Morgunblaðið - 31.08.1994, Síða 1
64 SÍÐUR B/C
STOFNAÐ 1913
196. TBL. 82. ÁRG.
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Síðustu hersveitir Rússa frá Þýskalandi og Eystrasaltsríkjum
Jeltsín lofar
vináttu Rússa
og Þjóðverja
Berlín, Moskvu. Reuter.
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti kom í gærkvöldi til Berlínar
þar sem hann verður viðstaddur hátíðlega kveðjuathöfn í dag
en þá yfirgefa síðustu rússnesku hersveitirnar borgina eftir
næstum hálfrar aldar veru sovéskra og síðar rússneskra sveita
í Þýskalandi. Síðustu rússnesku hermennirnir yfirgefa einnig
Eistland og Lettland í kvöld en Litháen er þegar laust við
hernámsliðið. Jeltsín sagði við komuna til Berlínar að brott-
för hersveitanna ætti sér stað á sögulegum tímamótum. Þær
hefðu á sínum tíma átt stóran þátt í sigri bandamanna á
heijum Adolfs Iiitlers, lagt grunninn að friði í Evrópu og
Jtryggt stöðugleika á tímum kalda stríðsins.
Reuter
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti heilsar börnum sem tóku á móti
honum með rússneska fána í Berlín. A flugvél forsetans hefur
nú verið málað tákn Rússlands keisaranna, tvíhöfðaður örn en
hamri og sigð sovétkommúnismans hefur verið útskúfað.
Hóta inn-
rás á Haítí
Kingston. Reuter.
FULLTRÚAR Bandaríkjanna og 11
ríkja við Karíbahaf segja að gerð
verði innrás ef herforingjastjórnin
á Haítí haldi áfram að bjóða örygg-
isráði Sameinuðu þjóðanna byrginn
með því að sitja sem fastast. Banda-
rískur embættismaður segir að 1
innrásarliðinu, sem mun verða und-
ir bandarískri stjórn, yrðu allt að
10.000 manns.
Yfirlýsingin um innrás var sam-
þykkt á fundi ríkjanna á Jamaíka
í gær. Beitt verður öllum nauðsyn-
legum ráðum til að koma aftur á
lýðræði á Haítí en herforingjarnir
ráku Jean-Bertrand Aristide, rétt-
kjörinn forseta, frá völdum. Hefur
síðan ríkt ógnarstjórn í landinu.
Árangurslausar viðræður
Sendimanni SÞ, Rolf Knutsson,
mistókst í síðustu viku að fá herfor-
ingjana og stuðningsmenn þeirra
til að fara frá en hann ræddi við
fulltrúa þeirra í Dóminíska lýðveld-
inu, sem á landamæri að Haítí.
Flúið frá Kúbu
Reuter
Forsetinn sagði að nú væri ekki
lengur rétt að ræða um sigurvegara
og sigraða. „Samskipti Rússa og
Þjóðveija byggjast á gagnkvæmri
vináttu,“ sagði Jeltsín en fyrir brott-
förina frá Moskvu í gær hafði Inter-
fax-fréttastofan eftir honum að það
hefði orðið til þess að skaða sam-
skiptin við Þjóðveija ef Rússar hefðu
haldið hersveitum þar lengur.
Brottflutningur sovéthersins sál-
uga frá austurhluta Þýskalands hófst
fyrir ijórum árum. Um var að ræða
heimkvaðningu 340.000 manna og
brottfiutning gífurlegs magns vopna
og annarra hergagna. Er um að
ræða einhveija viðamestu liðsflutn-
inga sem um getur á friðartímum.
Móttaka í Moskvu
Tekið verður á móti rússnesku
hersveitunum með viðhöfn á Belor-
usskí-lestarstöðinni í Moskvu. Þaðan
marsérar herliðið eftir Tverskaja-
breiðgötunni að Kreml eða sömu leið
og Rauði herinn við heimkomuna úr
heimsstyijöldinni síðari.
í næstu viku verða mikil hátíðar-
höld í Berlín er hersveitir banda-
manna — Bandaríkjamanna, Frakka
og Breta — yfirgefa Berlín en þær
vörðu V-Berlín gagnvart sovésku
ógninni á dögum Berlínarmúrsins.
■ Frá Eystrasaltsríkjunum/16
Glerbrot
í glasinu
London. Reuter.
BRESKA lögreglan kannar nú
mál fyrrverandi lögreglumanns,
Johns Gormans, sem segir farir
sínar ekki sléttar eftir að hafa
fundið að þjónustu hjá British
Airways.
Að sögn BBC fékk maðurinn,
sem var á leið til New York,
glas með glerbrotum í. Hann
kvartaði og var handtekinn við
heimkomuna. Lögreglan sakaði
hann um að vera útsendari flug-
félagsins Virgin sem hygðist
sverta BA. Honum var þó sleppt.
Nokkru síðar brutust þjófar inn
hjá Gorman, lúbörðu hann og
stálu sönnunargögnum í málinu.
KÚBVERSK hjón búa sig undir
að sigla af stað til Flórída frá
strönd í grennd við Cojimar.
Bandaríska strandgæslan bjóst
við því að flóttamannastraumur-
inn ykist á ný í nótt, en slæmt
veður hefur heft för fólksins um
nokkurt skeið. Málgagn komm-
únistaflokksins á Kúbu,
Granma, sagði í gær, að kominn
væri tími til þess að Bandarikja-
stjórn sýndi velvilja og sveigjan-
leika gagnvart Kúbu þannig að
sambúð nágrannarikjanna
tveggja gæti orðið eðlileg. Full-
trúar ríkjannn hefja viðræður
um flóttamannavandann í vik-
unni.
Samningar við frska lýðveldisherinn
Mótmælendur
vara við borg-
arastyijöld
Belfast. Reuter.
HERSKÁIR mótmælendur á Norður-írlandi brugðust í gær ókvæða
við fréttum um að írski lýðveldisherinn (IRA) kynni að lýsa yfír
vopnahléi til að greiða fyrir viðræðum við bresku stjórnina.
Mótmælendurnir sögðu að slíkar samningaumleitanir myndu ekki
leiða til friðar, heldur þvert á móti til blóðugrar borgarastyijaldar.
Heimildarmenn innan IRA
sögðu að herinn myndi að öllum
líkindum gefa út yfírlýsingu um
vopnahlé á næstu dögum, jafnvel
í dag, til að greiða fyrir samninga-
viðræðum við bresku stjórnina um
framtíð N-írlands. Frelsisfylking
Ulsters (UFF), hreyfing öfga-
manna úr röðum mótmælenda,
sagði að slíkar friðarumleitanir
væru „uppskrift að borgarastyij-
öld“.
„Varnaraðgerðir"
Heimildarmennirnir innan IRA
sögðu að herinn myndi að öllum
líkindum ekki falla algjörlega frá
valdbeitingu, heldur áskilja sér rétt
til „varnaraðgerða“ gegn dauða-
sveitum mótmælenda sem beijast
fyrir áframhaldandi yfírráðum
Breta yfir Norður-írlandi.
Norður-írar óttast að friðarum-
leitanirnar leiði til blóðugra átaka
eins og á sjöunda og áttunda ára-
tugnum. Þegar IRA lýsti yfír
vopnahléi fyrir 19 árum til að
greiða fyrir viðræðum við Breta
hófu dauðasveitir mótmælenda
miklar ofbeldisaðgerðir gegn
kaþólikkum á Norður-írlandi.
■ Bretar útiloka tilslakanir/17
Hvatning Rússa
Serbíu
verði
umbunað
Sarajevo, Moskvu. Reuter.
ANDREJ Kozyrev, utanríkis-
ráðherra Rússlands, átelur
Vesturveldin fyrir að bregðast
of seint við þeirri ákvörðun
Serbíu að styðja friðaráætlun
fimmveldanna í Bosníu.
Kozyrev vill að þegar verði
slakað nokkuð á viðskipta-
þvingunum Sameinuðu þjóð-
anna gegn landinu.
Vesturveldin hafa krafist
þess að Serbar leyfi alþjóðleg-
um eftirlitsmönnum að fylgj-
ast með því hvort viðskipta-
banni Serbíustjórnar á þjóð-
bræðurna í Bosníu, sem hafna
friðaráætluninni, sé fram-
fyigt.
■ Leiðari/24