Morgunblaðið - 31.08.1994, Page 38
38 MIÐVIKUDAGUR 31. ÁGÚST 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Bestu þakkir til allra, sem minntust mín á
áttrœðisafmœlinu 23. ágúst.
Una Guðlaug Sveinsdóttir,
Dalbraut 18.
\
BARNADANSNÁMSKEIÐ
í Mjódd
þriðjudaga og laugardaga í sal Þjóðdansafélagsins í
Álfabakka 14A Mjódd (12 tíma námskeið).
Ath. að miðstöð strætisvagna er í Mjódd
Mjódd Mjódd Mjódd
Þriðjudagar þriðjudagar Laugardagar
3-5 ára Kj io.00-10.30 Kl. 17.00-17.30 Kl. 10.00-10.30
6-8 ára Kl. 10.40-11.25 Kl. 17.40-18.25 Kl. 10.40-11.25
9 ára og eldri Kl. 18.30-19.30
Systkinaafsláttur er 25%
Kennsla hefst þriðjudaginn 13. september 1994.
J** %
7C'(==aa & -t
K
Innritun og
| upplýsingar
. ísíma87l6l6.
/UN1 ^
r
Utsala á
húsgögnum
Allt aé
50% afsláttur
Sófasett, hillur,
sjónvarpsskápar
o.fl.
Klæóum og gerum
vió húsgögn
H.G.
húsgögn og bólstrun,
Dalshrauni 11,
sími 51665.
V_________________________/
blabib
-kjarnimálsins!
Sjábu hlutina í víbara samhengi!
ÍDAG
BRIDS
IJm.sjón Guóm. Páll
Arnarson
ALLIR þekkja spilara sem
hafa yndi af að búa til
flóknar sagnvenjur fyrir
makker að muna. Einn
þeirra er Bandaríkjamaður-
inn Richard Schwartz.
Spilafélagi hans er fyrrum
heimsmeistari, Peter
Weichsel, en í vor unnu
þeir Reisinger útsláttar-
keppnina ásamt Sam Lev
og Michael Polowan. Spil
dagsins kom upp snemma
í þeirri keppni. Weichsel er
í suður en Schwartz í norð-
ur.
Suður gefur; enginn á
hættu.
Norður
♦ 5
V 9762
♦ 984
♦ Á10862
Vestur Austur
♦ 6 * D10973
V KG1085 IIIIH V D4
♦ 763 IMIM ♦ DG52
+ K743 ♦ G5
Suður
♦ ÁKG842
V Á3
♦ ÁKIO
♦ D9
Vestur Norður Austur Suður
1 spaði
Pass 1 grand* Pass 3 lauf**
Pas3 Pass 5 laufT? Pass Pass
* kröfugrand
** sterk opnun með sexlit í spaða
Útspil: tígulsjö.
Með stökki sínu í þrjú lauf
var Weichsel að beita sagn-
venju sem Schwartz hafði
neytt hann til að spila.
Schwartz hafði hins vegar
gleymt eigin hugarfóstri og
hélt að Weichsel ætti lauflit.
Weichsel drap tígulgosa
austurs með ás og spilaði
laufdrottningu. Vestur lét lít-
ið lauf og drottningin átti
slaginn. Trompgosinn féll
næst undir ásinn og síðan
þvingaði Weichsel út kóng-
inn með tíunni. Vestur spil-
aði áfram tígli á drottningu
austurs og kóng suðurs. Nú
tók Weichsel spaðaás og
trompaði spaða:
Norður
♦ -
V 9762
♦ 9
* 8
Vestur Austur
♦ - ♦ D109
▼ KG108 | Hlll »D
♦ 3 ♦ 52
* 7 ♦ -
Suður
♦ KG84
V Á
♦ 10
♦ -
Laufáttan þrengdi svolítið
að austri. Hann henti tígli
og suður spaða. Síðan tók
Weichsel slagina tvo á rauðu
litina og spilaði smáum spaða
frá KG8. Austur átti slaginn
en varð að gefa tvo síðustu.
Sagnvenjan sannaði þama
gildi sitt, því þetta er eina
geimið sem vinnst!
Farsi
„þá skuldar 2. 7ó6o¥í,sö L ójreiddum
virSiscuukxx&tcdic. "
VIJVAKANIH
Svarar í síma 691100 frá 10-12 og 14-16
frá mánudegi til föstudags
Athugasemd
vegna frétta
um KR
HEIÐRÚN Sveinsdóttir
hringdi til Velvakanda
og sagðist vera orðin leið
á því að heyra í fjölrniðl-
um að KR-ingar hefðu
ekki unnið titil í 27 ár.
Það væri ekki rétt því
fyrir tæplega ári síðan
vann meistaraflokkur
kvenna í KR íslands-
meistaratitilinn. „Eða er
kvennaknattspyrnan
ekki talin með þegar tal-
að er um KR-inga?“ spyr
Heiðrún.
Takk fyrir
hjálpina
Við viljum koma á
framfæri þakklæti okkar
til einstaklega hjálps-
amra gæslumanna um
verslunarmannahelgina í
Vík í Mýrdal.
Þeir eyddu fjórum
klukkustundum í það að
setja tjaldið okkar sam-
an eftir að það hafði fok-
ið upp í fárviðri. Kærar
þakkir, þið voruð sannir
bjargvættir.
Fjórar ungar stúlkur í
Kópavogi.
Tapað/fundið
Gleraugu
töpuðust
TVÍSKIPT sjóngleraugu
töpuðust í Elliðaárdaln-
um sl. laugardag. Skilvís
finnandi vinsamlega hafi
samband í síma 35917.
Tvö hjól
týndust
TVÖ 12 gíra hjól týndust
aðfaranótt laugardags-
ins frá Kjalarlandi í
Reykjavík. Ánnað er af
gult af gerðinni Jazz
(Trek USA) og hitt fjólu-
blátt af gerðinni Dakota-
Raleigh. Skilvís fínnandi
vinsamlega hafi sam-
band í síma 681680 eða
887421.
Jakki tapaðist
DÖKKVÍNRAUÐUR
mittisjakki með svörtum
loðkraga var tekinn_ í
misgripum á Hótel Is-
landi laugardagskvöldið
27. ágúst. Skilvís
finnandi er vinsamlega
beðinn að hafa samband
í síma 682961.
Gæludýr
Týndur köttur
SVARTUR köttur með
hvítan blett á hálsi, hvarf
frá heimili sínu í Skipa-
sundi þann 23. ágúst sl.
Hann er ólarlaus og
ómerktur. Hann er mjór
og spengilegur og mjög
gæfur. Hafi einhver orð-
ið hans var vinsamlega
hafið samband við Petru
í síma 79939. Fundar-
launum er heitið.
Lyklar fundust
KIPPA á hring með 2
litlum lyklum (hjólalykl-
um) og einum húslykli
fannst ofan á stöðumæli
á bílastæði við Von-
arstræti sl. sunnudag.
Eigandinn getur vitjað
þeirra í síma 673881.
Úr tapaðist
GLÆNÝTT gullúr af
gerðinni Pierre Cardin,
sem eigandinn fékk ný-
lega í morgungjöf tapað-
ist í Elliðaárdalnum sl.
sunnudag. Skilvís
fmnandi er vinsamlega
beðinn að hringja í síma
814321 og er fundar-
launum heitið.
Víkveiji skrifar...
Almenningssamgöngur eru í
fullkomnum lamasessi í
Reykjavík, eins og allir Reykvíking-
ar vita. Strætisvagnasamgöngur
eru svo stopular að kunningi Vík-
veija lét hafa eftir sér að ef maður
missti af strætó upp í Grafarvog á
sunnudögum væri maður búinn að
eignast þtjú barnabörn áður en sá
næsti kæmi. Þetta kunna nú að
vera ýkjur, en hitt er annað mál
að fjarskiptakerfið í höfuðborginni
bætir ekki úr skák, þegar strætis-
vagnakerfið er ejns og það er. Vík-
veiji lendir nefnilega stundum í því
að missa af strætó þegar hann er
á leið heim úr vinnunni. Aðeins einn
strætisvagn gengur innan úr
Kringlu og vestur í bæ og ef menn
missa af honum, tekur við tuttugu
mínútna til hálftíma bið. Stundum
vill Víkveiji vera kominn heim í
kvöldmat á tilsettum tíma og þá
fyndist honum ágætt að geta til
dæmis hringt sér á leigubíl ef hann
hefur rétt misst af vagninum. En
þá kemur það í ljós, sem margir
erlendir ferðamenn, sem hingað
koma, hafa orð á; það er hægt að
ganga klukkustundum og kílómetr-
um saman eftir aðalgötunum í
Reykjavík án þess að rekast á svo
mikið sem ónýtan símaklefa! Eins
og málum er háttað í þessu landi,
verða menn annað hvort að eiga
bíl eða farsíma til að geta komizt
heim úr vinnunni, helzt hvort
tveggja!
xxx
Almenningssímar eru raunar
fremur sjaldséð fyrirbæri hér
á landi miðað við flest önnur Evr-
ópulönd. Meira að segja í Rússlandi
eru almenningssímar víða, þótt þeir
virki reyndar sjaldan. Hvernig
stendur á þessu? Eru símaklefar
eyðilagðir jafnóðum af þessum
rumpulýð sem rispar líka bíla og
brýtur rúður í verzlunum, eða ligg-
ur eitthvað annað að baki? Hér er
auðvitað um talsverða fjárfestingu
að ræða fyrir Póst og síma, en
reynslan frá útlöndum mun sýna
að símaklefar borga sig tiltölulega
fljótt upp, að ekki sé minnzt á þjóð-
hagslega hagkvæmni þess að auð-
velt sé að komast í síma í höfuð-
borginni. Og víða hafa hönnuðir
símafyrirtækjanna náð talsverðri
leikni í smíði rumpulýðsheldra síma-
klefa.
xxx
etta leiðir huga Víkveija að
viðtali við Olaf Tómasson,
póst- og símamálastjóra, í sunnu-
dagsblaði Morgunblaðsins. Hann
segir þar frá því að Pósti og síma
hafi verið gert að greiða hagnað í
ríkissjóð undanfarin ár, sámtals
þijá og hálfan milljarð króna. Þetta
er engin smáupphæð, og notendur
þjónustu Pósts og síma hljóta að
spyija hvort eðlilegt sé að fjar-
skiptafyrirtæki, sem hefur einka-
rétt á veigamiklum sviðum, sé notað
þannig sem mjólkurkýr ríkissjóðs.
Væri ekki eðlilegra að þau þjón-
ustugjöld, sem Póstur og sími inn-
heimtir, væru lækkuð, eða þá að
fyrirtækið legði í meiri fjárfestingu,
viðskiptavinum sínum til hagsbóta
— til dæmis byggingu símaklefa?