Morgunblaðið - 06.11.1994, Qupperneq 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 6. NÓVEMBER 1994 15
*
Atakasæti
og skjálftasvæði
KOSNINGABARÁTTAN hefur
víða verið óvægin og iðulega
hafa frambjóðendur valið þann kost-
inn að vega að andstæðingum sínum
frekar en að draga fram eigin kosti.
Hrikalegt þykir að vera stjórnmála-
maður, en dásamlegt að vera nýliði
í stjórnmálum, helst reynslulaus með
öllu. Hægt er að greina almenna
strauma fyrir kosningarnar, en hver
viðureign hefur sín sérkenni.
► KALIFORNÍA: Kathleen Brown
hugðist feta í fótspor bróður síns og
föður og verða ríkisstjóri, en henni
tókst að glata 15 prósenta forskoti á
núverandi ríkissjóra Pete Wilson, og
virðist hafa misst af lestinni. Dianne
Feinstein, öldungadeildarþingmaður
demókrata, og repúblikaninn Michael
Huffington hafa háð dýrustu kosn-
ingabaráttu, sem sögur fara af, um
sæti í öldungadeildinni, og varið til
þess 35,9 milljónum dollara. Olíuf-
urstinn Huffíngton hefur eytt 25,2
milljónum, þar af 24,8 milljónum úr
eigin vasa. Huffíngton styður tillögu,
sem verður á atkvæðaseðlinum, um
að ólöglegir innflytjendur fái hvorki
p að sitja á skóla-
bekk, né njóta
heilbrigðisþjón-
ustu eða annarra
fríðinda nema í
neyð. Feinstein
virðist ætla að
sigla fram úr eftir
að Huffíngton
viðurkenndi að
hafa haft ólöglega mexíkóska barnap-
íu í þjónustu sinni. „Hver hefur ekki
brotið lögin einhvem tímann," sagði
Huffington og kenndi konu sinni,
Ariönnu Stassinopoulous, um allt
saman.
► NEW YORK: Eitt sinn var Mario
Cuomo óskabarn demókrata. Cuomo
hefur verið ríkisstjóri í New York í
þijú kjörtímabil og hvert sinn, sem
honum hafa boðist tækifæri til að
leita frekari frama hefur hann hafn-
að, hvort sem um var að ræða for-
setaframboð eða sæti í hæstarétti.
Nú situr Cuomo fastur í ríkisþinginu
í Albany, kemst ekki ofar, getur
ekki sóma síns vegna farið neðar,
og þarf að horfa upp á þá niðurlæg-
ingu að óþekktur repúblikani, Ge-
orge Pataki, stefni embætti hans í
hættu. Undanfarna daga hefur Cu-
omo þó getað andað léttar. Hann er
kominn með tíu prósenta forskot á
Pataki eftir að borgarstjóri New
York, repúblik-
aninn Rudolph
Giuliani, rauf
flokkslínur og
lýsti yfir stuðn-
ingi sínum við
Cuomo.
► WASHING-
TON, D.C.: Up-
prisa. Marions
Barrys heldur áfram. Barry sækist
eftir því að vera kosinn borgarstjóri
höfuðstaðar Bandaríkjanna fjórða
sinni, sem væri svo sem ekki í frásög-
ur færandi ef hann hefði ekki setið
1 í fangelsi fyrir kókaínneyslu. Ban-y
vann yfírburðasigur yfir núverandi
borgarstjóra, Sharon Pratt Kelly, í
forkosningum í september. Hvítir
íbúar Washington eru hneykslaðir,
en svartir segja að Barry hafí verið
leiddur í gildru, sem laganna verðir
hefðu aldrei vógað sér að egna fyrir
hvítan mann, þegar hann var hand-
I tekinn fyrir að reykja krakk á hótel-
herbergi í Washington. Bæði Was-
hington Post og Washington Times
I hafa lýst yfir stuðningi við mótfram-
bjóðanda Barrys, repúblikanann Ca-
rol Schwartz, en það mun sennilega
duga skammt. 90 prósent íbúa Was-
hington eru demókratar og Barry er
talinn eiga sigurinn vísan. Hann hef-
ur lofað að neyta hvorki eiturlyfja
né áfengis og kveðst munu segja af
sér ella.
WASHINGTON: Leiðtogi demó-
krata í fulltrúadeildinni, Tom Foley,
hefur eytt þrefalt meiru í kosninga-
baráttu sína en nokkru sinni áður
er hann hefur boðið sig fram til þings.
Engu að síður er staðan hnífjöfn
milli hans og áskoranda hans úr röð-
um repúblikana, Georges Netherc-
utts. Foley hefur setið á þingi í 30
ár og er nú for-
seti fulltrúadeild-
arinnar. Foley
segir að áhrif sín
á þingi séu
ómissandi fyrir
Washington-ríki,
en Nethercutt
segir að hann sé
handbendi
Bandaríkjaforseta og geri ekki annað
en seilast í vasa skattborgaranna.
► FLÓRÍDA OG TEXAS: Tveir
synir George Bush fyrrum Banda-
ríkjaforseta sækjast eftir ríkisstjóra-
embættum. George W. Bush, fram-
bjóðandi repúblikana, hefur gert
harða hríð að Ann Richards, ríkis-
stjóra Texas, og vill meðal annars
láta fanga dúsa í tjöldum. Samkvæmt
skoðanakönnunum stendur hann nú
jafnfætis Richards, sem hefur ekki
tekist að nýta sér þróttmikið efna-
hagslíf Texas sér í vil. Auðkýfíngur-
inn Ross Perot virðist ekki geta
hugsað sér að nokkur úr Bush-fjöl-
skyldunni gegni opinberu embætti og
hefur því lýst yfír stuðningi við Ric-
hards. Jeb Bush hefur forskot á
demókratann Lawton Chiles í bar-
áttunni um ríkisstjóraembættið í
Flórída. Þeir Bush-bræður hafa notið
stuðnings foreldra sinna í kosninga-
baráttunni, einkum þó Barböru
Bush. Þeir eru sagði sýnu íhaldssam-
ari en faðir þeirra og heldur vikublað-
ið The Economist því fram að þeir
hafí erft pólitísk gen Ronalds
Reagans, fyrrum Bandaríkjaforseta.
Þ- VESTUR-VIRGINÍA: Hann var
dæmdur í fangelsi fyrir þátt sinn í
Íran-Kontra hneykslinu, en dóminum
var hnekkt vegna formgalla: ekki
mátti nota vitnisburð hans fyrir þingi
til að sakfella hann. Nú ætlar maður-
inn, sem vélaði Bandaríkjaþing, að
verða öldungadeildarþingmaður. Oli-
ver North, sem býður fram fyrir
repúblikana, hafði fram að síðustu
helgi naumt forskot á öldungadeild-
arþingmann demókrata, Charles
Robb. Forysta Robbs er innan
skekkjumarka samkvæmt skoðana-
könnunum. Ýms"ir málsmetandi repú-
blikanar, svo sem Bob Dole, leiðtogi
repúblikana í öldungadeildinni, og
James Baker, fyrrum utanríkisráð-
herra, segjast styðja North.
► ILLINOIS: Ekki eru allir sitjandi
stjórnmálamenn úr röðum demó-
krata, en sennilega koma yfirburðir
Dans Rostenkowskis i kjördæmi
hans í Chicago mest á óvart. Rost-
enkowski var einn valdamesti full-
trúadeildarþingmaðurinn í Washing-
ton og formaður hinnar mikilvægu
íjárveitinganefndar. Þá bar skugga
fyrir sólu. Rosty var vændur um
spillingu og honum stefnt fyrir svik
og pretti. Alls eru ákæruatriðin 17
og á hann þar á meðal að hafa gerst
svo bíræfinn að kría út frímerkjar-
isnu sína í reiðufé. Michael Flanag-
an er frambjóðandi repúblikana og
þekkja hann fæstir. Flanagan hafði
síðast þegar fréttist tekist að öngla
saman 10.000 dollurum, sem duga
til að prenta nokkra kosningabækl-
inga, en hvergi nærri til að koma
honum að í útvarpi og sjónvarpi.
► MASSACHUSETTS: Um skeið
virtist Mitt Romney, hinn fullkomni
fjölskyldufaðir, ætla að steypa af
stalli einum helsta fánabera demó-
krata, Ted Kennedy. En síðasti
Kennedy-bróðirinn er hættur að
drekka, hamingjusamlega giftur (að
því er virðist) og hann hefur rokið
fram úr Romney í skoðanakönnun-
um. Romney hyggst reyna að hrifsa
frumkvæðið á nýjan leik með hálfrar
klukkustundar löngum sjónvarps-
auglýsingum síðustu dagana fyrir
kosningarnar en er sennilega orðinn
of seinn.
Tom Foley
MEISÖUUBÓK
UM ALLAN HEIM
f æst i næstu
bókabúö
Villtir svanir er í senn kvennasaga, fjölskyldusaga og
mannkynssaga. Höfundurinn, Jung Chang-, segir hér
sögu fjölskyldu sinnar frá sjónarhóli þriggja kynslóða
kvenna; sjálfrar sín, móður sinnar og ömmu.
Lesandinn fær hér ómetanlega og óvenjulega innsýn
í sögu Kína á þessari öld - en um leið er þetta
nærfærin og áhrifamikil lýsing á örlögum einstaklinga
sem urðu fórnarlömb maóismans. Villtir svanir er saga
um mannlega reisn, hetjuskap og fegurð í miðri
vargöldinni.
Bókin hefur farið sigurför um öll Vesturlönd frá því
hún kom út árið 1991 og hefur trónað á toppi
metsölulista víða um lönd undanfarin misseri.
Gagnrýnendur hafa hlaðið bókina lofi og jafnað henni
við sögulegar skáldsögur eins og þær gerast bestar -
nema hér er hvert orð dagsatt.
Hjörleifur Sveinbjörnsson íslenskaði.
■ - o R L A G 1 O
M A L O G IVI 1 f\l ISI 1 ISI G