Morgunblaðið - 27.05.1994, Qupperneq 50
50 FÖSTUDAGUR 27. MAÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ALOE VERA FRÁ JASON
Lækningamáttur ALOE VERA jurtarinnar er nú á allra vitorði.
Reynsla þeirra, sem nota ALOE VERA snyrtivörur
frá JASON, er hreint ótrúleg.
Gel með 98% ALOE VERA.
Notast gegn bruna, psoriasis,
ii*í«nílOTw
Áríðandi: Aðeins ALOE VERA gel án
kemískra ilm- og litarefna gefur árangur.
ALOE VERA frá JASON fæst i
exemi, ýmsum tegundum útbrota,
tognun, æðahnútum, kláða o.fl.
OMISSANDIISOLARLANDAFERÐINA
FYRIRLESTUR -
KYNNING
Kynning á reiki-heilun í Norræna húsinu
í kvöld kl. 20. Kynningin felst í fyrirlestri
og spurningum fundargesta og heilun á staðnum.
Reikinámskeið í Reykjavík fyrir byrjendur fyrsta og annað stig kennt
saman, verður mánud., þriðjud. og miðvikud. 30., 31. maí og 1. júní,
kl. 19-23. Innritun á staðnum.
AKUREYRI:
Helgina 11. og 12. júní verða námskeið í: 1. Reiki eitt og tvö saman. 2.
Framhaldsnámskeið. 3. Reiki 3. Skráning í síma 96-23293.
LANDIÐ:
Ef þú hefur áhuga á reikinámskeiði í þinni
* heimabyggð, hafðu þá samband.
BERGUR BJÖRNSSON REIKIMEISTARI,
SKÚLAGÖTU 26, REYKJAVÍK, SÍMI 91-623677.
9RH99999^955999SHH999993999Í
Akstur á kjördag
yiitþú
hialpa
til?
Sjálfstæðisflokkinn vantar sjálfboðaliða á
bifreið til aksturs á kjördegi
laugardaginn 20. maí n.k.
Upplýsingar eru góðfúslega veittar á
kosningaskrifstofuin Sjálfstæðisflokksins.
Vesturgata 2
Símar: 18400,18401 og 18402.
Valhöll, Háaleitisbraut 1
Simi: B80903.
Hraunbær102b [
Sími: 879991. ►
►
Alfabakki 14a ►
Símar: 871992, 871993 op 871994. ►
Grensásvegur Torgið, Hverafold 1-3
Símar: 880905, 880906 og 880907. Sími: 879995 í
Laugarnesvegur52
Sími: 888988.
I DAG
YELVAKANDI
Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Happdrættis-
miðar SEM
SÆBJÖRN Valdimars-
son hringdi og lýsti eftir
þeim sem geta gefið upp-
iýsingar um tvo gamia
happdrættismiða sem
hann keypti fyrir u.þ.b.
tveimur árum.
Miðarnir eru gefnir út
af SEM félaginu, Sam-
tökum endurhæfðra
mænuskaddaðra. Sæ-
bjöm telur að engin vinn-
ingaskrá hafi verið birt í
blöðum og ekki hefur
honum heldur tekist að
hafa samband við neinn
sem getur gefið upplýs-
ingar um vinningsnúmer.
Nú óskar hann eftir
þeim sem hefur með mál-
ið að gera og biður hann
um að hafa samband í
síma 16992.
Þakkir til
Mj ólkursamsöl-
unnar
MIG langar að koma á
framfæri þakklæti til
Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík. Þannig var að
ég keypti sex lítra af
mjólk fyrir hvítasunnu og
reyndust fimm af þeim
súrir. Ég hringdi til
þeirra, meira í gamni en
alvöru, til að láta vita af
þessu. Það skipti engum
togum að mér voru send-
ir þessir fimm lítrar til
baka, ijómi og dýrindis
eftirréttir. Viðmót þess
sem ég talaði við og við-
brögð voru alveg sérstak-
lega elskuleg^
Erna Óladóttir
Öfundin á sér
engin takmörk
ÉG HEFI úr fjarlægð
verið að fylgjast með
kosningabaráttunni til
borgarstjómar Reykja-
víkur, og það sem mér
hefir fundist áberandi er,
að allt það sem rauðlið-
arnir í Rínu hafa haft við
undanfarna stjórn borg-
arinnar að athuga, er
annað hvort mjög lítilfjör-
legt, eða í vinnslu hjá
meirihlutanum sem um
árin hefir stýrt borginni,
Meirihluta sem athugar
vel og gaumgæfilega
hvert mál og veit að það
skal vanda sem vel á að
standa. Þetta er kjörorðið
gegnum árin.
Ofundin yfir velgengni
meirihlutans í málefnum
borgarinnar á sér engin
takmörk.
En besta viðurkenn-
ingin á góðri stjórn
borgarinnar undanfarin
ár er það að enginn sem
vettlingi getur valdið sér
neinn betri íverustað en
Reykjavík og þess vegna
er innstreymið svona
mikið. Betri meðmæli eru
ekki til og þeir sem láta
rauðu þokuna villa sér
sýn á laugardaginn hafa
mikið á samviskunni.
Árni Helgason,
Stykkishólmi.
Mismunandi
litur á fánum á
Þing-völlum
FYRIR nokkru átti ég
leið austur að Þingvöll-
um. Það vakti athygli
mína að þeir þrír fánar
sem ég sá blakta við hún
á Þingvöllum voru ekki í
sama bláa litnum, þ.e.
einn fyrir framan Valhöll,
einn fyrir framan Þing-
vallabæinn og einn á Lög-
bergi. Ég vildi vekja at'-
hygli á þessu því mér
finnst það mikið atriði að
réttur blár iitur sé á fán-
unum. Að öðru leyti var
ákaflega fagurt þama um
að litast, náttúrufegurðin
gífurleg og fánarnir tóku
sig vel út þarna á staðn-
um.
Ásgeir
Friðarsamtök
HVAÐ segja prestarnir
um ástandið á litla hnett-
inum okkar? Þeir vita
mæta vel að stofnun frið-
arsamtaka hefur þegar
átt sér stað og vonandi
eru mörg önnur félög
sömu gerðar í uppsig!-
ingu.
Við þykjumst vera frið-
elskandi, vopnlaus þjóð á
smáeyju úti í reginhafi.
Auðvitað erum við frið-
elskandi, en hvað meinum
við með því?
Kynslóðin, sem nú er
óðum að hverfa eða er
þegar horfin héðan, hefur
gert byltingu í lífskjörum.
Ber ekki að meta það?
Sig. Elíasson
Tapað/fundið
Foreldrar í
Hafnarfirði
FYRIR u.þ.b. 2 mánuðum
hvarf 18 gíra fjallahjól
frá Móabarði 34b. Eig-
andinn, sem er öryrki og
mjög háður hjólinu sínu,
biður foreldra í Hafnar-
firði að athuga hvort
nokkuð hefur bæst við
hjólaeign fjölskyldunnar
og eru þá vinsamlega
beðnir að hringja í síma
51254, 654612 eða skila
því á sama stað.
Eyrnalokkur
tapaðist
GULLEYRNALOKKUR
með ópalsteini tapaðist
fyrir nokkrum mánuðum.
Finnandi vinsamlega
hringi í síma 674151 á
milli kl. 9 og 17. Fundar-
laun.
Silfurhringur
tapaðist í
Gerðubergi
GAMALL silfurhringur
tapaðist á almennings-
snyrtingunni í menning-
armiðstöðinni Gerðubergi
sl. miðvikudag. Hafi ein-
hver fundið hringinn er
hann vinsamlega beðinn
að hringja í síma 79020.
Forstöðumaður veitir
upplýsingar um málið.
Gæludýr
Mjásu Monroe
vantar heimili
ÉG ER tveggja ára ljúf
og góð bröndótt blönduð
síamslæða og óska eftir
rólegu og góðu heimili,
þar sem eigandi minn er
að flytja til útlanda. Ég
er húsbóndaholl og
skemmtilegur karakter.
Hafi einhver áhuga á mér
er hann vinsamlega beð-
inn að hringja í síma
613637 eða 78159.
LEIÐRÉTT
Myndabrengl
í umfjöllun um kosn-
ingarnar í Kjalarnes-
hreppi var birt röng mynd
af Kolbrúnu Jónsdóttur,
efsta manni F-listans.
Birtist mynd af alnöfnu
hennar í Hafnarfirði.
Morgunblaðið biðst vel-
virðingar á þessu.
Kolbrún Jónsdóttir,
Kjalarneshreppi
Kolbrún Jónsdóttir,
Hafnarfirði
Pennavinir
FIMMTÁN ára rússnesk
stúlka skrifar á ensku, hef-
ur áhuga á klassískri tónlist
og numið píanó- og gítar-
leik í sjö ár:
Dinn Sarkisia,
Flat 26,
Nikolaev Str. 35,
Cheboksari,
Chucashia 428022,
Russia.
Víkveiji skrifar...
Mikið hefur verið fjallað um
reiðhjólahjálma í vor og er
það sannarlega af hinu góða. Ymis
félagasamtök hafa tekið sig skman
og gefið krökkum á ákveðnum aldri
hjálma og í mörgum bæjarfélögum
sést ekki hjólandi krakki nema
hann sé með hjálm á höfðinu.
Margar fréttir og frásagnir hafa
líka verið af atvikum þar sem
hjálmarnir hafa hvað eftir annað
bjargað lífi krakka, sem hafa lent
í slysum á hjólum sínum. Fyrir
nokkrum árum gerðu hestamenn
átak í sínum röðum og varla sést
knapi nú orðið án þess að vera með
hjálm á höfði. Vonandi verður sama
upp á teningnum hvað hjólahjálm-
ana varðar. Þeir þurfa að verða
eðlilegur hluti af útbúnaði þeirra
sem hjóla, það er og á að vera fínt
og flott að nota hjálm - en ekki
öfugt.
Tvennt vill skrifari nefna til við-
bótar ef það mætti verða ein-
hverjum til vamaðar. Víða er að
fínna heita potta í görðum sem mik-
ið eru notaðir yfír hásumarið. Eins
og það er notalegt að slaka á í slík-
um pottum geta þeir verið slysagildr-
ur eins og dæmin því miður sýna
og fyllsta ástæða er til að brýna
fyrir fólki að hafa augu með yngstu
kynslóðinni, sem eðlilega sækir mik-
ið í pottana.
Á hveiju sumri slasast böm og
unglingar er fótboltamörk falla yfir
þau. í mörgum tilvikum er auðvelt
fyrir íþróttafélög og sveitarfélög að
festa þessi mörk niður og víða er
það gert. Brýna þarf fyrir krökkun-
um að vera ekki að príla eða hanga
í mörkunum, þau eru einfaldlega
ekki til þess gerð. Ef krakkamir
taka það upp hjá sjálfum sér að
vera á varðbergi og vara aðra við
er það besta eftirlitið.
ótt kosningabaráttan sé auð-
vitað dauðans alvara — að
minnsta kosti í augum þeirra sem
eru í framboði — eru gárungarnir
ekki langt undan nú sem endra-
nær. Ekki síst á þetta við um Hafn-
arfjörð enda hafa íbúar þar langa
reynslu af Hafnarfjarðarbröndur-
um. Hér eru örfá dæmi:
Sem kunnugt er á meirihluti
Alþýðuflokks í bænum nú undir
högg að sækja ef marka má skoð-
anakannanir. Ýmsir vilja kepna
háhýsinu mikla við Fjarðargötu um
hvernig komið er en miklar deilur
urðu um byggingu þess á kjörtíma-
bilinu. Gárungarnir kalla því háhýs-
ið umdeilda Banakringluna. Fjarð-
argatan hefur fengið nafnið Mar-
tröð. Og hlaðinn veggur sem reist-
ur hefur verið milli háhýsisins og
Fjarðargötu er víst aldrei kallaður
annað en Grátmúrinn ...
€
.
c:
4
t
4
i
i
Í
í
i
í
i