Morgunblaðið - 27.05.1994, Side 45
MORGUNBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994 45
SPURT OG SVARAÐ UM BORGARMÁL
LESENDAÞJÓNUSTA MORGUNBLAÐSINS
Arni Sigfússon borgarstjóri svarar
spurningum lesenda
Ami Sigfússon borg-
arstjóri í Reykjavík
og efsti maður á
framboðslista sjálf-
stæðisfólks í borgar-
stjómarkosningum,
sem fram fara 28.
maí næstkomandi,
svarar spurningum í
Morgunblaðinu um
borgarmál i tilefni
kosninganna. Les-
endur Morgunblaðs-
ins geta hringt til
ritstjómar blaðsins í
síma 691100 á milli
kl. llogl2ídag
og lagt spumingar fyrir borg-
arstjóra sem blaðið
kemur á framfæri
við hann. Svörin
birtast siðan í
þættinum Spurt og
svarað um borgar-
mál. Einnig má
senda spumingar í
bréfi til blaðsins.
Utan á bréf skal rita:
Spurt og svarað um
borgarmál, ritsljóm
Morgunblaðsins,
pósthólf 3040,103
Reykjavík. Nauðsyn-
legt er að nafn og
heimilisfang spyij-
anda komi fram.
Lóð í einkaeign
Eðvarð Björgvinsson, Brautar-
holti 22, 105 Reykjavík, spyr:
Stendur til að lagfæra lóðina á
horni Brautarholts og Borgartúns
og á hvers vegum er þessi lóð?
Svar:
I spurningunni er augljóslega
villa. Eg geng út frá því að misrit-
ast hafi Borgartún í staðinn fyrir
Nóatún og átt sé við horn Braut-
arholts og Nóatúns. Því er til að
svara að homlóð þessi, sem er
baklóð Laugavegar 168, er í
einkaeign og ekki á valdi borgar-
innar að lagfæra þar, en í fram-
haldi af þessari fyrirspurn verður
þeim tilmælum beint til lóðarhafa
að þeir gangi almennilega frá
þessu horni. Það er löngu tíma-
bært.
Öryggi
borgaranna
Brynja Sigurmundsdóttir,
Klapparbergi 31, 111 Reykjavík,
spyr:
Hvað er fyrirhugað að gera í
lögreglumálum í borginni. Mikill
seinagangur er ríkjandi í mörgum
aðgerðum lögreglunnar og má
síðast nefna árásarmálið í Breið-
holti, þar sem ráðist var á ungan
stúdent að fjölskyldu hans og vin-
um ásjáandi. Það hefur bæði ver-
ið brotist inn í bíl hjá mér og stol-
ið frá mér, þannig að ég veit að
full þörf er á lögvernd í þessu
hverfi. Ef það er skortur á fé sem
háir lögreglunni er þá ætlunin að
ráða bóta á þeim vanda?
Svar:
Um leið og ég vek athygli á
því að ríkið en ekki Reykjavíkur-
borg fer með stjórn lögreglunnar
og ræður fjárveitingum til hennar
vil ég ítreka það sem ég hef sagt
oft áður, að borgaryfirvöld vilja
gera allt sem í þeirra valdi stend-
ur til að tryggja öryggi borg-
arbúa. Fyrirrennari minn, Markús
Örn Antonsson, beitti sér með
árangri fyrir meiri og betri lög-
gæslu, sérstaklega í miðborginni.
Þann stutta tíma sem ég hef ver-
ið borgarstjóri hef ég stofnað til
góðs samstarfs við lögregluna.
Eg átti fund með dómsmálaráð-
herra og lögreglustjóra í lögreglu-
stöðinni í Breiðholti þar sem starf
lögreglunnar hefur verið frábært
,og mun haft til fyrirmyndar við
stofnun lögreglustöðva í öðrum
hverfum sem ég mun beita mér
fyrir.
Reykjavíkur-
flugvöllur
Hulda Guðrún Pálsdóttir,
Rekagranda 1, 107 Reykjavík
spyr:
Mér skilst að það séu hugmynd-
ir uppi hjá sumum frambjóðend-
um R-Iistans um að leggja niður
Reykjavíkurflugvöll sem myndi
kosta Reykvíkinga og lands-
byggðarfólk mikinn tíma og fyrir-
höfn ef fara þyrfti langt út fyrir
borgina til að komast í innan-
landsflug. Er eitthvað ákveðið um
þetta og hvað segir þú?
Svar:
Engin ákvörðun liggur fyrir um
að leggja niður Reykjavíkurflug-
völl. Eg tel ekki skynsamlegt að
afsala sér því mikla hagræði sem
fylgir núverandi staðsetningu
flugvallarins fyrir innlent áætl-
unarflug. Einkaflug og kennslu-
flug mætti hins vegar vel hugsa
sér að flytja og hafa hugmyndir
um það verið í athugun.
Aðstaða
Þróttar
Unnur Bjarklind, húsmóðir og
íþróttamaður spyr:
Hvað ætlar þú að gera til að
Þróttur fái mannsæmandi aðstöðu
til æfinga? Munt þú leiða hina
ungu og upprennandi Þróttara inn
um dyr Laugardalshallar?
Svar:
Ég tel rétt að svara á þessum
vettvangi ofangreindri fyrirspurn
sem birtist í Morgunblaðinu mið-
vikudaginn 25. maí sl. í dálknum
„Bréf til blaðsins". Gengið hefur
verið frá samningi við Knatt-
spyrnufélagið Þrótt fyrir nokkru
síðan um að félagið fái aðstöðu
til æfinga í Laugardalshöll strax
í haust.
RADAUGl YSINGAR
Uppboð
Eftirtaldar bifreiðir verða boðnar upp á Elds-
höfða 4, á athafnasvæði Vöku hf., laugardag-
inn 28. maí 1994, kl. 13.30.
A-8944, G-18319, GD-417, GO-778, GÖ-506,
HD-159, HH-444, HJ-488, IC-356, IE-326,
JH-577, JS-947, JX-104, K-3112, KR-785,
KU-919, LM-959, GJ-725, PB-307, EV-689,
R-29455, R-36289, R-43679, IL-472, R-8813,
UE-223, IG-137, IX-565, Ö-3215, TO-854,
HP-014, PF-422, KV-625, RH-142, XT-748,
XJ-975, MT-485, VV-684, IK-774, HR-447,
R-52273, GD-958, FT-860, A-2827, FY-256,
IB-174, IG-520, LG-051, VX-424, VY-024,
HO-321, JR-690, GD-958, R-52273, FT-860,
R-6117, og væntanlega fleiri bifreiðir og tæki.
Ávísanir ekki teknar gildar sem greiðsla
nema með samþykki uppboðshaldara eða
gjaldkera.
Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Reykjavík.
Sumartími
Frá og með 1. júní nk. til 1. september 1994
verður skrifstofan opin frá kl. 8.00-16.00.
Lögmenn Höfðabakka,
Innheimtustofan Höfðabakka,
Árnason & Co.
Höfðabakka 9, Reykjavík.
Innritun
Tölvuskóli Stjórnunarfélags
íslands og Nýherja
Innritun er hafin í 19 vikna tölvunámið Tölvu-
notkun í fyrirtækjarekstri sem hefst í haust.
Unnt er að stunda námið með vinnu.
Nánari upplýsingar í síma 697769 eða
621066.
Mosfellsbær
-tengibygging
Mosfellsbær óskar eftir tilboðum í að byggja
tengibyggingu milli íþróttahúss og sundlaug-
ar á Varmá.
Stærð: 544,0 m2 1889,9 m3 .
Útboðsgagna má vitja á skrifstofu Mosfells-
bæjar, Hlégarði, frá og með þriðjudeginum
24. maí nk. kl. 13.00 gegn 10.000 kr. skila-
tryggingu.
Tilþoðin verða opnuð á sama stað föstudag-
inn 3. júní nk. kl. 11.00.
Tæknifræðingur Mosfellsbæjar.
HÚSEIGENDUR
HÚSFÉLÖG
ÞARF AÐ GERA VIÐ í SUMAR?
VANTAR FAGLEGAN VERKTAKA?
í Viðgerðadeild Samtaka iðnaðarins
eru aðeins viðurkennd og sérhæfð
fyrirtæki með mikla reynslu.
Leitið upplýsinga í síma 16010 og
fáið sendan lista yfir trausta
viðgerðaverktaka.
SAMTÖK
IÐNAÐARINS
Knattspyrnudeild KR
Knattspyrnudeild KR óskar eftir fullbúinni 4ra
herbergja íbúð á leigu hið fyrsta, helst í Vest-
urbænum. Leigutími fram í október.
Upplýsingar í síma 27181.
» "
SmO auglýsirigor
NY-UNG
KFUM & KFUK
Holtavegi
Samvera í kvöld kl. 20.30. „Trú,
von og kærleikur". Sr. Sigfús
Ingvarsson og Laufey Gísladóttir
sjá um samveruna. Eftir samver-
una grillum við saman. Komdu
með eitthvað á grillið. Allir eru
verlkomnir á samverur Nýungar.
FERÐAFÉLAG
ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 ■ SÍMI 68253’
Göngudagur Ferðafélagsins
sunnudaginn 29. maí
Fjölskylduganga (1'/i klst.) kl. 13.
Lengri ganga (3-4 klst.) kl. 10.30.
Göngudagurinn sem haldinn er
í 16. sinn er núna tileinkaður ári
fjölskyldunnar. Vestfjarðaleið
gefur aksturinn og þátttöku-
gjald er því ekkert.
Kl. 13.00 Fjölskyldugangan: Sil-
ungapollur-Heiðmörk. Farið um
lítt kunnar slóðir hjá Silungapolli
og í norðanverðri Heiðmörk.
Sérlega fallegt svæði sem kem-
ur verulega á óvart. Um 1,5 klst.
ganga.
Kl. 10.30 Lengri gangan: Sand-
fell-Selfjall. Ekið inn á Bláfjalla-
veginn og gengið þaðan um
Sandfell og Selfjall í Heiðmörk.
Hóparnir hittast f fallegri laut
innan Heiðmerkurgirðingar við
söng, hljóðfæraleik og veiting-
ar. Mjólkursamsalan gefur
drykki.
Brottför með rútum frá BSf,
austanmegin og Mörkinni 6 og
við ítrekum að þátttökugjald
er ekkert. Þátttakendur á eigin
bílum mæti við Heiðmerkurhlið
ofan Silungapolls. Fjölmennið
og njótið hollrar hreyfingar og
útiveru með Ferðafélaginu.
Ferðafélag Islands.
FERDAFELAG
@ ÍSLANDS
MÖRKINNI 6 SÍMI 682533
Laugardagur 28. maí kl.
10.00
Jarðfræðiskoðunarferð um
Reykjanesskaga
Sameiginleg ferð FÍ og Hins
íslenska náttúrufræðifélags.
Leiðbeinendur verða jarðfræð-
ingarnir Sigmundur Einarsson
og Magnús Sigurgeirsson, en
báöir hafa unnið að kortlagningu
á eldstöðvum og hraunum á
Reykjanesskaga. Skoðaðar
verða helstu eldstöðvar og
hraun frá sögulegum tíma m.a.
úti á Reykjanesi. Verð 1.800,-
kr., ókeypis f. börn 15 ára og
yngri m. foreldrum sínum. Brott-
för frá BSÍ, austanmegin og
Mörkinni 6.
Árbók FÍ1994 er komin út:
Titill bókarinnar, Ystu strandir
norðan Djúps, vísar til ysta og
nyrsta hluta Vestfjarðakjálkans
norðan Isafjarðardjúps. M.a.
nær landlýsingin frá Kaldalóni,
um Snæfjallaströnd, Grunnavík,
Jökulfirði, Aðalvík, Hornstrandir
og strandlengjuna niður í Ing-
ólfsfjörð.
Óvenju glæsileg bók og fróðleg,
prýdd yfir 220 litmyndum. Ár-
bókina fá allir félagsmenn gegn
greiðslu árgjalds sem nú er
3.100 kr. óbreytt frá í fyrra.
Gerist félagar strax!
Ferðafélag íslands.