Morgunblaðið - 31.08.1994, Qupperneq 29
MORGUNBLAÐIÐ
MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994 29
Mig langar að minnast fyrrum
samverkamanns míns, Sigurðar
Hjálmtýssonar, með nokkrum orð-
um. En Sigurður lést laugardaginn
20. ágúst sl. eftir vaxandi tveggja
ára vanheilsu, 76 ára að aldri.
Siggi Hjálmtýs, eins og flestir
kölluðu hann, bar þó sjúkleika sinn
með mikilli hugprýði og hélt anda
sínum og húmor til hinstu stundar.
Hann var í viðræðum það sem
menn kalla hress í besta lagi. Fróð-
ur um menn og málefni og ófeim-
inn við að segja mönnum sannleik-
ann.
Sigurður starfaði hjá Steypu-
stöðinni hf. í tæpan áratug við
lagerstörf á bílaverkstæði og síðar
matráðsmennsku. Hann var mjög
húsbóndahollur og barðist grimmt
á móti öilu sem hann taldi bruðl,
óhóf og óreiðu. Vel skyldi með far-
ið það sem fram var reitt og lagði
hann áherzlu á það við menn, að
ekkert væri sjálfsagt eða ókeypis
í þessu lífi.
Ofáa fyrirlestra hélt hann til
dæmis yfir þeirn, sem honum fannst
drekka of mikla mjólk með matn-
um. Siggi lét setja upp djúsvél í
matsalnum þar sem hann blandaði
góðan drykk úr bestu hráefnum.
Siggi taldi fullorðnum karlmönnum
ólíkt hollara að drekka djús þennan
en að gamsa í sig nýmjólk í öll
mál. Hitt var hann ekkert að tíunda
fyrir þeim, að djúsblandan hans var
auk þess miklu „billegri“ fyrir fyrir-
tækið en blámjólkin. Enda er mjólk-
urþamb íslenzkra erfíðismanna
kafli útaf fyrir sig.
Stóra klukku lét Siggi setja upp
í matsalnum. Það var til þess að
minna viðkomandi á, að matar-
tíminn væri takmarkaður. Þegar
hann var liðinn fór Siggi að hafa
hátt og gefa til kynna, að klukkan
væri komin. Ef það dugði ekki var
hann alveg vís til að vekja athygli
manna á að þeir væru að selja fyrir-
tækinu tíma sinn. Það ætti að fá
vinnu fyrir kaupið og matinn og
hana nú. Stóðust fáir þann þrýsting
til lengdar.
Siggi vildi sífellt hagræða og
gera hagstæða verzlun fyrir fyrir-
tækið. Síðan í hans tíð er kaffi-
brauðið staðlað hér á bæ og heitir
„Steypustöðvarkringlan". Það
táknar, að það er frjálst val á með-
læti með kaffinu, svo lengi sem það
er kringla.
Sigurður Hjálmtýsson var vörpu-
legur maður í sjón, þéttur á velli
og þéttur í lund, gildur meðalmaður
á vöxt og bar sig hermannlega.
Hann var mættur fyrir allar aldir
til vinnu og var þá ógeispandi og
Qallhress. Það lifnaði oft yfir mönn-
um þegar Siggi kom. Hann kunni
ótal sögur af mönnum, sem hann
hafði kynnst á langri bílstjóraævi.
Eru undirrituðum minnisstæðar
ýmsar sögur, sem hann kunni af
Kjarval. En hann ók lengi með
meistarann um sveitir landsins svo
sem og urmul annars stórmennis.
Hann þekkti landið og landið þekkti
hann.
Lengst af starfsaldri sínum vann
Sigurður Hjálmtýsson innan um
bíla í einhverri mynd. Eftir ýmis
störf í Breiðafjarðareyjum á unga
aldrei til sjós og lands, byijaði hann
ungur að aka vörubílum austur á
Eyrarbakka fyrir Sigurð Heiðdal.
Leigubíla keyrði hann á stríðsárun-
um og lengur, ók slökkviliðsbílum
og sjúkrabílum hjá slökkviliðinu og
Hafnarfjarðarstrætó fyrir Póst og
síma. Hann vann um tíma í Sjálf-
stæðishúsinu gamla fyrir bróður
sinn, Polla, þann landskunna húm-
orista. Hann stofnaði Sendibíla-
stöðina Þröst og rak hana um tíma.
Hann starfaði í bræðrafélagi
Garðasóknar og var þar hvatamað-
ur að byggingu safnaðarheimilisins
Kirkjuhvols á holtinu þar sem nú
skal rísa önnur sóknarkirkja
Garðbæinga.
Sigurður Hjálmtýsson var alla
tíð framfarasinni og áhugasamur
um nýjungar. Hann ferðaðist víða
um lönd. Hann kom frá Bandaríkj-
unum með hugmyndir, sem hann
kynnti í grein í Morgunblaðinu í
nóvember 1959. Þar vildi hann
MINNINGAR
stofnsetja bílageymsluhús í Reykja-
vík og ræddi ennfremur um mögu-
leika á samsetningarverksmiðju
bíla á íslandi.
Hann fór oft til Þýzkalands og
var í útréttingum þar, mest tengt
bílum. Þaðan kom hann m.a. með
líklega fyrsta tengivagninn fyrir
vörubíla, fyrsta Man-vörubílinn og
fyrsta snjósleðann er hann líka
sagður hafa flutt inn, líklega frá
Bandaríkjunum. Ekki gekk vel að
selja þessar nýjungar. Til lengdar
munu þessi umsvif ekki hafa verið
ábátasöm né ánægjuleg alltaf. Þó
hann væri ekki langskólagenginn
var hann ófeiminn að bjarga sér á
erlendri grund og fljótur að læra
hvernig bera skyldi sig við erlenda
stórhöfðingja. Ahuginn og bjart-
sýnin voru ódrepandi en ef til vill
á stundum meiri en raunsæið.
Góð heilsa lengst af, gott skap,
starfsvilji, góð fjölskylda, góðir vin-
ir og 76 æviár. í rauninni getur
maður spurt eins og gert var í
búðunum í gamla daga: „Var það
nokkuð fleira fyrir yður?“
Fyrir hönd starfsfélaganna hjá
Steypustöðinni hf. þakka ég Sig-
urði Hjálmtýssyni fyrir samfylgd-
ina.
Halldór Jónsson.
„Öllu er afmörkuð stund og sér-
hver hlutur undir himninum hefir
sinn tíma. Að fæðast hefir sinn
tíma og að deyja hefir sinn tíma;
að gráta hefir sinn tíma; að hlæja
hefir sinn tíma.“
Þessi orð Prédikarans koma mér
í hug nú er við kveðjum Sigurð
Örn Hjálmtýsson. Ég hef þekkt
Sigurð og hans fjölskyldu í rúm
þijátíu ár eða allt frá því er hann
byggði hús sitt við hlið foreldra
minna í Garðabæ og við Valgerður
dóttir hans urðum vinkonur. Oft
höfum við komið saman í gegnum
árin á tímamótum í lífi Völu og
fjölskyldu hennar, oftast til að
gleðjast og fagna. I dag komum
við saman til að kveðja. Allt hefir
sinn tíma.
Sigurður var borinn og barn-
fæddur Reykvíkingur en í föðurætt
var hann kominn af góðum ættum
austan úr Mýrdal og víðar. Gyðríð-
ur Hjaltadóttir föðuramma hans
var afkomandi Jóns Vigfússonar'
Hólabiskups f. 1643, og konu hans
Guðríðar Þórðardóttur Jónssonar í
Hítardal, f. 1645. Meðal barna
þeirra var Helga Jónsdóttir á Hofi
á Höfðaströnd en hún átti Vigfús
Gíslason óðalsbónda þar, meðal
þeirra bama var Jón Vigfússon,
klausturhaldari á Reynistað,
kvæntur Þórunni Hannesdóttur
Scheving, þeirra dóttir var Karítas
Jónsdóttir húsfreyja að Vatns-
skarðshólum í Mýrdal, f. 1751/
langamma Gyðríðar Hjaltadóttur.
Hjálmtýr Sigurðsson faðir Sigurðar
var umsvifamikill athafnamaður og
til marks um það er að árið 1929
varð hann eigandi allrar Stokkseyr-
ar, hinn eini sem það hefur orðið
síðan á 17. öld og átti einn til 1933
er hann seldi Landsbankanum
hluta Stokkseyrar. Móðurætt Sig-
urðar var aldönsk, en móðuramma
hans var Marie Bernhöft dóttir
hjónanna Johanne og Vilhelms
Bernhöft bakara. Marie Bernhöft
giftist Ludvig Hansen kaupmanni
sem kom til Islands frá Danmörku
og settist hér að. Meðal barna
þeirra var Lucinde Fransiska Vil-
helmine móðir Sigurðar.
Sigurður ólst upp á menningar-
heimili meðal sjö systkina og er til
þess tekið hvað fjölskyldan var kát
og glaðlynd og ekki síður söngelsk.
Hann tók snemma bílpróf og var
atvinnubílstjóri 1935 til 1950 en
stundaði lengst af verslunarstörf.
Hann kvæntist eftirlifandi eigiii-
konu sinni, Ernu Arnadóttur Mat-
hiesen, 17. desember 1949. Hún
er dóttir hjónanna Árna M. Mathi-
esen lyfjafræðings og verslunar-
| manns í Hafnarfirði og konu hans
; Svövu Einarsdóttur, Þorgilssonar
| útgerðarmanns í Hafnarfirði. Sig-
urður og Erna hófu búskap í Hafn-
arfirði þar sem fyrsta barn þeirra,
Árni Matthías, fæddist 1950. Síðan
flytja þau að Sólvallagötu 33 í
Reykjavík, en það hús átti fjöl-
skylda Sigurðar og þar fæddust
yngri börnin þeirra, Valgerður
1953, Hjálmtýr 1956 og Hrafnhild-
ur 1960.
Á árunum í kringum 1950-60
var algengt að stórfjölskyldan
byggi í sama húsi, ég man sjálf
er ég var barn á Ránargötunni, í
stóru fjölskylduhúsi í eigu móður-
bræðra minna, að ekki þurfti að
leita út fyrir húsið að leikfélögum.
Svipað mun einnig hafa verið um
börn Sigurðar og Ernu á Sólvalla-
götunni og ómetanlegt var að eiga
ömmu Lucinde á efri hæðinni. Á
sumrin dvöldu þau í sumarbústað
sínum í Sléttuhlíð fyrir ofan Hafn-
arfjörð. En upp úr 1960 er orðið
þröngt um fjölskylduna og þá kaup-
ir Sigurður hornlóð við Aratún í
Garðahreppi sem þá var að byggj-
ast upp. Garðabæjarárin voru góð
ár, börnin uxu úr grasi og eignuð-
ust félaga meðal barna annarra
frumbyggja þessa nýja bæjarfé-
lags. Érna var virk í kvenfélaginu
og um tíma formaður þess og Sig-
urður gerðist forvígismaður um
stofnun Bræðrafélags Garðakirkju
sem starfar enn í dag. Á þessúm
árum erum við krakkarnir í
Garðabæ í nokkurri sérstöðu því
framan af þurftum við að vera sjálf-
um okkur nóg um allt félagslíf en
brátt rættist úr og á árunum 1965-
1970 urðum við stofnfélagar í
Skátafélaginu Vífli, Æskulýðsfé-
lagi Garðakirkju og íþróttafélaginu
Stjömunni. Þegar þessi fyrsta kyn-
slóð Garðabæjarungmenna fór síð-
an að stofna eigin heimili tvístrað-
ist hópurinn, en ekki var farið að
byggja íbúðir fyrir ungt fólk í
Garðabæ fyrr en mörgum árum
seinna. Því var það að margir af
frumbyggjunum minnkuðu við sig
og fluttust burt er börnin fóru að
heiman. Sigurður og Erna fluttu
til Reykjavíkur 1978 og nokkru
seinna hóf hann störf hjá Steypu-
stöðinni hf. og starfaði þar lengst
af sem lagerstjóri.
Fyrir mér var Sigurður einstakur
persónuleiki, ljúflyndi hans og
óborganleg kímnigáfa ásamt óbil-
andi bjartsýni og áræðni við að
takast á við ný verkefni gleymist
ekki. Á sjötugsaldri keypti hann lóð
, í Grafarvogi og byggði á örskömm-
um tíma draumahús fyrir þau Ernu
til að veija efri árunum í. Hann
var fæddur smiður og svo laghent-
ur að allt lék í höndunum á honum
jafnvel þó sjónin væri farin að gefa
sig. Hann var sjálfstæðismaður alla
tíð og því var það honum mikil
gleði er á síðasta afmælisdegi hans,
28. maí sl., báðar dætur hans voru
kjörnar bæjarfulltrúar fyrir Sjálf-
stæðisflokkinn, Valgerður í bæjar-
stjóm Hafnarfjarðar og Hrafnhild-
ur í bæjarstjórn Seyðisfjarðar, og
slík afmælisgjöf hlýtur að vera
einsdæmi. Fjölskyldan var Sigurði
allt og ekkert fannst honum of
gott fyrir Ernu og börnin þeirra,
tengdabörn og barnabörn. Og hann
átti góða fjölskyldu, Erna hefur
staðið við hlið hans í blíðu og stríðu
í 45 ár ásamt börnunum og í veik-
indum hans hefur fjölskyldan verið
einhuga um að láta honum líða sem
best.
En nú er komið að leiðarlokum,
öllu er afmörkuð stund. Því vil ég
þakka honum velvilja og elskuleg-
heit við mig alla tíð. Elsku Erna,
Árni, Vala, Hjálmtýr, Hrafnhildur
og fjölskyldur, ég og fjölskylda mín
sendum ykkur innilegar samúðar-
kveðjur. Megi minningin um góðan
eiginmann og ástríkan föður,
tengdaföður, afa og langafa verða
ljós í lífi ykkar allra.
Að eilífðar Ijósi bjarma ber,
sem brautina þungu greiðir.
Vort líf sem svo stutt og stopult er,
það stefnir á æðri leiðir.
Og upphiminn fegri en augað sér
mót öllum oss faðminn breiðir.
(Einar Benediktsson)
Guð blessi minningu Sigurðar
Hjálmtýssonar.
Guðlaug Konráðsdóttir.
KRISTÍN
ARNGRÍMSDÓTTIR
-I- Kristín Arn-
* grímsdóttir,
Smáravegi 11, Dal-
vík, fæddist að
Brekku í Svarf-
aðardal 6. júní
1905. Hún lést á
heimili aldraðra,
Dalbæ, 23. ágúst
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Ingigerður Sigríð-
ur Sigfúsdóttir, f.
20. júní 1872 á
Upsum í Svarfað-
ardal, d. 9. október
1947 á Dalvík, og
Arngrímur Jónsson, f. 10. jan-
úar 1867 í Ytra-Garðshorni í
Svarfaðardal, d. 7. júní 1910.
Systkini hennar voru: Jón, f.
4. júlí 1893, Anna Björg, f. 20.
janúar 1898, Björn Zophonías,
f. 7. maí 1900, Svanbjörg, f.
26. maí 1903, Snorri Arngrím-
ur, f. 17. mars 1908, og Guð-
rún Rósa, f. 8, febrúar 1911.
Þau er öll látin. Kristín giftist
2. apríl 1927 Jóni Baldvini Sig-
urðssyni, f. 4. desember 1902
í Hreiðarstaðakoti í Svarfað-
ardal, en hann dó
22. desember 1980
á Akureyrarspít-
ala. Þau bjuggu all-
an sinn búskap á
Dalvík. Börn
þeirra eru: Sigrún,
f. 1. júlí 1927, maki
Eiríkur Jónsson;
Ásdís, f. 4. apríl
1929, maki Finnur
Guðlaugur Sigur-
jónsson, látinn;
Gunnþóra Anna, f.
8. maí 1931, maki
Páll Gestsson, lát-
inn; Ingunn Lilja,
f. 1. október 1935, d. 15. mars
1939; Sveinn Heiðar, f. 4. mars
1939, maki Auður Ingibjörg
Kinberg; Ingigerður Lilja, f.
17. ágúst 1943, maki Þorvald-
ur Baldvinsson; Arngrímur, f.
17. ágúst 1943, maki Gígja
Kristbjörnsdóttir; og Gunnar,
f. 31. júlí 1945, maki Alice
Christensen. Afkomendur
Kristínar og Jóns eru samtals
51. Útför Kristínar fer fram
frá Dalvíkurkirkju í dag.
ÞÓ DAUÐINN sé ætíð nálægur
og vitundin um það, að eitt sinn
skal hver deyja þá erum við sjaldn-
ast viðbúin fráfalli vina eða ætt-
menna. Við kveðjumst sjaldnast
að kvöldi með það I huga að þessi
kveðjustund geti verið hin síðasta
og að fyrstu geislar morgunsólar-
innar verði ekki fyrir augum okkar
allra þegar næsti dagur rís. Þá er
oft gott og mikil huggun í því að
geta hallað sér að góðum minning-
um um hinn látna.
Mig langar í örfáum orðum að
minnast elskulegrar ömmu
minnar, Kristínar Arngrímsdóttur.
Það ber þá fyrst að nefna að
ég er fædd og uppalin í Reykja-
vík, en átti því láni að fagna að
komast á hverju ári norður á Dal-
vík til afa og ömmu. í minning-
unni eru þessar ferðir sveipaðar
ævintýraljóma. Stundum var farið
sjóleiðina, stundum með flugi en
hin síðustu ár oftast með bíl. Allt-
af var jafn vel tekið á móti manni,
hlýtt faðmlag og kossar og síðan
var sest við eldhúsborðið í stóra
eldhúsinu og kleinum í ómældu
magni ásamt fleira góðgæti gerð
góð skil. Fyrir mig voru þessar
ferðir dýrmætar því á Dalvík býr
næstum allt mitt móðurfólk og
heimili afa og ömmu á Smára-
veginum var sá staður, þar sem
fjölskyldan kom saman.
Amma Stína, eins og hún var
oftast kölluð í fjölskyldunni, var
hávaxin og sterkbyggð kona og
bar sig mjög vel. Hún var létt í
skapi og afar heilsuhraust fram
eftir aldri. Snyrtimennska var
henni í blóð borin og var eftirtekt-
arvert hve hún var dugleg að end-
urnýja og halda húsinu sínu við.
Til marks um áræðni ömmu var
þegar hún, rúmlega sjötug, lagði
leið sína í fyrsta skipti á ævinni á
hárgreiðslustofu, lét klippa flétt-
urnar tvær sem hún hafði ,í hnút
og fékk sér permanent. Við þetta
yngdist amma, jafnt í útliti sem
anda um fjölda ára.
Þegar amma var orðin 75 ára
fór hún í sína fyrstu utanlandsferð
til Danmerkur, að heimsækja
Gunnar son sinn og konu hans.
Þar sem hana vantaði ferðafélaga
bauð hún mér með sér og dvöldum
við í Danmörku í þijár vikur. Við
ferðuðumst vítt og breitt um og
aldrei var þreytu að sjá á ömmu.
Hún hafði alltaf jafn gaman að
skoða nýja staði og kynnast nýjum
hlutum. Þessari ferð okkar mun
ég aldrei gleyma. Þetta var reynd-
ar ekki eina utanlandsferð ömmu,
því fimm árum síðar hélt hún I
aðra ferð til Danmerkur, þá með
Ingu dóttur sinni og dætrum henn-
ar.
Á margan hátt held ég að amma
hafi ekki verið mjög hrifin af því
að finna aldurinn færast yfir sig,
því hún vildi geta gert alla hluti
eins og áður. Dæmi um það var
þegar hún, rúmlega áttræð, fóKJ
beijamó og gaf okkur yngra fólk-
inu, ekkert eftir. Þegar hún var
spurð að því um kvöldið, hvort hún
væri ekki eftir sig, lét hún lítið
yfir því og „hélt nú að skrokkurinn
yrði búinn að jafna sig daginn
eftir“. Svona var amma.
Amma bjó ein á Smáraveginum
þar til fyrir einu og hálfu ári, þá
orðin 87 ára, er hún flutti á dvalar-
heimili aldraðra, Dalbæ. Eftir það
hrakaði heilsu hennar mjög og síð-
ustu mánuði var hún alveg rúm-
liggjandi.
Guð geymi ömmu um alla eilífð.
Margs er að minnast,
margt er hér að þakka. c/'
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margs er að minnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Gekkst þú með Guði,
Guð þér nú fylgi,
hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt.
(V. Briem.)
Kristín Pálsdóttir.
Eríidnkkjur
Glæsileg kafii-
lilaðlxirð íidlegir
salir og mjög
góð þjónusta.
L'pplysingar
ísíma22322
FLUGLEIDIR
UÍTEL LOFTLEIDIH