Morgunblaðið - 31.08.1994, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994
VIÐSKIPTI
MORGUNBLAÐIÐ
Samkeppnisráð gerír athugasemdir við hug-
búnaðargerð Námsgagnastofnunar
Söluverð hug-
búnaðar standi
undir kostnaði
SAMKEPPNISRÁÐ hefur beint þeim tilmælum til menntamálaráðherra
að Námsgagnastofnun selji ekki á fijálsum markaði þau náms- og
kennslugögn sem stofnunin framleiðir en að öðrum kosti sé þess gætt
að söluverð þess standi undir raunverulegum kostnaði. Er vísað til ákvæða
samkeppnislaga um að þess skuli gætt að samkeppnisrekstur sé ekki
niðurgreiddur af vemdaðri starfsemi.
PUND í dollurum
London 16.00 GMT
Dollarar
1.555
1.535
1.525
1.545
DOLLARI í jenum
London 16.00 GMT
JEN
DOLLARI í P. mörkum
London 16.00 GMT
DM
GENGI DOLLARS gagnvart þýska markinu hélst eyrismörkuðum beinist athyglin nú að þýska seðlabanka-
stöðugt á gjaldeyrismarkaðnum í London í gær eftir num en fundur hefur verið boðaður í bankaráðinu á fimm-
töluverðar hækkanir í síðustu viku. Aftur á móti lækkaði tudag. Þá er einnig beðið eftir mánaðarlegri skýrslu um
gengið gagnvart japanska jeninu niður fyrir 100 jen. Á gjald- atvinnuástand í Bandaríkjunum sem birt verður á föstudag.
Niðurstaða ráðsins kemur í kjöl-
far ábendinga frá Guðmundi Mark-
ússyni, hæstaréttarlögmanni, fyrir
hönd Gruns hf., rekstraraðila tölvu-
deildar Japis. Guðmundur benti á
að Námsgagnastofnun ynni að gerð
tölvuforrita í samvinnu við mennta-
málaráðuneytið og seldi þau á vægu
verði vegna fjárframlags ráðuneyt-
isins. í augum annarra hugbúnað-
arhönnuða væri hér um að ræða
hömlur á frjálsri samkeppni.
Samkeppnisráð gerir hvorki at-
hugasemdir við að Námsgagna-
stofnun verji fjármagni til kennslu-
forrita með þeim hætti sem hún
gerir né heldur heimild mennta-
málaráðherra til að taka ákvörðun
um að veita fjármagni í hugbúnað-
argerð fyrir IBM-PC samhæfðar
tölvur. Fjárveitingin sé til komin
vegna norrænnar samvinnu og sé
einvörðungu varið í að þýða og laga
norrænt IBM-PC samhæft forrit að
íslenskum skólamarkaði og kaup á.
innlendum hugbúnaði fyrir IBM-PC
samhæfðar vélar.
Bent er á að viðskiptaleg mark-
mið liggi ekki að baki fjárveiting-
unni til hugbúnaðar fyrir IBM-PC
samhæfðar tölvur auk þess sem
notkun fjárveitingarinnar sé í sam-
ræmi við hlutverk Námsgagna-
stofnunar. Þessi staðreynd breyti
því þó ekki að með fjárveitingunni
og notkun hennar sé verið með
óbeinum hætti að veikja samkeppn-
isstöðu þeirra fyrirtækja sem bjóði
annan hug- og vélbúnað.
Morgunblaðið/Þorkell
GUÐNÝ Benediktsdóttir frá markaðssviði Landsbankans og
Björgvin Njáll Ingólfsson frá Iðntæknistofnun.
Leiðbeiningar um viðskiptaáætlanir
IÐNTÆKNISTOFNUN og
Landsbanki Islands hafa gefið
út leiðbeiningarrit um gerð við-
skiptaáætlana. Ritið er sérstak-
lega ætlað frumkvöðlum, og
fylgir því sérstakt eyðublað
sem ætlað er að auðvelda gerð
viðskiptaáætlana.
Samkvæmt upplýsingum út-
gefenda er hér um sameigin-
legt hagsmunamál þeirra að
ræða. Algengt sé, að fjármála-
stofnanir og þeir aðilar sem
veita faglega aðstoð í fyrir-
tækjarekstri óski eftir slíkum
áætlunum. Þeim sé ætlað að
gefa mynd af þeim rekstri sem
ráðist skal í þegar sótt sé um
fjárhags- eða fagaðstoð. Einnig
sé brýnt að þeir sem hyggi á
framkvæmdir hafi gott yfirlit
yfir ætlunarverkið áður en lagt
er út í fjárskuldbindingar.
Ritinu er skipt upp í níu kafla,
og er í hveijum þeirra tekið á
afmörkuðum hluta viðskiptaá-
ætlana. I lok hvers kafla er sýnt
með dæmi hvernig viðkomandi
hluti áætlunarinnar gæti litið
út í raunveruleikanum.
Finnland
Methagnaður út-
flutningsfyrirtækja
Helsinki. Morgunbladið.
FINNSK stórfyrirtæki, einkum út-
flutningsfyrirtæki, munu að öllum
líkindum skila methagnaði á þessu
og næsta ári. Hagfræðideild stór-
bankans KOP spáir því að saman-
lagður hagnaður þeirra fyrirtækja
sem skráð eru á verðbréfaþinginu
í Helsinki verði um 15 milljarðar
finnskra marka á þessu ári en um
20 milljarðar á næsta ári. Samt
virðist ekki mjög líklegt að 20%
atvinnuleysið fari minnkandi á
næstunni sökum lélegrar stöðu iðn-
aðar á heimamarkaði.
Það eru einkum pappírsframleið-
endur og önnur fyrirtæki í skógar-
iðnaðinum sem skipa efstu sætin í
framleiðni. í broddi fýlkingar er
samt Nokia sem mun vera þekktast
fyrir farsíma og stígvél en sem
framleiðir einnig margt annað.
Stéttarsamband skógariðnaðar-
ins lýsti því yfir á þriðjudaginn að
nú væri tímabært að stórhækka
laun verkamanna. Hefur þetta vald-
ið ólgu meðal annarra stéttarfélaga
sem óttast aukinn launamun.
Fyrirtæki sem framleiða fyrir
innlendan markað eru verr sett.
Vegna samdráttar heima fyrir eru
framtíðarhorfur þeirra ekki bjart-
ar. Esko Haavisto hagfræðingur
KOP-bankans segist samt líta svo
á að bankar t.d. verði komnir úr
kreppunni eigi síðar en á árinu
1996.
Fyrra metið í hagnaði kaup-
hallarfyrirtækja var 15 milljarðar
en það var sett í góðærinu í lok
níunda áratugarins. Methagnað
fyrirtækjanna má ekki endilega
telja merki um batnandi efnahags-
ástand í þjóðfélaginu í heild. Stór-
fyrirtækin hafa hingað til ekki var-
ið fé til fjárfestinga heldur hafa þau
borgað af gömlum erlendum lánum.
Aður en hagvöxturinn hefur þau
áhrif að atvinnuleysið minnkar
þurfa innlendar fjárfestingar að
aukast. Nýjustu spár benda til þess
að framleiðslugeta útflutningsiðn-
aðarins standi á tímamótum á
næsta ári. Þá verða menn annað-
hvort að byggja nýjar verksmiðjur
eða láta keppinauta ná hlutdeild í
markaðnum.
Kynningarfundur
DALE
CARNEGIE®
Þjálfun
Fimmtudagskvöld kl.
20.30 að Sogavegi 69
IMámskeiðið
Konráð Adolphsson
D.C. kpnnari
-■ Eykurhæfni og árangur einstaklingsins
-■ Byggirupp leiðtogahæfnina
■ Bætir minni þitt og einbeitingarkraftinn
■ Skapar sjálfstraust og þor
■ Árangursríkari tj á n i n g
H1 Beislar streitu og óþarfa áhyggjur
-■ Ejr/cureldmóðinn og gerir þig hæfari í
daglegu lífi
Fjárfesting í menntun skilar þér arði ævilangt.
Innritun og upplýsingar í síma: 812411
STJÓRNUNARSKÓLINN
Konrád Adolphsson. Einkaumboð fyrir Dale Carnegie® námskeiðin.
0
///
ÚTFLUTNUNGSRÁÐ
ÍSLANDS
Viðskipti við
Rússland
Breyttir viðskiptahættir - nýir möguleikar
Föstudaginn 2. september, kl. 8.30 til 10.30,
bjóða iðnaðar- og viðskiptaráðuneytið og
Útflutningsráð íslands öllu áhugafólki um
viðskipti við Rússland til fundar í Skála,
Hótel Sögu.
Sighvatur Björgvinsson,
iðnaðar- og viðskíptaráðherra, flytur ávarp.
Erindi flytja;
Gunnar Gunnarsson, sendiherra fslands í Moskvu.
Yuri A. Reshetov, sendiherra Rússlands í Reykjavík.
Á eftir framsöguerindum verða almennar umræður.
Fundarstjóri verður Jón Ásbergsson,
framkvæmdastjóri Útflutningsráðs.
Iðnaðar- og
viðkiptaráðuneytið
Sjábu
hlutina
í víbara
samhengi!
-kjarni malsíns!
Fjármál
Landsvirkj-
un tekur 3,5
milljarða
króna lán
LANDSVIRKJUN hefur
gengið frá samningi við
Chemical Bank AG, JP Morg-
an GmbH og Enskilda Secu-
rities um iántöku með skulda-
bréfaútgáfu á Evrópumark-
aði. Lántakan er alls að fjár-
hæð 80 milljónir þýskra
marka eða um 3.500 milijónir
króna á núverandi gengi.
Af hálfu Landsvirkjunar
var samningurinn undirritað-
ur af Halldóri Jónatanssyni
forstjóra. Lánstími er 5 ár og
greiðir Landsvirkjun vexti
sem miðast við millibanka-
vexti á þýskum mörkum í
London (DEM Libor) að við-
bættu 0,225% vaxtaálagi, eða
sem nemur 5,225% p.a. miðað
við markaðsaðstæður í dag.
Lánsfénu verður varið til
almennrar endurfjármögnun-
ar eldri lána fyrirtækisins, að
því er segir í frétt frá Lands-
virkjun.