Morgunblaðið - 06.11.1994, Side 16

Morgunblaðið - 06.11.1994, Side 16
16 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Nýr grínara- kvartett LEIKLIST Illaövarpinn KAFLAR ÚR LEIKRITINU DAGS HRÍÐAR SPOR Höfundur: Valgarður Egilsson. Þátttakendur: Brynja Benedikts- dóttir, Erlingur Gíslason, Valgarð- ur Egiisson og Þórir Steingrímsson Fimmtudagur 3. nóvember ÝKJULAUST er þetta fjórtán ára verk Valgarðs ekkert öðruvísi en sjónvarpsskjárinn heima hjá manni. Hvort sem er í dag, eða fyrir fjórtán árum. Jú, að einu leyti. Það er fyndið. Umræðan í því er um vísiíidaleg- ar aðferðir og kenningar — sem eru svo fjarstæðukenndar að í fljótu bragði er eins og hér sé verið að bulla. Þeim er hent í pott með póli- tískum klisjum og sýndarmennsku, hrært í og út kemur bráðskemmti- leg paródía, þar sem persónurnar deila á fjarstæðukenndar vísinda- legar aðferðir og kenningar. Þær persónur eru líka hættar að fínna upp vísindalegar aðferðir og kenn- ingar en einbeita sér þess í stað til að skara eld að sinni köku, ná sér stöðugt í betri embætti og meiri vegtyllur. Trúa ekki vísinda- legum kenningum undirsáta sinna að mannkynið stefni hraðbyr að heimsendi. Þeir kaflar sem sýndir eru úr verkinu í Kaffileikhúsi Hlaðvarpans eru sá þáttur verksins sem snýr að menntamönnunum. Þeir eru vægt ýktir í útliti og texti og leikst- íll í samræmi við það. Umræðan í verkinu snýst um sölu á landinu undir erlenda stóriðu, Anion Ar- bite, sem mengar hryllilega, þrátt fyrir afneitun þar um. Enda hafa vísindin bjargað því, fundið um Mapa, sem er sambland af manni og apa og þolir verulega mengun. Ekkert ósvipuð umræða og átti sér stað í öllu þrasinu um Union Car- bite hér um árið. Það er varla að höfundurinn hafi þurft að breyta því orðalagi sem við fylgdumst með í fréttum. Ég verð að játa að ég væri alveg EBONY-operuflokkurmn. Þeldökkir töfrar TÓNLIST Iláskólabíó ÓPERU- OG ÞJÓÐLAGA- TÓNLIST Ebony-óperuflokkurinn og Sinfón- íuhljómsveitin. Stjórnandi Everett Lee. Fimmtudagur 3. nóvember. Á FYRSTA takti þriðja þáttar Afro-American Symphony, eftir William Grant Still, var ljóst að hljómsveitarstjórinn kunni sitt fag. Stjórn hans var nákvæm og skýr, enda hafði hann hljómsveitina í hendi sér, og léku allar deildir hljóm- sveitarinnar mjög vel, feilskot engin, samhljómur í fínu jafnvægi og engu var iíkara en að sveitin hefði leikið þessa tegund tónlistar allt frá fæð- ingu. Skrautfjaðrir tónleikanna voru þó fyrst og fremst þekdökkir með- limir Ebony-óperuflokksins. Eftir mjög góðan flutning á 3. og 4. þætti sinfóníu Williams Grant, steig fýrsti einsöngvarinn á sviðið. Benjam- in Matthews, bass-bariton, er hann titlaður í eftiisskrá, en röddin er mjög dökk, dýptin mikil og væri, að mínu mati, nær að fella raddgerðina undir það sem kallað er svartur bassi. Benj- amin mun vera einn af stofnendum sönghópsins, Opera Ebony, sem, eins og stendur í efnisskrá, var stofnaður fyrir tveim áratugum og hefur verið vettvangur fyrir ameríska listamenn af afrískum stofni. Viðfangsefni hópsins voru þjóðlög, trúarleg ljóð og atriði úr amerískum óperum, óperum sem eru lítt þekktar hér, eftir höfunda sem einnig eru hér lítið þekktir, svo sem Dorothy Rudd Moore, Leslie Adams, Jarome Morass og Mark Fax. Efnið undan- tekningarlaust tekið úr lífi blakkra þræla í Bandaríkjunum. Af þessum sökum var efnisvalið kannski á alvar- legri nótunum, en þó var stutt yfir í húmorinn og fléttuna. Hér var um frábæra listamenn að ræða, ekki aðeins sönglega heldur og leiklega, því þau sviðsettu allt sem þau fluttu og ekki varð sá í blóði bomi dans utanveltu sem virðist búa jafnt í grönnum sem þybbnum. Ekki má þó gleyma þætti Symons Kuran, sem brá á leik með fíðluna sína og þó að ekkert heyrðist í fíðl- unni, sló Symon í gegn. Þeir frábæru erlendu listamenn, sem léttu fyrir manni vetrarkuldan- um á fimmtudagskvöldið vora, fyrir utan hljómsveitarstjórann og Benj- amin, Samuel McKelton, Vanessa Ayers, Lorene R. Spain og Kevin Deas. Lengi mætti spjalla um hvert eitt þeirra og efnisskrána í heild, en ég læt mér nægja að segja takk fyr- ir frábæran flutning. Ragnar Björnsson. Myndasögunámskeið FYRIRLESTRARÖÐ um mynda- sögur verður haldin fimmtudaginn 10. nóvember kl. 17 á Listasafni Reykjavíkur á Kjarvalsstöðum. Leiðbeinandi verður Þorri Hrings- son, myndlistarmaður. Námskeiðið verður í fyrirlestra- formi. Fjallað verður um myndasög- ur á þeim tæpum eitthundrað árum sem þær hafa verið við lýði. Gerð verður söguleg grein fyrir miðlinum og sýnt fram á hvernig þróun og áherslubreytingar innan mynda- sögulistarinnar haldast í hendur við þjóðfélagsbreytingar og hvernig aðrar listir, t.d. tónlist og kvik- myndalist, hafa haft (og þegið) áhrif á myndasöguna. Saga ís- lensku myndasögunnar verður rak- in og reynt að tengja hana við al- þjóðlegar hræringar. Fjöldi þátttak- enda takmarkast við 25 manns. Námskeiðið hefst 10. nóvember og lýkur 1. desember. Það verður hald- ið á fímmtudögum kl. 17.00-19.00. Verð námskeiðsins er 3.800 krónur. Skrásetning fer fram í móttöku Tæknigarðs. Nánari upplýsingar fást á skrifstofu Endurmenntunar- stofnunar. LISTIR -■ 1 1 BRYNJA Benediktsdóttir, Valgarður Egilsson og Erlingur Gíslason. til í að sjá allt verkið aftur. Mér sýnist það eldast ágætlega, því þótt umræðan sé ekki um dægur- þras okkar í dag, einkennist hún af því mannlega eðli - með allri sinni græðgi, metnaðarsýki, yfír- gangssemi, dómhörku, blekking- artilhneigingu og undirlægjuhætti við útlendinga með peninga - sem aldrei breytist. Ekki svo að skilja að þetta sé beisk ádeila. Ónei, það er bara verið að gera dálítið grín að þessari snarlyndu og hvatvísu Þjóð. Það er góð hugmynd hjá aðstand- endum Kaffileikhússins að sviðsetja valda kafla úr íslenskum leikritum. Það líður svo langt á milli þess að þau eru sett upp að það er nauðsyn- legt að minna á þau - einkum og sér í lagi ef þau era til á bók. Það vekur áhuga manns á að lesa þau - en lestur leikrita er ekki síðri skemmtun en lestur annarra skáld- verka, ef vel hefur tekist til. Leikhópurinn var bráðskemmti- legur og gæti alveg verið nýr grín- arakvartett. Hrós kvöldsins fær þó höfundurinn sjálfur, Valgarður Egilsson, fyrir einstaka frammi- stöðu á sviðinu. Hann bregður sér í nokkur hlutverk og maður spyr hvort það er ekki bara vitleysa hjá honum að halda áfram í læknis- fræðinni. Ánægjuleg kvöldstund, í skemmtilegu umhverfí í kjölfar þess einstaka réttar „súpa og sal- at“ úr eldhúsi Steinunnar. Sússanna Svavarsdóttir Listaklúbbur Leikhúskjallarans Einleikur fyrir hörpu og saga tangósins HARPA Arnardótir leikkona mun flytja „Einleik fyrir hörpu í himna- ríki“ eftir Sjón og Martial Nardeau flautuleikari og Einar Kristján Ein- arsson gítarleikari leika „Historie de Tango“ eftir Astor Piazzola mánudagskvöidið 7. nóvember kl. 20.30 í Listaklúbbi Leikhúskjallajt- ans. Á eftir geta gestir dansað tangó við tangótónlist. í fréttatilkynningu segir: „Einleik- ur fyrir hörpu í himaríki fjallar um konu sem vaknar til lífsins eftir dauð- ann á nýjum stað. Hún fer í gegnum æviskeið sitt, drauma sína og gerir sér grein fyrir þeim möguleikum sem eru fyrir hendi á þessum nýja stað.“ í verki sínu Historie de Tango rekur Astor Piazzola sögu tangósins og lýsir því hvernig hann þróaðist í það að vera leikinn sem consert- tónlist í, tónlistarhúsum. Piazzola skiptir verkinu í fjóra kafla og teng- ið þá við ákveðin tímabil. Dagskráin hefst um kl. 20.30 og er almennt verð 500 krónur en 300 krónur fyrir félaga í Listaklúbbi Leikhúskjallarans. Áður auglýst dagskrá, Skáldonur fyrri alda í umsjón Helgu Kress, er frestað þar til eftir áramót og verður nánar auglýst síðar. Antíkaríur, sígaunaljóð og gamansöngvar í Hafnarborg INGUNN Ósk Sturludóttir, mezzó- sópran, og Guðrún Anna Tómas- dóttir, píanóleikari, halda tónleika í Hafnarborg sunnudaginn 6. nóv- ember klukkan 20.30. Á efnisskrá tónleikanna eru tvær antikaríur eft- ir Gluck, þjóðlagaútsetningar eftir Johannes Brahms, lagaflokkurinn Haugtussa eftir Edward Grieg, Sí- gaunaljóð Antonins Dvoraks og Gamansöngvar eftir Atla Heimi Sveinsson. Ingunn Ósk lauk 8. stigs prófi Við bíðum eftir Godot LEIKFÉLAG Selfoss frumsýnir á sunnudag 6. nóvember kl. 20.30 Ieikritið Við bíðum eftir Godot eftir Samuel Becket, í þýðingu Eyvindar Erlendssonar, sem einnig sér um leikstjórn og leik- mynd. Leikendur eru Sigurgeir Hilmar Friðþjófsson, Steindór Gestsson, Guðjón Björnsson, Davíð Kristjánsson og Magnús Eyjólfsson. í kynningu segir: „Þetta er eitt af frægustu leikritum okkar aldar og þykir mörgum sem önn- ur eins tíðindi hafi ekki orðið í leiklistarheiminum og þegar það kom fram, á sjötta áratugnum. Mörgum þykir sem ekki hafi ver- ið öllu betur fjallað um vinátt- frá Söngskólanum vorið 1987. Eftir það stundaði hún framhaldsnám í London og síðar við Sweelinck-tón- listarháskólann í Amsterdam, það- an sem hún lauk prófí vorið 1992. Guðrún Anna Tómasdóttir lauk burtfararprófi frá Tónlistarskólan- um í Reykjavík árið 1985. Eftir það stundaði hún nám í Lyon í Frakk- landi um eins árs skeið og síðar við Sweelinck-tónlistarháskólann og lauk prófi úr kennaradeild skólans vorið 1992. una, en í þessari sögu af flæking- unum tveim, Gogo og Didi, sem ekkert eiga að í veröldinni nema hvor annan og svo veika von um ókunnan höfðingja, Godot að nafni, sem muni fyrr eða síðar veita þeim uppfylling óska sinna. Næstu sýningar verða á mið- vikudag 9., laugardag 12. og sunnudag 13. nóvember í leikhús- inu við Sigtún kl. 20.30. ^ Aríur í Operunni HULDA Guð- rún Geirs- dóttir sópran og Hólmfríð- ur Sigurðar- dóttir píanó- leikari halda tónleika á vegum Hulda Styrktarfélags íslensku óper- unnar þriðjudaginn 8. nóvem- ber í íslensku óperanni og hefj- ast þeir kl. 20.30. Á efnisskránni eru ljóð eftir Schubert, R. Strauss og Rac- hmaninoff og aríur eftir Moz- art, Gounod, Dvorak, Cilea og Puccini. Hulda Guðrún Geirs- dóttir lauk námi frá píanó- og söngdeild Tónlistarskólans í Reykjavík árið 1989 en þar nam hún söng hjá Elísabetu Erlins- dóttur. Hólmfríður Sigurðardóttir hóf píanónám 7 ára gömul í Tónlistarskóla ísafjarðar, þar sem Ragnar H. Ragnar var aðalkennari hennar. Barnakvik- myndasýning ÞRÍR sænskir þættir um lífið á Saltkrákunni verða sýndir í Norræna húsinu sunnudaginn 6. nóvember kl. 14. í kynningu segir: „Sól, skemmtileg ævintýri og uppá- tæki einkenna lífið á eyjunni Saltkráku í skeijagarði Stokk- hólms. Aðgangur ókeypis. Tónleikar í Seltjarnar- neskirkju SÖNGHÓPURINN Hljómeyki og Kammersveit Seltjamarness halda tónleika í Seltjarnarnes- kirkju nk. mánudag kl 20.30. Einsöngvarar eru. Sigrún Val- gerður Gestsdóttir, Hildigunnur Halldórsdóttir og Finnur Bjarnason, konsertmeistari Sbigniew Dubik og stjómandi Sigursveinn Kristinn Magnús- son. Á efnisskránni verður Alda- söngur eftir Jón Nordal, í Úlfd- ölum eftir Hildigunni Rúnars- dóttur, en það verk var samið að beiðni Kammersveitarinnar og verður frumflutt á þessum tónleikum, Sinfónía í d moll nr. 26 (Lamentatione) eftir Haydn og Folk songs eftr Luigiano Berio. Potjomkin í bíósal MÍR KVIKMYND Sergejs Eisen- steins frá árinu 1925, „Beiti- skipið Potjomkin“, verður sýnd í bíósal MÍR, Vatnsstíg 10, í dag sunnudag kl. 16. I kynningu segir: „Þetta er ein frægasta kvikmynd allra tíma og á heimssýningunni í Brassel árið 1958 útnefndu 117 kvikmyndagagnrýnendur frá fjölmörgum löndum hana bestu kvikmynd sem gerð hefði verið til þess tíma.“ * Iris sýnir grafíkmyndir NÚ stendur yfír sýning írisar Ingvarsdóttur á grafíkmyndum á Kaffí Króki, Sauðárkróki. íris hefur tekið þátt í sam- sýningum bæði á íslandi og erlendis. Sýningin á Kaffi Króki er önnur einkasýning hennar. Verkin á sýningunni eru æting- ar unnar í zinkplötur og trérist- ur og stendur hún út nóvember og er opin á verslunartíma kaffíhússins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.