Morgunblaðið - 19.06.1994, Page 2
2 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Engin
ölvun
á Þing-
völlum
LÍTIL sem engin ölvun var á Þing-
völlum á þjóðhátíðardaginn, að
sögn Steins Lárussonar fram-
kvæmdastjóra þjóðhátíðarnefndar
og samkvæmt upplýsingum frá
lögreglu.
Steinn segist hafa verið varaður
við að eitthvað kynni að verða um
ölvun á svæðinu, hann hafi hins
vegar ekki orðið var við neitt. Einn-
ig hafi starfsfólk sem séð hafi um
tiltekt á svæðinu eftir hátíðahöldin
haft orð á því að ekki hafi sést bjór-
dós eða áfengisflaska. Undir þetta
tekur lögreglan í Ámessýslu sem
segist einungis hafa haft spumir
af tveimur mönr.um undir áhrifum.
SKIPULAG hreinlætisaðstöðu fór
talsvert úrskeiðis á Þingvöllum 17.
júní. Þurfti að loka salernum og
mynduðust langar biðraðir af
þessum sökum. Alls voru 180 sal-
erni á svæðinu auk þeirra sem
fyrir eru í þjónustumiðstöð og í
Valhöll. Að sögn Steins Lárusson-
ar framkvæmdastjóra þjóðhátíð-
arnefndar komust bílarnir sem
Salernismál
voru í ólestri
áttu að tæma salernin ekki ieiðar
sinnar vegna allsherjar öngþveitis
á hátíðarsvæðinu, þar sem ægði
Morgunblaðið/Ámi Sæberg
saman fótgangandi vegfarendum,
hestum, fornbílum, stætisvögnum
og öðrum farartækjum að sögn
Selfosslögreglu. Að sögn Steins
var ráðgert í upphafi að fjórir
bílar sinntu þessu verki og kom-
ust þeir ekki á milli. Einnig segir
hann að bílarnir hafi verið of fáir
og kallað hafi verið á liðsauka, tvo
bíla, sem aldrei komust austur.
Landsmót Ungmennafélags íslands á Laugarvatni
Framkvæmdir við
völlinn liggja niðri
Fyrirtækið sem átti að leggja gerviefni er gjaldþrota
Ástand
gróðurs gott
EKKI virðast hafa orðið miklar
skemmdir á gróðri á Þingvöllum
og segir Steinn Lárusson að það
sé mesta furða hvað hann lítur
vel út.
„Þeir sem best til þekkja tala
mikið um hversu litlar skemmd-
ir hafí orðið. Einnig segja menn
að þessi svæði sem ekki hafa
verið slegin í mörg ár og voru
orðin mjög mosavaxin hafi haft
gott af því að láta traðka á sér,“
segir Steinn. Einnig segir hann
að vætan hafi ekki komið að sök
því úrkoman hafi varað svo
stutt, svæðið hafi ekki vöknað
að ráði og gróður því ekki blotn-
að niður i rætur.
stungið í fangelsi í síðustu viku.
Jafnframt var tekin ákvörðun um
að stöðva alla vinnu hjá fyrirtækinu
og frysta alla reikninga þess. Við-
skiptabanki Balsam hefur undan-
fama daga reynt að koma starfsemi
fyrirtækisins af stað að nýju, en
fyrirsjáanlegt er að tjón bankans
verður enn meira takist það ekki.
Talað er um að gjaldþrot Balsam
sé upp á 1,6 milljarða þýskra
marka.
Tveir starfsmenn Balsam, sem
unnu að því að undirbúa lagningu
gerviefnisins á Laugarvatnsvöllinn,
komu hingað til lands í síðustu viku.
Þeir fengu hins vegar fyrirskipun
um helgina um að fara strax heim.
Til þess að framkvæmdir við völlinn
geti haldið áfram þarf tvennt að
gerast. Heimild þarf að fást fyrir
því að nota gerviefnið sem bíður í
tveimur gámum á Laugarvatni og
fá þarf erlenda sérfræðinga til
landsins til að leggja efnið. Hörður
Kristjánsson hjá Ríkiskaupum
sagðist gera sér vonir um að málið
leysist og að landsmót UMFÍ geti
farið fram 14. júlí eins og ráðgert
hafði verið.
HÆTTA er á að fijálsíþróttavöllurinn á Laugarvatni verði ekki tilbúinn
fýrir 14. júlí þegar landsmót UMFÍ á að hefjast. Þýska fyrirtækið Bals-
am, sem átti að sjá um að leggja gerviefni á völlinn, hefur verið lýst
gjaldþrota og öll starfsemi þess stöðvuð. Þrjár vikur tekur að leggja gervi-
efnið og þurrt þarf að vera í veðri meðan verkið er unnið. Unnið er hörð-
um höndum að því að fá leyfí til að nota efnið sem bíður á vellinum á
Laugarvatni og fá menn til að leggja það.
Forráðamenn UMFÍ hugsa til
þess með hryllingi ef ekki tekst að
leysa þetta mál um helgina. Tíminn
til að leggja gerviefnið var knapp-
ur, en nú verður allt að ganga upp
ef völlurinn á að verða tilbúinn 14.
júlí. Hörður Kristjánsson hjá Ríkis-
kaupum, og Ámi Þór Ámason, for-
stjóri Austurbakka og umboðsmað-
ur Balsam á íslandi, sögðust báðir
gera sér vonir um að hægt verði
að leysa þetta mál um helgina og
lagning gerviefnisins hefjist í byij-
un næstu viku.
Tengist gjaldþroti iðnjöfurs
Gjaldþrot Balsam, sem er einn
stærsti framleiðandi búnaðar til
gerðar íþróttavall í heiminum, teng-
ist gjaldþroti þýska iðnjöfursins
Jurgens Sehneiders. Stjómendur
Balsam eru grunaðir um að hafa
falsað verksamninga og var þeim
•~\vA /likijjí
jHgtrigMOTÍfofrift
Tónleikar
Bjarkar
í kvöld
TÓNLEIKAR Bjarkar Guðmunds-
dóttur verða haldnir í Laugardals-
höllinni í kvöld, sunnudagskvöld,
og hefjast klukkan 20.45 en húsið
er opnað klukkan 20. Löngu er
uppselt á tónleikana sem Morgun-
blaðið stendur fyrir í samvinnu við
Smekkleysu. Með Morgunblaðinu í
dag fylgir veggspjald af Björk.
Póstur og sími hækkar gjöld fyrir þjónustu hjá 03 og 08
Dýrara að nota GSM-farsíma
PÓSTUR og sími hefur kynnt gjald-
skrá fyrir notendur GSM-farsíma-
kerfísins sem tekið verður í notkun
í ágúst nk. Stofngjaldið verður
lægra en í NMT-kerfínu en ársfjórð-
ungsgjaldið verður hærra og gjaid
fyrir símtöl einnig.
í GSM-kerfínu mun hver mínúta
kosta 25 kr. en kostar f NMT-kerf-
inu 16,60 kr. Þó verður sama mín-
útugjald og í NMT-kerfinu eftir kl.
22 að kvöldi fram til kl. 8 að morgni
á virkum dögum og eftir kl. 18 til
8 að morgni um helgar. Einnig
verður hækkun á símtölum í 03 og
08, eða úr 16,60 mínútan í 28,20
mínútan með svargjaldi og teknar
verða 10 kr. þegar hringt er í klukk-
una í 04.
Hrefna Ingólfsdóttir biaðafulltrúi
Pósts og síma segir að lægri stofn-
kostnaður verði fyrir notendur
GSM-kerfisins, eða 4.358 kr., en
það er 11.691 kr. fyrir notendur
NMT-kerfisins. Hins vegar verður
ársfjórðungsgjaldið, 1.898 kr., tæp-
um 400 kr. hærra en í NMT-kerfínu
þar sem það er 1.519 kr. og á helsta
notkunartíma kostar mínútan í
GSM 25 kr. en óbreytt verð verður
í NMT-kerfínu,. 16,60 kr.
Hrefna segir að þrátt fyrir þessa
hækkun verði símgjöld innan GSM-
kerfisins á íslandi þau lægstu í
Evrópu, t.a.m. kosti mínútan víða
í Evrópu þar sem þetta kerfí er
komið 70-80 kr. Þá hafi símgjaldið
innan NMT hér á landi verið það
lægsta í heiminum.
5 þúsund hringdu i 04
í fyrra hringdu að meðaltali 5
þúsund notendur á dag í klukkuna,
og gjaldið var 16,60 kr. mínútan.
Nú verða teknar 10 kr. fyrir hveija
hringingu í klukkuna og að því
gefnu að svipuð notkun verði áfram
má búast við að tekjur Pósts og
síma af þessari þjónustu verði 36,5
milljónir kr. á ári.
Ekki verður lengur tekið gjald
þegar pöntuð er áskrift að sérþjón-
ustu í stafræna kerfínu en það var
áður 780 kr. Þá verður í fyrsta sinn
unnt að veita 10% afslátt til not-
enda háhraðanetsins sem eru með
margar tengingar en notendur eru
einkum fyrirtæki í tölvusamskipt-
um.
Hrefna sagði að ekki hefði verið
áætlað hvað þessar breytingar á
gjaldskrá þýddu fyrir afkomu Pósts
og síma.
Sekt þyngd
vegna
skattsvika
HÆSTIRÉTTUR hefur þyngt
þá sekt sem Héraðsdómur
Reykjavíkur hafði dæmt 45 ára
lækni til að greiða vegna skatt-
svika en staðfesti undirréttar-
dóminn að öðru leyti.
í Héraðsdómi hafði maður-
inn verið dæmdur í þriggja
mánaða skilorðsbundið varð-
hald og til að greiða tveggja
milljóna kröna sekt fyrir að
hafa vantalið tekjur sínar á
skattframtölum um 15,5 millj-
ónir króna á árunum 1989-
1991, og komist þannig hjá að
greiða 5,8 milljónir króna í
skatta. Maðurinn játaði brotin,
sem að mestu tengdust vinnu
við örorkumat.
Maðurinn hefur endurgreitt
skattskuld sína að fullu auk
álags, samtals 9,3 milljónir
króna, 3,5 milljónir umfram þá
fjárhæð sem hann kom sér hjá
að greiða með brotum sínum.
í dómi Hæstaréttar var
sektarfjárhæðin hækkuð í 3
milljónir króna og segir í dóm-
inum að brot mannsins hafi
verið stórfelld og til þess fallin
að skapa honum umtalsvert fé
á kostnað samfélagsins.
Jóhann Gíslason ÁR
Tólf aðilar
bjóða 445
milljónir
TÓLF aðilar á Suðurlandi hafa
lagt inn 445 milljón króna til-
boð í nafni Mels hf., í skipið
Jóhann Gíslason ÁR. Að sögn
Einars Sigurðssonar hjá Auð-
björgu hf. í Þorlákshöfn, er til-
boðið lagt fram í góðu samráði
við Landsbankann.
„Bankinn vill semja við okk-
ur og ég get ekki séð annað
en að ef menn géti sýnt fram
á fjárhagslegt bolmagn að þá
verði samið,“ sagði Einar.
„Þetta gerist ekki nema í góðu
samráði við Landsbankann og
það er ekki að sjá annað í dag
en að það geti náðst. Við
göngum inn í tilboðið sem var
fyrir frá Stokkseyringum og
vonumst til að halda kvótanum
sem eru 1.740 þorskígildi eða
um 2.000 tonn.“
Jóhann Gíslason ÁR, er 343
tonn stálskip smíðaða í Gdansk
í Póllandi árið 1990.
Dæmdur fyr-
ir brot gegn
7 ára stúlku
HÆSTIRÉTTUR hefur stað-
fest dóm héraðsdóms og dæmt
33 ára Reykvíking í átta mán-
aða fangelsi fyrir kynferðisbrot
gegn 7 ára telpu.
Málið var kært til rannsókn-
arlögreglu í ágúst 1993. Mað-
urinn, sem var heimilisvinur og
átti að gæta telpunnar, viður-
kenndi brotið.
í apríl sl. dæmdi Héraðsdóm-
ur Reykjavíkur manninn til 8
mánaða fangelsisvistar. Fyrir
Hæstarétti krafðist hann styttri
refsivistar og að hún yrði dæmd
óskilorðsbundin.
Hæstiréttur varð ekki við
því, heldur staðfesti héraðs-
dóminn, auk þess sem mannin-
um var gert að greiða allan
áfrýjunarkostnað málsins, sam-
tals 60 þúsund krónur.