Morgunblaðið - 06.11.1994, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 06.11.1994, Blaðsíða 4
4 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRETTIR t VIKAN 30/10 - 5/11 ► Sjávarútvegsráðherra undirbýr þingsályktunartil- lögu um að hvalveiðar verði hafnar að nýju hér við Iand. í fyrstu yrðu takmarkaðar hrefnuveiðar og gert skylt að selja kjötið innanlands. Þingmenn hafa deilt um hvort rétt sé að gengið verði að nýju í Alþjóða hvalveiði- ráðið áður en veiðar verða hafnar. ► Afkoma Flugleiða batn- aði um 562 milljónir króna fyrstu átta mánuði ársins, miðað við sama tíma í fyrra. Fyrirtækið hagnaðist af reglulegri starfsemi um 539 milljónir króna en hafði tap- að 23 millj. á sama tíma 1993. ► Hæstiréttur hefur sýkn- að feðga af Akranesi sem Héraðsdómur Vesturlands hafði dæmt fyrir tilraun til rjúpnaveiða í Geitlandi. Nið- urstaðan byggist á því að vafi leikur á um hvernig eignarhaldi Hálsa og Reyk- holtsdalshrepps á Geitlandi sé háttað og hvort um af- rétt eða eignarland sé að ræða. ► Héraðsdómur Reylyavík- ur hefur dæmt Björn Ön- undarson fyrrum trygg- ingayfirlækni í 3 miiljóna skilorðsbundið varðhald og 3 miHjóna króna sekt fyrir að hafa vantalið tekjur sínar vegna örorkumata um 15,5 milljónir króna á árunum 1988-1990. ► íslendingar unnu alla leiki sína í riðlakeppni al- þjóðlega Reykjavíkurmóts- ins í handknattleik. Svíar sigruðu í hinum riðlinum og mættust liðin í úrslitaleik síðdegis í gær, laugardag. Sinkverksmiðja skapar 3-400 störf Stefnt er að því að um næstu ára- mót liggi fyrir niðurstöður forkönn- unar Zink Corporation, stærsta sinkframleiðenda í Bandaríkjunum, á því hvort fýsilegt sé að reisa hér- lendis verksmiðju, sem framleitt geti um 75 þúsund tonn af sinki á ári. Slík verksmiðja kostar um 10 milljarða króna og gæti veitt 3-400 manns vinnu. Orkuþörf verksmiðj- unnar gæti numið um 200 gígavatt- stundum á ári eða sem nemur þriðj- ungi af orkuframleiðslu Blöndu- virkjunar. EES óbreytt þótt fækki í EFTA Sérfræðingar EFTA og fram- kvæmdastjómar ESB telja að EES- samningurinn geti staðið óbreyttur þótt aðlaga verði stofnanir svæðis- ins vegna fækkunar í EFTA. Nægi- legt sé að breyta innri samningi EFTA um dómstól og eftirlitsstofn- un samtakanna og þannig megi komast hjá flóknu staðfestingarferli og nýjum samningaviðræðum, þar sem ESB-ríkin kynnu að setja fram nýjar kröfur. 55.000 fá fram- færslutekjur frá ríkinu Um 20% þjóðarinnar, 55.000 manns, fá mestan hluta framfærslu- tekna sinna úr ríkissjóði. Starfs- menn ríkisins em um 24 þúsund en þeir sem fá tekjur að öllu leyti frá félagslega kerfínu í formi bóta og lána eru alls 31.000 erlent Reynt að ijúfa ein- angrun Israels UM 200 stjómmálamenn frá 40 ríkj- um og 2.000 fjármálamenn frá 80 löndum tóku í vikunni þátt í ráðstefnu í Casablanca um efnahagssamvinnu í Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku eftir friðarsamninga á milli ísraela og araba. Eitt af helstu 4imræðuefnunum var þörfín á að auka fjárfestingar og skapa aukin efnahagsleg tengsl milli ísraels og múslimaríkja til að tryggja varanlegan frið. Á ráðstefnunni lýsti Hassan Jórdaníukonungur því yfir að gæsluhlutverk Jórdana á helgum stöð- um múslima í Jerúsalem væri einung- is tímabundið. Flugrán í Noregi BOSNÍUMAÐUR rændi á fimmtudag flugvél SAS-félagsins í innanlands- flugi í Noregi. Tæplega 130 manns voru um borð i vélinni en konum, börnum og fólki yfir sextugt var fljót- lega hleypt úr vélinni. Flogið var frá Norður-Noregi til Gardemoen-flug- vallar í Ósló, þar sem flugræninginn gafst upp eftir 6 tíma samningaþóf. Hann gerði kröfur um að hjálparstarf við Bosníu yrði aukið og líktu lögreglu- menn flugráninu við neyðaróp, maður- inn hefði aðeins viljað vekja athygli á ástandinu í heimalandinu. Önnur flug- freyjanna um borð var hálf-íslensk, Eva Dröfn Stefánsson. ► A FIMMTA hundrað manns fórust á miðviku- dag í flóðum og eldum í suðurhluta Egyptalands. Flóðin urðu til þess að tankvögnum hvolfdi og olía streymdi út úr þeim. Talið er að eldingu hafi lostið niður í olíuna og brennandi olían kaffærði fjölda húsa. ► BRESKA ríkisstjórnin hætti á fimmtudag við að einkavæða póstþjón- ustuna. Er þessi ákvörðun sögð mikið áfall fyrir Michael Heseltine, við- skiptaráðherra, svo og enn eitt áfallið fyrir rík- issljórnina. ► LÍK vestrænu gísl- anna, sem voru fangar skæruliða Rauðu khmer- anna í Kambódíu, fundust í vikubyrjun. Vestur- landabúarnir voru þrír, Breti, Frakki ogÁstrali, auk Víetnama og Kambódíumanna. ► HARÐIR bardagar hafa geisað I Norðvestur- Bosníu. Á mánudag gerðu Serbar sprengjuárás á Sarajevo eftir að stjórn- arher landsins hafði hafið stórsókn í norðvestur- hlutanum. Náðu múslim- ar borginni Krupa á sitt vald á fimmtudag. ► STJÓRN sænskra jafn- aðarmanna kynnti á mið- vikudag róttækar efna- hagsráðstafanir. Hafa hægrimenn gagnrýnt þær mjög, segja þær fela í sér mestu skattahækkanir í Evrópu. _* Gunnar Tómasson varaforseti SYFI telur yfirlýsingu ekki tálma sættir „Útilokað að Hálfdan verði endurráðinn“ GUNNAR Tómasson, varaforseti Slysavarnafélags íslands, kveðst efast um að yfirlýsing hans um mál Hálfdans Henryssonar muni hleypa illu blóði í málsaðila og tálma sátta- umleitanir sem hófust á mánudag sl. „Einhverjir verða auðvitað reiðir en þeim rennur reiðin einhvern tím- ann,“ segir Gunnar. Hann kveðst telja að aldrei sé útilokað að sætt- ast þó að sættir geti „tekið iangan tíma en það var orðin mikil krafa á okkur hjá SVFI að gera opinber- lega grein fyrir ástæðum uppsagnar Hálfdans“. Reynir Ragnarsson, sem á sæti í sáttanefnd, hefur lýst yfir undrun sinni á birtingu yfírlýsingarinnar meðan á viðkvæmum sáttaviðræð- um stendur og að sáttanefnd hafi ekki haft neitt veður af henni. Gunnar segir að sáttanefndarmenn þurfi ekki að vera hissa. „Við töld- um okkur hafa samið vopnahlé við þá um seinustu heigi þegar vara- stjóm og stjórn SVFÍ funduðu um málið, og að þá yrði dregið úr fjöl- miðlaumfjöllun. En á hveijum degi síðar hafa Hálfdan og Reynir verið IHa sáttur við yf- irlýsingu Gunn- ars, segir Hálfdan Henrysson með alls konar yfirlýsingar opinber- lega. Það er t.d. með öllu óviðeig- andi að sáttasemjari sé með yfirlýs- ingar í fjölmiðlum á meðan hann vinnur að sátt,“ segir Gunnar. Hálfdan ekki ráðinn Gunnar segir með öllu útilokað að Hálfdan verði ráðinri aftur til starfa en ræddir hafí verið aðrir möguleikar til að sætta málin, sem óvarlegt væri að opinbera nú. Hann haldi í raun að Hálfdan sé horfinn frá kröfu sinni um endurráðningu. Gunnar kveðst ekki hafa trú á að kallað verði til aukaþings SVFÍ vegna máls Hálfdans, enda sé bund- ið í lög félagsins að stjórn þess kalli til aukaþings, en „almenn regla er sú að þurfi mikinn meirihluta félagsmanna til að kalla saman Morgunblaðið/Kristinn Nýjar hættur í umferðinni UMFERÐ um Suðurlandsveg og Vesturlandsveg hefur tekið breytingum eftir að nýju mann- virkin, sem tengja vegina saman voru tekin í notkun fyrir skemmstu og meðan ökumenn sem þar eiga leið um átta sig á nýjum staðháttum hefur lögregl- an talið fyllstu þörf á að vera sérstaklega á varðbergi á svæð- inu. Ekki síst hefur verið talin þörf á að leiðbeina ungum veg- farendum, sem sækja sem fyrr á vinsælt Ieiksvæði í grennd við Rauðavatn, um nýjar hættur við nýjar aðstæður. á* Arsþing Landssambands stangveiðifélaga Agreiningur um fiskikortin JÓN Gunnar Baldvinsson var ein- róma endurkjörinn formaður Lands- sambands stangaveiðifélaga á árs- þingi LS í Munaðarnesi á dögunum. Stjómin var og öll endurkjörin. „Þetta var rússnesk kosning,“ sagði Jón Gunnar. Tvö voru efst á baugi á þinginu, annars vegar svokallað fískikortamál og hins vegar umræður um hlutverki LS í náinni framtíð. „Það er mikill ágreiningur um fiskikortin enda sjá menn ekki fyrir endann á hlutunum. Það var því ákveðið að flana ekki að neinu, halda áfram að vinna að málinu og tryggja að vel verði um hnútana búið,“ sagði Jón. Ágreiningur um hvert skuli stefnt aukaþing og menn taka bara af- stöðu til þess ef og þegar það kem- ur upp. Ég á þó hvorki von á að meirihluti sveita geri slíka kröfu né að stjórn félagsins fari frá fyrir næsta landsþing," segir Gunnar Tómasson. Mjög illa sáttur Hálfdan sagði í samtali við Morg- unblaðið að hann myndi svara þeim ávirðingum sem á hann væru born- ar skriflega lið fyrir lið. „Ég er mjög illa sáttur við það sem þarna kom fram.“ Hann segist einnig ósáttur við að yfirlýsingin skyldi hafa farið út þegar verið var að reyna ná sáttum. „Ég kannast ekki við að ég hafí ekki farið að skipun- um stjómar og framkvæmdastjóra en auðvitað var margt rætt hjá fé- laginu á fundum innan þess og ekki allir á sömu skoðun eins og gengur. En það hvarflaði ekki að mér að mínar skoðanir væru þannig að það þyrfti að reka mann fyrir þær, enda er í lögum SVFÍ að starfsmenn hafí tillögurétt og mál- frelsi," sagði Hálfdan. í starfi LS var ræddur á þinginu. „Það þurfti að ræða það hvað aðildar- félögin viidu fá út úr LS og við feng- um fín skilaboð í þeim efnum. Til dæmis, að LS skuli vera meira for- ystuafl varðandi hagsmuni stanga- veiðimanna en verið hefur. Einnig að styðja betur við bakið á Orra Vig- fússyni í viðleitni hans til að halda úti kvótakaupasjóðnum. Fjármál LS voru einnig uppi á borðinu, en engar tillögur komu fram um hvernig hand- hægast sé að auka fjárstyrk sam- bandsins. 'Loks má geta þess að sam- þykkt var tillaga um að hvetja land- búnaðarráðherra til að beita sér varð- andi sjávarnetin í Hvalfirði og á Mýrunum,“ sagði Jón. Innflytjendur tölvuleikja Fágna skoðun TALSMENN Japis og Hljómco, sem flytja inn tölvuleiki frá Sega og Nintendo, segjast fagna þeim hugmyndum að skoða tölvuleiki á sama hátt og kvikmyndir. Segir Amór Hann- esson verslunarstjóri hjá Hljómco að hann verði var við að krakkar allt niður í níu ára séu að horfa á ofbeldisfulla tölvuleiki sem bannaðir eru bömum innan 15 ára. Amór segist hlynntur hug- myndinni en veltir fyrir sér hvernig eigi að framfylgja regl- unum, hvort skoða eigi hvern einasta leik, og hvar eigi að draga mörkin milli ofbeldis og slagsmála. Ekki selt yngri en 15 ára Amór segir ennfremur að Nintendo tölvuleikir séu hrein- skrifaðir, eins og tekið var til orða, því þeir séu keyptir inn frá Svíþjóð þar sem gildi reglur um hvað sé leyfílegt. Einnig segir Amór að ofbeldisfullir leikir séu merktir en hins vegar sé það gert á erlendu tungu- máli. Þeir hafí það hins vegar fyrir reglu að selja ekki krökk- um undir 15 ára slíka leiki. Hlynnt reglugerð Guðný Danivalsdóttir inn- kaupastjóri tölvuleikja hjá Japis segist hlynnt því að reglugerð sé sett fyrir tölvuleiki hériendis. Hún segir einnig að Japis flytji Sega leikina inn frá Bretlandi og séu þeir merktir tilteknum aldurshópum líkt og kvikmyndir og sé ósjálfrátt litið til þess við sölu hér, til dæmis sé bannað að selja tiltekrta leiki börnum yngri en 16 ára. Guðný segir sjálfsagt að taka í taumana nú bæði hér heima og erlendis til að koma í veg fyrir að margir fylgi í kjölfar framleiðenda of- beldisfyllstu og vinsælustu leikjanna í gróðaskyni. I í I ! ! I . i b

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.