Morgunblaðið - 31.08.1994, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Utgjaldahlið fjárlaganna afgreidd
Útgjöldin lægri
en útgjöld
fjárlaga í ár
RÍKISSTJÓRNIN afgreiddi á
fundi í gærmorgun útgjaldahlið
fjárlaganna og var íjármálaráð-
herra falið að ganga frá örfáum
atriðum sem enn eru ófrágengin
í samráði við viðkomandi ráðherra.
Tekjuhlið fjárlaganna verður tekin
fyrir á næsta fundi ríkisstjómar-
innar á þriðjudaginn kemur.
Ríkissjóðshallínn innan við níu
milljarðar króna
Friðrik Sophusson, fjármálaráð-
herra, segir að full samstaða sé
um það að útgjöldin verði lægri
en útgjöld fjárlaga yfirstandandi
árs og að ríkissjóðshallinn verði
vel innan við níu milljarðar króna
eins og stefnt hafi verið að. Út-
gjöld samkvæmt ijárlögum í ár
eru rétt tæpir 114 milljarðar
króna.
Þingflokkar ríkisstjómarflokk-
anna fjölluðu um útgjaldahlið fjár-
laga á fundum á mánudaginn og
vom þar gerðar athugasemdir við
einstaka þætti á útgjaldahliðinni,
sem nefnd fjögurra ráðherra,
tveggja frá hvoram stjómarflokk-
anna, hafði gert tillögur um og
ríkisstjómin samþykkt áður en
þær fóra fyrir þingflokkana. Sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
mættu hugmyndir um hækkun
skólagjalda á framhaldsskóla- og
háskólastigi andstöðu og sama
gildir um tekjutengingu bóta
Tryggingastofnunar og var því
horfíð frá þessum hugmyndum.
Ekki er hins vegar gert ráð fyrir
að það verði til þess að auka út-
gjöldin heldur verður því mætt
með niðurskurði á öðram liðum
innan viðkomandi ráðuneyta.
Mikilvæg skilaboð
„Það er mikil samstaða í báðum
þingflokkunum að halda út-
gjöldunum í skefjum og láta efna-
hagsbatann með tilheyrandi
tekjuaaukningu fyrir ríkissjóð
koma fram í minni fjárlagahalla.
Ég held að þetta séu mikilvæg
skilaboð inn í efnahagslífíð um að
ríkisstjómin ætli sér að draga úr
ijárlagahallanum og það ætti þess
vegna að geta haft jákvæð áhrif
til dæmis á vextina, sem ríkis-
stjómin telur afar mikilvægt að
hækki ekki og lækki frekar,“ sagði
Friðrik í samtali við Morgunblaðið.
Lengdar-
met á skák-
borðinu
SKÁK Jóns Garðars Viðarsson-
ar og Jóhanns Hjartarsonar á
Skákþingi íslands, sem fram fer
í Vestmannaeyjum, fór enn og
aftur í bið í gær eftir 167 leiki
og 16 stunda tafl. Þá höfðu þeir
félagar slegið lengdarmet Helga
Ólafssonar og Margeirs Péturs-
sonar frá alþjóðlega skákmótinu
á Akureyri 1988, en viðureign
þeirra þar endaði með jafntefli
eftir 163 leiki.
Eftir sjöundu umferðina, sem
tefld var í gærkvöldi er Hannes
Hlífar Stefánsson efstur með 6
vinninga, Sævar Bjarnason vann
Jóhann Hjartarson og er með 5
vinninga, Helgi Ólafsson er með
4,5 vinninga og tvær biðskákir,
Jóhann Hjartarson er með 4
vinninga og tvær biðskákir og
Þröstur Þórhallsson er með 4
vinninga og biðskák.
■ Skákin langa / 35
Óskir útgerðarmanna við úthafsveiðar
Lægra olíuverð
Morgunblaðið/Kristinn
Útför Eiríks Kristóferssonar
ÚTFÖR Eiríks Kristóferssonar fyrrverandi skipherra var gerð
frá Hallgrímskirkju í gær. Sr. Ragnar Fjalar Lárusson jarðsöng,
organisti var Hörður Askelsson, Kristinn Sigmundsson söng ein-
söng og félagar úr Mótettukór Hallgrímskirkju sáu um kórsöng.
Starfsmenn Landhelgisgæslunnar sem báru kistuna úr kirkju
voru Höskuldur Skarphéðinsson, Sigurður Steinar Ketilsson,
Páll Halldórsson, Halldór Gunnlaugsson, Hjalti Sæmundsson,
Benóni Ásgrímsson, Gylfi Geirsson og Halldór Nellet.
Rætt við olíufélögin
Morgunblaðið/Sigurgeir
Sagði Jóhann, að á næstu dögum
yrði rætt við olíufélögin um verð á
olíu en útgerðarmenn telja að það
hafí stigið um of að undanförnu.
Þá hafí það verið ósk útgerðar-
manna til margra ára að bæta sam-
band Siglufjarðarradíós við skip á
úthafsveiðum og hefur verið óskað
eftir því við Póst og síma að það
verði lagfært. Þá telja útgerðar-
menn að tryggingaskilmálar séu of
þröngt túlkaðir og hefur verið
ákveðið að kynna viðhorf útgerðar-
innar fyrir tryggingafélögunum.
„Þetta eru þau mál sem við verðum
að halda utan um í sameiningu,"
sagði Jóhann.
og betri fjarskipti
VINNUHÓPUR útgerðarmanna sem stunda úthafsveiðar kom sam-
an til síns fyrsta fundar í gær. Að sögn Jóhanns A. Jónssonar
framkvæmdastjóra Hraðfrystistöðvar Þórshafnar, var ákveðið að
ræða við olífélögin um lækkun olíuverðs, Póst og síma um endur-
bætur á olíuskiptum og við tryggingafélögin um tryggingar.
Stjórn LIÚ skipaði vinnuhópinn
og í honum eiga sæti þeir Jóhann
A. Jónsson, Einar Svansson, Gunn-
ar Tómasson, Sigurbjörn Svavars-
son og Þorsteinn Vilhelmsson.
Sagði Jóhann að fjallað hafí ver-
ið vítt og breytt um þau hagsmuna-
mál er varða úthafsveiðar. „Þetta
eru ný og tiltölulega ómótuð mál,
þar sem upp koma ýmsir fletir á
því hvemig best er að tryggja hags-
muni útgerðarinnar," sagði hann.
„Farið var yfir þau verkefni sem
hægt er að vinna sameiginlega
ásamt því að fara yfír réttarstöðuna
á þessu svæði.“
Fjármálaráðherra um útboð húsnæðisbréfa þar sem ekkert seldist
Vaxtastefnan
verður óbreytt
ENGIN húsnæðisbréf seldust í
útboði Húsnæðisstofnunar í gær
og er það fjórða útboðið í röð sem
ekkert selst af húsnæðisbréfum.
Engin húsnæðisbréf hafa selst frá
því í júnímánuði, en eitt útboð fór
fram í júlí og þrjú í ágúst. Friðrik
Sophusson, fjármálaráðherra, seg-
ir að engin ástæða sé til þess fyr-
ir ríkisstjórnina að hvika frá þeirri
vaxtastefnu sem mótuð var í lok
október í fyrra að taka ekki tilboð-
um í langtímaverðbréf með ríkis-
ábyrgð þar sem ávöxtun væri
hærri en 5%.
Meðalávöxtun 5,17%
í útboðinu í gær vora boðin út
bréf til 10, 15 og 20 ára og bárust
sjö tilboð frá tveimur aðilum að
upphæð 131 milljón króna. I bréf
til 20 ára barst eitt tilboð að upp-
hæð 9 milljónir króna og var ávöxt-
unarkrafan 5,33%. Eitt tilboð að
upphæð 9 milljónir barst einnig í
bréf til 15 ára og var ávöxtunar-
krafan 5,32%. Hins vegar bárast
fímm tilboð í húsnæðisbréf til 5
ára samtals að upphæð 113 milljón-
ir. Hæsta ávöxtunarkrafan var
5,31%, sú læpta 5,10%, en meðal-
ávöxtunin var 5,17%.
Ákveðin óvissa rílyandi
„Þetta er ekkert sem kemur
okkur í sjálfu sér á óvart. Það er
viss óvissa sem er ríkjandi ennþá
í vaxtamálunum, meðal annars
vegna þess að ekki er Ijóst hvem-
ig fjárlagaframvarpið lítur út og
af ýmsum öðram ástæðum. Þetta
mál er til skoðunar þessa dagana
og ég á von á því að úr rætist
innan tíðar,“ sagði Friðrik Sophus-
son í samtali við Morgunblaðið.
„Ég tel að það sé ekkert í efna-
hagslífínu sem bendir til þess að
ástæða sé til að vextir á verð-
tryggðum skuldbindingum ríkisins
þurfí að hækka. Hins vegar má
búast við einhveijum breytingum
á óverðtryggðum skammtíma-
skuldbindingum, þó ekki væri
nema vegna þess að vextir á þeim
hafa verið að breytast í nálægum
löndum,“ sagði hann ennfremur.
Hann sagðist vonast til að þess-
ari óvissu yrði eytt á næstunni
þegar fjárlagafrumvarpið liti
dagsins ljós.
Fíkniefni
út um bíl-
glugga
FÍKNIEFNALÖGREGLAN
lagði í fyrrakvöld hald á 75
grömm af hassi, 10 grömm
af amfetamíni og hálft gramm
af kókaíni, sem maður á flótta
undan handtöku henti frá sér
í Breiðholti.
Fíkniefnalögreglan hafði
fylgst með ferðum mannsins
frá húsi í Austurbænum upp
í Breiðholt. Við Suðurfell var
manninum gefíð stöðvunar-
merki en hann jók þá ferðina
og henti frá sér pakka út um
glugga bílsins.
Lögreglan ákvað að hirða
pakkann frekar en manninn,
þar sem vitað var hver var á
ferð og lögreglan fáliðuð á
staðnum. í pakkanum reynd-
ust vera 75 grömm af hassi,
10 grömm af amfetamíni og
um hálft gramm af kókaíni.
Bíll mannsins fannst mann-
laus skömmu síðar við Möðra-
fell og var fluttur með krana á
lögreglustöðina.
Bronsafsteypa
af Nonna
ZONTAKLÚBBUR Akureyrar
hefur tekið tilboði Kunst Gi-
esserei Plein í Speicher í
Þýskalandi um gerð bronsaf-
steypu af gifsmóti Nonna-
styttu. .
Ragnheiður Hansdóttir, for-
maður Nonnanefndar Zonta-
klúbbsins, sagði, að tilboð
hefðu borist frá Bretlandi og
fjöldi tilboða frá Þýskalandi.
Farið var yfír tilboðin og
tekin ákvörðun um að taka
tilboði Kunst Giesserei Plein í
Speicher, um 100 km frá Köln
í Þýskalandi, um gerð bronsaf-
steypu fyrir tæpar 1,6 milljón-
ir króna.
Nonnastyttan er nú í
geymslu á vegum Kjarvals-
staða. Hún verður líklega send
með Helgafellinu til Hamborg-
ar 8. september. Samskip gef-
ur flutning hennar þangað og
heim aftur.
Hús fyrir HM
úr sögunni
BORGARRÁÐ telur rétt að
huga að, í samráði við íþrótta-
hreyfinguna og fleiri aðila,
hvaða rekstrargrundvöllur sé
fyrir fjölnota íþróttahús í
Laugardal. Hvernig slík bygg-
ing yrði fjármögnuð og hvern-
ig staðið yrði að framkvæmd-
um.
í svarbréfí Elrektolux fyrir-
tækisins kom fram að það sé
reiðubúið til að fjármagna fyr-
ir borgina þetta verkefni til
dæmis með kaupleigusamn-
ingi en hvað rekstur hússins
varðaði þá geti fyrirtækið ekki
séð um þann þátt málsins.
Reykjavíkurborg verði að bera
ábyrgð á rekstri og viðhaldi
o.fl.
Niðurstaða borgarráðs varð
því sú að ekki sé grandvöllur
fyrir áframhaldandi viðræðum
við fyrirtækið og frekari áform
um byggingu fjölnota íþrótta-
húss á þeim stutta tíma sem
til stefnu er sé ekki í myndinni.