Morgunblaðið - 06.11.1994, Side 15

Morgunblaðið - 06.11.1994, Side 15
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994 15 * Atakasæti og skjálftasvæði KOSNINGABARÁTTAN hefur víða verið óvægin og iðulega hafa frambjóðendur valið þann kost- inn að vega að andstæðingum sínum frekar en að draga fram eigin kosti. Hrikalegt þykir að vera stjórnmála- maður, en dásamlegt að vera nýliði í stjórnmálum, helst reynslulaus með öllu. Hægt er að greina almenna strauma fyrir kosningarnar, en hver viðureign hefur sín sérkenni. ► KALIFORNÍA: Kathleen Brown hugðist feta í fótspor bróður síns og föður og verða ríkisstjóri, en henni tókst að glata 15 prósenta forskoti á núverandi ríkissjóra Pete Wilson, og virðist hafa misst af lestinni. Dianne Feinstein, öldungadeildarþingmaður demókrata, og repúblikaninn Michael Huffington hafa háð dýrustu kosn- ingabaráttu, sem sögur fara af, um sæti í öldungadeildinni, og varið til þess 35,9 milljónum dollara. Olíuf- urstinn Huffíngton hefur eytt 25,2 milljónum, þar af 24,8 milljónum úr eigin vasa. Huffíngton styður tillögu, sem verður á atkvæðaseðlinum, um að ólöglegir innflytjendur fái hvorki p að sitja á skóla- bekk, né njóta heilbrigðisþjón- ustu eða annarra fríðinda nema í neyð. Feinstein virðist ætla að sigla fram úr eftir að Huffíngton viðurkenndi að hafa haft ólöglega mexíkóska barnap- íu í þjónustu sinni. „Hver hefur ekki brotið lögin einhvem tímann," sagði Huffington og kenndi konu sinni, Ariönnu Stassinopoulous, um allt saman. ► NEW YORK: Eitt sinn var Mario Cuomo óskabarn demókrata. Cuomo hefur verið ríkisstjóri í New York í þijú kjörtímabil og hvert sinn, sem honum hafa boðist tækifæri til að leita frekari frama hefur hann hafn- að, hvort sem um var að ræða for- setaframboð eða sæti í hæstarétti. Nú situr Cuomo fastur í ríkisþinginu í Albany, kemst ekki ofar, getur ekki sóma síns vegna farið neðar, og þarf að horfa upp á þá niðurlæg- ingu að óþekktur repúblikani, Ge- orge Pataki, stefni embætti hans í hættu. Undanfarna daga hefur Cu- omo þó getað andað léttar. Hann er kominn með tíu prósenta forskot á Pataki eftir að borgarstjóri New York, repúblik- aninn Rudolph Giuliani, rauf flokkslínur og lýsti yfir stuðn- ingi sínum við Cuomo. ► WASHING- TON, D.C.: Up- prisa. Marions Barrys heldur áfram. Barry sækist eftir því að vera kosinn borgarstjóri höfuðstaðar Bandaríkjanna fjórða sinni, sem væri svo sem ekki í frásög- ur færandi ef hann hefði ekki setið 1 í fangelsi fyrir kókaínneyslu. Ban-y vann yfírburðasigur yfir núverandi borgarstjóra, Sharon Pratt Kelly, í forkosningum í september. Hvítir íbúar Washington eru hneykslaðir, en svartir segja að Barry hafí verið leiddur í gildru, sem laganna verðir hefðu aldrei vógað sér að egna fyrir hvítan mann, þegar hann var hand- I tekinn fyrir að reykja krakk á hótel- herbergi í Washington. Bæði Was- hington Post og Washington Times I hafa lýst yfir stuðningi við mótfram- bjóðanda Barrys, repúblikanann Ca- rol Schwartz, en það mun sennilega duga skammt. 90 prósent íbúa Was- hington eru demókratar og Barry er talinn eiga sigurinn vísan. Hann hef- ur lofað að neyta hvorki eiturlyfja né áfengis og kveðst munu segja af sér ella. WASHINGTON: Leiðtogi demó- krata í fulltrúadeildinni, Tom Foley, hefur eytt þrefalt meiru í kosninga- baráttu sína en nokkru sinni áður er hann hefur boðið sig fram til þings. Engu að síður er staðan hnífjöfn milli hans og áskoranda hans úr röð- um repúblikana, Georges Netherc- utts. Foley hefur setið á þingi í 30 ár og er nú for- seti fulltrúadeild- arinnar. Foley segir að áhrif sín á þingi séu ómissandi fyrir Washington-ríki, en Nethercutt segir að hann sé handbendi Bandaríkjaforseta og geri ekki annað en seilast í vasa skattborgaranna. ► FLÓRÍDA OG TEXAS: Tveir synir George Bush fyrrum Banda- ríkjaforseta sækjast eftir ríkisstjóra- embættum. George W. Bush, fram- bjóðandi repúblikana, hefur gert harða hríð að Ann Richards, ríkis- stjóra Texas, og vill meðal annars láta fanga dúsa í tjöldum. Samkvæmt skoðanakönnunum stendur hann nú jafnfætis Richards, sem hefur ekki tekist að nýta sér þróttmikið efna- hagslíf Texas sér í vil. Auðkýfíngur- inn Ross Perot virðist ekki geta hugsað sér að nokkur úr Bush-fjöl- skyldunni gegni opinberu embætti og hefur því lýst yfír stuðningi við Ric- hards. Jeb Bush hefur forskot á demókratann Lawton Chiles í bar- áttunni um ríkisstjóraembættið í Flórída. Þeir Bush-bræður hafa notið stuðnings foreldra sinna í kosninga- baráttunni, einkum þó Barböru Bush. Þeir eru sagði sýnu íhaldssam- ari en faðir þeirra og heldur vikublað- ið The Economist því fram að þeir hafí erft pólitísk gen Ronalds Reagans, fyrrum Bandaríkjaforseta. Þ- VESTUR-VIRGINÍA: Hann var dæmdur í fangelsi fyrir þátt sinn í Íran-Kontra hneykslinu, en dóminum var hnekkt vegna formgalla: ekki mátti nota vitnisburð hans fyrir þingi til að sakfella hann. Nú ætlar maður- inn, sem vélaði Bandaríkjaþing, að verða öldungadeildarþingmaður. Oli- ver North, sem býður fram fyrir repúblikana, hafði fram að síðustu helgi naumt forskot á öldungadeild- arþingmann demókrata, Charles Robb. Forysta Robbs er innan skekkjumarka samkvæmt skoðana- könnunum. Ýms"ir málsmetandi repú- blikanar, svo sem Bob Dole, leiðtogi repúblikana í öldungadeildinni, og James Baker, fyrrum utanríkisráð- herra, segjast styðja North. ► ILLINOIS: Ekki eru allir sitjandi stjórnmálamenn úr röðum demó- krata, en sennilega koma yfirburðir Dans Rostenkowskis i kjördæmi hans í Chicago mest á óvart. Rost- enkowski var einn valdamesti full- trúadeildarþingmaðurinn í Washing- ton og formaður hinnar mikilvægu íjárveitinganefndar. Þá bar skugga fyrir sólu. Rosty var vændur um spillingu og honum stefnt fyrir svik og pretti. Alls eru ákæruatriðin 17 og á hann þar á meðal að hafa gerst svo bíræfinn að kría út frímerkjar- isnu sína í reiðufé. Michael Flanag- an er frambjóðandi repúblikana og þekkja hann fæstir. Flanagan hafði síðast þegar fréttist tekist að öngla saman 10.000 dollurum, sem duga til að prenta nokkra kosningabækl- inga, en hvergi nærri til að koma honum að í útvarpi og sjónvarpi. ► MASSACHUSETTS: Um skeið virtist Mitt Romney, hinn fullkomni fjölskyldufaðir, ætla að steypa af stalli einum helsta fánabera demó- krata, Ted Kennedy. En síðasti Kennedy-bróðirinn er hættur að drekka, hamingjusamlega giftur (að því er virðist) og hann hefur rokið fram úr Romney í skoðanakönnun- um. Romney hyggst reyna að hrifsa frumkvæðið á nýjan leik með hálfrar klukkustundar löngum sjónvarps- auglýsingum síðustu dagana fyrir kosningarnar en er sennilega orðinn of seinn. Tom Foley MEISÖUUBÓK UM ALLAN HEIM f æst i næstu bókabúö Villtir svanir er í senn kvennasaga, fjölskyldusaga og mannkynssaga. Höfundurinn, Jung Chang-, segir hér sögu fjölskyldu sinnar frá sjónarhóli þriggja kynslóða kvenna; sjálfrar sín, móður sinnar og ömmu. Lesandinn fær hér ómetanlega og óvenjulega innsýn í sögu Kína á þessari öld - en um leið er þetta nærfærin og áhrifamikil lýsing á örlögum einstaklinga sem urðu fórnarlömb maóismans. Villtir svanir er saga um mannlega reisn, hetjuskap og fegurð í miðri vargöldinni. Bókin hefur farið sigurför um öll Vesturlönd frá því hún kom út árið 1991 og hefur trónað á toppi metsölulista víða um lönd undanfarin misseri. Gagnrýnendur hafa hlaðið bókina lofi og jafnað henni við sögulegar skáldsögur eins og þær gerast bestar - nema hér er hvert orð dagsatt. Hjörleifur Sveinbjörnsson íslenskaði. ■ - o R L A G 1 O M A L O G IVI 1 f\l ISI 1 ISI G

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.