Morgunblaðið - 31.08.1994, Síða 30

Morgunblaðið - 31.08.1994, Síða 30
30 MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994 MINIMINGAR MORGUNBLAÐIÐ RÚNAR STEFÁNSSON + Rúnar Stefáns- son fæddist á Húsavík 10. apríl 1962. Hann lést 24. ágúst síðastliðinn. Foreldrar Rúnars eru Sigurbjörg Sig- valdadóttir og Stef- án Benediktsson. Útför Rúnars fór fram frá Garða- kirkju í gær. „Skoðaðu huga þinn vel, þegar þú ert glað- -úr, og þú munt sjá, að aðeins það, sem valdið hefur hryggð þinni, gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorg- mæddur, skoðaðu þá aftur huga þinn, og þú munt sjá, að þú græt- ur vegna þess, sem var gleði þín.“ Aftur og aftur rennur það upp fyrir okkur hversu sönn þessi orð, úr Spámanninum eftir Kahlil Gi- bran, eru. Elsku Rúnar okkar er dáinn. Öll orð verða allt í einu svo fátæk- leg, öll orð svo léttvæg. Já, erfitt að finna orð sem ná að lýsa þeim tilfinningum sem bærast í bijósti okkar, okkar sem eigum þér svo rpikið að þakka til svo langs tíma. Þegar komið er að leiðarlokum vildum við segja svo margt, minn- ast svo margs, atvika sem fara eins og örskot í gegnum hugann, en það eina sem við höfum eru fátækleg, jarðnesk orð. Við minnumst lífsgleði þinnar og lífsvilja, gamansemi þinnar og kátínu við erfiðar kringumstæður, huggunarorða þinna og hvatningar, þegar það varst í raun þú sem við héldum að þyrftir huggunar og hvatningar við. Við minnumst baráttu þinnar og æðruleysi við erfiðan, óyfirstíg--, anlegan sjúkdóm, þar sem þú þó vissir best að endalokin gátu ekki verið nema á einn veg. Þrátt fyrir það varst það þú sem varst gleðigjafinn, sá sem gafst góð ráð á erfið- um stundum og sá sem sást spaugilegu hliðarnar á hlutunum þegar við hin fundum enga lausn. Já, það er ótrúlegt en satt. Og nú er þessu fallega ævintýri lokið. Við hin sitjum eftir með minningar og ljúfsáran söknuð. Minningar um góðan bróður sem farinn er á undan okkur hinum, og ljúfsáran söknuð sem gerir okk- ur mögulegt að trúa því, að við eigum öll eftir að mætast að nýju, að þessir fáu samvistardagar á jörðu hér séu ekki allt. Að það hljóti að koma að endurfundunum og að orð Jesú Krists séu sönn, þar sem hann segir: „Komið til mín allir sem erfíðið og þunga eruð hlaðnir og ég mun veita yður hvíld.“ Og við hlökkum til endur- fundanna. Við vitum að endurfund- irnir munu koma og að þeir munu verða dásamlegir. Elsku Rúnar okkar. Við kveðjum þig með virðingu og söknuði og t Elsku maðurinn minn, JÓHANN PÉTUR JÓNSSON, er látinn. Guðrún Filippusdóttir. t Ástkær móðir okkar, BRYNHILDUR ÞÓRARINSDÓTTIR frá Hjaltabakka, Miðleiti 5, Reykjavík, andaðist í Borgarspítalanum 29. ágúst. Sigríður Jónsdóttir, Loftur Jónsson, Katrín Jónsdóttir, Gunnhildur Jónsdóttir, Þórarinn Jónsson. t Faðir minn, tengdafaðir, afi, bróðir og mágur, JÓN MAGNÚSSON, Bræðraborgarstig 3, Reykjavik, er látinn. Jarðarförin er auglýst síðar. Ragnar Jónsson, Garðar Kári, Guðrún Þórdis, Erla Magnúsdóttir, Margrét Magnúsdóttir, Páll Magnússon, Kristi'n Þórkatla Kristvinsdóttir, Ragnheiður Helga, Magnea Magnúsdóttir, Eðvald Magnússon, Kristján Einarsson, Pauline Magnússon, t Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÞÓRODDURJÓNASSON læknir, sem lést á heimili sínu laugardaginn 27. ágúst, verður jarðsung- inn frá Akureyrarkirkju föstudaginn 2. september kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Vinasjóð Heilsugæslustöðvarinnar á Akureyri eða aðrar líknarstofnanir. Guðný Pálsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. þökkum þér fyrir allt og allt. Megi algóður Guð blessa minningu góðs bróður. Elsku mamma og pabbi. Við biðjum algóðan Guð að styrkja ykkur í sorg ykkar og söknuði. Þið hafið misst mikið, en minningin um góðan son mun lifa. Guð al- máttugur blessi ykkur alla tíð og tíma. Þín systkini, Hanna, Sigrún, Bylgja, Stefán og Guðný. Elsku frændi. Nú ert þú farinn þá leið er við öll þurfum að fara. Ljós, kærleikur og friður guðs umvefur þig núna. Erfið veikindi eru að baki. Nú ertu frjáls. Okkur systur langar að minnast þín með örfáum orðum. Þú varst svo sérstakur, öðruvísi, það verður enginn annar Rúnar. Hver annar en þú gat fundið upp á svo skemmtilegum leikjum þegar við systur heimsóttum ömmu og afa á Húsavík í gamla daga? Þú spígsporaðir stoltur um bæ- inn með systurnar frá Reykjavík. Uppi á lofti hjá afa og ömmu lékum við okkur, settum upp heilu leik- sýningarnar þar sem þú varst leik- ritahöfundur, leikstjóri, hvíslari og aðalleikari, allt í öllu. Og ef við lögðum okkur ekki fram og mund- um fyrirmælin þín, þá pirraðist þú, þú vildir hafa þetta vel gert og rétt. Þegar þú varst upptekinn við sundæfingar og við píanóið passaði amma upp á að við trufluðum þig ekki. Okkur hætti til að gleyma því að þú værir eldri og þyrftir kannski að sleppa frá okkur stund- arkorn. Alúðin og umhyggja þín við okkur og öll litlu börnin í fjöl- skyldunni var augljós. þú varst mikil bamagæla. Manstu bænina sem amma las alltaf fyrir okkur þegar við fórum að sofa? Vertu nú yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni, sitji guðs englar saman í hring sænginni yfir minni. Æskan þín var björt. Þú naust mikils kærleiks foreldra þinna og áttir stór systkin sem öll elskuðu þig heitt. Þegar þú fluttir suður fórstu að læra á píanó. Það átti vel við þig. Þú naust þess að vera út af fyrir þig og heimili þitt var alltaf snyrti- legt og fínt og gott heim að sækja. Síðustu árin voru þér erfið, sjúk- dómurinn sótti á en aldrei gafstu upp, hugrekki þitt og glaðlyndi var einstakt. Þú lifðir lífinu lifandi, hafinn yfir sársauka og sjálfsvork- un. Þú færðir okkur hugarró með æðruleysi þínu og varst ætíð upp- spretta orku og lífsþróttar. Minning þín verður alltaf björt í hugum okkar. Afi og amma, megi guðs styrkur sefa sorg ykkar. I 1 _ i _ Krossar TTT á“ I viSariit oa málooir. Mismunandi mynsnjr, vönduo vinna. Simi 91-35929 oq 3S735 í blúniiiskrpyf in<fiim vi<> öll lu kila i-i Skólavörðustíg 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 19090 Háa skilur hnetti himingeimur blað skilur bakka og egg. En anda sem unnast fær aldregi eilífð'að skilið. (Jónas Hallgrímsson) Sigurbjörg Rósa og Björg Kristín. Minn kæri mágur, Rúnar Stef- ánsson, er látinn eftir langa og stranga baráttu við erfiðan sjúk- dóm. I tilefni af því vil ég minnast hans með örfáum orðum. Ég kynntist Rúnari fyrir rúmum fjórum árum. Mér er það minnis- stætt þegar ég fyrst heimsótti hann á Skarphéðinsgötuna í litlu vinalegu íbúðina hans. Allt var svo snyrtilegt og andrúmsloftið var svo einkennilega notalegt í kringum hann. Mér var það augljóst strax frá fyrsta degi hvaða mann Rúnar hafði að geyma. Hann var þeim eiginleikum gæddur að geta talað um allt og ekkert, og slegið öllu upp í grín sem gerðist nú ekki sjaldan. Hann var heill hafsjór af fróðleik varðandi tónlist og átti drjúgan þátt í því að opna augu x mín fyrir klassík. Minnisstæðust eru mér þó skrif hans í gestabæk- urnar, afmælis- og jólakörtin. Þau voru svo full af kærleik og komu beint frá hjartanu. Þau munu verða sæt minning um góðan mann. Því er nú einfaldlega þannig farið að sú persóna sem Rúnar hafði að geyma var _einstök, og á sér vart hliðstæðu. Ég hefði kosið að kynni okkar hefðu orðið lengri Rúnar minn, en Guð hefur kallað þig til sín til annarra verka. Að lokum bið ég Guð að vaka yfir elskulegum tengdaforeldrum mínum, Sigur- björgu og Stefáni, á þessari erfiðu stundu og jafnframt að senda Guðnýju minni stuðning og styrk, sem var þér svo náin systir. For- eldrum og systkinum sendi ég ein- lægar samúðarkveðjur. Eg kveð Rúnar mág minn með söknuði. Ó, minning þín er minning hreinna ljóða, er minning þess, sem veit hvað tárið er. Við barm þinn gréru blómstur alls þess góða. Ég bið minn Guð að vaka yfir þér. (Vilhjálmur frá Skáholti.) Blessuð sé minning þín. Agnar. Mig langar að minnast hans Rúnars Stefánssonar með örfáum orðum. Hann var um árabil til heimilis hjá aldraðri móður minni á Hringbrautinni, Dórótheu Hall- dórsdóttur, eftir að hann kom á tvítugsaldri hingað suður í hljóð- færanám frá Húsavík, heimabæ þeirra beggja. Þau ár sem Rúnar bjó hjá móður minni var hann henn- ar helsti félagi og trúnaðarvinur og held ég að ekki sé ofmælt að hún hafi gengið í endumýjun líf- daga meðan hans naut við. Rúnar var um margt óvenjuleg- ur ungur maður. Ég gleymi því ekki þegar ég sá hann fyrst, hve bjart var yfir honum og einlæg blíða í allri hans framkomu, enda reyndist hann einstaklega góður drengur við nánari kynni. Tónlistin var hans líf og yndi, og þegar við ræddum um þetta sameiginlega áhugamál okkar ljómaði hann allur og var því líkast sem hann horfði inn í heima þar sem ríkti fegurð og samræmi í öllum hlutum. Rúnar var mjög efnilegur nemandi, stund- aði píanónámið af alúð og veitti móður minni mikla gleði þegar hann æfði sig á hljóðfærið og fyllti húsið af lifandi tónlist. Ég og fjölskylda mín erum Rún- ari innilega þakklát fyrir það sem hann var móður minni og minning þessa góða drengs mun lengi lifa meðal okkar. Við vottum fjölskyldu Rúnars og vinum innilega samúð okkar og biðjum Guð að blessa hann. Brynja Tryggvadóttir og fjölskylda. Rúnar er dáinn. Á svona stundu koma upp í hugann minningar um skemmtilegan, góðan og tryggan vin. Við kynntumst 16 ára þá bæði við nám í Tónlistarskóla Reykjavíkur. Rúnar var þá í píanó- námi og ég í fiðlunámi. Við spiluð- um mikið saman, samæfingarnar voru oft skemmtilegar, mikið spjallað, hlegið og oft farið út fyr- ir efnið og annars konar tónlist oft spiluð. Ung að árum sóttum við ásamt nokkrum vinum um inngöngu í Fílharmoníukórinn og tókum m.a. þátt í konsertuppfærslu á óperunni „La Traviata". Þessi tími var skemmtilegur, eftir æfingar var oft farið heim til Rúnars á Hring- brautina til að spjalla saman eða hlusta á tónlist. Þegar árin liðu lágu leiðir okkar sjaldnar saman, en símtólið var oft tekið upp, við spjölluðum lengi saman og alltaf var stutt í hlátur- inn. Mér þótti vænt um, þegar ég eignaðist son 1987, hvað Rúnar færði okkur fallega gjöf og hafði mikinn áhuga og fylgdist með drengnum mínum vaxa. Alltaf var Rúnar einn af þeim sem fékk mynd af honum með jólakortinu sem hann kunni svo sannarlega að meta. Hann var sérstakur vinur. Ég vil þakka Rúnari fyrir allar skemmtilegu stundimar sem við áttum saman og biðja góðan Guð að geyma hann. Foreldrum og öðrum aðstand- endum votta ég mína innilegustu samúð. Eva Egilsdóttir. Rúnar Stefánsson var úr stórri og samrýndri fjölskyldu. Fram á unglingsár bjó hann á Húsavik en flutti þá til höfuðborgarinnar til að stunda nám í píanóleik. Þegar við kynnumst Rúnari á unglingsár- um okkar bjó hann hjá „Dóru gömlu“ á Hringbrautinni. Strax við fyrstu kynni tókst mikil vinátta meðal okkar. Á Hringbrautinni var gjarnan glatt á hjalla hjá okkur og oft söfnuðust við þar saman. Síðan flutti hann á Skarphéðins- götuna í eigin íbúð. Rúnar var mikið snyrtimenni og bar heimili hans og umhverfi því glöggt vitni. Eftir að við kynntumst konum okkar varð einnig mikil vinátta þeirra á milli. Rúnar var einn af þeim sem manni líkaði strax vel við því opin framkoma hans og smitandi hlátur vann strax hug og hjarta manns. Rúnar var mjög opinskár, það var hægt að tala við hann um allt milli himins og jarðar en hann hafði ákveðnar skoðanir á öllu og í raun var ekkert honum óviðkomandi. Rúnar hafði skemmtilega og sérstaka kímni- gáfu, hann gat alltaf fundið skondnar hliðar á öllum sköpuðum hlutum, hversu hversdagslegir sem þeir voru. Oft kom það fyrir að hann vitnaði til hjónanna óborgan- legu á Brávallagötunni í tali sínu. Hann spáði mikið í lífið og tilver- una hin síðustu ár, hafði trú á lífi eftir dauðann og að einstaklingar færu í gegnum ákveðið þroskastig í hverju lífi. Þessi trú hans hjálp- aði honum að líta öðrum augum á sjúkdóm sinn og takast á við hann enda hélt hann áfram að rækta og byggja upp og lét aldrei bug- ast. Þótt fráfall Rúnar leggist þungt á okkur, þá kemur hann alla tíð með að skipa stórt pláss í hjörtum okkar en við trúum því að nú líði honum vel á öðru tilveru- stigi. Elsku Sigurbjörg, Stefán og systkini, við berum minningu um Rúnar í hjarta okkar og sendum ykkur samúðarkveðjur. Skoðaðu hug þinn vel þegar þú ert glaður og þú munt sjá, að aðeins það sem valdið hefur hryggð þinni gerir þig glaðan. Þegar þú ert sorgmæddur skoðaðu þá aftur huga þinn og þú munt sjá að þú grætur vegna þess sem var gleði þín. (Kahlil Gibran.) Vigfús, Lára, Sighvatur og Soffía.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.