Morgunblaðið - 31.08.1994, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 31.08.1994, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994 23 AÐSENDAR GREINAR Auðlindaskattur og fiskveiðar VEGNA þeirrar um- ræðu, sem verið hefir nýverið um auðlinda- skatt eða veiðileyfagjald og fiskveiðar, virðist full ástæða til að itreka enn og aftur rök fyrir veiði- leyfagjaldi á fiskveiðar. I fyrsta lagi byggjast fiskveiðar á nýtingu tak- markaðrar auðlindar, í öðru lagi er auðlindin sameiginleg, í þriðja lagi er um endurnýjanlega auðlind að ræða og í ijórða lagi má bæta við að vel reknar fískveiðar eru tvímælalaust sú at- vinnugrein á Islandi sem mestri arðsemi getur skilað. Hug- myndir iðnrekenda um skatt á fisk- veiðar, samfara hækkandi gengi, og lækkun virðisaukaskatts eru byggð- ar á síðasttöldu röksemdinni. Sam- kvæmt henni yrði staða fiskveiða óbreytt, ríkissjóður fengi tekjur af veiðileyfagjaldi í stað virðisauka- skatts og neytendur ættu að fá vörur á svipuðu verði og áður en sam- keppnisstaða innlends iðnaðar myndi styrkjast. Önnur röksemdafærsla er sú að vegna þess að auðlindin er sameig- inleg, takmörkuð og endurnýjanleg er hætta fyrir hendi að þeim arði sem auðlindin getur gefið af sér miðað við skynsamlega nýtingu verði sóað í óþarfa kostnað eins og gerst hefir á undanförnum áratugum. Á sama tíma og aflaheimildir eru að minnka og þar með mögulegar tekjur sjávar- útvegs, hefir flotinn stækkað eins og sjá má á meðfylgjandi línuriti. Fiskiskipafloti, sem var 23 þúsund brúttó tonn í byijun árs 1991, var orðinn 59 þúsund brúttó tonn aðeins þremur árum síðar. Ef tekist hefði að hemja veiðigetu fiskiskipa- flota við kjörsókn, það er að afla á hveiju ári um 18% af veiðistofni, mætti búast við 350 til 380 þúsund tonna jafn- stöðuafla þorsks í stað 150 þúsund tonna afla- heimilda eins og gert er ráð fyrir á næsta fiskveiðiári, með mun minni flota en er nú notaður. Aukinn kostnaður við veiðar hefir því haft minnkandi tekjur í för með sér. Við skynsamlega sókn ætti útvegurinn að geta greitt milljarða króna á ári í veiðileyfagjald, samt búið við góða afkomu þótt hann sé ófær um það nú þar eð auka mætti tekjur greinarinnar á sama tíma og dregið yrði úr kostnaði. í framan- sögðu er kjarninn að hugmyndum um veiðileyfagjald fólginn. Nýting vatnsorku er ósambærileg við nýtingu fiskimiða eins og menn sjá í hendi sér því þðtt öll vatnsorka væri virkjuð er ekki nein hætta á viðkomubresti eins og á sér stað við nýtingu fiskimiða. Aukning á niður- settu afli kæmi því ekki til með að hafa í för með sér minnkun á heildar- vinnslugetu kerfisins. Orkuver er einnig að því leyti ólíkt fiskiskipi að við rekstur þess þarf fyrst og fremst að standa straum af íjármagnskostn- aði eins og afskriftum og vöxtum Nota á veiðileyfagjald og beint eftirlit með af- kastagetu flotans til að tryggja skynsamlega nýtingu fiskistofna, segir Kristjón Kol- beins, og bætir því við, að það sé helzta brota- lömin á fiskveiðistjórn- inni að hún hafi að mestu farið varhluta af hvoru tveggja. en ekki vinnulaunum og ýmiss konar aðföngum. Rekstur orkuvers, sem kostar milljarð króna í byggingu getur því gengið ágætlega þótt tekj- ur séu ekki nema 100 milljónir króna á ári á sama tíma og fiskiskip þyrfti að afla fyrir hálfu andvirði sínu á ári eða meira til þess að útgerðin bæri sig. Hugmyndin að veiðileyfagjaldi er ekki ný af nálinni. J.A. Gulland og M.A. Robinson mæla með því og beinu eftirliti með afkastagetu flota tii að tryggja skynsamlega nýtingu fiskistofna. Islensk fiskveiðistjórnun hefir að mestu farið varhluta af hvoru tveggja, sem er helsta brot- alöm fiskveiðistjórnarkerfisins. Gulland og Robinson telja einnig að takmörkun sóknar með verulegum skatti eða leyfisgjaldi sé lausn á því vandamáii að halda við frumkvæði til endurbóta á tæknilegri og efna- hagslegri hagkvæmni veiðanna en um leið að takmarka fiskveiðidánar- töluna. Veiðileyfagjald er auk þess sjálf- sögð leiga fyrir afnot af auðlind, sem metin er á mörg hundruð milljarða króna, þar sem verðmæti hennar á rætur að rekja tii þeirrar arðsemi sem vel rekinn sjávarútvegur getur skilað umfram aðrar atvinnugreinar. Ef þessi arðsemi væri ekki fyrir hendi, væru aflaheimildir verðlausar. Höfundur er viðskiptafræðingur. Fiskiskipafloti íslendinga árin 1991-1994 Ár Kristjón Kolbeins Gilsfjarðarbrú fellur vel að mark- niiðum stjómvalda FYRIRSOGNIN að þessari grein er sótt beint í viljayfirlýsingu ríkisstjórnar um að styrkja byggðir sunnan og norðan íjarðar og skapa grundvöll að auk- inni samvinnu. Þjónustu- svæði Búðardals mun einnig stækka með stytt- ingu vegalengda. Allt þetta fellur vel að yfir- lýstum markmiðum stjórnvalda um stækkun þjónustusvæða, aukna samvinnu og sameiningu sveitarfélaga og aukna hagræðingu í þjónustu, verslun og atvinnulífi. Allt frá því að Matthías Bjarna- son flutti þingsályktunartillögu um þverun Gilsíjarðar hafa Vestlend- ingar og Vestfirðingar gert sér von- Gilsfjarðarbrú fellur vel að markmiðum stjórn- valda, segir Gísli S. Einarsson, um stokkun þjónustusvæða, sam- vinnu og sameiningu sveitarfélaga og aukna hagræðingu í þjónustu, verslun og atvinnulífi. ir um að brú frá Kaldrana yfir í Króksíjarðarnes verði byggð sem fyrst. Vegagerð ríkisins (nýja nafn- ið Vegagerðin) hefur haft málið í umfjöllun og athugun frá 1984. Stytting leiðarinnar um Gilsfjörð nemur um 17 km. Helstu staðreynd- ir sem ég tel rétt að geta um eru að það þarf um 750.000 rúmmetra af fyllingarefni, um 154.000 rúm- metra af gijótvörn, mesti bratti er 5,27o, krappasti bogi er 400 metr- ar. Heildarkostnaður er áætlaður 870 mkr. Þingmenn Vest- ijarða og Vestur- lands hafa staðið saman, og gera það heilshugar, um að koma þessu máli í framkvæmd sam- kvæmt samþykkt og í samræmi við tillögu Vegagerðar. Fram- kvæmd málsins lenti í þvi að verða lögð í mat á umhverfis- áhrifum samkv. liig- um nr. 63/1993. Eg er sannfærður um, og veit að aðrir þing- menn Vesturlands eru það einnig, að mat Vegagerðarinnar á umhverfis- áhrifum, sem skilað var frá áætlun- ardeild í júni síðastliðnum, er sann- gjarnt og sett fram með mjög skyn- samlegum rökum. Orð Vegagerðar eru eftirfarandi og lýsa mjög skýrri afstöðu sem ég ieyfi mér að gera að minni: „Vissulega fylgja fram- kvæmdinni neikvæð umhverfis- áhrif. Ávinningurinn, hagrænn og menningarlegur, vegur þó mun þyngra.“ Ástæða fyrir ritun þessarar greinar er að vegna óþolinmæði um að hafist verði handa við brúargerð hafa komist þær sögur á kreik að stjórnarþingmenn á Vesturlandi séu ekki heilir í málinu og vegna íjár- lagagerðar sé gott að málið frest- ist. Engar slíkar hugmyndir hafa komið til umræðu og við munum þrýsta á um að koma málum áfram svo fljótt sem verða má. Til þess að öllum megi verða ljóst hvernig ferlið um afgreiðslu um- hverfismats er: Ef allir fyrirvarar eru notaðir á afgreiðslustigum um- hverfismatsins þá er fyrst unnt að opna tilboð í febrúar 1995. Með þessu greinarkorni vona ég að það sé yfir allan vafa hafið hver mín afstaða er til þverunar Gils- fjarðar, sem mun hafa byltingu í för með sér hvað varðar áður um- getin markmið. Höfundur er þingmaður Alþýðufiokksins í Vesturlandskjördæmi. Gisli S. Einarsson SÁ DAGUR líður nú vart að þyrla lendi ekki við Borgarspítalann með fárveika eða stórslasaða mann- eskju. Borgarspítalinn er bráða- sjúkrahús allra landsmanna. Á degi hveijum þýtur neyðarbíllinn um Reykjavík og flytur lífshættulega veikt fólk á Borgarspítalann. Hjarta er hætt að slá eða hryggur brotinn, svo að dæmi séu tekin. Borgarspít- alinn er bráðasjúkrahús allra Reyk- víkinga. Það er ekki spurt að vakt- degi eða heimilisfangi, enda á ekki að gera það. Borgarspítalinn er sérfræði- sjúkrahús, sem tekur við okkar erf- iðustu tilfellum á nóttu sem degi, auk þess almenna hlutverks sem sjúkrahúsið hefur fyrir Reykjavík. Sérfræðisjúkrahús vísar ekki frá sér, það lokar ekki dyrum. Borgar- spítalinn sinnir fullri úrvinnslu vandans. Þegar bráðaveikindi dvína, hefst endurhæfing til sjálfs- bjargar ungra sem aldraðra. Það hefur ekki einungis blessun i för með sér fyrir einstaklinginn, það er þjóðhagslega hag- kvæmt. Tíminn stendur ekki í stað. Samgöngur batna og tækni fleygir fram. Innlögnum á Borgarspítalann hefur fjölgað. Afköstin auk- ast. Legutími styttist. Það sést ekki hag- kvæmari sjúkrahúss- rekstur á Islandi. Hvernig getur þá verið að slíkt sjúkrahús eigi í rekstrarvanda, sem er slíkur, að lífi sjúkra- hússins er stefnt í voða? Jú, það hefur ekki verið sagt: „Borg- aðu fyrst, komdu svo.“ Það hefur verið sagt, eins og á að segja: „Komdu.“ Það eina sem ekki hefur flætt eðlilega að sjúkrahúsinu er ijármagnið. Á Borgarspítalanum eru engin verkefni sem eru óþörf. Þar eru engin verkefni, sem verða betur leyst annars staðar eða á hagkvæmari hátt. Það er mögulegt að saxa sjúkrahúsið niður og senda molana hingað og þangað. En enginn tekur verkefni að sér fyrir ekki neitt. Það er ekki valkostur að ná sparnaði með tilfærslu á verkefnum Borgarspítalans ann- að. Slíkar hugmyndir væru loddaraskapur og lýðskrum. Fólkið í landinu ætlast til þess að Borgarspítalinn sinni verkefnum sínum — og vill örugglega að fjármálaráðuneytið greiði eðlilega fyrir veitta þjónustu. Nú er svo komið að jafnvægi verkefna og kostnaðar er slíkt að fólk þarf að liggja fárveikt á göngum. Húsið heldur ekki vatni eða vindum. Færasta starfsfólk hefur ekki afdrep. Vinnuálag á hvern starfsmann hefur náð því marki að starfsmenn eru að niður- lotum komnir, en keyra sig áfram. Enn berst að bráðveikt fólk. Svo á ekki að greiða laun eða sinna eðli- legu viðhaldi og innri hagræðingu. Af fagmennsku og tillitssemi hefur þögnin lengi ríkt. Það er óskemmtilegt að ræða sjúkratilfelli og neyð með þessum hætti. En það sýður upp úr, þegar fjármálaráð- herra og ríkisvald skirrist við að greiða þennan reikning. Það sýður upp úr vegna þess að fólkið í land- inu, sem ef til vill hefur minna fjár- málavit (eða hvað?) en þeir sem stjórna, veit að þennan reikning á að borga. Kostnaðaraukningin er fullkomlega skiljanleg fagfólki, og fullar skýringar hafa margoft verið lagðar fram. Þær skýringar verða ekki meðteknar með lokuðum eyr- um eða augum; gengisfelling, launasamningar, aukning verkefna og margt, margt fleira, skýrir auk- in útgjöld þessa hagkvæma sjúkra- húss. Það er ekki hægt að flýja raunveruleikann. Á Borgarspítalan- um er ekkert bruðl. Öllum er ljós ábyrgð og vandi fjármálaráðherra og rikisstjórnar. Starfið er ekki öfundsvert og reynt er að rækja það af trúmennsku. í frumskógi fjármálanna er sjálfsagt auðvelt að týnast um stund og greina þá ekki skóginn fyrir trján- um. En þegar helsta bráðasjúkra- húsi landsins er stefnt í lífshættu, Þegar helsta bráða- sjúkrahúsi landsins er stefnt í lífshættu verður ekki lengur orða bund- ist, segir Pálmi V. Jónsson, sem mælist til þess að ríkisstjórnin „bjargi lífi Borgarspítal- ans tafarlaust“. verður ekki lengur orða bundist. Þegar Landsbanki íslands varð lífshættulega sjúkup, voru reiddar fram fjögur þúsund milljónir og lífi bankans bjargað. Bráðavandi Borg- arspítalans er nú einungis tíundi hluti þessarar upphæðar. En að sönnu verður í framhaldinu að end- urskoða fjármögnun sérfræði- sjúkrahúsanna, þannig að fjármagn og verkefni haldist í hendur. Nú verður hins vegar að ætlast til þess að fjármálaráðherra og ríkisstjórn bjargi lífi Borgarspítalans tafar- laust. Neyð brýtur (fjár-)lög! Höfundur er forstöðulæknir á lyflæknis- og endurhæfingarsviði Borgarspítalans. Borgarspítalinn er í bráðri lífshættu Pálmi V. Jónsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.