Morgunblaðið - 06.11.1994, Side 6
6 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
ERLEIMT
Indverjar flýtja
sér ekki lengnr hægt
Indland gengur nú í gegnum neyslubyltingu,
þar sem kapítalisminn ryður hinu sósíalíska
kerfí úr vegi
A
r'EISLU, sem nýlega var
haldin á Oberoi-hótelinu í
Bombay, ákvað auðugur
gimsteinakaupmaður sem
langaði til þess að ganga í augun
á hinum nýríku, að kynna verslun
sína með hnefafylli af demöntum,
sem hann lét faíla tilviljanakennt
í kampavínsglös veislugesta. Þeir
sem voru svo heppnir að halda á
glösunum sem demantarnir lentu
í máttu eiga þá. Líklega lýsir
fátt betur þeirri efnahagsspreng-
ingu sem orðið hefur á Indlandi.
„í nánast hverri einustu jóla- og
nýársveislu þessa árs munu gest-
imir mæta í kjól og hvítt,“ segir
Shoba De, höfundur geysivin-
sælla ástarsagna. Indland gengur
nú í gegnum neyslubyltingu, þar
sem kapítalisminn ryður hinu sós-
íalíska kerfi úr vegi.
Sjálfbirgingingsháttur þeirra
sem einhvers mega sín í Bombay
er ein af afleiðingum aukins
frjálsræðis í efnahagsmálum, sem
Narashima Rao, forsætisráðherra
landsins, og fjármálaráðherrann
Manmohan Singh hafa stuðlað
að.
Enn er óljóst hvort að kostirnir
við umbæturnar, sem beint er
gegn risavöxnum en lítt starfhæf-
um ríkisreknum iðnaðinum, skili
sér til þjóðárinnar allrar, um 900
milljóna manna. Horfurnar eru
þó góðar fyrir millistéttina. Þrátt
fyrir að hún sé enn í minnihluta
er hún geysifjölmenn, um 350
milljónir manna sem hungrar í
vestræn vörumerki á borð við
Cartier, Dior, Cardin. Lacoste,
Benetton, Lancome, en þau eru
nú á hveiju götuhorni í Bombay,
miðstöð indversks viðskiptalífs.
Fyrirsætur njóta hylli
Meðal þeirra sem hafa notfært
sér ásóknina í tískumerki frá
London, París og Mílanó er tíma-
ritið Gladrags sem sérhæfír sig í
myndum af konum í kynþokka-
fullum og að sama skapi skjóllitl-
um fatnaði. Mauren Wadia rit-
stjóri segir áhuga á kynlífi hafa
marfaldast, auk þess sem fyrir-
sætur njóti skyndilega mikillar
hylli.
Ekki eru mörg ár síðan fyrir-
sætustarfíð naut lítillar virðingar
en þegar indversk stúlka var val-
in ungfrú alheimur fyrr á árinu,
tóku forseti og forstætisráðherra
landsins á móti henni, henni var
ekið í bílalest frá flugvellinum og
rósablöðum ausið yfír hana.
Líklega segir þó vaxtarlag ind-
verskra kvenna mest um þær
breytingar sem í vændum eru.
Að sögn rithöfundarins De, væri
synd að segja að vestrænn
fatnaður dragi fram það besta í
vaxtarlagi dæmigerðrar indver-
skrar konu. Hún sé í góðum hold-
um, þétt um mjaðmir og beri því
þjóðbúninginn, sari, með reisn,
auk þess sem slíkt vaxtarlag geri
henni auðveldara að ganga með
og fæða börn. Segir De að yngri
konur leggi æ meiri áherslu á að
vera grannar. Anddyrið á Taj
Mahal hótelinu í Bombay, þar sem
þykir fínt að vera, sé nú yfírfullt
af hégómlegum ungum konum í
gallabuxum.
Menningarinnrás
Það er fyrst og fremst gervi-
hnattasjónvarpið sem hefur haft
þessi áhrif. Hin mikla áhersla sem
lögð er á tísku, sápuóperur og
popptónlist er í fararbrodi menn-
ingarinnrásar í Indland. Niður-
staðan er sú að æ fleiri Indveijar
horfa á heimaland sitt og heiminn
í gegnum Ray-Ban sólgleraugu.
Það fer ekki fram hjá neinum
að Indland er að breytast en mik-
il óvissa ríkir um það hver niður-
staðan verður. Eldri kynslóðin er
lítt hrifin af þeim áhrifum sem
efnahagsumbæturnar hafa í för
með sér, ekki síst þeirri tilhneig-
ingu yngra fólks að apa allt eftir
V esturlandabúum.
„Nú ríkir tilhneiging í þá átt
að aflaga menningu þessarar
þjóðar," segir Lal Kishhan
Sharma, talsmaður stjórnarand-
stöðuflokksins Bharatiya Janata.
Flokksins sem -boðaði fijálst
markaðshagkerfi en horfði svo
upp á höfuðandstæðinginn, Rao
forsætisráðherra Kongress-flokk-
inn taka tillögurnar upp á sína
arma og bæta um betur.
Ruddaskapurinn ryður
sér til rúms
Bharatiya Janata, sem er
flokkur hindúa, virtist um tíma
vera á uppleið. Hann hlaut tvö
þingsæti árið 1984, 86 sæti árið
1989 og 119 tveimur árum síðar.
Von flokksins um að tryggja sér
270 þingsæti í í þingkosningum
og að komast til valda í krafti
aukinnar andúðar á múslimum,
virðist hins vegar vera fyrir bí.
Meirihluti Indveija skilur nú að
Indland getur aðeins þrifist sem
veraldlegt ríki, ekki trúarlegt.
Sharma hefur hinsvegar rétt
fyrir sér þegar hann segir að
ruddaskapurinn sé að ryðja sér
til rúms í Indlandi. Hann vísar
t.d. til stórra auglýsingaskilta um
nuddkrem í miðborg Bombay sem
sýna karlmann sem tekur um
mjaðmir konu. Næsta skilti sýnir
konuna hvetja ástmann sinn til
að halda áfram.
Talsmaður Kongress-flokks-
ins, V.N. Gadgil, telur hins vegar
ekki að hætta sé á ferðum. Menn-
ingu sem hafí varað í 5.000 ár,
sé ekki hægt að gera að engu
með gervihnattasjónvarpi. Innri
styrkur Indlands sé of mikill til
þess.
Uppgangur í efnahagslífi
Forsætisráðherrann Rao segist
hafa komið Indlandi á rétta braut
og að stefna hans hafí áhrif. Nú
sé friður í Punjab-héraði, þar sem
hryðjuverk háfí verið daglegt
brauð. Þá hafi árangri hans í
efnahagsmálum verið fagnað á
alþjóðavettvangi.
Varasjóður Indlands í erlendri
mynt, sem var aðeins um 1 millj-
RÍKIDÆMI og fátækt eru enn hróplegar andstæður í Ind-
landi, þrátt fyrir efnahagsuppganginn.
Narashima Rao
ón dollara árið 1991, er nú um
20 milljaraðar dollara og eykst
sífellt. Ekki er langt síðan seðla-
banki Indlands varð að kaupa
rúpíur til að koma í veg fyrir að
gengi rúpíunnar hækkaði um of
gagnvart dollar.
Vöxtur iðnframleiðslu jókst úr
0,8% árið 1991 í 4% á síðasta
ári, verg þjóðarframleiðsla fór úr
1,1% í 4% og verðbólga hefur
hrapað úr 17% og niður í 9%. Lán
frá Alþjóðabankanum hafa verið
greidd upp fyrir gjalddaga.
Sá sem er í forsvari fyrir efna-
hagsumbæturnar er forsætisráð-
herrann Rao, 73 ára. Hann var
sestur í helgan stein, er hann var
fenginn til að gegna embættinu
í kjölfar morðsins á Rajiv Gandhi
forsætisráðherra árið 1991. Rao
var í fyrstu talinn valdalítill, þar
sem honum tókst ekki að koma
í veg fyrir að hindúar eyðilegðu
Ayodhya-moskuna fyrir tveimur
árum. Það hefur breyst og hann
hefur nú töglin og hagldimar.
Hljóti Kongress-flokkurinn
brautargengi í kosningum, sem
fara eiga fram í ríkjunum Andhra
Pradesh, Karnataka, Goa og
Sikkim í næsta mánuði og í Gujar-
at, Maharashtra, Orissa og Bihar
næsta vor, kann að vera að Rao
flýti þingkosningunum, sem boð-
að hefur verið til 1996. Gangi
flokknum hins vegar ekki sem
skyldi í kosningunum, kunna hins
vegar að koma upp efasemdir um
að Rao hafí heilsu til að gegna
embætti forsætisráðherra í tvö
ár til viðbótar.
Aukið atvinnuleysi
Rao gerir sér fulla grein fyrir
því að þrýstingur Vesturlanda og
ýmsissa indverskra fyrirtækja um
að flýta einkavæðingu ríkisfyrir-
tækja, mun kosta milljónir manna
störf sin. Þá er það ekkert laun-
ungarmál að djúpstæður ágrein-
ingur er í ríkisstjórninni. Tals-
maður flokksins segir ekki hægt
að ráða fólk og reka að vild.
Starfsöryggi skipti geysilegu
máli. Þá megi ekki gleyma hugs-
unarhætti elstu þingmannanna,
sem hafi alist upp við sósíalisma
og ríkisafskipti og eigi erfítt með
að sætta sig við breytingar.
Verkefnið sem bíður forsætis-
ráðherrans er erfitt, hann verður
að stuðla að jafnvægi í landi þar
sem stétt, trú og tunga greinir
að hatramma andstæðinga, og
þar sem ábati efnahagsupp-
gangsins hefur ekki skipst jafnt
niður. Um 70% ágóðans hefur
runnið til ríkjanna Maharashtra
og Gujarat, á meðan nær ekkert
breytist í hinum ríkjunum.
Nú verður hins vegar ekki aft-
ur snúið. Ferlið, sem Rao hefur
kallað „að flýta sér hægt,“ er
komið á fullt skrið.
Byggt á The Daily Telegraph
ERLEIMT
Bretland
64% telja
þingmenn
misnota
aðstöðuna
Lundúnuin. The Daily Telegraph.
SAMKVÆMT Gallup-könnun, sem
The Daily Telegraph birti á föstu-
dag, hefur umræðan um pólitíska
spiilingu ekki aðeins skaðað stjórn
breska Ihaldsflokksins heldur einnig
ímynd breskra þingmanna almennt.
Samkvæmt könnuninni telja breskir
kjósendur að spilling fari vaxandi
meðal þingmanna. 64% telja að flest-
ir þingmannanna misnoti aðstöðu
sína í hagnaðarskyni.
Aðeins 26% breskra kjósenda telja
að þingmenn hafí háleit siðferðisgildi
að leiðarljósi, ef marka má könnun-
ina. Þeir vilja að nefnd, sem rann-
saka á siðferðið í stjómkerfinu, setji
strangar reglur sem takmarki rétt
stjórnmálamanna til að þiggja gjafir
eða greiða frá mönnum sem eiga
hagsmuna að gæta.
Meirihluti breskra kjósenda telur
að þingmenn eigi ekki að þiggja nein-
ar gjafir og 95% telja það óviður-
kvæmilegt að þingmenn þiggi
greiðslur fyrir að leggja fram fyrir-
spurnir á þinginu.
Hins vegar er iítill sem enginn
stuðningur við hugmyndina um að
hækka laun þingmanna, sem eru
jafnvirði 288.000. króna á mánuði,
til að tryggja að þeir freistist ekki
til að þiggja óeðlilegar gjafír.
Fylgi íhaldsmanna minnkar
Könnunin sýnir að_ mikill meiri-
hluti kjósenda tengir íhaldsflokkinn
við spillingu. Flestir álíta Verka-
mannaflokkinn óspilltari, þótt margir
telji að þingmenn flokksins séu jafn
líklegir og íhaldsmenn til að falla
fyrir freistingunum.
Niðurstaðan er mikið áhyggjuefni
fyrir íhaldsflokkinn, þar sem hún
bendir til þess að Verkamanna-
flokknum hafí tekist að gera sér mat
úr spillingarmálum stjórnarinnar og
beina athyglinni frá efnahagnum,
sem er nú að rétta úr kútnum.
NYJUNG
sem beðið var eftir!
Vökvaknúinn
snúningsliður/hraðtengi
fyrir skóflur
og fylgihluti á allar
stærðir af gröfum.
* Einfalt og þrælsterkt.
* Snýstalltað 180°
* Eykur afköst, styttir verktíma.
* Sýningartæki á staðnum.
* Frábært verð!
i rasrt®
Skutuvogi 12A, R.vík, sími 812530
F
.
»
»
I
l
»
<
I
i
i
i
i
I
«
I