Morgunblaðið - 19.06.1994, Qupperneq 42
42 SUNNUDAGUR 19. JÚNÍ 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FOLK í FRÉTTUM
FOLK
„Ungfrú heimur“ fékk kaffi
og kleinur á Þingvöllum
RAGNA Þóra Ragnarsdóttir, Iðunn Asa Hilmarsdóttir, Sigurbjörg Sigurbjörnsdóttir
og Kristín Heiða Magnúsdóttir voru allar í móttökunni.
Póstkort o g þjóðbún-
ingar frá Smekkleysu
SMEKKLEYSA stendur í
ströngu á hálfrar aldar afmæli
lýðveldisins og hefur hannað
bæði þjóðbúninga og póstkort af
þvi tilefni. Póstkortin eru ekki
hefðbundin íslensk póstkort með
myndum af stórbrotinni íslenskri
náttúru heldur er meira leitast
við að draga upp skoplega mynd
af þjóðareðli íslendinga.
Þór Eldon sagði ætlunina með
þessari útgáfu vera: „...að fylla
■ upp í það tómarúm sem hefur
skapast á póstkortamarkaðnum.
Þegar maður fer til útlanda er
hægt að kaupa allt á póstkortum
sem mann dreymir um. Á íslandi
er aðeins hægt að velja um
þijáwtíu sjónarhorn á Heklu,
fyrst búið er að taka hið glæsi-
lega kort af hvalskurði í Hval-
stöðinni af markaðnum. Þetta
var orðið full einlitt. Við Bragi
Óiafsson erum miklir áhuga-
menn um póstkort og höfum eig-
inlega verið í sambandi við um-
heiminn í gegnum þau á ferða-
lögum okkar. Þetta var gælu-
verkefni Braga Ólafssonar með
aðstoð Ólafs Engilbertssonar og
Eduardo Bacca hannaði mynd-
irnar.“
Þjóðbúningarnir sem Smekk-
leysa hefur sett á markað eru
hannaðir af Þorvaldi Ottari Guð-
laugssyni, sem er grafískur
hönnuður FÍT. Það eru hvítir
stuttermabolir með lopapeysu-
mynstri og derhúfur í stíl. Þor-
valdur sagðist kalla þetta lopa-
Þjóðhátíðarbún-
ingar Smekk-
leysu.
boli og faldhúfur. Hugmyndin að
húfunum væri komin af spaða-
faldi sem konur notuðu sem
höfuðskart við íslenska kvenbún-
inginn á 19. öld. „Hugmyndin að
lopabolunum er fjögurra ára
gömul og var hleypt af stokkun-
um í kjölfar þjóðbúningakeppni
sem Þjóðræknifélag íslendinga
stóð fyrir. Þar fékk búningurinn
góðan hljómgrunn og féll eins
og flís við rass framleiðslulínu
Smekkleysu. Sérstaða vörunnar
er sá að þessi lopapeysubolur
stingur ekki og er fínn í sumar-
hitum.“
Drífðu þig og nýttu þér frábært tilboð!
Við gefum pakka með 2 Upperdeck körfuboltamyndum
meðan birgðir endast Bíómiðinn gildir sem 15% afsiáttur af
SHAQ - boium í Frísport, Laugavegi 6.
Verðlaunagetraun - Reebok SHAQ - skór í verðlaun!
„Hinn verju-
legi Islend-
ingur nýtur
þess að fara
að veiða“,
segir á einu
póstkorti
Smekk-
leysu.
EGYPSK yfirvöld hafa bannað Peter
Gabriel að halda friðartónleika þar í
landi. Þeir hefðu verið haldnir fyrir
bæði egypska og ísraelska áhorfend-
ur í ferðamannastaðnum Taba við
Rauðahafið. Auk Peters Gabriel átti
Lou Reed að troða upp og ýmsir
tónlistarmenn frá Bretlandi, Afríku
og Mið-Austurlöndum. Gabriel
sagðist ennþá vonast til að tón-
leikarnir yrðu haldnir og gætu
veitt friðaráætlun araba og
ísraela táknrænan stuðning:
„Ég samþykkti að fara á tón-
leikaferðalag til Mið-Austur-
landa með það fyrir augum að
geta troðið upp í arabísku landi og
Israel til stuðnings friðaráætluninni,"
sagði Gabriel við fréttamenn, „Við
munum ákaft reyna að komast til
Egyptalands. Það er bæði mikilvægt
fyrir mig persónulega og okkur öll
að gera allt sem í okkar valdi stend-
ur til að styðja við friðaráætlunina."
Gabriel er rómaður baráttumaður
fyrir mannréttindum í heiminum og
lag hans Leikir án landamæra (Gam-
es Without Frontiers) hefur öðlast
sess sem alþjóðlegur friðarsöngur.
Adel Saloumi, sem er einn arabísku
tónlistarmannanna, bárust morðhót-
anir eftir að hann féllst á að koma
fram á tónleikunum. Taba var síð-
asti hluti Sínaí sem Egyptar afhentu
ísraelum í kjölfar sögulegs friðar-
samnings þjóðanna. Staðurinn var
líka vettvangur viðræðna ísraela og
PLO sem að urðu til þess að Palest-
ínu-arabar fengu sjálfstjórn yfir
Gaza og Jeríkó.
Iman al-Bahr er vinsæll egypskur
söngvari sem átti að syngja átónleik-
unum. Hann sagðist hlakka til að
syngja fyrir bæði arabíska og ísra-
elska áhorfendur: „Sá ágreiningur
sem rikir milli stjórnvalda ríkjanna
kemur almenningi ekk-ert við.
Tónlist er al-
þjóðlegt
tungu-
mál.“
FOLK
Sissel Kyrkjebo leggur rækt
við rætur sínar
►ÞEGAR norska söngkonan Sissel
Kyrkjebo var ellefu ára gömul
sagði hún foreldrum sínum frá því
að hún hefði unnið söngvakeppni í
skólanum. Foreldrar hennar urðu
hvumsa, enda hafði þá aldrei grun-
að að dóttir þeirra kynni nokkuð
fyrir sér í sönglist. Síðan þá hefur
mikið vatn runnið til sjávar og
Kyrkjebo er enn að. Söngkonan er
orðin 24 ára gömul og á sér fjölda-
marga aðdáendur. Það var ekki til
að minnka vinsældir hennar þegar
hún heillaði áhorfendur á opnunar-
hátíð Ólympíuleikanna í Lilleham-
mer með sinni skínandi rödd. Nýj-
asta plata hennar er á norsku og
kallast Dýpst í sálarfylgsnum mín-
um (Innerst I Sjelen). Á henni eru
fjórtán þjóðlög víðsvegar að frá
Norðurlöndunum. Sjálf segir
Kyrkjebo: „Síðan ég var lítill krakki
hef ég sungið tónlist af ýmsu tagi,
allt frá óperu til dægurlaga. Eg
finn sterkust tengsl við norska tón-
list, enda liggja rætur mínar þar.i“
Tónleikar
MÓTTAKA var haldin í Baðhúsinu á þriðjudag-
inn til heiðurs Lisu Hönnu frá Jamaíka sem
vann síðast til titilsins „Ungfrú heimur". Verið
var að safna peningum fyrir böm á íslandi sem
eiga við langvarandi veikindi að stríða og þurfa
að leita sér læknishjálpar erlendis. Stofnað var
góðgerðarfélag Baðhússins sem mun standa
fyrir einum til tveimur uppákomum á ári. Það
vakti athygli að aðeins konum var boðið til
móttökunnar en Baðhúsið sérhæfír sig í þjón-
ustu við konur. Þijátíu miðar voru afhentir á
tónleika Kristjáns Jóhannssonar sem allir Ma-
estro Eurokorthafar fengu. Linda Pétursdóttir
sagði af þessu tilefni: „Lisa Hanna lét vel af
komu sinni hingað tii lands en þetta var í fyrsta
skipti sem hún fær að ferðast fylgdarlaust.
Ég leyfði henni að gera það sem hana langaði
til. Við leyfðum aðeins myndatökur á mánudeg-
inum og dekruðum við hana hér í Baðhúsinu
á þriðjudeginum. Hún fékk bæði nudd og and-
litsbað og síðan var farið með hana til Þing-
valla í kaffi og kleinur."
með Peter
Gabriel
bannaðir
Morgunblaðið/Golli
ÞÆR hafa allar verið alheimsfegurð-
ardrottningar, frá vinstri: Linda Pét-
ursdóttir, Lisa Hanna og Hólmfríður
Karlsdóttir.
Peter Gabriel á blaðamanna-
fundi 15. júní í Tel Aviv. Þar
skýrði hann frá því að fyrir-
huguðum tónleikum yrði
frestað vegna tæknilegra örð-
ugleika.