Morgunblaðið - 06.11.1994, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 06.11.1994, Blaðsíða 6
6 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ ERLEIMT Indverjar flýtja sér ekki lengnr hægt Indland gengur nú í gegnum neyslubyltingu, þar sem kapítalisminn ryður hinu sósíalíska kerfí úr vegi A r'EISLU, sem nýlega var haldin á Oberoi-hótelinu í Bombay, ákvað auðugur gimsteinakaupmaður sem langaði til þess að ganga í augun á hinum nýríku, að kynna verslun sína með hnefafylli af demöntum, sem hann lét faíla tilviljanakennt í kampavínsglös veislugesta. Þeir sem voru svo heppnir að halda á glösunum sem demantarnir lentu í máttu eiga þá. Líklega lýsir fátt betur þeirri efnahagsspreng- ingu sem orðið hefur á Indlandi. „í nánast hverri einustu jóla- og nýársveislu þessa árs munu gest- imir mæta í kjól og hvítt,“ segir Shoba De, höfundur geysivin- sælla ástarsagna. Indland gengur nú í gegnum neyslubyltingu, þar sem kapítalisminn ryður hinu sós- íalíska kerfi úr vegi. Sjálfbirgingingsháttur þeirra sem einhvers mega sín í Bombay er ein af afleiðingum aukins frjálsræðis í efnahagsmálum, sem Narashima Rao, forsætisráðherra landsins, og fjármálaráðherrann Manmohan Singh hafa stuðlað að. Enn er óljóst hvort að kostirnir við umbæturnar, sem beint er gegn risavöxnum en lítt starfhæf- um ríkisreknum iðnaðinum, skili sér til þjóðárinnar allrar, um 900 milljóna manna. Horfurnar eru þó góðar fyrir millistéttina. Þrátt fyrir að hún sé enn í minnihluta er hún geysifjölmenn, um 350 milljónir manna sem hungrar í vestræn vörumerki á borð við Cartier, Dior, Cardin. Lacoste, Benetton, Lancome, en þau eru nú á hveiju götuhorni í Bombay, miðstöð indversks viðskiptalífs. Fyrirsætur njóta hylli Meðal þeirra sem hafa notfært sér ásóknina í tískumerki frá London, París og Mílanó er tíma- ritið Gladrags sem sérhæfír sig í myndum af konum í kynþokka- fullum og að sama skapi skjóllitl- um fatnaði. Mauren Wadia rit- stjóri segir áhuga á kynlífi hafa marfaldast, auk þess sem fyrir- sætur njóti skyndilega mikillar hylli. Ekki eru mörg ár síðan fyrir- sætustarfíð naut lítillar virðingar en þegar indversk stúlka var val- in ungfrú alheimur fyrr á árinu, tóku forseti og forstætisráðherra landsins á móti henni, henni var ekið í bílalest frá flugvellinum og rósablöðum ausið yfír hana. Líklega segir þó vaxtarlag ind- verskra kvenna mest um þær breytingar sem í vændum eru. Að sögn rithöfundarins De, væri synd að segja að vestrænn fatnaður dragi fram það besta í vaxtarlagi dæmigerðrar indver- skrar konu. Hún sé í góðum hold- um, þétt um mjaðmir og beri því þjóðbúninginn, sari, með reisn, auk þess sem slíkt vaxtarlag geri henni auðveldara að ganga með og fæða börn. Segir De að yngri konur leggi æ meiri áherslu á að vera grannar. Anddyrið á Taj Mahal hótelinu í Bombay, þar sem þykir fínt að vera, sé nú yfírfullt af hégómlegum ungum konum í gallabuxum. Menningarinnrás Það er fyrst og fremst gervi- hnattasjónvarpið sem hefur haft þessi áhrif. Hin mikla áhersla sem lögð er á tísku, sápuóperur og popptónlist er í fararbrodi menn- ingarinnrásar í Indland. Niður- staðan er sú að æ fleiri Indveijar horfa á heimaland sitt og heiminn í gegnum Ray-Ban sólgleraugu. Það fer ekki fram hjá neinum að Indland er að breytast en mik- il óvissa ríkir um það hver niður- staðan verður. Eldri kynslóðin er lítt hrifin af þeim áhrifum sem efnahagsumbæturnar hafa í för með sér, ekki síst þeirri tilhneig- ingu yngra fólks að apa allt eftir V esturlandabúum. „Nú ríkir tilhneiging í þá átt að aflaga menningu þessarar þjóðar," segir Lal Kishhan Sharma, talsmaður stjórnarand- stöðuflokksins Bharatiya Janata. Flokksins sem -boðaði fijálst markaðshagkerfi en horfði svo upp á höfuðandstæðinginn, Rao forsætisráðherra Kongress-flokk- inn taka tillögurnar upp á sína arma og bæta um betur. Ruddaskapurinn ryður sér til rúms Bharatiya Janata, sem er flokkur hindúa, virtist um tíma vera á uppleið. Hann hlaut tvö þingsæti árið 1984, 86 sæti árið 1989 og 119 tveimur árum síðar. Von flokksins um að tryggja sér 270 þingsæti í í þingkosningum og að komast til valda í krafti aukinnar andúðar á múslimum, virðist hins vegar vera fyrir bí. Meirihluti Indveija skilur nú að Indland getur aðeins þrifist sem veraldlegt ríki, ekki trúarlegt. Sharma hefur hinsvegar rétt fyrir sér þegar hann segir að ruddaskapurinn sé að ryðja sér til rúms í Indlandi. Hann vísar t.d. til stórra auglýsingaskilta um nuddkrem í miðborg Bombay sem sýna karlmann sem tekur um mjaðmir konu. Næsta skilti sýnir konuna hvetja ástmann sinn til að halda áfram. Talsmaður Kongress-flokks- ins, V.N. Gadgil, telur hins vegar ekki að hætta sé á ferðum. Menn- ingu sem hafí varað í 5.000 ár, sé ekki hægt að gera að engu með gervihnattasjónvarpi. Innri styrkur Indlands sé of mikill til þess. Uppgangur í efnahagslífi Forsætisráðherrann Rao segist hafa komið Indlandi á rétta braut og að stefna hans hafí áhrif. Nú sé friður í Punjab-héraði, þar sem hryðjuverk háfí verið daglegt brauð. Þá hafi árangri hans í efnahagsmálum verið fagnað á alþjóðavettvangi. Varasjóður Indlands í erlendri mynt, sem var aðeins um 1 millj- RÍKIDÆMI og fátækt eru enn hróplegar andstæður í Ind- landi, þrátt fyrir efnahagsuppganginn. Narashima Rao ón dollara árið 1991, er nú um 20 milljaraðar dollara og eykst sífellt. Ekki er langt síðan seðla- banki Indlands varð að kaupa rúpíur til að koma í veg fyrir að gengi rúpíunnar hækkaði um of gagnvart dollar. Vöxtur iðnframleiðslu jókst úr 0,8% árið 1991 í 4% á síðasta ári, verg þjóðarframleiðsla fór úr 1,1% í 4% og verðbólga hefur hrapað úr 17% og niður í 9%. Lán frá Alþjóðabankanum hafa verið greidd upp fyrir gjalddaga. Sá sem er í forsvari fyrir efna- hagsumbæturnar er forsætisráð- herrann Rao, 73 ára. Hann var sestur í helgan stein, er hann var fenginn til að gegna embættinu í kjölfar morðsins á Rajiv Gandhi forsætisráðherra árið 1991. Rao var í fyrstu talinn valdalítill, þar sem honum tókst ekki að koma í veg fyrir að hindúar eyðilegðu Ayodhya-moskuna fyrir tveimur árum. Það hefur breyst og hann hefur nú töglin og hagldimar. Hljóti Kongress-flokkurinn brautargengi í kosningum, sem fara eiga fram í ríkjunum Andhra Pradesh, Karnataka, Goa og Sikkim í næsta mánuði og í Gujar- at, Maharashtra, Orissa og Bihar næsta vor, kann að vera að Rao flýti þingkosningunum, sem boð- að hefur verið til 1996. Gangi flokknum hins vegar ekki sem skyldi í kosningunum, kunna hins vegar að koma upp efasemdir um að Rao hafí heilsu til að gegna embætti forsætisráðherra í tvö ár til viðbótar. Aukið atvinnuleysi Rao gerir sér fulla grein fyrir því að þrýstingur Vesturlanda og ýmsissa indverskra fyrirtækja um að flýta einkavæðingu ríkisfyrir- tækja, mun kosta milljónir manna störf sin. Þá er það ekkert laun- ungarmál að djúpstæður ágrein- ingur er í ríkisstjórninni. Tals- maður flokksins segir ekki hægt að ráða fólk og reka að vild. Starfsöryggi skipti geysilegu máli. Þá megi ekki gleyma hugs- unarhætti elstu þingmannanna, sem hafi alist upp við sósíalisma og ríkisafskipti og eigi erfítt með að sætta sig við breytingar. Verkefnið sem bíður forsætis- ráðherrans er erfitt, hann verður að stuðla að jafnvægi í landi þar sem stétt, trú og tunga greinir að hatramma andstæðinga, og þar sem ábati efnahagsupp- gangsins hefur ekki skipst jafnt niður. Um 70% ágóðans hefur runnið til ríkjanna Maharashtra og Gujarat, á meðan nær ekkert breytist í hinum ríkjunum. Nú verður hins vegar ekki aft- ur snúið. Ferlið, sem Rao hefur kallað „að flýta sér hægt,“ er komið á fullt skrið. Byggt á The Daily Telegraph ERLEIMT Bretland 64% telja þingmenn misnota aðstöðuna Lundúnuin. The Daily Telegraph. SAMKVÆMT Gallup-könnun, sem The Daily Telegraph birti á föstu- dag, hefur umræðan um pólitíska spiilingu ekki aðeins skaðað stjórn breska Ihaldsflokksins heldur einnig ímynd breskra þingmanna almennt. Samkvæmt könnuninni telja breskir kjósendur að spilling fari vaxandi meðal þingmanna. 64% telja að flest- ir þingmannanna misnoti aðstöðu sína í hagnaðarskyni. Aðeins 26% breskra kjósenda telja að þingmenn hafí háleit siðferðisgildi að leiðarljósi, ef marka má könnun- ina. Þeir vilja að nefnd, sem rann- saka á siðferðið í stjómkerfinu, setji strangar reglur sem takmarki rétt stjórnmálamanna til að þiggja gjafir eða greiða frá mönnum sem eiga hagsmuna að gæta. Meirihluti breskra kjósenda telur að þingmenn eigi ekki að þiggja nein- ar gjafir og 95% telja það óviður- kvæmilegt að þingmenn þiggi greiðslur fyrir að leggja fram fyrir- spurnir á þinginu. Hins vegar er iítill sem enginn stuðningur við hugmyndina um að hækka laun þingmanna, sem eru jafnvirði 288.000. króna á mánuði, til að tryggja að þeir freistist ekki til að þiggja óeðlilegar gjafír. Fylgi íhaldsmanna minnkar Könnunin sýnir að_ mikill meiri- hluti kjósenda tengir íhaldsflokkinn við spillingu. Flestir álíta Verka- mannaflokkinn óspilltari, þótt margir telji að þingmenn flokksins séu jafn líklegir og íhaldsmenn til að falla fyrir freistingunum. Niðurstaðan er mikið áhyggjuefni fyrir íhaldsflokkinn, þar sem hún bendir til þess að Verkamanna- flokknum hafí tekist að gera sér mat úr spillingarmálum stjórnarinnar og beina athyglinni frá efnahagnum, sem er nú að rétta úr kútnum. NYJUNG sem beðið var eftir! Vökvaknúinn snúningsliður/hraðtengi fyrir skóflur og fylgihluti á allar stærðir af gröfum. * Einfalt og þrælsterkt. * Snýstalltað 180° * Eykur afköst, styttir verktíma. * Sýningartæki á staðnum. * Frábært verð! i rasrt® Skutuvogi 12A, R.vík, sími 812530 F . » » I l » < I i i i i I « I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.