Morgunblaðið - 06.11.1994, Side 36
36 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Ný námskeið að hefjast
2 kvöld kr. 4.900
Sólveig Eiríksdóttir
býður upp á framhaldsnámskeið í
matreiðslu á fínum aðalréttum og
ábætisréttum fyrir jólin. Upplagt fyrir
þá sem eru með Candida-einkenni.
Stuðlum að
aukaefnalausu fæði.
Námskeiðin fara fram í Hamragörðum,
Hávallagötu 24, Reykjavík.
JJpplýsingar og bókanir í síma
/
FRUMSÝNING
MiÐViKUDAGIMN 9. NÓVEMBER Kt. 20 UPPSELT
2. SÝNING: SUNNUDAGINN 13. NÓVEMBtR KL. 20
LEIKMYND OG BÚNINGAR:
Stígur Steínþórsson
LÝSING:
Ögmundur Pór Jóharmesson
TONLIST:
Pórólfur Eíríksson
LEIKSTJÓRI:
Hlín Agnarsdóttír
LEIKARAR:
Ární Pétur Guðjónsson,
Benedikt Erlíngsson,
Ellert A. Jnglmundarson,
Jóhanna Jónas og
Margrét Vílhjálmsdóttír
BORGARLEIKHÚS LEIKFÉLAG RtYKJAVÍKUR SÍMI: 080 080
ÍDAG
VELVAKANDI
Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags
Helmingi
ódýrara
KONA hringdi til Velvak-
anda og sagðist hafa þurft
að nýta sér þjónustu slysa-
deildarinnar fyrir nokkru.
Taka þurfti nokkur spor í
hana og átti hún síðan að
koma á endurkomudeild
nokkru seinna til að láta
taka saumana úr.
Við eftirgrennslan
komst hún að því að u.þ.b.
helmingi ódýrara var að
láta heimilislækninn taka
saumana úr, heldur en að
láta gera það á endur-
komudeildinni. Gjald end-
urkomudeildar er um
1.200 krónur en 600 krón-
ur kostar hver koma til
heimilislæknisins.
Hún vildi benda fólki á
þennan möguleika, því á
þessum síðustu og verstu
tímum munar um hvern
hundraðkallinn.
Tapað/fundið
Úr tapaðist
GUCCI-kvenúr tapaðist í
nágrenni Ingólfstorgs á
milli kl. 11 og 12 sl. föstu-
dag. Finnandi vinsamlega
hringi í síma 874618.
Silfurhjarta
tapaðist
MARÍA tapaði silfurhjait-
anu sínu sem er á svörtu
silkibandi. Hjartað var
henni gefið í fimm ára
brúðkaupsafmælisgjöf og
hefur mikið tilfinningalegt
gildi fyrir hana. Viti ein-
hver um það er hann vin-
samlega beðinn um að
hringja í s. 71461.
Lyklar fundust
TVEIR lyklar á nagla-
klippum fundust nálægt
Suðurhólum sl. fimmtu-
dag. Upplýsingar í síma
78368.
Gæludýr
Týndur högni
HÁLFSTÁLPAÐUR högni
brúnbröndóttur á baki,
rófu og höfði með hvíta
fætur, bijóst, maga og
trýni hvarf frá heimili sínu
í Norðurbæ Hafnarfjarðar
fyrir u.þ.b. tveim vikum.
Hann er ómerktur og ólar-
laus. Geti einhver gefið
upplýsingar um hann vin-
samlega hringið í síma
54205.
BRIPS
U m s j ó n G u ö m . I’ á 11
Arnarson
FYRSTA áætlun sagnhafa
snýst um að fríspila tígul-
inn. Með réttri tímasetn-
ingu gengur það upp ef lit-
urinn brotnar 4-3.
Norður gefur; AV á
hættu.
kónginn til að spila trompi í
öðrum slag. Sagnhafi tekur
slaginn á drottningu blinds
og hendir hjarta niður í tígul-
ás. Trompar svo tígul og lauf
í borði. Stingur enn tígul og
er nú í góðum málum ef litur-
inn kemur 4-3. En þegar
vestur hendir laufi, verður
að skipta um áætlun.
Sagnhafi tekur öll trompin
nema eitt og heldur eftir
tveimur tíglum í borði og
ÁK í hjarta:
Vestur
♦ 543
¥ 10
♦ 84
+ KD98643
Norður
4 D2 Norður
¥ ÁK54 4 -
♦ ÁG9652 ¥ ÁK
4 2 ♦ G9
4 -
Austur
4 6 Vestur Austur
lllll! VDG73 4 - 4 -
♦ KD1073 ¥ 10 llllll VDG7
4 ÁG7 ♦ - 111111 ♦ D
4 D98 4 -
Suður
♦ ÁKG10987
¥ 9862
♦ -
♦ 105
Vestur Norður Austur Suður
- 1 tígull Pass 1 spaði
Pass 2 tíglar Pass 4 spaðar
Pass Pass 4 grönd 6 spaðar Pass Allir pass 5 hjörtu*
*tv8 lykibpil af firam án (ranpdrottaingar
Útspil: laufkóngur.
Suður
♦ G
¥ 986
♦ -
♦ -
Næst síðasta trompið
þvingaði austur í rauðu litun-
um. í þessari stöðu hefur
hann hent tígli, en þá fer
sagnhafi inn í borð á hjarta
og fríspilar 12. slaginn á tíg-
Austur yfirdrepur lauf- ul.
Með morgunkaffinu
Það á ekki að borða
þessar pillur. Helltu
þeim bara niður þrisv-
ar á dag og tíndu þær
upp, eina og eina Hvernig gengur
í einu. megrunarkúrinn?
komdu samt STRAX aftur með rúmið þitt.
Víkveiji skrifar...
SUMSTAÐAR erlendis, meðal
annars á Norðurlöndum,
standa lög til þess að svipta menn
starfsréttindum og meina þeim
þátttöku í atvinnurekstri, hafi þeir
gróflega brugðizt skyldum sínum
í eigin atvinnurekstri eða í at-
vinnurekstri lögaðila. Hér skortir
hins vegar á viðunandi viðbrögð
gegn ítrekuðum brotum af þessu
tagi.
Sjö þingmenn Framsóknar-
flokks hafa lagt fram frumvarp
til laga um tímabundið bann við
atvinnurekstri einstaklings vegna
afbrota. Megingrein frumvarpsins
felur í sér heimild til að útiloka
þá tímabundið frá þátttöku í at-
vinnurekstri, sem brotið hafa gróf-
lega gegn almennum hegningar-
lögum, gegn skattalögum gegn
bókhaldslögum eða framið önnur
meiri háttar efnahagsbrot.
Víkverji leggur ekki dóm á,
hvort þetta frumvarp geymir einu
réttu lagaviðbrögðin. Það er samt
sem áður þörf áminning til þings-
ins. Það eina sem ekki má gera,
eins og mál hafa þróast hér á landi,
er að gera ekki neitt!
xxx
ÓTT svört vinna og skattsvik
henni tengd smjúgi um
möskva aðhalds og eftirlits í ís-
lenzku samfélagi gildir öðru máli
gamla fólkið - „öldrunarskattana".
Þar hefur löggjafinn þétt mösk-
vana svo um munar, samanber
tvísköttun og í raun þrísköttun
iðgjalda lífeyrissparnaðar. Um
þetta efni vísar Víkveiji til fróð-
legs „bréfs til blaðsins" frá Sveini
Ólafssyni miðvikudaginn 25. októ-
ber sl. Fyrst eru sum sé iðgjöld
til lífeyrissjóða, sem áður fyrr
komu til skattfrádráttar, skatt-
lögð. Síðan er útgreiddur lífeyrir
skattlagður, en sama máli gegnir
ekki um ávöxt annars sparnaðar.
Og loks er þessi lífeyrir reiknaður
til frádráttar og oftar enn ekki
útilokunar frá tilteknum bótum
hins almenna tryggingakerfis. Það
er sum sé ekki refsingalaust að
spara eftir leikreglum hins hefð-
bunda lífeyrissjóðakerfis!
Sveinn Ölafsson segir orðrétt í
bréfi sínu:
„Varla er líka fjarri lagi, þar
sem augljóslega er um að ræða
gróft brot á mannréttindum, hvort
ekki sé við hæfi að skoðaðir séu
möguleikar á að skjóta svona
málum tii Mannréttindadómstóls-
ins. Hér er skýlaust brotið á fólki
og það í stórum stíl. Spurningin
er líka, hvort svonalagað sé sæm-
andi fyrir sjálf stjórnvöld landsins?
Ég segi nei! Um leið undirstrika
ég, að þetta er hrein rangindi og
brot á öllu velsæmi.“
Hvað segja samtök aldraðra í
landinu um þessa hugmynd?
ANNES Hólmsteinn Gissur-
arson og Mörður Árnason
birtast af og til á sjónvarpskjá,
ásamt viðmælanda, nýjum í sér-
hvert sinn. Viðfangsefnið er jafnan
eitthvað sem hátt ber í þjóðmála-
umræðunni. Og það er engin
„fiskileysa“ í þeim efnum þessa
dagana, enda kosningaár fram-
undan.
Sitt hvað er gott um þætti
þessa, enda stjórnendur öngvir
heimalningar. Einn skugga ber þó
á - og hann áberandi á stundum.
Það ber sum sé við að stjórnend-
urnir, sem eru á öndverðum meiði
um fjölmargt, fara í hár saman,
tala hvor upp í annan af kappi
miklu, en „viðmælandinn“ hverfur
í skuggann - og fær fáu einu skot-
ið inn í umræðuna.
Ef þessi agnúi væri minnkaður
nokkuð yrðu þættir þessir áhuga-
verðari. Víkveiji á ekki við það
að Hannes og Mörður haldi sig
mestpart til hlés, síður en svo,
þeir hafa sitt hvað til mála að
leggja. En það er sjálfsögð hátt-
vísi við viðmælanda hverju sinni,
sem og hlustendur, að sá sem er
mættur til að láta rekja úr sér
garnirnar verði ekki eins konar
hornreka í pólitískri „garna-
flækju“ stjórnendanna.