Morgunblaðið - 31.08.1994, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 31.08.1994, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994 13 VIÐSKIPTI Renault Hlutur ríkisins verður seldur París. Reuter. FRAKKAR hyggjast halda til streitu áætlunum um að selja almenningi hluta af 80% hlut franska ríkisins í Renault-bíla- verksmiðjunum. Edouard Balladur, forsætisráðherra Frakka tilkynnti þetta í gær. Hins vegar mun ríkið fara með stjóm fyrirtækisins að svo stöddu en það styður vanga- veltur sem verið hafa uppi um að stjórnin vilji ekki.taka þá pólitísku áhættu að einkavæða helsta vígi verkalýðsfélag- anna, átta mánuðum fyrir for- setakosningar. Balladur vildi ekki viður- kenna að með þessu væri ver- ið að láta undan kröfum vinstrisinna og verkalýðsfé- laga, sagði að ætlunin hefði aldrei verið að selja öllu hluta- bréfin í einu. Gaf Balladur ekki upp hvenær af sölunni yrði, sagði að það yrði að ráð- ast af viðræðum við sænska bílaframleiðandann Volvo, sem á 20% hlut í Renault. ESB-verðbólga í lágmarki Briissel. Reuter. VERÐBÓLGA miðað við eitt ár í Evrópusambandinu minnkaði um 2% í júlí og hefur ekki verið lægri í sjö ár að sögn hagtöludeildar sam- bandsins. Þetta er í fyrsta sinn í fimm mánuði sem ársverð- bólga hefur minnkað og hún hefur ekki verið lægri síðan í marz 1987. Niðurstaðan er sú að öll aðildarlöndm nema Ítalía, Spánn, Portúgal og Grikkland em innan verðbólgumarka Maastricht-sáttmálans. Minnst verðbólga á árs- grundvelli var í Frakklandi í júlí, 1.6%, en næst komu Dan- mörk með 2% Lúxemborg með 2.2% og Bretland með 2.3%. í Hollandi, Belgíu og írlandi var verðbólgan 2.7% (þótt írsku tölumar séu síðan í maí), en í Þýzkalandi 2.9%, Ítalíu 3.8%, Spáni 4.7% Portúgal 5.1% og Grikklandi 11.2%. Húsgagnaiðnaður Uppgangnr í Danmörku MIKILL vöxtur hefur hlaupið í danska húsgagnaframleiðslu og er búist við, að hún verði 12% meiri á þessu ári en því síðasta. Munar mestu um aukin húsgagnakaup Dana sjálfra en útflutningurinn hefur líka auk- ist._ Á fyrstu fjórum mánuðum þessa árs jókst sala húsgagna í Danmörku um 22% frá fyrra ári en staðan hefur lengi verið sú, að dönsk húsgögn hafa verið tveir þriðju af sölunni en innflutt einn þriðji. Meiri kaup núna stafa fyrst og fremst af því, að efnahagslífið er á upp- leið og kaupmáttur liefur auk- ist en þar að auki var mikil uppsöfnuð þörf fyrir endurnýj- un eftir allt aðhaldið á síðustu árum. Á fyrsta ársfjórðungi nú hafa pantanir hjá dönskum húsgagnaframleiðendum auk- ist um 31% frá sama tíma fyr- ir ári. Salan hjá Alusuisse jókst um 20% á fyrri helmingi. ársins og stefnir í 360 milljarða Búist við að hagnaður tvöfaldist Zurich. Reuter. Sá mikli kraftur sem verið hefur í Alusuisse- Lonza undanfarin ár verður áfram til staðar, segir Hans Jucker, stjórnarformaður ALUSUISSE-Lonza, svissneska ál-, efna- og pökkunarfyrirtækið, skýrði frá því í gær að hreinn hagnaður af rekstri fyrirtækisins hefði næstum tvöfaldast á fyrri helmingi ársins og búist er við að hann tvöfaldist einnig á öllu árinu. Hagnaðurinn var 95 milljónir svissneskra franka, jafnvirði 4,9 milljarða króna, en var 49 milljónir franka á sama tíma í fyrra. Salan á fyrri helmingi ársins jókst um 20% og búist er við að veltan verði yfir sjö milljörðum franka á árinu, 360 milljörðum króna. Hans Jucker, stjómarformaður fyrirtækisins, sagði að arðgreiðslumar yrðu að minnsta kosti jafn miklar og fyrir síðasta ár. Niðurstaðan er í samræmi við bjartsýnustu spár sérfræðinga. Hlutabréfamarkaðurinn í Zurich tók þessum tíðindum vel og hlutabréf Alusuisse hækkuðu um 0,87%. Mikil hagræðing hefur átt sér stað innan Alusuisse undanfarin þijú ár. Alusuisse keypti kanadíska pökkun- arfyrirtækið Lawson Mardon í fyrra og Hans Jucker sagði að ráðgert væri að kaupa fleiri fyrirtæki. „Sá mikli kraftur sem verið hefur í Alusu- isse-Lonza undanfarin ár verður áfram til staðar," sagði Jucker. Stjórnarformaðurinn sagði að fyr- irtækið myndi styrkja stöðu sína enn frekar á pökkunarmarkaðnum og leita nýrra markaða. Hann taldi að fyrirtækið myndi fjárfesta fyrir rúm- ar 500 milljónir franka, 26 milljarða króna, á árinu. Pökkunardeild Alusuisse er sú stærsta innan fyrirtækisins og hagn- aður hennar var 118 milljónir franka á fyrri helmingi ársins. sem borgar sig aö líta á Ung s DAEWOO DAEWOO * l486DX/2-66 MHz • 210 MB diskur • 14“ lággeisla litaskjár • 1 MB myndminni TÖLVA D2700U • VESA Local Bus skjástýring • 4 MB vinnsluminni, stækkanlegt í 64 MB Microsóft Works fylgir • 128 skyndiminni • Overdrive sökkull • MS-D0S, Windows og mús • Kr. 159.900 staðgreitt DAEWOO • TÍ486DLC-40 MHz • 210 MB diskur • 14' lággeisla litaskjár • 1 MB myndminni TÖLVA D2600R • VESA Local Bus skjástýring • 4 MB vinnsluminni • MS-D0S, Windows og mús Microsoft Works fylgir • Kr. 113.000 staðgreitt Komdu eða hringdu • við kynnum hana fyrir þér... . DAEWOO " NEMA hvað? Leiöandi í tölvulausnum EINAR J. SKÚLASON HF Grensásvegi 10, Sími 63 3000

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.