Morgunblaðið - 04.11.1994, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ
AÐSENDAR GREINAR
FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994 33
Fulltrúar Reykjavíkurhafnar, Lög-
reglunnar í Reykjavík og SVFÍ héldu
fund 14. apríl ’93 þar sem rætt var
um kaup á stórum björgunarbáti með
tveimur vélum. Hálfdan sat fundinn
fyrir hönd SVFÍ og lýsti því þar yfir
að félagið hefði ekki áhuga á sam-
starfi um slíkan bát. Þetta gerði
hann án samþykkis og vitundar
stjórnar og framkvæmdastjóra SVFÍ.
Það er óásættanlegt að starfsmaður
taki jafn stefnumarkandi ákvörðun
sem þessa án samráðs við stjóm og
framkvæmdastjóra. í skýrslu fyrr-
greindra aðila um málið, dags. 16.
sept. ’93, segir orðrétt: „Slysavarna-
félagið hefur ekki tekið þátt í þess-
ari vinnu af einhveijum orsökum.“
Framkvæmdastjóri SVFÍ og félagar
úr Björgunarsveitinni Ingólfi hafa
síðan leiðrétt þennan misskilning.
Nýlega bárust út villandi upplýs-
ingar um kostnað af námskeiðahaldi
og fræðslustarfsemi félagsins sem
virðast hafa verið gefnar út í þeim
tilgangi að grafa undan Björgunar-
skóla Landsbjargar og SVFÍ. Vitað
er að þær komu frá Hálfdani. Þetta
skapaði óþarfa misskilning og
óánægju meðal björgunarsveita-
manna um allt land en gjaldskrá
björgunarskólans var birt um miðjan
september. í fundargerð fram-
kvæmdaráðs 20. sept. sl. segir:
„Björgunarskólinn: Framkvæmdaráð
ieggur áherslu á aðgjaldskrá skólans
verði í lágmarki, en til að létta und-
ir með björgunarsveitum verður frek-
ar greitt úr sjóðum félagsins.“ Á
björgunarráðsfundi 10. október sl.,
sem Hálfdan sat, var verðlagning
rædd ennfrekar og framkvæmd nið-
urgreiðslu SVFÍ til björgunarsveita.
Hálfdan fékk allar fundargerðir
framkvæmdaráðsins og hefði því
auðveldlega getað skýrt björgunar-
sveitarmönnum frá hinu sanna í
málinu.
Esther Guðmundsdóttir gerði at-
hugasemd við málflutning Hálfdans
vegna þessa máls en hann brást illa
við henni, sagðist hafa sínar skoðan-
ir á hlutunum og þeim yrði ekki
breytt. Mörg önnur mál mætti upp
telja, sem er þó með öllu óþarft á
þessu stigi. Dæmin hér að ofan und-
irstrika að á undanförnum árum hef-
ur Hálfdan átt í stöðugum eijum og
útistöðum við stjórn og fram-
kvæmdastjóra SVFÍ og neitað að
fara eftir fyrirmælum þrátt fyrir
marg ítrekaðar aðfínnslur einstakra
stjórnarmanna og framkvæmda-
stjóra.
Umfang starfsemi SVFÍ hefur
margfaldast á undanförnum árum
eins og landsmönnum er öllum ljóst.
Undanfarna tvo áratugi hafa áhersl-
ur SVFÍ verið að breytast hægt og
sígandi. Lengst af var megináhersla
lögð á húsbyggingar og tækjakaup
fyrir björgunarsveitirnar, en minni
tími fór þá eðlilega í fræðslumál og
æfingar. Þetta hefur breyst. Nú er
vaxandi þungi lagður á slysavama-
þáttinn og fræðslumál björgunar-
sveitamanna og slysavarnafólks. í
því sambandi nægir að nefna helstu
verkefni eins og Vörn fyrir böm,
Komum heil heim, Öryggi á sund-
stöðum, Slysavarnir í landbúnaði og
Öryggi hafna. Aukin áhersia er lögð
á samstarf við aðra aðila í þjóðfélag-
inu sem vinna að sömu markmiðum
og má þar nefna Landsbjörgu, Rauða
kross Islands, samtök sjómanna og
útgerðarmanna, bændasamtökin,
sveitarstjórnir o.m.fl.
Hálfdan lét berast til bjórgunar-
sveita félagsins að stöðugt væri ver-
ið að minnka framlög til björgunar-
mála og sveita SVFI vegna vaxandi
vægis slysavarnamála. Stjórn Slysa-
varnafélagsins varð oftar en einu
sinni að leiðrétta þessar rangfærslur
við björgunarsveitarmenn og benda
þeim á hið rétta í málinu, sem er
að framlög til björgunardeilda hafa
farið stighækkandi undanfarin ár,
eða úr 10,6 millj. kr. 1990 í 15,6
m.kr. 1993. Á sama tíma hækkuðu
framlög til slysavarnadeilda úr engu
1990 í 9,5 m.kr. 1993. Framlög til
deilda og björgunarsveita félagsins
hækkuðu úr 3 m.kr. 1990 í 13,7
m.kr. 1993. Þetta eru staðreyndir
sem bera vitni utn öfluga uppbygg-
ingu.
Rekstur SVFÍ er tvíþættur, annars
vegar er um að ræða þjónustu við
sjálfboðaliða félagsins og hins vegar
þjónustuverkefni fyrir ríki og sveitar-
félög. Þessi rekstur er umfangsmik-
ill og þess vegna hefur stjórn SVFÍ
ekki leyfi til að starfa að málum eft-
ir duttlungum einstakra starfsmanna
sem ekki vilja fara að samþykktum
og vinna jákvætt að þeim málum sem
ber að sinna hverju sinni. Hjá SVFÍ
er jafnan róinn lífróður, bæði í fyrir-
byggjandi starfi og til að bjarga
mannslífum, og verða starfsmenn
allir sem einn að leggjast jafnt á
árarnar, sama á hveiju gengur. Þeg-
ar mannslíf eru í húfi er ekki hægt
að leyfa einstökum starfsmönnum
að róa með sínu lagi.
Því miður var ekki lengur hægt
að umbera einleik Hálfdans Henrýs-
sonar og skort hans á samstarfsvilja.
Á fundi Einars Siguijónssonar, for-
seta SVFÍ, og Estherar Guðmunds-
dóttur, framkvæmdastjóra, 20. októ-
ber sl. var Hálfdani boðið að segja
sjálfur upp störfum ellegar yrði
starfssamningi hans sagt upp af fé-
lagsins hálfu. Hálfdan valdi síðari
kostinn.
Fleira er ekki um málið að segja.
Best hefði verið að ekkert hefði ver-
ið sagt. í ljósi þess að Hálfdan Henr-
ýsson kaus að fara með málið í fjöl-
miðla, taldi SVFÍ nú nauðsynlegt að
ieiðrétta villandi og rangar uppiýs-
ingar sem birst hafa og skaðað hafa
áralangt trúnaðarsamband Slysa-
varnafélagsins við landsmenn alla.
Með þökk fyrir birtinguna.
Fyrir hönd stjórnar SVFÍ,
Gunnar Tómasson, 1. varafor-
seti og formaður björgunar-
ráðs SVFÍ.“
HYunoni
Sonata fyllti ákveðið tómarúm
á íslenska bílamarkaðinum og
höfðaði strax til þeirra sem
vildu eignast bíl sem bæri
merki glæsibifreiðar í útliti og
aksturseiginleikum - án þess að
verðið þyrfti að endurspegla það.
• 5 gíra
• 2000 cc - 139 hestöfl
• Vökva- og veltistýri
• Rafdrifnar rúður
og speglar
• Samlæsing
• Styrktarbitar
í hurðum
• Útvarp, segulband
og 4 hátalarar
á mun betra verði en sambærilegir bílar
HYUI1DHI
...til framtíÖar
Verðfrá
1.598.000,-
kr. á götuna!
ÁRMÚLR 13 • SÍMl: 68 12 00 • BEINN StHl: 3 12 36
Hafið samband við sölumenn okkar
eða umboðsmenn um land allt