Morgunblaðið - 19.06.1994, Side 52

Morgunblaðið - 19.06.1994, Side 52
varða víðtæk fjármálaþjónusta Landsbanki íslands FORGANGSPÓSTUR UPPLÝSINGASÍMI 63 73 00 Bankl allra landsmanna MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJA VÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÓSTHÓLF 3040 / AKUREYRl: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 19. JUNI1994 VERÐ I LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Skírn í Almannagjá SKÍRN fór fram í Almannagjá á Þingvöllum á þjóðhátíðardaginn. Þar var skírð Guðrún María Bjarnadóttir, tveggja mánaða stúlka sem býr með foreldrum sinum i Danmörku. Það var séra Hanna María Pétursdóttir þjóðgarðsvörður sem skírði barnið og fór athöfnin fram skömmu fyrir hádegi að iokinni hugvekju sem séra Hanna Maria flutti þjóðhátíðargestum í Almannagjá. Monika Abendroth lék á hörpu við skírnarathöfnina. Foreldrar Guðrúnar Maríu eru Guðmundur Bjarni Harðarson og Rut Hreinsdóttir. Var barnið skírt í höfuðið á ömmu sinni sem hélt á því undir skírn. Guðmundur Bjarni sagði að þau hjónin væru búsett í Dan- mörku og hefðu ekki komið til Islands að sumri til í fimm ár. Þau hefðu ákveðið að koma til íslands á þjóðhátíð sérstaklega i Morgunblaðið/Þorkell þeim tilgangi að skira dóttur sína hér á landi á þjóðhátíðardaginn. Yfirlögregluþjónninn á Selfossi um umferðaröngj) veitið á lýðveldishátíðinni Mistök að lokaveginum fyrir almennri umferð UMFERÐARÖNGÞVEITI skapaðist á leiðinni til og frá Þingvöllum 17. júní og þurftu þúsund- ir manna að sitja í bílalestum klukkustundum saman. Jónmundur Kjartansson yfirlögregluþjónn í Árnessýslu telur að þurft hefði að flytja þjóðhöfð- ingjana með þyrlum frá Þingvöllum í stað þess að loka veginum tvisvar yfir daginn og segist ekki munu standa að skipulagningu vegna ann- arrar hátíðar á Þingvöllum nema öðruvísi verði að henni staðið. Jakob S. Þórarinsson varðstjóri í umferðardeild lögreglunnar í Reykjavík segir umferðarþungann ekki hafa komið á óvart og öngþveitið á Þingvöllum hafí orsakast af skipu- lagi á hátíðarsvæðinu og vegakerfmu þar. Greið- lega gekk að koma umferðinni í bæinn um kvöld- ið. Fylgst var rrteð umferðinni úr þyrlu og segir Jakob að um ellefuleytið hafí þær upplýsingar borist að lítil sem engin umferð væri yfir Hellis- heiðina og þess vegna hefði þeim tilmælum ver- ið beint til fólks að fara þá leið. Hafi því síðan verið hætt þegar umferðin hafi verið orðin jöfn í báðar áttir. Sátu þúsundir manna sem komið höfðu þá leið fastar í bílum sínum við Gjábakka. Fólk flykktist að Steinn Lárusson framkvæmdastjóri þjóðhátíð- arnefndar segir að 75-80.000 manns hafí sótt hátíðina og megi meðal annars skýra öngþveitið með því að fólk hafí flykkst af stað þegar það hafí séð hversu gott veðrið var í beinni útsend- ingu sjónvarpsins frá Þingvöllum. Jónmundur Kjartansson tekur ekki undir ásakanir um skipu- lagsleysi og segir að lögreglan fái ekki við það ráðið þegar allir leggi af stað í einu. Alls voru rúmlega 90 lögregluþjónar á vegum embættisins að störfum vegna hátíðahaldanna, þar af sáu 40 um gæslu vegna þjóðhöfðingjanna. Hann segir hins vegar að menn sínir hafí ekki áttað sig á umferðartappanum við Gjábakka fyrr en um seinan. Þar hafi fólk lagt bílum sínum hér og þar við veginn sem tafíð hafi umferð og al- gert öngþveiti skapast og lögreglumenn þurft að fara fótgangandi milli staða. Loks segir hann að umferð inni á svæðinu hafí verið miklu meiri en þjóðhátíðarnefnd hafi talið lögreglunni trú um. Bitrufjörður á Ströndum Olíubíll valt með 30.0001 af gasolíu Hólmavík. Morgunblaðið. OLÍUBIFREIÐ með tengi- vagni fór út af veginum og valt við bæinn Hvítuhlíð í Bitrufirði á Ströndum síð- degis á föstudag. 30 þúsund lítrar af gasolíu voru í bílnum og talið er að nokkur hund- ruð lítrar hafi runnið úr tönk- um bílsins áður en hægt var dæla úr þeim. Þrír olíubílar frá Hvamms- tanga og Hólmavík voru fengnir til að dæla úr bílnum og jafnframt fór slökkviliðið á Borðeyri og Hólmavík á slys- stað ásamt lögreglu. Slökkvi- liðið frá Hólmavík kom með flotgirðingu en ekki reyndist þörf fyrir hana þar sem olían rann í jarðveginn en ekki sjó- inn. Ökumaður slapp ómeiddur Ökumaður olíubílsins slapp að mestu ómeiddur. Slysið varð á einbreiðu slitlagi þegar bílstjóri olíubílsins vék bílnum út í vegkantinn til að hleypa fólksbíl fram úr. Vegkantur- inn gaf sig og bíllinn valt nið- ur í fjöru. Bíllinn var á leið til Hólmavíkur frá Reykjavík. Unnið var að því að dæla olíu úr bílnum fram til kl. 3 aðfara- nótt laugardagsins og þá loks var hægt að rétta hann við. Gripið á ný til aðgerða við Svalbarða Klippt á tog- víra Hágangs II Ósló. Morgunblaðið. EFTIR hádegi í gær lét norska strandgæslan að nýju til skarar skríða gagnvart skipum í eigu íslendinga á fiskverndarsvæðinu við Svalbarða og klippti að sögn á togvíra Hágangs II, sem skráður er í Belize en gerður út frá Vopnafírði. Að sögn norsku strandgæslunn- ar kastaði Hágangur II vörpunni sinni fyrir augum norskra strand- gæslumanna, sem eru við eftirlit á Svalbarðasvæðinu. Strandgæsl- an leit á veiðar skipsins sem hreina ögrun og greip þegar til aðgerða og um klukkan 13 að íslenskum tíma var klippt á togvíra skipsins. Arne Simonsen, kafteinn í bæki- stöðvum norsku strandgæslunnar í Norður-Noregi, segir í samtali við Aftenposten að strandgæslan hafí í gær talið sig knúna til að ráðast gegn því sem hún líti á sem „sjóræningjaveiðar“. í gær voru fimm íslenskir togar- ar í verndarsvæðinu auk Hágangs II en enginn þeirra hafði verið við veiðar þegar Morgunblaðið fór í prentun. Pjögur skip norsku strandgæslunnar eru við eftirlit á Svalbarðasvæðinu, auk Orion- flugvélar. Þegar Morgunblaðið hafði sam- band við Reyni Árnason, útgerðar- stjóra Hágangs á Vopnafirði, í gær hafði hann ekki frétt af atvikinu og vildi ekki tjá sig um það. Ekki er unnt að ná beinu sambandi við Hágang II og berast boð frá hon- um í gegnum Stakfell frá Þórs- höfn, sem einnig er við Svalbarða. Reynir sagði að skipið 'yrði áfram að veiðum við Svalbarða meðan þess væri nokkur kostur en ef Norðmenn héldu áfram hertum aðgerðum með togvíraklippum og fallbyssuskotum gæti orðið erfitt að halda út. Reynir Árnason sagði að þar sem skipið væri skráð í Belize litu íslensk stjórnvöld svo á að skipið væri þeim óviðkomandi. Morgunblaðið/Kristín Gunnarsdóttir Þjóðhöfðingjar planta í Vinaskógi ÞJÓÐHÖFÐINGJAR Noregs, Danmerkur, Svíþjóðar og Finn- lands plöntuðu fjórum trjám í Vinaskógi á Kárastöðum þjóðhá- tíðardaginn 17. júní. Við þetta tækifæri lýsti Karl XVI Gústaf Svíakonungur áhyggjum sínum af að of þröngt væri plantað og hætta á að trén skyggðu á fal- legt útsýnið en Haraldur V Nor- egskonungur hafði einn þjóð- höfðingjanna áður plantað tré í Vinaskógi. Þjóðhöfðingjarnir skoðuðu svæðið og rituðu nöfn sín á stein þar sem letruð eru nöfn þeirra sem plantað hafa tijám í Vinaskógi. F.v. á mynd- inni eru Margrét Þórhildur II Danadrottning, Þorvaldur S. Þorvaldsson í stjórn Skógræktar- félags Islands, Martti Ahtisaari forseti Finnlands, Arnór Snorra- son skógfræðingur, Haraidur V Noregskonungur, Hulda Valtýs- dóttir formaður Skógræktarfé- lags íslands og Karl XVI Gústaf Svíakonungur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.