Morgunblaðið - 31.08.1994, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994 17
Dýrasti
flugvöllur í
heimi
KANSAI alþjóðaflugröllurinn í
Japan var opnaður á mánudag.
Bygging vaílarins hefur valdið
deilum, meðal annars vegna
kostnaðar, sem er um ein og
hálf triljón jena, eða sem svarar
einni biíjón islenskra króna, og
er þetta sagður dýrasti flugvöll-
ur sem byggður hefur verið.
Hann er á eyju sem byggð var
úti á Osaka-flóa. Flugbrautin er
þriggja og hálfs kílómetra löng
og flugstöðin er um 16 hundruð
metrar að lengd, og á henni
straumlínulaga þak hannað af
ítalska arkitektinum Renzo
Piano. Upphaflega var ráðgert
að um eitt þúsund flugvélar færu
um völlinn í viku hverri.
Flugmenn
ákærðir
Seoul. Reuter.
TVEIR flugmenn, annar kanadískur
og hinn suður-kóreskur, voru í gær
ákærðir fyrir brot á flugreglum
vegna brotlendingar Airbus-þotu í
Suður-Kóreu fyrr í mánuðinum.
Allir um borð í þotunni björg-
uðust. Flugmennirnir eiga allt að
fimm ára fangelsisvist yfir höfði sér
verði þeir sakfelldir. Þeir rifust um
stjórn þotunnar fyrir brotlendinguna.
Samtök kanadískra flugmanna
mótmæltu því að flugmejmirnir
skyldu hafa verið ákærðir áður en
niðurstöður tæknilegra rannsókna
liggja fyrir. „Við teljum að kanadíski
flugmaðurinn hafi verið hetja dags-
ins með því að stýra þotunni af flug-
brautinni og ekkert manntjón varð,“
sagði Rob Mclnnis, formaður sam-
takanna. „Hann ætti að fá orðu en
ekki fangelsisdóm."
Teikn um að IRA hyggist lýsa yfir vopnahléi
Stj órn Johns Majors
útilokar tilslakanir
Lundúnum. Reuter.
BRESKA stjórnin útilokaði í^gær
tilslakanir af sinni hálfu þótt Irski
lýðveldisherinn (IRA) lýsti yfir
vopnahléi. Stjórnin sagði að Sinn
Fein, stjórninálaarmur IRA, fengi
ekki að taka þátt í viðræðum um
framtíð Norður-írlands nema IRA
afneitaði valdbeitingu fyrir fullt
og allt.
Breska stjórnin áréttaði þessa
afstöðu vegna harðra viðbragða
mótmælenda á Norður-írlandi og
manna á hægrivæng breska
íhaldsflokksins við vangaveltum
um að stjórnin kynni að falla frá
skilyrði sínu um að IRA hætti
vopnaðri baráttu sinni fyrir fullt
og allt. Ian Paisley, herskár leið-
togi mótmælenda á Norður-
írlandi, sakaði bresku stjórnina
um að ætla að fórna héraðinu á
altari pólitískrar tækifærisstefnu
og varaði við því að slíkt gæti leitt
til borgarastyijaldar.
Háttsettir embættismenn í
Lundúnum kváðust ekki geta stað-
fest fréttir um að írski lýðveldis-
herinn væri að búa sig undir að
hætta vopnaðri baráttu sinni fyrir
því að binda enda á yfírráð Breta
yfir Norður-írlandi. Þeir sögðu að
afstaða bresku stjórnarinnar kæmi
skýrt frarn í friðaryfirlýsingu
Breta og Ira frá því í desember.
Þar var Sinn Fein boðið að taka
þátt í viðræðum um framtíð Norð-
ur-írlands þremur mánuðum eftir
að IRA hætti vopnaðri baráttu
sinni fyrir fullt og allt. „Það kem-
ur ekki til mála að breyta þeirri
afstöðu eða bjóða tilslakanir,"
sagði háttsettur embættismaður.
Vangaveltur um að tímamóta-
samkomulag væri í sjónmáli fengu
byr undir báða vængi eftir að
Gerry Adams, leiðtogi Sinn Fein,
sagði á mánudag að hann hefði
lagt til við írska lýðveldisherinn
að hann féllist á vopnahlé. Herinn
hefði lofað að svara tillögunni
fljótlega.
Paisley sagði að vilji IRA-
manna til að lýsa yfir vopnahléi
sýndi að breska stjórnin hefði á
bak við tjöldin gefið þeim það sem
þeir vildu - merki um að írland
yrði sameinað að nýju eftir sjö
áratuga skiptingu. Sameiningin
yrði til þess að mótmælendur, sem
eru í meirihluta á Norður-írlandi,
yrðu að minnhlutahópi á írlandi.
Breskir embættismenn sögðu
hins vegar að ekki kæmi til greina
að breyta stöðu Norður-íriands
nema meirihluti íbúanna vildi það.
Sú afstaða kæmi einnig skýrt fram
í friðaryfirlýsingunni frá því í des-
ember.
Krafa bresku stjórnarinnar um
að IRA láti af vopnaðri baráttu
sinni fyrir fullt og allt gæti orðið
til þess að hún þyrfti að velja milli
tveggja slæmra kosta ef IRA
ákvæði að binda enda á árásir sín-
ar á breska hermenn en áskildi sér
rétt til að hefna árása mótmæl-
enda.
Skilaboð úr La Sante-fangelsinu
Sjakalinn
svekktur
París. Reuter.
í SKILABOÐUM sem borist hafa
frá „Sjakalanum", hryðjuverka-
manninum Carlosi, þar sem hann
situr á bak við lás og slá í París,
og birtust í frönsku dagblaði í gær
kvartar hann yfir því að reynt
hafi verið að gera út af við mann-
orð hans með upplognum fjölmiðl-
afréttum. Frönsk stjómvöld hófu
strax rannsókn á því hvernig skila-
boðin, sem birtust í blaðinu Info-
Matin undir fyrirsögninni „Carlos
gerir grein fyrir sjálfum sér,“ bár-
ust út úr La Sante fangelsinu.
Carlos, alræmdur fyrir morð og
aðra glæpi, sagði í skilaboðunum
að hann væri ennþá „alþjóðlegur“
byltingarmaður og myndi ekki ger-
ast uppljóstrari og svíkja ónefndar
ríkisstjórnir og vini sem hefðu
reynst honum vel.
Þá kvartaði Sjakalinn yfir þeirri
mynd sem fjölmiðlar hafa dregið
upp af honum, og sagðist ekki
drykkjusjúklingur og hefði ekki
verið í miðjum klíðum við að láta
fjarlægja óvelkomna fitu af mittinu
Carlos
á sér þegar hann var handtekinn
í Súdan um miðjan mánuðinn.
Talsmenn stjórnvalda segja aug-
ljóst að annaðhvort fangaverðir
eða lögfræðingar Carlosar hafi
komið skilaboðunum á framfæri.
Stjórnendur InfoMatin neita að
gera uppiskátt um hvernig boðin
bárust! iþeim.
Deilt um
fríðarlaun
FRIÐARVERÐLAUNANEFND
Nóbels er nú flækt í stormasömum
stjórnmálum Miðausturlanda, að
sögn breska blaðsins Independent.
Nefndin er sögð hafa valið Yitz-
hak Rabin, forsætisráðherra ísra-
els, og Yasser Arafat, leiðtoga
Frelsissamtaka Palestínumanna
(PLO). Barátta Rabins og Shimons
Peres, utanríkisráðherra ísraels,
um leiðtogastöðuna í Verkamanna-
flokknum, varð þó til þess að
snurða hljóp á þráðinn. Evrópskir
ráðamenn - þeirra á meðal John
Major, forsætisráðherra Bretlands,
og Mitten-and Fi-akklandsforseti -
hafa lagt að nefndinni að velja frek-
ar Peres, sem þeir segja að eigi
heiðurinn af samkomulaginu.
Terje Röd Larsen, norskur
stjórnarerindreki sem átti mikinn
þátt í milligöngu Norðmanna, lagði
til að Rabin, Peres og Arafat deildu
allir vei-ðlaununum, ásamt Mah-
moud Abbas, sem undirritaði sam-
komulagið í Washington, eða
Ahmed Qrei, oddvita PLO í viðræð-
unum í Osló. Hermt er að hvorki
Abbas né Qrei hafi geð í sér lengur
til að tala við Arafat vegna ráðrík-
is hans.
EGLA
-RÖÐ OG
REGLA
Margir litir margar stærðir.
Þessi vinsælu bréfabindi
fást í öllum helstu
bókaverslunum landsins.