Morgunblaðið - 06.11.1994, Side 16
16 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Nýr grínara-
kvartett
LEIKLIST
Illaövarpinn
KAFLAR ÚR LEIKRITINU
DAGS HRÍÐAR SPOR
Höfundur: Valgarður Egilsson.
Þátttakendur: Brynja Benedikts-
dóttir, Erlingur Gíslason, Valgarð-
ur Egiisson og Þórir Steingrímsson
Fimmtudagur 3. nóvember
ÝKJULAUST er þetta fjórtán
ára verk Valgarðs ekkert öðruvísi
en sjónvarpsskjárinn heima hjá
manni. Hvort sem er í dag, eða
fyrir fjórtán árum.
Jú, að einu leyti. Það er fyndið.
Umræðan í því er um vísiíidaleg-
ar aðferðir og kenningar — sem
eru svo fjarstæðukenndar að í fljótu
bragði er eins og hér sé verið að
bulla. Þeim er hent í pott með póli-
tískum klisjum og sýndarmennsku,
hrært í og út kemur bráðskemmti-
leg paródía, þar sem persónurnar
deila á fjarstæðukenndar vísinda-
legar aðferðir og kenningar. Þær
persónur eru líka hættar að fínna
upp vísindalegar aðferðir og kenn-
ingar en einbeita sér þess í stað
til að skara eld að sinni köku, ná
sér stöðugt í betri embætti og
meiri vegtyllur. Trúa ekki vísinda-
legum kenningum undirsáta sinna
að mannkynið stefni hraðbyr að
heimsendi.
Þeir kaflar sem sýndir eru úr
verkinu í Kaffileikhúsi Hlaðvarpans
eru sá þáttur verksins sem snýr
að menntamönnunum. Þeir eru
vægt ýktir í útliti og texti og leikst-
íll í samræmi við það. Umræðan í
verkinu snýst um sölu á landinu
undir erlenda stóriðu, Anion Ar-
bite, sem mengar hryllilega, þrátt
fyrir afneitun þar um. Enda hafa
vísindin bjargað því, fundið um
Mapa, sem er sambland af manni
og apa og þolir verulega mengun.
Ekkert ósvipuð umræða og átti sér
stað í öllu þrasinu um Union Car-
bite hér um árið. Það er varla að
höfundurinn hafi þurft að breyta
því orðalagi sem við fylgdumst með
í fréttum.
Ég verð að játa að ég væri alveg
EBONY-operuflokkurmn.
Þeldökkir töfrar
TÓNLIST
Iláskólabíó
ÓPERU- OG ÞJÓÐLAGA-
TÓNLIST
Ebony-óperuflokkurinn og Sinfón-
íuhljómsveitin. Stjórnandi Everett
Lee. Fimmtudagur 3. nóvember.
Á FYRSTA takti þriðja þáttar
Afro-American Symphony, eftir
William Grant Still, var ljóst að
hljómsveitarstjórinn kunni sitt fag.
Stjórn hans var nákvæm og skýr,
enda hafði hann hljómsveitina í
hendi sér, og léku allar deildir hljóm-
sveitarinnar mjög vel, feilskot engin,
samhljómur í fínu jafnvægi og engu
var iíkara en að sveitin hefði leikið
þessa tegund tónlistar allt frá fæð-
ingu. Skrautfjaðrir tónleikanna voru
þó fyrst og fremst þekdökkir með-
limir Ebony-óperuflokksins.
Eftir mjög góðan flutning á 3. og
4. þætti sinfóníu Williams Grant, steig
fýrsti einsöngvarinn á sviðið. Benjam-
in Matthews, bass-bariton, er hann
titlaður í eftiisskrá, en röddin er mjög
dökk, dýptin mikil og væri, að mínu
mati, nær að fella raddgerðina undir
það sem kallað er svartur bassi. Benj-
amin mun vera einn af stofnendum
sönghópsins, Opera Ebony, sem, eins
og stendur í efnisskrá, var stofnaður
fyrir tveim áratugum og hefur verið
vettvangur fyrir ameríska listamenn
af afrískum stofni.
Viðfangsefni hópsins voru þjóðlög,
trúarleg ljóð og atriði úr amerískum
óperum, óperum sem eru lítt þekktar
hér, eftir höfunda sem einnig eru
hér lítið þekktir, svo sem Dorothy
Rudd Moore, Leslie Adams, Jarome
Morass og Mark Fax. Efnið undan-
tekningarlaust tekið úr lífi blakkra
þræla í Bandaríkjunum. Af þessum
sökum var efnisvalið kannski á alvar-
legri nótunum, en þó var stutt yfir
í húmorinn og fléttuna.
Hér var um frábæra listamenn að
ræða, ekki aðeins sönglega heldur
og leiklega, því þau sviðsettu allt sem
þau fluttu og ekki varð sá í blóði
bomi dans utanveltu sem virðist búa
jafnt í grönnum sem þybbnum.
Ekki má þó gleyma þætti Symons
Kuran, sem brá á leik með fíðluna
sína og þó að ekkert heyrðist í fíðl-
unni, sló Symon í gegn.
Þeir frábæru erlendu listamenn,
sem léttu fyrir manni vetrarkuldan-
um á fimmtudagskvöldið vora, fyrir
utan hljómsveitarstjórann og Benj-
amin, Samuel McKelton, Vanessa
Ayers, Lorene R. Spain og Kevin
Deas. Lengi mætti spjalla um hvert
eitt þeirra og efnisskrána í heild, en
ég læt mér nægja að segja takk fyr-
ir frábæran flutning.
Ragnar Björnsson.
Myndasögunámskeið
FYRIRLESTRARÖÐ um mynda-
sögur verður haldin fimmtudaginn
10. nóvember kl. 17 á Listasafni
Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum.
Leiðbeinandi verður Þorri Hrings-
son, myndlistarmaður.
Námskeiðið verður í fyrirlestra-
formi. Fjallað verður um myndasög-
ur á þeim tæpum eitthundrað árum
sem þær hafa verið við lýði. Gerð
verður söguleg grein fyrir miðlinum
og sýnt fram á hvernig þróun og
áherslubreytingar innan mynda-
sögulistarinnar haldast í hendur við
þjóðfélagsbreytingar og hvernig
aðrar listir, t.d. tónlist og kvik-
myndalist, hafa haft (og þegið)
áhrif á myndasöguna. Saga ís-
lensku myndasögunnar verður rak-
in og reynt að tengja hana við al-
þjóðlegar hræringar. Fjöldi þátttak-
enda takmarkast við 25 manns.
Námskeiðið hefst 10. nóvember og
lýkur 1. desember. Það verður hald-
ið á fímmtudögum kl. 17.00-19.00.
Verð námskeiðsins er 3.800 krónur.
Skrásetning fer fram í móttöku
Tæknigarðs. Nánari upplýsingar
fást á skrifstofu Endurmenntunar-
stofnunar.
LISTIR
-■ 1 1
BRYNJA Benediktsdóttir, Valgarður Egilsson og Erlingur Gíslason.
til í að sjá allt verkið aftur. Mér
sýnist það eldast ágætlega, því
þótt umræðan sé ekki um dægur-
þras okkar í dag, einkennist hún
af því mannlega eðli - með allri
sinni græðgi, metnaðarsýki, yfír-
gangssemi, dómhörku, blekking-
artilhneigingu og undirlægjuhætti
við útlendinga með peninga - sem
aldrei breytist. Ekki svo að skilja
að þetta sé beisk ádeila. Ónei, það
er bara verið að gera dálítið grín
að þessari snarlyndu og hvatvísu
Þjóð.
Það er góð hugmynd hjá aðstand-
endum Kaffileikhússins að sviðsetja
valda kafla úr íslenskum leikritum.
Það líður svo langt á milli þess að
þau eru sett upp að það er nauðsyn-
legt að minna á þau - einkum og
sér í lagi ef þau era til á bók. Það
vekur áhuga manns á að lesa þau
- en lestur leikrita er ekki síðri
skemmtun en lestur annarra skáld-
verka, ef vel hefur tekist til.
Leikhópurinn var bráðskemmti-
legur og gæti alveg verið nýr grín-
arakvartett. Hrós kvöldsins fær þó
höfundurinn sjálfur, Valgarður
Egilsson, fyrir einstaka frammi-
stöðu á sviðinu. Hann bregður sér
í nokkur hlutverk og maður spyr
hvort það er ekki bara vitleysa hjá
honum að halda áfram í læknis-
fræðinni.
Ánægjuleg kvöldstund, í
skemmtilegu umhverfí í kjölfar
þess einstaka réttar „súpa og sal-
at“ úr eldhúsi Steinunnar.
Sússanna Svavarsdóttir
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
Einleikur fyrir hörpu
og saga tangósins
HARPA Arnardótir leikkona mun
flytja „Einleik fyrir hörpu í himna-
ríki“ eftir Sjón og Martial Nardeau
flautuleikari og Einar Kristján Ein-
arsson gítarleikari leika „Historie
de Tango“ eftir Astor Piazzola
mánudagskvöidið 7. nóvember kl.
20.30 í Listaklúbbi Leikhúskjallajt-
ans. Á eftir geta gestir dansað
tangó við tangótónlist.
í fréttatilkynningu segir: „Einleik-
ur fyrir hörpu í himaríki fjallar um
konu sem vaknar til lífsins eftir dauð-
ann á nýjum stað. Hún fer í gegnum
æviskeið sitt, drauma sína og gerir
sér grein fyrir þeim möguleikum sem
eru fyrir hendi á þessum nýja stað.“
í verki sínu Historie de Tango
rekur Astor Piazzola sögu tangósins
og lýsir því hvernig hann þróaðist
í það að vera leikinn sem consert-
tónlist í, tónlistarhúsum. Piazzola
skiptir verkinu í fjóra kafla og teng-
ið þá við ákveðin tímabil.
Dagskráin hefst um kl. 20.30 og
er almennt verð 500 krónur en 300
krónur fyrir félaga í Listaklúbbi
Leikhúskjallarans.
Áður auglýst dagskrá, Skáldonur
fyrri alda í umsjón Helgu Kress,
er frestað þar til eftir áramót og
verður nánar auglýst síðar.
Antíkaríur, sígaunaljóð og
gamansöngvar í Hafnarborg
INGUNN Ósk Sturludóttir, mezzó-
sópran, og Guðrún Anna Tómas-
dóttir, píanóleikari, halda tónleika
í Hafnarborg sunnudaginn 6. nóv-
ember klukkan 20.30. Á efnisskrá
tónleikanna eru tvær antikaríur eft-
ir Gluck, þjóðlagaútsetningar eftir
Johannes Brahms, lagaflokkurinn
Haugtussa eftir Edward Grieg, Sí-
gaunaljóð Antonins Dvoraks og
Gamansöngvar eftir Atla Heimi
Sveinsson.
Ingunn Ósk lauk 8. stigs prófi
Við bíðum
eftir Godot
LEIKFÉLAG Selfoss frumsýnir
á sunnudag 6. nóvember kl. 20.30
Ieikritið Við bíðum eftir Godot
eftir Samuel Becket, í þýðingu
Eyvindar Erlendssonar, sem
einnig sér um leikstjórn og leik-
mynd. Leikendur eru Sigurgeir
Hilmar Friðþjófsson, Steindór
Gestsson, Guðjón Björnsson,
Davíð Kristjánsson og Magnús
Eyjólfsson.
í kynningu segir: „Þetta er
eitt af frægustu leikritum okkar
aldar og þykir mörgum sem önn-
ur eins tíðindi hafi ekki orðið í
leiklistarheiminum og þegar það
kom fram, á sjötta áratugnum.
Mörgum þykir sem ekki hafi ver-
ið öllu betur fjallað um vinátt-
frá Söngskólanum vorið 1987. Eftir
það stundaði hún framhaldsnám í
London og síðar við Sweelinck-tón-
listarháskólann í Amsterdam, það-
an sem hún lauk prófí vorið 1992.
Guðrún Anna Tómasdóttir lauk
burtfararprófi frá Tónlistarskólan-
um í Reykjavík árið 1985. Eftir það
stundaði hún nám í Lyon í Frakk-
landi um eins árs skeið og síðar við
Sweelinck-tónlistarháskólann og
lauk prófi úr kennaradeild skólans
vorið 1992.
una, en í þessari sögu af flæking-
unum tveim, Gogo og Didi, sem
ekkert eiga að í veröldinni nema
hvor annan og svo veika von um
ókunnan höfðingja, Godot að
nafni, sem muni fyrr eða síðar
veita þeim uppfylling óska sinna.
Næstu sýningar verða á mið-
vikudag 9., laugardag 12. og
sunnudag 13. nóvember í leikhús-
inu við Sigtún kl. 20.30.
^ Aríur í
Operunni
HULDA Guð-
rún Geirs-
dóttir sópran
og Hólmfríð-
ur Sigurðar-
dóttir píanó-
leikari halda
tónleika á
vegum Hulda
Styrktarfélags íslensku óper-
unnar þriðjudaginn 8. nóvem-
ber í íslensku óperanni og hefj-
ast þeir kl. 20.30.
Á efnisskránni eru ljóð eftir
Schubert, R. Strauss og Rac-
hmaninoff og aríur eftir Moz-
art, Gounod, Dvorak, Cilea og
Puccini. Hulda Guðrún Geirs-
dóttir lauk námi frá píanó- og
söngdeild Tónlistarskólans í
Reykjavík árið 1989 en þar nam
hún söng hjá Elísabetu Erlins-
dóttur.
Hólmfríður Sigurðardóttir
hóf píanónám 7 ára gömul í
Tónlistarskóla ísafjarðar, þar
sem Ragnar H. Ragnar var
aðalkennari hennar.
Barnakvik-
myndasýning
ÞRÍR sænskir þættir um lífið á
Saltkrákunni verða sýndir í
Norræna húsinu sunnudaginn
6. nóvember kl. 14.
í kynningu segir: „Sól,
skemmtileg ævintýri og uppá-
tæki einkenna lífið á eyjunni
Saltkráku í skeijagarði Stokk-
hólms. Aðgangur ókeypis.
Tónleikar í
Seltjarnar-
neskirkju
SÖNGHÓPURINN Hljómeyki
og Kammersveit Seltjamarness
halda tónleika í Seltjarnarnes-
kirkju nk. mánudag kl 20.30.
Einsöngvarar eru. Sigrún Val-
gerður Gestsdóttir, Hildigunnur
Halldórsdóttir og Finnur
Bjarnason, konsertmeistari
Sbigniew Dubik og stjómandi
Sigursveinn Kristinn Magnús-
son.
Á efnisskránni verður Alda-
söngur eftir Jón Nordal, í Úlfd-
ölum eftir Hildigunni Rúnars-
dóttur, en það verk var samið
að beiðni Kammersveitarinnar
og verður frumflutt á þessum
tónleikum, Sinfónía í d moll nr.
26 (Lamentatione) eftir Haydn
og Folk songs eftr Luigiano
Berio.
Potjomkin í
bíósal MÍR
KVIKMYND Sergejs Eisen-
steins frá árinu 1925, „Beiti-
skipið Potjomkin“, verður sýnd
í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, í
dag sunnudag kl. 16.
I kynningu segir: „Þetta er
ein frægasta kvikmynd allra
tíma og á heimssýningunni í
Brassel árið 1958 útnefndu 117
kvikmyndagagnrýnendur frá
fjölmörgum löndum hana bestu
kvikmynd sem gerð hefði verið
til þess tíma.“
*
Iris sýnir
grafíkmyndir
NÚ stendur yfír sýning írisar
Ingvarsdóttur á grafíkmyndum
á Kaffí Króki, Sauðárkróki.
íris hefur tekið þátt í sam-
sýningum bæði á íslandi og
erlendis. Sýningin á Kaffi Króki
er önnur einkasýning hennar.
Verkin á sýningunni eru æting-
ar unnar í zinkplötur og trérist-
ur og stendur hún út nóvember
og er opin á verslunartíma
kaffíhússins.