Morgunblaðið - 06.11.1994, Qupperneq 4
4 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
FRETTIR
t
VIKAN 30/10 - 5/11
► Sjávarútvegsráðherra
undirbýr þingsályktunartil-
lögu um að hvalveiðar verði
hafnar að nýju hér við Iand.
í fyrstu yrðu takmarkaðar
hrefnuveiðar og gert skylt
að selja kjötið innanlands.
Þingmenn hafa deilt um
hvort rétt sé að gengið verði
að nýju í Alþjóða hvalveiði-
ráðið áður en veiðar verða
hafnar.
► Afkoma Flugleiða batn-
aði um 562 milljónir króna
fyrstu átta mánuði ársins,
miðað við sama tíma í fyrra.
Fyrirtækið hagnaðist af
reglulegri starfsemi um 539
milljónir króna en hafði tap-
að 23 millj. á sama tíma
1993.
► Hæstiréttur hefur sýkn-
að feðga af Akranesi sem
Héraðsdómur Vesturlands
hafði dæmt fyrir tilraun til
rjúpnaveiða í Geitlandi. Nið-
urstaðan byggist á því að
vafi leikur á um hvernig
eignarhaldi Hálsa og Reyk-
holtsdalshrepps á Geitlandi
sé háttað og hvort um af-
rétt eða eignarland sé að
ræða.
► Héraðsdómur Reylyavík-
ur hefur dæmt Björn Ön-
undarson fyrrum trygg-
ingayfirlækni í 3 miiljóna
skilorðsbundið varðhald og
3 miHjóna króna sekt fyrir
að hafa vantalið tekjur sínar
vegna örorkumata um 15,5
milljónir króna á árunum
1988-1990.
► íslendingar unnu alla
leiki sína í riðlakeppni al-
þjóðlega Reykjavíkurmóts-
ins í handknattleik. Svíar
sigruðu í hinum riðlinum og
mættust liðin í úrslitaleik
síðdegis í gær, laugardag.
Sinkverksmiðja
skapar 3-400 störf
Stefnt er að því að um næstu ára-
mót liggi fyrir niðurstöður forkönn-
unar Zink Corporation, stærsta
sinkframleiðenda í Bandaríkjunum,
á því hvort fýsilegt sé að reisa hér-
lendis verksmiðju, sem framleitt
geti um 75 þúsund tonn af sinki á
ári. Slík verksmiðja kostar um 10
milljarða króna og gæti veitt 3-400
manns vinnu. Orkuþörf verksmiðj-
unnar gæti numið um 200 gígavatt-
stundum á ári eða sem nemur þriðj-
ungi af orkuframleiðslu Blöndu-
virkjunar.
EES óbreytt þótt
fækki í EFTA
Sérfræðingar EFTA og fram-
kvæmdastjómar ESB telja að EES-
samningurinn geti staðið óbreyttur
þótt aðlaga verði stofnanir svæðis-
ins vegna fækkunar í EFTA. Nægi-
legt sé að breyta innri samningi
EFTA um dómstól og eftirlitsstofn-
un samtakanna og þannig megi
komast hjá flóknu staðfestingarferli
og nýjum samningaviðræðum, þar
sem ESB-ríkin kynnu að setja fram
nýjar kröfur.
55.000 fá fram-
færslutekjur
frá ríkinu
Um 20% þjóðarinnar, 55.000
manns, fá mestan hluta framfærslu-
tekna sinna úr ríkissjóði. Starfs-
menn ríkisins em um 24 þúsund
en þeir sem fá tekjur að öllu leyti
frá félagslega kerfínu í formi bóta
og lána eru alls 31.000
erlent
Reynt að ijúfa ein-
angrun Israels
UM 200 stjómmálamenn frá 40 ríkj-
um og 2.000 fjármálamenn frá 80
löndum tóku í vikunni þátt í ráðstefnu
í Casablanca um efnahagssamvinnu í
Mið-Austurlöndum og Norður-Afríku
eftir friðarsamninga á milli ísraela og
araba. Eitt af helstu 4imræðuefnunum
var þörfín á að auka fjárfestingar og
skapa aukin efnahagsleg tengsl milli
ísraels og múslimaríkja til að tryggja
varanlegan frið. Á ráðstefnunni lýsti
Hassan Jórdaníukonungur því yfir að
gæsluhlutverk Jórdana á helgum stöð-
um múslima í Jerúsalem væri einung-
is tímabundið.
Flugrán í Noregi
BOSNÍUMAÐUR rændi á fimmtudag
flugvél SAS-félagsins í innanlands-
flugi í Noregi. Tæplega 130 manns
voru um borð i vélinni en konum,
börnum og fólki yfir sextugt var fljót-
lega hleypt úr vélinni. Flogið var frá
Norður-Noregi til Gardemoen-flug-
vallar í Ósló, þar sem flugræninginn
gafst upp eftir 6 tíma samningaþóf.
Hann gerði kröfur um að hjálparstarf
við Bosníu yrði aukið og líktu lögreglu-
menn flugráninu við neyðaróp, maður-
inn hefði aðeins viljað vekja athygli á
ástandinu í heimalandinu. Önnur flug-
freyjanna um borð var hálf-íslensk,
Eva Dröfn Stefánsson.
► A FIMMTA hundrað
manns fórust á miðviku-
dag í flóðum og eldum í
suðurhluta Egyptalands.
Flóðin urðu til þess að
tankvögnum hvolfdi og
olía streymdi út úr þeim.
Talið er að eldingu hafi
lostið niður í olíuna og
brennandi olían kaffærði
fjölda húsa.
► BRESKA ríkisstjórnin
hætti á fimmtudag við að
einkavæða póstþjón-
ustuna. Er þessi ákvörðun
sögð mikið áfall fyrir
Michael Heseltine, við-
skiptaráðherra, svo og
enn eitt áfallið fyrir rík-
issljórnina.
► LÍK vestrænu gísl-
anna, sem voru fangar
skæruliða Rauðu khmer-
anna í Kambódíu, fundust
í vikubyrjun. Vestur-
landabúarnir voru þrír,
Breti, Frakki ogÁstrali,
auk Víetnama og
Kambódíumanna.
► HARÐIR bardagar
hafa geisað I Norðvestur-
Bosníu. Á mánudag gerðu
Serbar sprengjuárás á
Sarajevo eftir að stjórn-
arher landsins hafði hafið
stórsókn í norðvestur-
hlutanum. Náðu múslim-
ar borginni Krupa á sitt
vald á fimmtudag.
► STJÓRN sænskra jafn-
aðarmanna kynnti á mið-
vikudag róttækar efna-
hagsráðstafanir. Hafa
hægrimenn gagnrýnt þær
mjög, segja þær fela í sér
mestu skattahækkanir í
Evrópu.
_*
Gunnar Tómasson varaforseti SYFI telur yfirlýsingu ekki tálma sættir
„Útilokað að Hálfdan
verði endurráðinn“
GUNNAR Tómasson, varaforseti
Slysavarnafélags íslands, kveðst
efast um að yfirlýsing hans um mál
Hálfdans Henryssonar muni hleypa
illu blóði í málsaðila og tálma sátta-
umleitanir sem hófust á mánudag
sl. „Einhverjir verða auðvitað reiðir
en þeim rennur reiðin einhvern tím-
ann,“ segir Gunnar. Hann kveðst
telja að aldrei sé útilokað að sætt-
ast þó að sættir geti „tekið iangan
tíma en það var orðin mikil krafa
á okkur hjá SVFI að gera opinber-
lega grein fyrir ástæðum uppsagnar
Hálfdans“.
Reynir Ragnarsson, sem á sæti
í sáttanefnd, hefur lýst yfir undrun
sinni á birtingu yfírlýsingarinnar
meðan á viðkvæmum sáttaviðræð-
um stendur og að sáttanefnd hafi
ekki haft neitt veður af henni.
Gunnar segir að sáttanefndarmenn
þurfi ekki að vera hissa. „Við töld-
um okkur hafa samið vopnahlé við
þá um seinustu heigi þegar vara-
stjóm og stjórn SVFÍ funduðu um
málið, og að þá yrði dregið úr fjöl-
miðlaumfjöllun. En á hveijum degi
síðar hafa Hálfdan og Reynir verið
IHa sáttur við yf-
irlýsingu Gunn-
ars, segir Hálfdan
Henrysson
með alls konar yfirlýsingar opinber-
lega. Það er t.d. með öllu óviðeig-
andi að sáttasemjari sé með yfirlýs-
ingar í fjölmiðlum á meðan hann
vinnur að sátt,“ segir Gunnar.
Hálfdan ekki ráðinn
Gunnar segir með öllu útilokað
að Hálfdan verði ráðinri aftur til
starfa en ræddir hafí verið aðrir
möguleikar til að sætta málin, sem
óvarlegt væri að opinbera nú. Hann
haldi í raun að Hálfdan sé horfinn
frá kröfu sinni um endurráðningu.
Gunnar kveðst ekki hafa trú á að
kallað verði til aukaþings SVFÍ
vegna máls Hálfdans, enda sé bund-
ið í lög félagsins að stjórn þess
kalli til aukaþings, en „almenn regla
er sú að þurfi mikinn meirihluta
félagsmanna til að kalla saman
Morgunblaðið/Kristinn
Nýjar hættur í umferðinni
UMFERÐ um Suðurlandsveg og
Vesturlandsveg hefur tekið
breytingum eftir að nýju mann-
virkin, sem tengja vegina saman
voru tekin í notkun fyrir
skemmstu og meðan ökumenn
sem þar eiga leið um átta sig á
nýjum staðháttum hefur lögregl-
an talið fyllstu þörf á að vera
sérstaklega á varðbergi á svæð-
inu. Ekki síst hefur verið talin
þörf á að leiðbeina ungum veg-
farendum, sem sækja sem fyrr á
vinsælt Ieiksvæði í grennd við
Rauðavatn, um nýjar hættur við
nýjar aðstæður.
á*
Arsþing Landssambands stangveiðifélaga
Agreiningur
um fiskikortin
JÓN Gunnar Baldvinsson var ein-
róma endurkjörinn formaður Lands-
sambands stangaveiðifélaga á árs-
þingi LS í Munaðarnesi á dögunum.
Stjómin var og öll endurkjörin.
„Þetta var rússnesk kosning,“ sagði
Jón Gunnar.
Tvö voru efst á baugi á þinginu,
annars vegar svokallað fískikortamál
og hins vegar umræður um hlutverki
LS í náinni framtíð. „Það er mikill
ágreiningur um fiskikortin enda sjá
menn ekki fyrir endann á hlutunum.
Það var því ákveðið að flana ekki
að neinu, halda áfram að vinna að
málinu og tryggja að vel verði um
hnútana búið,“ sagði Jón.
Ágreiningur um hvert skuli stefnt
aukaþing og menn taka bara af-
stöðu til þess ef og þegar það kem-
ur upp. Ég á þó hvorki von á að
meirihluti sveita geri slíka kröfu
né að stjórn félagsins fari frá fyrir
næsta landsþing," segir Gunnar
Tómasson.
Mjög illa sáttur
Hálfdan sagði í samtali við Morg-
unblaðið að hann myndi svara þeim
ávirðingum sem á hann væru born-
ar skriflega lið fyrir lið. „Ég er
mjög illa sáttur við það sem þarna
kom fram.“ Hann segist einnig
ósáttur við að yfirlýsingin skyldi
hafa farið út þegar verið var að
reyna ná sáttum. „Ég kannast ekki
við að ég hafí ekki farið að skipun-
um stjómar og framkvæmdastjóra
en auðvitað var margt rætt hjá fé-
laginu á fundum innan þess og
ekki allir á sömu skoðun eins og
gengur. En það hvarflaði ekki að
mér að mínar skoðanir væru þannig
að það þyrfti að reka mann fyrir
þær, enda er í lögum SVFÍ að
starfsmenn hafí tillögurétt og mál-
frelsi," sagði Hálfdan.
í starfi LS var ræddur á þinginu.
„Það þurfti að ræða það hvað aðildar-
félögin viidu fá út úr LS og við feng-
um fín skilaboð í þeim efnum. Til
dæmis, að LS skuli vera meira for-
ystuafl varðandi hagsmuni stanga-
veiðimanna en verið hefur. Einnig
að styðja betur við bakið á Orra Vig-
fússyni í viðleitni hans til að halda
úti kvótakaupasjóðnum. Fjármál LS
voru einnig uppi á borðinu, en engar
tillögur komu fram um hvernig hand-
hægast sé að auka fjárstyrk sam-
bandsins. 'Loks má geta þess að sam-
þykkt var tillaga um að hvetja land-
búnaðarráðherra til að beita sér varð-
andi sjávarnetin í Hvalfirði og á
Mýrunum,“ sagði Jón.
Innflytjendur
tölvuleikja
Fágna
skoðun
TALSMENN Japis og Hljómco,
sem flytja inn tölvuleiki frá
Sega og Nintendo, segjast
fagna þeim hugmyndum að
skoða tölvuleiki á sama hátt og
kvikmyndir. Segir Amór Hann-
esson verslunarstjóri hjá
Hljómco að hann verði var við
að krakkar allt niður í níu ára
séu að horfa á ofbeldisfulla
tölvuleiki sem bannaðir eru
bömum innan 15 ára.
Amór segist hlynntur hug-
myndinni en veltir fyrir sér
hvernig eigi að framfylgja regl-
unum, hvort skoða eigi hvern
einasta leik, og hvar eigi að
draga mörkin milli ofbeldis og
slagsmála.
Ekki selt yngri en 15 ára
Amór segir ennfremur að
Nintendo tölvuleikir séu hrein-
skrifaðir, eins og tekið var til
orða, því þeir séu keyptir inn
frá Svíþjóð þar sem gildi reglur
um hvað sé leyfílegt. Einnig
segir Amór að ofbeldisfullir
leikir séu merktir en hins vegar
sé það gert á erlendu tungu-
máli. Þeir hafí það hins vegar
fyrir reglu að selja ekki krökk-
um undir 15 ára slíka leiki.
Hlynnt reglugerð
Guðný Danivalsdóttir inn-
kaupastjóri tölvuleikja hjá Japis
segist hlynnt því að reglugerð
sé sett fyrir tölvuleiki hériendis.
Hún segir einnig að Japis flytji
Sega leikina inn frá Bretlandi
og séu þeir merktir tilteknum
aldurshópum líkt og kvikmyndir
og sé ósjálfrátt litið til þess við
sölu hér, til dæmis sé bannað
að selja tiltekrta leiki börnum
yngri en 16 ára. Guðný segir
sjálfsagt að taka í taumana nú
bæði hér heima og erlendis til
að koma í veg fyrir að margir
fylgi í kjölfar framleiðenda of-
beldisfyllstu og vinsælustu
leikjanna í gróðaskyni.
I
í
I
!
!
I
.
i
b