Morgunblaðið - 19.06.1994, Side 4

Morgunblaðið - 19.06.1994, Side 4
4 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Oddaflug svananna tignarlegt SIGURÐUR Bjarnason frá Vigur var yngstur alþingismanna við lýð- veldisstofnunina 1944. Þeir tveir þávemdi þingmanna sem nú eru á lífí, Sigurður og Lúðvík Jóseps- son, voru við hátíðahöldin á Þing- völlum í gær. Sigurður Bjamason sagði við Morgunblaðið að hátíða- höldin hefðu verið til mikils sóma, og veðrið lengst af verið yndislegt þótt lítillega hefði rignt. „Ávarp forsetans var gott og kveðjur er- lendu þjóðhöfðingjanna hlýlegar og vinsamlegar í okkar garð,“ sagði Sigurður. Aðspurður sagði hann erfítt að gera samanburð á hátíðinni nú og við lýðveldisstofn- unina 1944, ólíku væri saman að jafna um aðdraganda og tilefni en hvor tveggja hátíðin hefði orðið þjóðinni til sóma. Aðspurð um hvað yrði eftirminnilegast frá deg- inum nefndu Sigurður Bjarnason og eiginkona hans, ólöf Pálsdótt- ir, sem er ásamt Sigurði og Lúð- vík á myndinni, að líklega yrði það einna eftirminnilegst sem enginn átti von á að gerðist. „Það var yndislegt og tignarlegt að sjá þeg- ar svanirnir flugu oddaflug yfir þingstaðnum þegar þingfundurinn Morgunblaðið/Golli var að hefjast," sagði Ólöf Páls- dóttir. VIKAN 12/6 -18/6. ►NÝ borgarstjórn tók við völdum í byrjun vikunnar og Ingibjörg Sólrún Gísla- dóttir settist i stól borgar- stjóra. I borgarráð voru kosnir af R-Iista Sigrún Magnús- dóttir, Guðrún Ágústsdótt- ir og Pétur Jónsson og af D-lista þeir Árni Sigfússon og Vilhjálmur Þ. Vil- hjálmsson. ►LÖGBANNSKRÖFU nýs meirihluta innan stjórnar Stöðvar 2 var synjað hjá embætti sýslumannsins á Blönduósi. Tilgangurinn var sá að freista þess að hindra Jóhannes Torfason í að nýta sér réttindi þau er fylgja 1.850 þúsund kr. hlut hans í Sýn eða fram- selja hlutabréfin. Áður hafði sýslumannsembættið í Reykjavík synjað lög- bannskröfunni og hefur þeirri ákvörðun verið vís- að til Héraðsdóms Reykja- víkur. ► BRÆÐURNIR Birgir og Sigurður Jónssynir sluppu ómeiddir þegar Birgir nauðlenti eins hreyfils flugvél í Lækjarbotnum. Bræðurnri höfðu flogið til Hvolsvallar frá Reykma- vík og voru á bakaleið þeg- ar drapst á hreyfli vélar- innar. ►MEIRA magn dýrasvifs mældist í hafinu umhverfis ísland i vorleioðangri Ha- frannsóknarstofnunar en sl. 30 ár og er sums staðar mjög mikið. Auk þess var ástand sjávar, gróðurs og átu í kringum landið afar gott og uppvaxtarskilyrði uppsjávarfiska því með besta móti. Klippt á togvíra ís- lenskra togara NORSKA strandgæslan klippti togv- íra aftan úr þremur íslenskum togur- um á miðunum við Svalbarða og skaut viðvörunarskoti að fjórða tog- aranum. Aðgerðir strandgæslunnar voru að skipan varnarmálaráðuneyt- isins norska. Davíð Oddsson forsætis- ráðherra segir að knúið verði á um að löglega kveðinn úrskurður fáist í málinu og Jón Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra segir Norðmenn hafa hrundið af stað atburðarás sem gæti endað fyrir alþjóðlegum dóm- stóli. Tvö íslensk útgerðarfélög hafa ákveðið að stefna norskum stjórn- völdum fyrir dómstóla í Noregi vegna aðgerðanna. ASÍ krefst launa- hækkunar ALÞÝÐUSAMBAND íslands telur að laun o'pinberra starfsmanna og bankamanna hafí hækkað um 5-6% umfram launabreytingar á almenna vinnumarkaðinum á sl. 4 árum. Frið- rik Sophusson fjármálaráðherra gagnrýndi harðlega framsetningu ASI á tölunum og segir að fulltrúar ASÍ noti sjálfír orðið „talnaleikfími“ um útreikninga sína. Magnús Gunn- arsson formaður VSÍ segir ótrúlegt að munurinn á launaþróun í opinbera geiranum og einkageiranum sé 5-6% og skoða þurfí þessar tölur betur. Síldarævintýri á Norðfirði MIKIL bjartsýni ríkir á Norðfírði eft- ir löndun á fyrstu Islandssfldinni í 27 ár. Strax fýrsta daginn var landað rúmlega tvö þúsund tonnum. Sfldin er stór og vel á sig komin miðað við árstíma og í henni er minni áta en sýnishorn það sem hafrannsókna- skipið Bjarni Sæmundsson landaði eystra gaf til kynna. Stríðsundirbúningur í S-Kóreu RÍKISSTJÓRN Suður-Kóreu ákvað á þriðjudag að boða 6,6 milljóna manna varalið hersins og björgunar- og hjálparsveitir almannavarna til her- fínga til þess að vera við öllu búin ef upp úr sýður á Kóreuskaga. íbúar Seoul voru hvattir til að eiga alltaf hálfs mánaðar birgðir af matvælum í geymslum. Spenna hefur farið vax- andi á Kóreuskaga að undanfömu vegna deilna við norður-kóresk stjórnvöld sem komið hafa í veg fyr- ir eftirlit með kjarnorkuáætlun sinni. Sögðu þeir sig úr Alþjóða kjamorku- málastofnuninni í vikunni. Hafa stjórnvöld í Washington, Seoul og Tókýó sammælst um að beita sér fyrir því að Sameinuðu þjóðimar þvingi þá með refsiaðgerðum til að leyfa eftirlit með kjamorkustöðvum. Major boðar upp- stokkun á sljórninni JOHN Major forsæt- isráðherra Bretlands boðaði breytingar á ríkisstjóm sinni á mánudag í fram- haldi af því að íhaldsflokkurinn galt afhroð í kosn- ingum til þings Evr- ópusambandsins (ESB) um helgina. Fékk hann 27,8% atkvæða og hefur ekki fengið jafn lítið í nokkrum kosn- ingum frá árinu 1832. Major sagðist þó ekki ætla að láta af leiðtogastarf- inu. í Evrópuþingskosningunum biðu flokkar ríkjandi ráðamanna ósigur í flest öllum ESB-ríkjunum en Ítalía og Þýskaland eru undantekning þar á. ►AÐILD Austurríkis að ESB var samþykkt í þjóð- aratkvæði um síðustu helgi. Með aðild voru 66,4% en 33,6% andvíg. ► NELSON Mandela, forseti Suður-Afríku, sagði á fundi Einingasam- taka Afríku í vikunni að Afríkubúar gætu ekki kennt örlögum sínum eða ytri aðstæðum um þau óteljandi vandamál sem þjóðir álfunnar stæðu frammi fyrir. Hann sagði Rúanda vera stranga of- anígjöf og til marks um að Afríkubúar hefðu ekki ekki gert sér grein fyrir samhengi friðar, stöðug- leika, lýðræðis, mannrétt- inda og þróunar. ►ÁLVERÐ hækkaði verulega í vikunni þegar spákaupmenn keyptu mikið í þeirri trú, að vax- andi eftirspurn yrði brátt til að hækka verðið enn meir. í London fór tonnið með þriggja mánaða af- greiðslufresti á 1.410 dollara, 15 dollurum meira en í síðustu viku. ►PAVEL Gratsjev, varn- armálaráðherra Rúss- lands, sagði í vikunni að skera ætti niður fjárfram- lög til hersins og yrði því að fækka í hernum úr 2,2 miljjónum niður í 1,9 milljónir fyrir árslok. Kóramir eins og hugur manns GARÐAR Cortes, óperusöngvari, stjórnaði kórsöng í hátíðar- dagskránni sem og söng þjóðarkórsins sem tók undir með kórunum á hátíðarpallinum. Hann sagði að þetta hefði geng- ið vel og verið mjög gaman, sérstaklega hefðu börnin verið yndisleg. Fólkið í brekkunum hefði tekið vel undir og brekk- an hefði endurómað. Best hefði heyrst í Oxar við ána og geysileg stemmning hefði myndast. Kórarnir þrír á hátíðar- pallinum hefðu verið eins og hugur manns og hljómað eins og einn rómur. Einnig hefði hljómsveitin verið góð. Morgunblaðið/Ámi Sæberg Skrítið að syngja fyrir svo marga HELGI Páll og Marteinn Ein- arssynir 10 og 11 ára bræður úr Kópavogi voru í kór nokkur hundruð barna sem söng íslensk lög við undirleik hljómsveitar undir stjórn Garðars Cortes í upphafi hátíðardagskrárinnar á Þingvöllum. Eins og öll börnin voru bræðurnir íklæddir lopa- peysum og með íslenska fána. „Við erum búnir að vera að æfa fyrir þetta í þrjá mánuði,“ sagði Helgi Páll en þeir syngja í kór Kársnesskóla undir sljórn Þór- unnar Björnsdóttur. „Það var Morgunblaðið/Þorkell skrítið að syngja fyrir framan allt þetta fólk, það voru svo margir,“ sögðu bræðurnir og sögðust vissir um að þeir ættu eftir að muna eftir þessum degi lengi. Morgunblaðið/Golli Sungu tveir fyrir mörg þúsund HALLDÓR Örn Guðnason, 12 ára, og Jónas Óskar Magnús- son, 10 ára, úr Skólakór Kárs- ness, sungu tvísöng með hátíð- arbarnakór og hljómsveit undir stjórn Garðars Cortes við há- : tíðardagskrána í gær. Þeir sögðust hafa sungið tvísöng áður en aldrei fyrir svona margt fólk. Þeir sögðust vera mjög ánægðir með sönginn og töldu að vel hefði tekist. Jónas Óskar hafði æft talsvert lengi ásamt kómum fyrir hátíðar- tónleikana en Halldór Örn, sem er fluttur úr skólahverfinu og var því hættur í kórnum, æfði fyrst á fimmtudaginn eftir að hann var fenginn til að syngja á móti Jónasi.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.