Morgunblaðið - 06.11.1994, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 06.11.1994, Blaðsíða 26
,26 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ MINIMINGAR JÓNP. EINARSSON + Jón Pétursson Einarsson var fæddur á Reynivöll- um í Vestmannaeyj- um hinn 27. septem- ber 1914. Hann lést á öldrunardeild Landspítalans 29. október síðastlið- inn. Jón var sonur hjónanna Einars Einarssonar (f. 17. ágúst 1877, d. 8. febrúar 1925) frá Reynivöllum í Suð- ursveit og Oktavíu Kristínu Péturs- dóttur (f. 31. desember 1886, d. 12. desember 1944) frá Þór- laugargerði í Vestmannaeyj- um. Jón átti þrjú systkini sem öll eru látin, Lydiu, sem lést innan eins árs, Lydiu Aniku, d. 1969, og Emil sem lést tveggja ára. Jón stundaði sjó- mennsku á ýmsum togurum og bátum fyrstu starfs- árin en frá 1940 starfaði hann sem bílstjóri á vörubíl- um, langferðabílum eða leigubílum sem varð aðalstarf hans út starfsævina. Jón kvæntist eftirlifandi konu sinni, Sigfríði Georgsdóttur frá Brekku í Ytri-Njarð- víkum, hinn 2. mars 1940 og bjuggu þau alla tíð í Reykjavík, fyrst á Skothúsveg- inum og frá 1956 á Bústaðaveginum. .Börn þeirra eru Ottó Einar, Örn Snævar, Baldur, Sigfríður (d. 8. febrúar 1991), Jón, Pétur, Laufey, Emilía Guðrún, Olafur og Ragnar, en alls eru afkomend- ur þeirra hjóna 52 talsins. Ut- för Jóns fer fram frá Bústaða- kirkju á morgun. Kveðja frá dóttur MIG setur hljóða á þessari stund sem skilur okkur að í þessari jarð- vist, sú stund var okkur báðum eðlileg og friðsæl. Pabbi minn, það er svo margs að minnast að tæki heila bók ef vel ætti að vera, öll ferðalögin ár eftir ár með okkur krakkana. En ég læt nægja að þakka þér, elsku pabbi, fyrri það að þú varst alltaf til staðar þegar á þurfti að halda, hvenær sem var og hvar sem var, ef erfiðleikar voru þá voru þín huggunarorð: Það birt- ir öll él upp um síðir. Og þau orð hef ég haft að leiðarljósi, maður uppsker alltaf eins og maður sáir. Pabbi, þú varst vitsmunavera -skrefí á undan okkur öllum. Það var gott að eiga þig sem föður. Kveðja, Laufey. Vertu ávallt sannur, sagði afí oft við mig þegar við vorum að spjalla saman um lífsins mál. Þessi orð segja kannski meira en allt annað um það hvernig afí leit á tilveruna og lífíð í kringum sig. Nú að leiðar- lokum hjá afa langar mig til að minnast hans í nokkrum orðum. Síðustu 15 árin hef ég átt þess kost að koma í mat í hádeginu til afa og ömmu á Bústaðavegi. Þar bar oft margt fróðlegt á góma og .alltaf var gaman að heyra sögurnar um afa frá því í byijun aldarinnar. Á árunum fyrir tvítugt eyddi hann miklum tíma í starfí með KFUM og séra Friðriki Friðikssyni, sem hann hafði miklar mætur á síðan og vitnaði oft til. Afí stundaði einn- ig knattspyrnu á þessum árum og var í fyrsta íslandsmeistaraliði sem Valur eignaðist í yngri flokkunum. Eins og þeir vissu sem þekktu afa þá var hann alltaf tilbúinn að takast á við þau verkefni sem lágu fyrir hveiju sinni, hjá honum voru erfíðleikamir bara til að yfírstíga þá. Sem dæmi um það var að þeg- ar Hekla gaus árið 1947 og afi var formaður Litla ferðafélagsins hafði hann frumkvæði að hreinsun Fljóts- hlíðarinnar með þvf að kalla saman hóp manna til að hreinsa garðinn í Múlakoti og túnin þar í kring. Aftur á móti hafði afí aðra hlið á sér en það var hvað hann var barnelskur. Því fengum við barna- börnin að kynnast, m.a. var hann alltaf tilbúinn að spila við okkur á spil eða liðsinna okkur á einhvem hátt þó hann hefði nóg að gera. Afi var mikill ferðagarpur, því fékk ég að kynnast óbeint, því þegar við systkinin ferðuðumst með pabba og mömmu um landið fórum við ekki framhjá þeim dal, fjalli, læk eða bóndabæ að pabbi kynni ekki ein- hver deili á því og þegar ég spurði af hveiju hann væri svona vel að sér sagðist hann hafa farið þetta margoft og alltaf hafí þess verið krafist af afa að leggja öll nöfn á minnið á leiðinni um landið. Elsku Fríða amma. Ég á enga ósk heitari en að góður guð fái mildað sorgina sem fylgir þegar ástvinur fellur frá eftir 60 ára sam- leið og guð gefi þér styrk og trú til að beijast við erfíð veikindi og fá sigur í þeirri baráttu á næstu vikum og mánuðum. Ég veit að ég á eftir að koma við í hádeginu hjá þér næstu 15 árin eins og ég hef gert þau 15 síðustu. Blessuð sé minning Jóns Péturssonar Einars- sonar. Jason Kristinn og Bjamey Sonja. Við segjum brottför élsku afi, því við trúum að þessi tímamót séu upphaf ferðar á vit nýrra ævintýra, ferðar sem þó bar svo brátt að, að eigi gafst tími fyrir kveðjur. Okkur langar að þakka þér fyrir að hafa fyllt líf okkar af hlátri og gleði. Afi á Bústó var alls staðar hrókur alls fagnaðar og ávallt léttur í lund. Hann varðveitti saklausa leikgleði barnsins í hjarta sínu alla tíð og við fengum notið í ríkum mæli í okkar uppvexti. Hann var fyrstur til að kenna okkur nýja leiki, senda okkur með ævintýri inn í nóttina í þau skipti sem við deildum sumar- bústaðaferðunum með honum — hann breytti tárunum í bros. Við nutum frásagnargleði hans einnig á ófáum ferðum um landið, þar sem við ferðuðumst með honum um álfa- lönd, heyrðum um fornar valkyijur + Hugheílar þakkir til allra er sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför ástkærs eiginmanns, föður, afa og langafa, VALDIMARS PÉTURSSONAR bakarameistara, Heiðarbraut 1, Blönduósi. Kærar þakkir fyrir blóm og allar aðrar minningargjafir. Guð blessi ykkur öll. Anna María Sigurbjörnsdóttir, Steingrímur Reynir Valdimarsson, Inga Sigurpálsdóttir, Halla Björg Valdimarsdóttir, Ronald L. Smith, Gunnbjörn Valdimarsson, Gunnar Valdimar Valdimarsson, barnabörn og barnabarnabörn. ______________________________________________________________ INGIBJORG PÁLSDÓTIR og víkinga og á meðan við bruddum bijóstsykur sá hann alltaf um að hugur okkar var fanginn og maginn mettur. Á milli stoppaði hann bílinn til að við fengjum tækifæri til að teygja úr fótunum og tina flöskur upp úr vegkantinum. Það er erfitt að kveðja afa á al- varlegum nótum, þar sem hverri hugsun og minningu fylgir bros. Hann skilur eftir dýrmæta gjöf í hjarta okkar, minningar fullar af hlátri og hlýju, en á sama tíma, elsku amma, hryggjumst við yfir þínum mikla missi. Góða ferð, elsku afí, þangað til við sjáumst næst. Sveinbjörn, Einar, Sigríður, Simon, Kristbjörg, Hulda, Snorri, Jón Pétur og Trausti. Mig langar að kveðja Nonna, yndislegan vin og frænda á sorgar- stund, þegar hann hverfur frá okk- ur úr þessum jarðneska heimi. Allt frá því að ég var barn og fram á síðasta dag gat ég alltaf leitað til Nonna um lausn minna mála, hver sem þau voru. Alltaf fékk ég þann stuðning sem best var á kosið, svar- ið var alltaf já. Mér fannst ég alla tíð vera sem ein af fjölskyldunni hans Nonna og hennar Fríðu og ef fjölskyldan fór í ferðalag eða eitt- hvað skemmtilegt var að gerast, þá var ég tekin með. Nonni var mér miklu meira en bara frændi, hann reyndist mér sem besti faðir, en nú skilja leiðir um sinn. Kallið er komið, komin er nú stundin, vinaskilnaðar viðkvæm stund. Vinimir kveðja vininn sinn látna, er sefur hér hinn síðsta blund. Far þú I friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem.) Elsku Fríða, þakka þér og Nonna fyrir allt sem þið hafíð gefið mér af ást og hlýju. Ég sendi þér og ástvinum þínum innilegustu samúð- arkveðjur og bið Guð að blessa ykkur öll. Edda frænka í Grindavík. Nú er Jón P. Einarsson allur og farinn á vit almættisins og komið að kveðjustund. Það var hinn 27. september sem ég var í áttatíu ára afmæli Jóns á Bústaðaveginum. Það er alltaf jafn gaman að vera með ykkur og það var aldrei talað um að fara í heim- sókn á Skothúsveginn eða Bústaða- veginn, öðruvísi en að fara í heim- sókn til Jóns og Fríðu. Hún er sterk æskuminningin. Það liðu ekki margir dagar í viku að maður kæmi ekki á Skothúsveg- inn og alltaf var tekið á móti manni á hressan hátt. Hún er stór fjöl- skyldan þeirra Jóns og Fríðu. Þau áttu tíu börn, svo að það þurfti mikla vinnu til að afla fjölskyldunni viðurværis. í mínu barnsminni var bíllinn alltaf tengdur nafni Jóns, þar sem hann ók leigubíl á Hreyfli í tugi ára og svo var hann með sérleyfið Borgarnes-Reykjavík, nokkurn tíma. Þegar Jón eignaðist nýjan bíl var það venja hans að koma heim til okkar og bjóða í bíltúr á dross- íunni. En á þeim tíma var þetta stór viðburður og ánægjan mikil að vera boðið í bíltúr. Þá var bíla- eign manna ekki sú sama og í dag. Svona var Jón og þessu gleymir maður ekki. Ég naut tilsagnar Jóns í að aka bíl úti á vegum og bý að þeirri góðu kennslu. Ég vil þakka fyrir samverustund- irnar og leiðbeiningarnar sem þú gafst mér. Um leið og ég með þessum fá- tæklegu orðum kveð þig, Jón, vil ég votta Fríðu móðursystur minni og fjölskyldu mína dýpstu samúð. Sigurður Már. + Ingibjörg Pálsdóttir fædd- ist í Tungu í Fáskrúðsfirði 24. desember 1902. Hún lést í Reykjavík 21. október síðastlið- inn og fór útför hennar fram frá Fossvogskirkju 1. nóvem- ber. ELSKU Ingibjörg er dáin. Þessi ljúfa, káta kona sem kom til mín á hveijum morgni virka daga vik- unnar í þijú ár okkur báðum til mikillar ánægju og uppörvunar. Það gat verið glatt á hjalla hjá gamla fólkinu, við spiluðum, lásum upphátt eða í hljóði, fórum út að labba, ef við treystum okkur, fórum að spila vist niður í bæ, fórum stundum að skoða og kaupa föt. Lásum saman í Biblíunni, borðuð- um saman, hvfldum okkur, fórum í bað og létum snyrta á okkur hár- ið, fórum í heimsókn hvert til ann- ars, ófum dregla á vefstóla og pijón- uðum. Við vorum misjafnlega mörg, stundum ekki nógu mörg til að geta skeggrætt um hlutina, stundum um það sama aftur og aftur. En Ingi- björg kom alltaf. Hún var aldrei veik né óupplögð, eina sem henni leiddist var aðgerðarleysið. Ingi- björg var sérstök handavinnumann- eskja. Ég keypti mér flauelsefni til að sauma úr gardínur fyrir stofu- gluggana og kveið einhver ósköp fyrir að falda efnið. Ingibjörg sá fyrir því, hún var miklu fljótari en ég að falda og orðin 89 ára. Það var fróðlegt að hlusta á Ingi- björgu, Björn, Astu, Ólöfu, Gyðu, Anton, Árna og mörg fleiri rabba saman um fyrri daga og hvað at- burðir fyrri tíma stóðu þeim ljóslif- andi fyrir hugskotssjónum. Birna Steingrímsdóttir, sem bjó í Drápu- hlíð, en hafði búið á Reyðarfírði um leið og Ingibjörg, kom í heim- sókn og var mjög gaman að hlusta á þær tala saman. Húsin þeirra, Oddi og Sandhólar, stóðu hlið við hlið í bænum og spjölluðu þær um lífíð á Reyðarfirði í þá daga. Það var geysileg reisn yfír þessum aust- firsku konum, líkamshreysti þeirra og gáfnafar var sérstakt, þær voru svo vel máli famar, sungu vel, höfðu fádæma góða sjón fram eftir öllum aldri,- " gátu lesið, unnið handavinnu og spilað á spil svo j&itthvað sé nefnt. Ingibjörg lýsti oft fyrir mér æskuheimili sínu, + Þórður Kárason fæddist í Borgarlandi í Helgafells- sveit á Snæfellsnesi 26. janúar 1917. Hann lést á heimili sínu í Reykjavík 29. ágúst síðastlið- inn og var útför hans gerð frá Laugarneskirkju 7. september. Hann var sonur hjónanna Kára Magnússonar bónda í Haga á Snæfellsnesi og konu hans, Þórdísar Gísladóttur. Þórður stundaði nám í héraðsskólanum í Reykholti og síðan í Búnaðar- skólanum á Hvanneyri. Eftir að Þórður fluttist til Reykjavík- ur gekk hann í lögreglulið borgarinnar 1. febrúar 1942 og starfaði þar í 42 ár, eða þangað til hann lét af störfum vegna aldurs fyrir tíu árum. Þórður stundaði m.a. námskeið á veg- um lögreglunnar í Englandi árið 1947 og var skipaður varð- sljóri 1976. DODDI, eins og Þórður var jafnan nefndur af vaktarfélögum sínum, gegndi jafnan starfi sínu af sam- viskusemi og alúð. Hann var sér- staklega vel Iesinn f öllu er laut að þjóðlegum fróðleik og hafði mikinn áhuga á að ferðast, bæði innan- lands og utan og kynnast þar ólík- um menningarheimum. Það kom varla fyrir að hann ræki í vörðurn- ar ef hann var spurður, jafnvel um Tungu í Fáskrúðsfirði, hvemig fljótið rann sitt hvoru megin við landið og hvernig var að alast upp í þessum stóra systkinahópi og stundum einangraði fljótið heimilið. Ég er mjög þakklát almættinu að leyfa mér að hafa starfsemi sem veitti Ingibjörgu og fleirum gleði- stundir á ellistundum þegar líf mannverunnar stendur í stað eða hrakar. Þetta fólk er svo þakklátt öllu sem gert er fyrir það, þó okk- ur sem þurfum stundum meira til að geta glaðst þyki það skrítið. Ingibjörg kvartaði aldrei undan til- verunni. Sem betur fer er fullt af fólki sem er með sömu lífssýn og Ingibjörg okkar. Veröldin væri svo auðveld og skemmtileg ef það væri samt fleira fólk með þessa ókvart- sömu skoðun. Það var mjög ljúft að skreppa yfír í Mjóuhlíð 8 til hennar enda stutt að fara og fá hjá henni kaffísopa og meðlæti úr fína postulínsbollastellinu hennar. Hún var mikill höfðingi heim að sækja og gaf manni alltaf það besta sem hún átti. Svo skildu leiðir okkar og ég fór austur á land að vinna, en oft fór ég yfír í Mjóuhlíð 8 þegar ég kom í bæinn, því ég hugsaði oft um hvernig Ingibjörgu vegnaði og saknaði alltaf af og til félags- skaparins við hana. Ingibjörg átti afmæli á jólunum og mér og sam- starfsstúlku minni, Brynju Gísla- dóttur, fannst gott að geta farið til hennar niður á Grund og fært henni einhvetja smágjöf. Ég forð- aðist að líta á silkiborðana sem féllu um blómakransana á kistunni í Fossvogskirkju til að þurfa ekki að lesa nafnið hennar vinkonu minnar, af því mér var um megn að hugsa um hana látna. En allt andrúmsloftið þennan fagra, sól- bjarta morgun var svo létt og hressilegt og Ingibjargarlegt að það var ómögulegt að vera að súta, enda maður svo heppinn að hafa fengið að njóta návistar þessarar elsku sæmdarkonu. Ég þakka son- um Ingibjargar, eiginkonum þeirra og öllum barnabörnunum fyrir samstarfíð með mömmu og ömmu þeirra og bið Guð að styrkja okkur sem eftir lifum og blessa minning- arnar um kæra Ingibjörgu. Valgerður Þóra Benediktsson. hina ólíklegustu hluti. Alltaf hafði hann rétt svör á takteinum. Það var t.d. vaktarfélögum hans minnisstætt þegar hann keppti fyr- ir allmörgum árum í spurninga- keppni Ríkisútvarpsins. Stoltir fylgdust lögreglumenn með er hann sló hvern keppandann af öðrum út úr keppninni og stóð síðan uppi sem sigurvegari að lokum. Með því sló hann m.a. á þá fullyrðingu að menn væru eingöngu ráðnir í lögregluna á öðrum forsendum en vitsmunum. í lögreglunni starfaði Doddi all- lengi í stjórnstöðinni, þ.e. svaraði í neyðarsímann og hafði fjarskipta- samband við aðra lögreglumenn í eftirliti. Einkenni þeirra samskipta var hversu hann var fljótur til svara ef hann var spurður eða þurfti að gefa góð ráð. Og þrátt fyrir að mikið gæti verið um að vera á stundum var Doddi alltaf jafn róleg- ur og yfirvegaður. Það var fátt sem gat komið honum á óvart eða úr jafnvægi. Hann hafði séð og kynnst flestu því er laut að löggæslustarf- inu. Þórður Kárason var heiðursmað- ur og traustur félagi. Um leið og gamlir vaktarfélagar kveðja góðan vin senda þeir eftirlifandi eiginkonu og ættingjum innilegar samúðar- kveðjur. D-vaktarfélagar. ÞÓRÐUR KÁRASON

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.