Morgunblaðið - 06.11.1994, Qupperneq 36

Morgunblaðið - 06.11.1994, Qupperneq 36
36 SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Ný námskeið að hefjast 2 kvöld kr. 4.900 Sólveig Eiríksdóttir býður upp á framhaldsnámskeið í matreiðslu á fínum aðalréttum og ábætisréttum fyrir jólin. Upplagt fyrir þá sem eru með Candida-einkenni. Stuðlum að aukaefnalausu fæði. Námskeiðin fara fram í Hamragörðum, Hávallagötu 24, Reykjavík. JJpplýsingar og bókanir í síma / FRUMSÝNING MiÐViKUDAGIMN 9. NÓVEMBER Kt. 20 UPPSELT 2. SÝNING: SUNNUDAGINN 13. NÓVEMBtR KL. 20 LEIKMYND OG BÚNINGAR: Stígur Steínþórsson LÝSING: Ögmundur Pór Jóharmesson TONLIST: Pórólfur Eíríksson LEIKSTJÓRI: Hlín Agnarsdóttír LEIKARAR: Ární Pétur Guðjónsson, Benedikt Erlíngsson, Ellert A. Jnglmundarson, Jóhanna Jónas og Margrét Vílhjálmsdóttír BORGARLEIKHÚS LEIKFÉLAG RtYKJAVÍKUR SÍMI: 080 080 ÍDAG VELVAKANDI Svarað í síma 691100 frá 10-12 og 14-16 frá mánudegi til föstudags Helmingi ódýrara KONA hringdi til Velvak- anda og sagðist hafa þurft að nýta sér þjónustu slysa- deildarinnar fyrir nokkru. Taka þurfti nokkur spor í hana og átti hún síðan að koma á endurkomudeild nokkru seinna til að láta taka saumana úr. Við eftirgrennslan komst hún að því að u.þ.b. helmingi ódýrara var að láta heimilislækninn taka saumana úr, heldur en að láta gera það á endur- komudeildinni. Gjald end- urkomudeildar er um 1.200 krónur en 600 krón- ur kostar hver koma til heimilislæknisins. Hún vildi benda fólki á þennan möguleika, því á þessum síðustu og verstu tímum munar um hvern hundraðkallinn. Tapað/fundið Úr tapaðist GUCCI-kvenúr tapaðist í nágrenni Ingólfstorgs á milli kl. 11 og 12 sl. föstu- dag. Finnandi vinsamlega hringi í síma 874618. Silfurhjarta tapaðist MARÍA tapaði silfurhjait- anu sínu sem er á svörtu silkibandi. Hjartað var henni gefið í fimm ára brúðkaupsafmælisgjöf og hefur mikið tilfinningalegt gildi fyrir hana. Viti ein- hver um það er hann vin- samlega beðinn um að hringja í s. 71461. Lyklar fundust TVEIR lyklar á nagla- klippum fundust nálægt Suðurhólum sl. fimmtu- dag. Upplýsingar í síma 78368. Gæludýr Týndur högni HÁLFSTÁLPAÐUR högni brúnbröndóttur á baki, rófu og höfði með hvíta fætur, bijóst, maga og trýni hvarf frá heimili sínu í Norðurbæ Hafnarfjarðar fyrir u.þ.b. tveim vikum. Hann er ómerktur og ólar- laus. Geti einhver gefið upplýsingar um hann vin- samlega hringið í síma 54205. BRIPS U m s j ó n G u ö m . I’ á 11 Arnarson FYRSTA áætlun sagnhafa snýst um að fríspila tígul- inn. Með réttri tímasetn- ingu gengur það upp ef lit- urinn brotnar 4-3. Norður gefur; AV á hættu. kónginn til að spila trompi í öðrum slag. Sagnhafi tekur slaginn á drottningu blinds og hendir hjarta niður í tígul- ás. Trompar svo tígul og lauf í borði. Stingur enn tígul og er nú í góðum málum ef litur- inn kemur 4-3. En þegar vestur hendir laufi, verður að skipta um áætlun. Sagnhafi tekur öll trompin nema eitt og heldur eftir tveimur tíglum í borði og ÁK í hjarta: Vestur ♦ 543 ¥ 10 ♦ 84 + KD98643 Norður 4 D2 Norður ¥ ÁK54 4 - ♦ ÁG9652 ¥ ÁK 4 2 ♦ G9 4 - Austur 4 6 Vestur Austur lllll! VDG73 4 - 4 - ♦ KD1073 ¥ 10 llllll VDG7 4 ÁG7 ♦ - 111111 ♦ D 4 D98 4 - Suður ♦ ÁKG10987 ¥ 9862 ♦ - ♦ 105 Vestur Norður Austur Suður - 1 tígull Pass 1 spaði Pass 2 tíglar Pass 4 spaðar Pass Pass 4 grönd 6 spaðar Pass Allir pass 5 hjörtu* *tv8 lykibpil af firam án (ranpdrottaingar Útspil: laufkóngur. Suður ♦ G ¥ 986 ♦ - ♦ - Næst síðasta trompið þvingaði austur í rauðu litun- um. í þessari stöðu hefur hann hent tígli, en þá fer sagnhafi inn í borð á hjarta og fríspilar 12. slaginn á tíg- Austur yfirdrepur lauf- ul. Með morgunkaffinu Það á ekki að borða þessar pillur. Helltu þeim bara niður þrisv- ar á dag og tíndu þær upp, eina og eina Hvernig gengur í einu. megrunarkúrinn? komdu samt STRAX aftur með rúmið þitt. Víkveiji skrifar... SUMSTAÐAR erlendis, meðal annars á Norðurlöndum, standa lög til þess að svipta menn starfsréttindum og meina þeim þátttöku í atvinnurekstri, hafi þeir gróflega brugðizt skyldum sínum í eigin atvinnurekstri eða í at- vinnurekstri lögaðila. Hér skortir hins vegar á viðunandi viðbrögð gegn ítrekuðum brotum af þessu tagi. Sjö þingmenn Framsóknar- flokks hafa lagt fram frumvarp til laga um tímabundið bann við atvinnurekstri einstaklings vegna afbrota. Megingrein frumvarpsins felur í sér heimild til að útiloka þá tímabundið frá þátttöku í at- vinnurekstri, sem brotið hafa gróf- lega gegn almennum hegningar- lögum, gegn skattalögum gegn bókhaldslögum eða framið önnur meiri háttar efnahagsbrot. Víkverji leggur ekki dóm á, hvort þetta frumvarp geymir einu réttu lagaviðbrögðin. Það er samt sem áður þörf áminning til þings- ins. Það eina sem ekki má gera, eins og mál hafa þróast hér á landi, er að gera ekki neitt! xxx ÓTT svört vinna og skattsvik henni tengd smjúgi um möskva aðhalds og eftirlits í ís- lenzku samfélagi gildir öðru máli gamla fólkið - „öldrunarskattana". Þar hefur löggjafinn þétt mösk- vana svo um munar, samanber tvísköttun og í raun þrísköttun iðgjalda lífeyrissparnaðar. Um þetta efni vísar Víkveiji til fróð- legs „bréfs til blaðsins" frá Sveini Ólafssyni miðvikudaginn 25. októ- ber sl. Fyrst eru sum sé iðgjöld til lífeyrissjóða, sem áður fyrr komu til skattfrádráttar, skatt- lögð. Síðan er útgreiddur lífeyrir skattlagður, en sama máli gegnir ekki um ávöxt annars sparnaðar. Og loks er þessi lífeyrir reiknaður til frádráttar og oftar enn ekki útilokunar frá tilteknum bótum hins almenna tryggingakerfis. Það er sum sé ekki refsingalaust að spara eftir leikreglum hins hefð- bunda lífeyrissjóðakerfis! Sveinn Ölafsson segir orðrétt í bréfi sínu: „Varla er líka fjarri lagi, þar sem augljóslega er um að ræða gróft brot á mannréttindum, hvort ekki sé við hæfi að skoðaðir séu möguleikar á að skjóta svona málum tii Mannréttindadómstóls- ins. Hér er skýlaust brotið á fólki og það í stórum stíl. Spurningin er líka, hvort svonalagað sé sæm- andi fyrir sjálf stjórnvöld landsins? Ég segi nei! Um leið undirstrika ég, að þetta er hrein rangindi og brot á öllu velsæmi.“ Hvað segja samtök aldraðra í landinu um þessa hugmynd? ANNES Hólmsteinn Gissur- arson og Mörður Árnason birtast af og til á sjónvarpskjá, ásamt viðmælanda, nýjum í sér- hvert sinn. Viðfangsefnið er jafnan eitthvað sem hátt ber í þjóðmála- umræðunni. Og það er engin „fiskileysa“ í þeim efnum þessa dagana, enda kosningaár fram- undan. Sitt hvað er gott um þætti þessa, enda stjórnendur öngvir heimalningar. Einn skugga ber þó á - og hann áberandi á stundum. Það ber sum sé við að stjórnend- urnir, sem eru á öndverðum meiði um fjölmargt, fara í hár saman, tala hvor upp í annan af kappi miklu, en „viðmælandinn“ hverfur í skuggann - og fær fáu einu skot- ið inn í umræðuna. Ef þessi agnúi væri minnkaður nokkuð yrðu þættir þessir áhuga- verðari. Víkveiji á ekki við það að Hannes og Mörður haldi sig mestpart til hlés, síður en svo, þeir hafa sitt hvað til mála að leggja. En það er sjálfsögð hátt- vísi við viðmælanda hverju sinni, sem og hlustendur, að sá sem er mættur til að láta rekja úr sér garnirnar verði ekki eins konar hornreka í pólitískri „garna- flækju“ stjórnendanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.