Morgunblaðið - 31.08.1994, Side 14
14 MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FERÐALÖG
Morgunblaðið/Líney Sigurðardóttir
REINHARD Reynisson sveitarstjóri afhendir Erlu og Konráði
blóm í tilefni opnunar Hafnarbarsins.
Þórshöfn
„Skreiðarloftið, sem
breyttíst í bar“
Þórshöfn - „Hafnarbarinn" nefn-
ist veitingastofa sem opnuð var hér
á Þórshöfn í síðasta mánuði. Eins
og nafnið gefur til kynna stendur
húsið rétt við höfnina, því sem
næst í flæðarmálinu með útsýni
beint yfir sjóinn.
Það eru hjónin Erla Jóhannsdótt-
ir og Konráð Jóhannsson, bæði
upprunnin í byggðarlaginu, sem
eiga heiðurinn af þessu framtaki.
Mikil vinna liggur þarna að baki;
þeirra eigin og einnig aðkeypt
vinna. Árangurinn er í samræmi
við það, því vel hefur tekist til við
breytingar og innréttingar og
stendur nú þarna hlýlegur og
smekklegur veitingastaður.
Hjónin Erla og Konráð renna
nokkuð blint í sjóinn með stofnun
barsins því að staður í líku rekstrar-
formi hefur ekki áður verið rekinn
á Þórshöfn og „pöbbamenningin"
er því nýtt innlegg í bæjarlífið hér.
Fréttaritari brá undir sig betri
fætinum og fór á „pöbbarölt" í því
skyni að afla frétta af viðbrögðum
fólksins hér um slóðir og hvernig
viðtökurnar hafa almennt verið.
Að sögn Erlu hafa þær verið
góðar og greinilegt að hér hefur
verið full þörf fyrir stað, þar sem
fólk gæti komið inn og sest yfir
kaffibolla eða ölglasi og matur er
einnig á boðstólum.
Uppákomur hafa verið um helgar
og hafa hjónin fengið hljómsveitir
til þess að spila og hefur jafnan
verið fullt hús. Ný fataverzlun á
staðnum hélt tískusýningu á Hafn-
arbarnum á laugardagskvöldi og
komu þar fram blómarósir þorpsins
eins og vanar sýningardömur og
sem fyrr var fullt hús.
Nokkuð er um að hópar hafi
nýtt sér þessa nýju aðstöðu og borð-
að saman á Hafnarbarnum; t.d.
kom nýlega saman hópur af fólki,
sem hélt upp á 25 ára fermingaraf-
mæli frá Sauðaneskirkju. Þar ríkti
mikil og góð stemmning og fannst
brottfluttum Þórshafnarbúum það
ævintýri líkast að borða veizlumál-
tíð með ljúfum veigum á gamla
skreiðarloftinu!
Billjardstofa rúmast einnig inn-
andyra og hefur billjardinn verið
vinsæll, að sögn Erlu. Sjómenn á
aðkomubátum hafa fagnað Hafnar-
barnum, því að það er ieiðigjarnt í
iandlegum að kúra inni í bát og
tilbreyting að geta skroppið á vist-
legan stað rétt við bryggjuna og
gripið í billjardinn.
Nú haustar að og öll umsvif
minnka með vetrinum en að sögn
Erlu verður Hafnarbarinn áfram
með uppákomur annað veifið um
helgar og þorpsbúar geta farið á
„pöbbarölt" til þess að sýna sig og
sjá aðra, minnugir þess að maður
er manns gaman.
Siglt innan um ísjaka
og sel á Jökulsárlóni
Morgunblaðið/ÞHY
SIGLT til móts við ísjakana.
SKÁLINN Jöklakaffi og hjólabáturinn.
iangan bráðnunartíma þeirra.
Mér er litið á dýptarmælirinn,
hann sýnir 175 metra dýpi. Ég
rek upp stór augu og spyr heim-
ildarmann minn, Salómon Jóns-
son, hversu djúpt lónið sé og fæ
það svar að dýpst hafi það
mælst 180 metrar. Jökullinn
dýpkar lónið og stórir jakar sem
brotna frá standa á botninum
og dýpka það.
Farið var fyrst að sigla á lón-
inu fyrir 10 árum. Hvorttveggja
hefur aukist á þessum tíma,
lónið_ og ferðamannastraumur-
inn. í sumar sigldu yfir 20.000
manns á lóninu og aldrei hafa
siglt fleiri á því á einu sumri.
ÞETTA er eins konar
ÞAÐ ER sérstök tilfinning að
sigla á góðum degi innan um
litríka ísjaka á Jökulsárlóninu á
Breiðamerkursandi. Oræfajök-
ull er tignarlegur þar sem hann
er baðaður sólskini, en Hvanna-
dalshnjúkur sést ekki fyrir
skýjahnoðrum. Ég er í samfloti
með útlendingum sem reka upp
undrunaróp þegar hjólabáturinn
kemur keyrandi niður frá Jökla-
kaffisskálanum. Margar linsur
eru á lofti og mynda furðufyrir-
bærið í gríð og ergð. Svo er
stigið um borð, og sumir geta
ekki hætt að brosa.
Skrúfan er sett í gang og á
meðan síðasti maðurinn treður
sér í björgunarvestið er siglt af
stað og jakarnir nálgast óðum.
Hér og þar stingur forvitinn
selur upp hausnum og gónir og
stingur sér svo nettlega niður í
djúpið aftur. Selirnir hafa það
gott í lóninu, það er 4-6 gráða
heitt, vegna þess að sjór streym-
ir í það og hitar, og rými sel-
anna eykst jafnt og þétt. Talið
er að u.þ.b. 800 metrar hafi
brotnað af Breiðamerkuijökli í
Lónið á síðasta ári. Lónið hefur
stækkað gríðarlega frá árinu
1945 en þá var það rétt að
myndast, og var eins og lítil
vatnsrönd meðfram Breiða-
merkuijökli. Nú er það u.þ.b.
15-17 ferkílómetrar, en erfitt
er að henda reiður á því þar sem
menn eru ekki sammála um
hvað sé jökull og hvað séu risa-
stórir jakar. Selirnir þurfa ekki
að svelta því inn í lónið ganga
bæði síidar- og loðnutorfur, að
auki geta þeir gætt sér á kola
og öðrum fiski.
ísjakarnir eru margbreytileg-
ir og ýmsar furðumyndir er
hægt að sjá út úr jökunum gefi
maður ímyndunaraflinu lausan
tauminn. Hægt er að sjá hjarta,
spaða, tígul og lauf, kanínu,
selsmyndir, furðufugla, fíla,
frostpúka, og margt annað, það
fer eftir því út frá hvaða sjónar-
horni horft er. Sami jakinn get-
ur líkst mörgu í senn. Ríkulegt
súrefni litar þá bláa og átök við
veður og land skilur eftir rispur.
Þó að hitastig lónsins sé 4-6
furðufugl.
gráður og salt í þokkabót, tekur
u.þ.b. 5 ár fyrir stærstu jakana
að bráðna og Hverfa, en það er
ekki alveg vitað með vissu þar
sem jakarnir breytast og verða
óþekkjanlegir með tímanum. ís-
inn er talinn vera um 1200-2000
ára gamall og er mjög þéttur í
sér eftir mikinn þrýsting í jöklin-
um í hundruði ára. Það skýrir
Byijað er að sigla í maí og siglt
er fram til 4. september og
stundum lengur.
Siglingin tekur 40 mínútur,
og þær eru fljótar að líða í fal-
legu veðri. Báturinn siglir á láði
og legi, og lætur okkur úr við
Jöklakaffi. Úr honum stíga
brosandi ferðalangar, með
myndavélar á lofti.
\ ÞHY
London er fiillkomin borg fyrir þá
sem vilja versla í þekktustu vöruhúsum,
sjá nafntoguðustu söngleildna og leikritin,
borða á frábærum veitingastöðum og
njóta lífsins til fullnustu.
3 nætur frá
36.540.
á mairn í tvibýli á Hotel Forum.
Irmifalið: Beiní flug, gisting morgunverður og flugvallarskattur á íslandi.
Flugvallarskattur 1.100 kr. leggst á í Bretlandi 1. nóvember.
M IÍRVAL ÚTSÝN
trygfing fvrir gæfinm
Lágmúla 4: sími 699 300,
Hafnarfirði: sími 65 23 66, Keflavík: sími 11353,
Selfossi: sími 21666, Akureyri: sími 2 50 00
- og hjá umboðsmönnum um land allt.
*
§
f
i
t
l
t
i
V
i
i
1
l
í
!
f
í
G
I
t
1