Morgunblaðið - 04.11.1994, Qupperneq 38
38 FÖSTUDAGUR 4. NÓVEMBER 1994
MIIMIMINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
t
Móðir okkar, tengdamóðir, amma, lang-
amma og langalangamma,
ÞURÍÐUR PÁLSDÓTTIR,
áður til heimilis á Sólvallagötu 5,
Reykjavík,
andaðist 3. nóvember á Elli- og hjúkrun-
arheimilinu Grund.
Halldóra Elíasdóttir, Jón Dan Jónsson,
Ingibjörg Elíasdóttir, Gunnar Runólfsson,
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabörn.
t
Þökkum auðsýnda samúð og vinarhug
við andlát og útför
MARGRÉT SIGURÐARDÓTTIR
frá Bergi,
Grindavfk.
Kristján Sigurðsson,
börn og tengdabörn.
t
Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda
samúð og vinarhug við andlát og útför
ástkærrar móður okkar og tengdamóð-
ur,
SVANFRI'ÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR,
Hrafnistu,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til séra Árna Bergs
Sigurbjörnssonar og starfsfólks Hrafn-
istu, Reykjavík.
Börn, tengdabörn og aðrir aðstandendur.
+
Innilegar þakkir fyrir vinarhug og hlut-
tekningu vegna andláts og útfarar móð-
ur okkar, tengdamóður ömmu og
langömmu,
CAMILLU ALVHILDE SANDHOLT.
Sérstakar þakkir eru færðar starfsfólki
í Seljahlíð fyrir frábæra umönnun.
Guð blessi ykkur öll.
Katrm Þ. Guðlaugsdóttir, Gísli Arnkelsson,
Hildur Björg Guðlaugsdóttir, Þórður Ólafur Búason,
Jenný St. Guðlaugsdóttir Gröttem, Nils-Johan Gröttem,
Pétur Guðlaugsson, Patricia Ann Guðlaugsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
+
Þökkum auðsýnda samúð og vináttu
við andlát og jarðarför eiginmanns
míns, föður okkar, tengdaföður og afa,
SIGURJÓNS RIST
vatnamælingamanns.
Marfa Sigurðardóttir,
Rannveig Rist, Jón Heiöar Rikharðsson,
Bergljót Rist,
Guðbjörg Rist Jónsdóttir, Mari'a Rist Jónsdóttir.
+
Innilegar þakkir til allra fyrir auðsýnda
samúð og vinarhug við andlát og útför
ástkærs eiginmanns míns, föður okkar
og tengdaföður,
AÐALSTEINS EGILSSONAR,
málarameistara,
Hringbraut 17,
Hafnarfirði.
Sigurlaug Jónsdóttir,
Jón Aðalsteinsson, Guðbjörg Jóna Eyjólfsdóttir,
Björg Aðalsteinsdóttir, Ómar Ólafsson,
Kristm Jóhanna Aðalsteinsdöttir, Björn Ágústsson,
Stefani'a Eygló Aðalsteinsdóttir, Bergsveinn Halldórsson.
GARÐAR
ÞORFINNSSON
+ Garðar Þor-
finnsson var
fæddur í Reykjavík
8. júlí 1925. Hann
lést á Borgarspítal-
anum 30. október
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Kristín Þórlaug
Guðmundsdóttir og
Þorfinnur Gunnar
Guðmundsson.
Nokkurra mánaða
gamall var hann
tekinn í fóstur af
Gunnjónu Einars-
dóttur og Kristjáni
Sigurðssyni sem bjuggu á
Norðureyri við Súgandafjörð.
Systkini hans voru Sveinn og
Guðmundur (látinn) Gíslasynir
og Kristjana, Kolfinna og Páll
(látinn) Þorfinnsbörn. Garðar
var bæði bóndi og sjómaður
en síðustu 17 árin vélgæslu-
maður hjá Aburðarverksmiðju
ríkisins. Garðar giftist Sigurl-
ín Sigurðar en þau slitu sam-
vistum. Börn þeirra eru Pálína
Kristín, f. 1. ágúst 1963, og
Sigurður Kristján, f. 25. nóv-
ember 1961. Pálína á þrjú
börn, Oskar, Steinunni og Arn-
ar. Síðustu 15 árin bjó Garðar
hjá Lilý Karlsdóttur. Útför
Garðars fer fram frá Foss-
vogskirkju í dag.
band okkar var mjög
gott og reyndist hann
mér eins og besti fað-
ir, enda leit hann á
mig eins og dóttur
sína. Gjafir hans til
mín voru eingöngu frá
honum, hann gaf mér
ekki gjafir með
mömmu.
Mamma og Garðar
áttu margar góðar
stundir saman enda
áttu þau mörg sám-
eiginleg áhugamál,
t.d. dansinn, þar sem
þau kynntust, og
ferðalög. Þeim fannst mjög gaman
á gömlu dönsunum og fóru stund-
um oftar en einu sinni um helgar
að dansa. Þá fékk ég lánaðan bíl-
inn og_ byijaði á því að keyra þau
upp í Ártún eða annað. Garðar var
mjög heimakær, hann vildi helst
vera heima við í rólegheitum. Hann
vann vaktavinnu hjá Áburðarverk-
smiðju ríkisins, þar til fyrir tveimur
árum og því svaf hann á hinum
ýmsu tímum sólarhringsins.
Mamma var sú sem dreif þau hing-
að og þangað. Þau ferðuðust mikið
innanlands, bæði á sínum bíl og í
skipulögðum ferðum með ferðafé-
lögum. Nú síðustu árin voru þau
líka farin að ferðast fyrir utan iitlu
eyjuna okkar, t.d. til Búlgaríu,
Spánar og Skotlands og höfðu
mjög gaman af.
Garðar átti tvö börn, Pálínu og
Sigurð, sem nú þurfa að kveðja
föður sinn. Oft var langur vegur á
milli þeirra, en alltaf var Garðar
tilbúinn að hjálpa þeim og styðja
þegar þau þörfnuðust þess.
Elsku mamma, Pála og Siggi,
þótt við vissum hvert stefndi er
söknuðurinn alltaf sár. Ég bið þess
að Guð hjálpi okkur öllum og veiti
okkur styrk í sorg okkar.
Guð blessi minningu Garðars
Þorfinnssonar.
Margrét.
í dag kveðjum við góðan vin,
Garðar Þorfinnsson. Engum hefði
dottið í hug að svona stutt væri
hjá honum í ferðina miklu sem við
förum öll að lokum. Hann kvaddi
þennan heim jafn hljóðlega og
hann kom inn í fjölskylduna okkar
fyrir 15 árum, þegar hann og Lily
fóru að búa saman.
Það virðist stuttur tími, en 15
ár geyma margar minningar þegar
hugurinn reikar til baka. Við
gleymum ekki brosinu hans og
hlýju viðmóti né sögunum af sjón-
um og af litlu trillunni hans, en
hugur hans var oft bundinn við
sjóinn, sem var hans yndi, eins og
30. OKTÓBER er mér minnisstæð-
ur dagur. Fyrir þrem árum var
þetta gleðidagur í fjölskyldunni
þegar við hjónin eignuðumst okkar
fyrsta barn, en í ár var þetta sorg-
ardagur því þá kvaddi Garðar;
góður vinur minn, þennan heim. I
ágúst sl. greindist Garðar með
krabbamein og stóð það stríð ekki
lengi yfir. Síðustu vikur fór honum
mjög hrakandi og allir vissu hvert
stefndi.
Ég kynntist Garðari fyrir 15
árum þegar hann fór að bjóða
móður minni á gömlu dansana og
koma í heimsókn til hennar. Of oft
að mér fannst, því ég var búin að
eiga mömmu og passa vel upp á
hana í sjö ár eða frá því að pabbi
dó. Ég átti þessa mömmu og hana
skyldi enginn taka frá mér. En
Garðar var þolinmóður og sýndi
mér aldrei annað en hlýhug og
elskulegheit þó að ekki færi mikið
fyrir því hjá mér. Sem betur fer
áttaði ég mig á því fljótlega að við
gátum bæði átt mömmu að, hún
gat sinnt okkur báðum. Eftir það
vorum við miklir vinir. Auðvitað
vorum við ekki alltaf sammála,
enda verða allir að hafa sínar skoð-
anir á hlutunum. Garðar var ávallt
boðinn og búinn til að hjálpa mér
og styðja við bakið á mér. Sam-
ISAKÞORIR
VIGGÓSSON
+ ísak Þórir Viggósson fædd-
* ist á Haukalandi við Öskju-
hlíð í Reykjavík 31. desember
1935. Hann lést á heimili sínu
í Kópavogi 26. október síðast-
liðinn og fór útför hans fram
frá Digraneskirkju 3. nóvem-
ber.
í DAG kveðjum við vin og félaga
ísak Viggósson. Slæm þótti mér
sú fregn að Isak vinur minn væri
látinn, en fundum okkar bar síðast
saman tveimur dögum fyrir andlát
hans. Þá kenndi hann lasleika, sem
trúlega varð honum að aldurtila.
ísak skilur eftir stórt skarð i
þeim hópi, sem hann best þekkti.
Nú þegar hann er látinn hrannast
upp í hugann allar þær minningar
um allt það, sem gerði hann alveg
einstakan félaga. Eg kynntist ísak
fyrir u.þ.b. 30 árum er ég óreynd-
ur sótti ráð til hans á verkstæði
hans í Fífuhvamminum, en hæfi-
leikar hans og snilli við að leysa
vandamál í sambandi við störf
hans voru með eindæmum. Síðan
lágu leiðir okkar nær samfellt sam-
an í gegnum vinnu og félagsstörf,
en ísak var félagi í Björgunarsveit
Ingólfs frá 1950 til 1985. Störf
hans í þágu Björgunarsveitar Ing-
ólfs og Slysavarnafélags íslands
voru einstök. í stuttri minninga-
grein er ógjörningur að gera grein
fyrir öllu því, sem ísak áorkaði
fyrir Björgunarsveit Ingólfs, það
væri frekar efni í heila bók, slík
voru verkin og ævintýrin, sem við
félagar hans minnumst er við rifj-
um upp störf hans í Ingólfi. Alltaf
var Tsak með þeim fyrstu sem
mættu í útkall og fór iðulega síð-
astur heim, eftir að hafa lagfært
það sem til þurfti svo tæki og tól
væru tilbúin í næsta útkall.
Alltaf var ísak glaður i lund og
lét ekki vandamálin vefjast fyrir
sér, sama hvort starf eða skemmt-
un átti í hlut. Með sérlega góðri
frásagnarlist hafði hann þann
eiginleika að gera flesta hluti
skemmtilega.
Ég mun minnast ísaks á einn
sérstakan hátt fyrir það að þegar
ég var nýlega fluttur í Mosfellsbæ
kom hann með tvö lerkitré, sem
nú eru vaxin upp fyrir hús, en þau
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og
jarðarför bróður okkar, mágs og frænda,
BJÖRNS BJARNASONAR.
VIGUR,
Sigurður Bjarnason,
Baldur Bjarnason,
Þorbjörg Bjarnadóttir,
Þórunn Bjarnadóttir,
Sigurlaug Bjarnadóttir, Þorsteinn Thorarensen
og systkinabörn.
Ólöf Pálsdóttir,
Sigríður Salvarsdóttir,
+
Hugheilar þakkir til allra sem sýndu okkur samúð, vinarhug og
hjálp við andlát og útför
EIRÍKS EINARSSONAR,
Skjólgarði,
Höfn, Hornafirði.
Kærar þakkir fyrir blóm og allar aðrar minningargjafir.
Guð blessi ykkur öll.
Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda,
Rannveig Sigurðardóttir,
Guðrún Eiríksdóttir og fjölskylda.
Frágangur
afmælis- og
minning-
argreina
MIKIL áhersla er lögð á, að
handrit afmælis- og minn-
ingargreina séu vel frá gengin,
vélrituð eða tölvusett. Sé hand-
rit tölvusett er æskilegt, að
disklingur fylgi útprentuninni.
Það eykur öryggi í textameð-
ferð og kemur í veg fyrir tví-
verknað.
Auðveldust er móttaka svo-
kallaðra ASCII-skráa sem í
daglegu tali eru nefndar DOS-
textaskrár. Þá eru ritvinnslu-
kerfin Word og Wordperfect
einnig auðveld í úrvinnslu.
Það eru vinsamleg tilmæli
blaðsins að lengd greinanna
fari ekki yfir eina og hálfa örk
A-4 miðað við meðallínubil og
hæfilega línulengd — eða
3600-4000 slög. Greinarhöf-
undar eru beðnir að hafa skírn-
arnöfn sín en ekki stuttnefni
undir greinunum.