridsfélag Kópavogs
Sl. fimmtudag lauk vortví-
menningnum, sem jafnframt er
síðasta keppni vetrarins.
Lokastaðan:
Ragnar Jónsson - Þröstur Ingimarsson 942
Birgir Ö. Steingrims. - Þórður Björns. 905
TraustiFinnbogason-HaraldurAmason 898
Jón Steinar Ingólfsson - Jens Jensson 879
Frá Skagfirðingum
Reylqavík
Síðasta spilakvöld þessa starfsárs
var síðasta þriðjudag. Úrslit urðu:
Eggert Bergsson - Jón Viðar Jónmundsson 176
Andrés Þórarinsson - Halldór Þórólfsson 17 6
HjálmarS.Pálsson —OskarKarlsson 173
RagnarBjömsson-SævinBjamason 171
Stigahæstir einstaklingar félags-
ins eftir áramót urðu: Kjartan Jó-
hannsson 218, Guðlaugur Sveinsson
214, Lárus Hermannsson 194,
Hjálmar S. Pálsson 193, Óskar
Karlsson 184, Ólafur Lárusson 184
og Jón Viðar Jónmundsson 180.
Og eftir starfsárið 1993-1994
urðu eftirtaldir spilarar stigaefstir:
Ólafur Lárusson 335, Óskar Karls-
son 333, Guðlaugur Sveinsson 307,
Lárus Hermannsson 287, Hjálmar
S. Pálsson 283, Alfreð Kristjánsson
237, Ármann J. Lárusson 222, Egg-
ert Bergsson 220, Kjartan Jóhanns-
son 218 og Jón Viðar Jónm. 212.
Vel á annað hundrað spilara hlaut
stig hjá Skagfirðingum í vetur. Fé-
lagið þakkar spilurum samfylgdina
á árinu og Arnóri Ragnarssyni á
Mbl. fyrir dygga þjónustu.