Morgunblaðið - 04.11.1994, Side 32
32 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
leysir vandann
Reflectix er 5/16" þykk endurgeislandi einangrun írúllum.
7 lög en 2 ytri alúminíum-lög endurgeisla hitann.
Breiddir: 2' & 4'. Rúllulengdir: 50', 125’ og 250'.
háaloft, bak við ofna, í fjós, hesthús, á rör, á veggi,
tjaldbotna, sessur, svefnpoka o.m.fl.
Skæri, heftibyssa og límband einu verkfærin.
BYGGINGAVÖRUVERSLUN
P. ÞORGRIMSSON & CO
Alltaf tll i tmgmr Ármúla 29, sími 38640
Verð frá:
41952 kr
staðgrettt
sem hægt er að fá í
tveimur breiddum
50 eða 60 cm.
Fæst með eða án
blástursofns.
Góð eldavél
gott verð
Umboösmenn um land allt.
Heimilistæki hf
SÆTÚNI 8 SlMI 69 15 OO
AÐSENDAR GREIIMAR
Yfirlýsing frá SVFÍ
vegna uppsagnar Hálf-
dans Henrýssonar
MORGUNBLAÐINU barst í gær yf-
irlýsing frá Slysavamafélagi Islands
vegna uppsagnar Hálfdans Henrýs-
sonar, sem er svohljóðandi:
„Á undanförnum áratugum hefur
Slysavarnafélag íslands unnið af
alúð og óeigingimi að slysavörnum
um allt land og átt þátt í því að bjarga
lífi hundruða manna jafnt til sjós sem
lands. Þá sögu þekkja landsmenn
allir enda hafa þeir ætíð stutt dyggi-
lega við bakið á samtökunum og
skapað þeim þann starfsgrundvöll
sem tryggir öflugt mannúðar- og
öryggisstarf Slysavarnafélags ís-
lands um allt land.
Undanfarin ár hefur SVFÍ gengið
í gegnum róttækt breytingaskeið og
endurskipulagningu í takt við þarfír
og kröfur tímans. Þetta gamla og
virta félag hefur þurft, rétt eins og
öll félög, að laga sig að örum breyt-
ingum sem verða frá einum tíma til
annars. Ein kynslóð tekur við af
annarri, áherslur og aðferðir breyt-
ast og starfsemin er sniðin að nýjum
þörfum og kröfum. Breytingar sem
þessar hafa af eðlilegum ástæðum í
för með sér ólík sjónarmið og margs
konar ágreining, sem fólk ræðir og
leysir í bróðerni sín á milli. Því er
augljóst að svo öflug fjöldahreyfing,
sem Slysavamafélagið er, verður að
gera þær kröfur til félaga sinna og
starfsfólks að það hafi víðsýni og
félagslegt umburðarlyndi til að bera
svo hægt sé að samræma skoðanir
og fylgja markaðri stefnu félagsins.
Öllum er ljóst að stefnuna mótar
hinn almenni félagi með þátttöku
sinni í starfinu. Fulltrúar á lands-
þingi kjósa stjórn SVFÍ til að fram-
fyigja þeirri stefnu sem mótuð hefur
verið af heildinni og ber starfsmönn-
um félagsins, undir stjóm fram-
kvæmdastjóra, að vinna samkvæmt
henni.
Endurskipulagning á starfsemi
SVFÍ hófst á aðalfundi á Egilsstöð-
um 1985 og hefur staðið yfir síðan,
enda lýkur slíku starfi seint. Að
frumkvæði þáverandi forseta, Har-
aldar Henrýssonar, var á árunum
1988-89 unnið að gerð nýs skipurits
fyrir félagið og gerðir nýir ráðning-
arsamningar við starfsfólk þess. Yf-
irlýst markmið voru þau að breyta
stjórnskipulagi á þann veg að stjórn
Slysavarnafélags íslands mótaði
stefnu félagsins samkvæmt sam-
þykkt aðalfundar og landsþings, sem
framkvæmdastjóra þess bæri að
framkvæma með starfsfólki sínu.
Stjórnskipulag var fært í nútímalegt
horf eins og gerist hjá öðrum félaga-
samtökum og stofnunum. Sam-
kvæmt þessu hafa stjórnarmenn
Slysavamafélagsins ekki dagleg af-
skipti af einstaka starfsmönnum,
enda er allur daglegur rekstur í hönd-
um framkvæmdastjóra, eins og al-
menna reglan segir til um.
Því miður hefur það gerst að einn
starfsmaður, Hálfdan Henrýsson,
sem sagt hefur verið upp störfum
sökum samskiptaörðugleika og trún-
aðarbrests, hefur séð ástæðu til að
fara með málið í ljölmiðla og túlkað
það mjög einhliða._ Stjóm og fram-
kvæmdastjóri SVFÍ sáu ekki ástæðu
til að senda frá sér fréttatilkynningu
vegna uppsagnar eins starfsmanns,
en vegna einhliða fjölmiðlaumflöll-
unar, sem hefur verið afar villandi,
verður nú í stærstum dráttum gerð
grein fyrir nokkmm þeirra atriða
sem leiddu til þess að Hálfdani var
sagt upp starfi.
Nokkur dæmi um
samskiptavandamál:
Hálfdan Henrýsson starfaði fyrst
hjá SVFÍ frá 1. júlí 1974 til 1. maí
1975 sem erindreki. Hann kom á ný
til starfa 1. mars 1987 sem deild-
arstjóri björgunardeildar og gegndi
því starfi til 20. október 1994.
Þegar Árni Gunnarsson, fyrrv.
alþm., var ráðinn framkvæmdastjóri
í janúar ’92 vom ráðningarsamning-
ar starfsfólks endurskoðaðir. Þá varð
strax vart við andstöðu Hálfdans,
sem skapaði ókyrrð og óvissu á
vinnustað. Það leiddi til þess að ein-
um framkvæmdaráðsmanni var falið
að ræða við Hálfdan fyrir hönd fram-
kvæmdaráðs SVFÍ. Ástandið lagað-
ist lítið eitt um sinn en þrátt fyrir
það kom oft fyrir að daglegum störf-
um var seint eða ekki sinnt. Við
þetta skapaðist trúnaðarbrestur milli
Hálfdans og framkvæmdaráðsins og
stjórn félagsins gerði sér grein fyrir
því að þessi þróun mála gæti ekki
gengið til lengdar.
Árni Gunnarsson ræddi við stjórn-
armenn um nauðsyn þess að Hálfdan
starfaði samkvæmt mótaðri stefnu
félagsins. Fengist hann ekki til þess
yrði hann að víkja. Hálfdan beitti sér
þá með ýmsum hætti gegn nýja
framkvæmdastjóranum. Ein af
ástæðum þess að Árni sagði starfi
sínu lausu síðla árs ’92 var að hann
vildi ekki efna „til átaka og úlfúðar
við heimaríka menn“. Stjórn SVFÍ
réð Esther Guðmundsdóttur fram-
kvæmdastjóra frá og með 18. októ-
ber ’92. Hálfdan sótti einnig um starf
framkvæmdastjóra. Hann setti sig
strax upp á móti ráðningu Estherar
og lýsti því yfir að hann myndi ekki
láta hana stjórna sér og sínum. Hann
taldi Esther ekki geta verið yfirmann
sinn þar sem hún hefði hvorki mennt-
un né reynslu í björgunarmálum.
Framkvæmdaráð Slysavarnafélags-
ins fól þá Einari Siguijónssyni, for-
seta félagsins, að áminna Hálfdan
um stöðu hans og ræða ágreinings-
mál. Þetta nægði ekki. Hálfdan hélt
áfram að skapa óróa á vinnustað.
Framkvæmdaráðsmenn eyddu
miklum tíma í að leiðrétta ýmsar
rangfærslur sem hann dreifði til fé-
lagsmanna. Ofan á þetta bættist að
Hálfdan var jafnan tregur til að veita
framkvæmdastjóra umbeðnar fag-
legar upplýsingar.
Hálfdan notaði oft fundi SVFÍ til
þess að láta skerast í odda með
mönnum um ýmis málefni og ber þar
einna hæst fund formanna björg-
unarsveita í Reykjavík í apríl 1993,
tveimur vikum fyrir aðalfund. Stjórn
Slysavarnafélagsins reyndi að fá
þeim fundi flýtt fram í mars en
Hálfdan lagðist gegn því. Síðar stað-
festu nokkrir björgunarsveitafor-
menn að markmið þeirra, að halda
fundinn sem næst aðalfundi, hafi
verið það að „hita menn upp“ gegn
stofnun björgunarskóla í samvinnu
viðaðra.
Á fundi stjórnar, varastjómar,
umdæmisstjóra og deildarstjóra á
Úlfljótsvatni í okt. ’93 lýsti Hálfdan
því aftur yfir að hann teldi sig vera
óbundinn af stjómvaldi fram-
kvæmdastjóra. Fimm stjórnarmenn
SVFÍ gagnrýndu hann fyrir þessi
ummæli og áminntu hann um sam-
þykktir stjórnar, skipurit félagsins
og ákvörðunarferil.
Skömmu fyrir síðasta landsþing í
maí ’94 byrjaði óróleiki að nýju með-
al björgunarsveitamanna sem rakinn
var til Hálfdans. Gunnar Tómasson,
1. varaforseti SVFÍ, og fleiri stjórn-
armenn urðu að róa þingfulltrúa
þegar upp úr sauð vegna málflutn-
ings starfsmanna björgunardeildar
undir stjórn Hálfdans. Hálfdan vann
leynt og ljóst á móti samningnum
við Landsbjörgu, sem undirritaður
var í desember ’93, og verða það að
teljast óeðlileg vinnubrögð af starfs-
manni félagsins, þegar stefnumörk-
un félagsins lá fyrir.
Prófkjör Sjálfstæðisflokksins á Reykjanesi 5. nóvember 1994
Við styðjum
Ama Ragnar Arnason
tíl áframhaldandi
þingsetu
- tryggjum honum
góða kosningu
Hildur Jónsdóttir, ferðamálafulltrúi, Seltjarnarnesi
Magnús Margeirsson, matreiðslum., Seltjarnarnesi
Majpús Erlendsson, framkv.stjóri, Seltjarnarnesi
Lovisa Cristiansen, arkitekt, Hafnarfriði
Hafsteipn Þórðarson, verksm.stjóri, Ila&iarfirði
Birgir Omar Haraldsson, forstjóri, Kópavogi
Maria Valdimarsdóttir, tollvörður, Keflavík
Sigríður Aðalsteinsdóttir, húsmóðir, Njarðvik
Jón Pétur Iindal, sveitarstjóri, Kjalarnesi
Pétur Friðriksson, kerfisfræðingur, Kjalarnesi
Björn Jónsson, bóndi, Kjalarnesi
Helga Hermannsdóttir, deildarstjóri, Kópavogi
Hilmar Sigurðsson, viðskiptaff., Mosfellsbæ
Guðmar Magnússon, framkv.stjóri, Seltjarnarnesi
Friðrik Gunnarsson, framkv.stjóri, Seltjarnarnesi
Sigurður K Oddsson, byggingart.fr., Seltjarnarnesi
Örn Kjærnested, framkv.stjóri, Mosfellsbæ
Sigurveig Sæmundsdóttir, yfirkennari, Garðabæ
Guðni Stefánsson, bæjarfulltrúi, Kópavogi
Einar Guðberg, fyrrv.form Þroskahjálpar, Keflavík
Anna Lea Björnsdóttir, íþr.kennari, Njarðvík
Halldór Ibsen, framkv.stjóri, Keflavík
Jón Olafsson, oddviti, Kjalarnesi
Magnús Jónsson, sérleyfishafi, Kjalarnesi
HallgrímurÁrnason, húsasm.meistari, Kjalarnesi
Jón Þórður Jónsson, tæknifr., Mosfellsbæ