Morgunblaðið - 31.08.1994, Side 16
16 MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994
ERLENT
MORGUNBLAÐÍÐ
Kínaheimsókn Rons Browns, viðskiptaráðherra Bandaríkjanna
Mannréttinda-
mál rædd síðar
Peking. Reuter.
KÍNA og Bandaríkin munu taka
upp þráðinn í viðræðum um mann-
réttindamál í Kína í næsta mán-
uði, að sögn Rons Browns, við-
skiptaráðherra Bandaríkjanna,
sem er í heimsókn í Kína. Á mánu-
dag undirrituðu þjóðirnar nýjan
viðskiptasamning og sagði Brown
að bandarísk fyrirtæki hefðu und-
irritað samninga við Kínverja fyrir
upphæð er svaraði til tæpra fimm
milljarða dala.
Bestu kjör
í maí sl. ákvað Bill Clinton
Bandaríkjaforseti að Kínveijar
myndu áfram njóta bestu kjara á
bandarískum markaði en háværar
raddir voru uppi um að forsetinn
ætti að knýja fram umbætur í
mannréttindamálum með því að
tengja þær bestu kjörunum. Var
Clinton harðlega gagnrýndur fyrir
að ganga á bak orða sinna í mann-
réttindamálum til að auka útflutn-
ing til Kína, en efnahagur er
hvergi í eins örum vexti. Við-
skiptaráðherrann sagði í gær að
þessi stefna forsetans hefði nú
skilað árangri. Samið hefði verið
um allt frá orkuverum til fjar-
skipta fyrir 4,7 milljarða dala.
Clinton til Kína?
Viðræður um mannréttindamál
verða teknar upp að nýju í lok
september, er Qian Qichen, vara-
forseti og utanríkisráðherra Kína,
heldur til Bandaríkjanna. Þá er
talið að góður árangur af för
Browns ýti enn frekar undir mögu-
leikann á heimsókn Clintons til
Kína. Sagði Brown að málið hefði
verið rætt á fundi hans og Li Peng,
forsætisráðherra Kína.
Áður en slík heimsókn verður
rædd af alvöru, vill forsetinn að
tjáningarfrelsi verði aukið í Kína,
viðskiptahömlum verði aflétt og
að reglur til verndar bandarískum
einkaleyfum og höfundarétti verði
hertar.
Reuter
RON Brown viðskiptaráðherra Bandaríkjanna (t.v.) og Jian
Zemin forsætisráðherra Kína ganga út úr Daioyutai-gestabú-
staðnum i Peking eftir viðræður þeirra í gær. Kínverjar vilja
taka að nýju þátt í alþjóðasamkomulaginu um tolla og viðskipta-
mál, GATT, en þeir segja Bandaríkjamenn andvíga því. Þá krefj-
ast þeir þess að Bandaríkjamenn aflétti viðskiptabanni á Kína
m.a. á vopnum. Að sögn Browns eru ekki uppi neinar hugmynd-
ir um að aflétta banninu.
Rússar
vilja sættir
Tírana. Reuter.
RÚSSAR hafa hvatt Albani og
Grikki til þess að leysa deilur sínar
um gríska minnihlutann í Albaníu
með friðsamlegum samningum og
stuðla þannig að stöðugleika á
Balkanskaga.
í orðsendingu sem rússneska
sendiráðið í Tírana birti í gær sagði
að vaxandi spenna í sambúð Grikkja
og Albana væri áhyggjuefni, eink-
um í ljósi þeirra miklu tilrauna sem
gerðar væru til þess að draga úr
viðsjám á Balkanskaganum og í
fyrrum lýðveldum Júgóslavíu. „Þess
vegna yrði það afar jákvætt fram-
lag ef ríkin tvö settust að samninga-
borði og leystu ágreining sinn,“
sagði í yfirlýsingu Rússa.
Deilur blossuðu upp með grann-
þjóðunum er albönsk stjórnvöld
stefndu fimm mönnum af gríska
minnihlutanum fyrir rétt og sökuðu
þá um njósnir í þágu Grikkja. í
Aþenu hefur réttarhöldunum verið
lýst sem pólitísku sjónarspili og það
sagt vera liður í kúgun gríska
minnihlutans í Albaníu. í hefndar-
skyni höfðu Grikkir í gær rekið
28.400 ólögmæta albanska innflytj-
endur aftur heim.
DU PONT bflalakk notað af
fagmönnum um land allt.
Er bfllinn þinn
grjótbarinn eða
rispaður ?
DU PONTlakk
á úðabrúsa er
meðfærilegt og
endingargott.
Faxafeni 12. Sími 38 000
Síðustu rússnesku hermennirnir yfirgefa Eistland
Hverfa á brott „eins
og þjófar á nóttu“
Tallinn. The Daily Telegraph.
EINUNGIS fáeinir rússneskir her-
menn eru nú í Eystrasaltsríkjun-
um, en í kvöld rennur út umsam-
inn frestur þeirra til brottfarar.
Flutninga- og fjölskyldubílum
hiöðnum búslóðum hefur undan-
farna daga verið ekið brott frá
herbúðum Rússanna í Tallinn, höf-
uðborg Eistlands, í síðasta sinn,
og lýkur þar með hálfrar aldar
sovéskri og síðar rússneskri her-
setu í Eistlandi.
Með brottför hermannanna
hverfa skýrustu ummerkin um
innlimun Eistlands í Sovétríkin
árið 1940. Þeir skiija eftir sig hrör-
legar herbúðir þar sem jörðin er
morandi jarðsprengjum, og mörg-
um þykir brotthvarfið fremur líkj-
ast skipulagslausum flótta en
samningsbundnum brottflutningi.
Ekki verða haldnar neinar kveðju-
athafnir eða skrúðgöngur, að því
er virðist að undirlagi stjómarinn-
ar í Moskvu. Vítalíj Klatov, kap-
teinn, sagði: „Yfirmennirnir sögðu
okkur að draga ekki niður [rúss-
neska flotafánann]. Við hverfum
á brott eins og þjófar á nóttu.“
Leika sér að sprengjum
Eistneskir heimavarnarliðar
sem vakta herbúðirnar hafa upp-
götvað eitt og annað, þar á meðal
uppdrætti sem sýna hvernig her-
taka má ýmsa hernaðarlega mikil-
væga staði í Tallinn. Kortin eru
dagsett 1990, árið sem Eistland,
Lettland og Litháen lýstu yfir
sjálfstæði sínu. Öllu alvariegra er
þó, að mikið er um jarð- og hand-
sprengjur sem börn hafa fundið
og leikið sér að, eftir að hafa skrið-
ið gegnum göt á girðingunni um-
hverfis herbúðirnar.
Rúmlega tvö hundruð rússnesk-
ir sérfræðingar verða áfram í Eist-
landi, og hafa þann starfa að taka
niður kjarnorkuverið í bænum
Paldiski.
Rcuter
STÚLKA með regnhlíf á brautarstöð í úthverfi Tallinn. Á bak
við hana eru rússneskir hermenn að ganga frá herflutningabíl-
um á lest sem flytur þá á brott.
Jeltsín og
Jiang stað-
festa sættir
BORÍS Jeltsín Rússlandsforseti
sagði í gær að þeir Jiang Zem-
in forsætisráðherra Kína
myndu á föstudag undirrita
samninga um lausn landa-
mæradeilna og um að beina
ekki kjamorkuvopnum að hvor-
ir öðrum. Ennfremur myndu
þeir undirrita yfirlýsingu um
gagnkvæm samskipti ríkjanna
i framtíðinni. Samningur um
landamæri leysir áratuga deilur
um vestari mörk ríkjanna og
að honum loknum er einungis
óleystur ágreiningur um mörk
u.þ.b. 1% landamæranna.
Liðhlaup í
Rúanda
UM 400 liðsmenn hersveita
fyrrum stjórnarhers Rúanda
hafa gengið til liðs við her nýju
stjórnarinnar undanfarna daga,
að sögn fulltrúa Sameinuðu
þjóðanna í Kigali. Þykir það til
marks um að gamli stjórnarher-
inn sé að leysast upp.
Gripnir með
úranstangir
UNGVERSKA lögreglan lagði
hald á tvö kíló af geislavirku
efni á mánudag en talið er að
þar sé um að ræða úranstangir
sem komnar séu frá Rússlandi.
Tveir Ungveijar sem reyndu að
koma efninu í verð hafa verið
teknir fastir. Buðu þeir úranið
á 40.000 dollara kílóið eða jafn-
virði 2,8 milljóna króna.
Quayle vill
verða forseti
DAN Quayle
varaforseti
Bandaríkj-
anna í forset-
atíð George
Bush hefur
ákveðið að
sækjast eftir
útnefningu
sem forseta-
efni Repúblikanaflokksins fyrir
forsetakosningarnar 1996, að
sögn 6’AW-sjónvarpsstöðvar-
Fagna valda-
tíð Gaddafís
ERLENDIR stjómarerindrekar
og þjóðarleiðtogar streymdu til
Trípolí, höfuðborgar Líbýu, í
gær til þess að taka þátt í hátíð-
arhöldum í tilefni þess að um
þessar myndir eru 25 ár liðin
frá því Muammar Gaddafí
braust til valda. Meðal fyrir-
menna eru forsetar Súdans og
Alsírs, forsætisráðherrar Norð-
ur-Kóreu og Níger, landbúnað-
arráðherra Ómans og varnar-
málaráðherra Burkina-Faso.
62 farast í
kolanámu-
slysi
TALIÐ er að minnst 62 menn
hafi farist á Filippseyjum er
metangas sprakk í kolanáma-
göngum. 14 að auki slösuðust
er þeir skriðu upp úr námunni.
Hún er um 150 metrar að dýpt
og á eyjunni Mindanao, sunnar-
lega í eyjaklasanum. Spreng-
ingin varð á mánudag og er
þetta mannskæðasta námuslys
í'sögu landsins.