Morgunblaðið - 09.11.1994, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIE)
MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1994 5
! ð ð r á í: t i k s r íi d s> ft i ! d í ) i í í r j> j Ó ö í: íékasdfrtiö |
Pjóðin þarf bækur!
túdentar við Háskóla íslands hafa
ákveðið að efna til sérstaks átaks
til að efla bókakost hins nýja
þjóðbókasafns, Landsbókasafns
íslands - Háskólabókasafns, sem opnað
verður í Þjóðarbókhlöðu 1. desember
næstkomandi. Það hefur stórkostlega
þýðingu fyrir þjóðina og eflingu vísinda og
menningar á Islandi að höfuðbókasafn þjóðarinnar
sé sem best búið að öllu leyti. Mikilvægustu
auðlindir íslendinga í samfélagi þjóðanna
eru menntun og þekking. Stúdentar
heita á þjóðina, einstaklinga, fyrirtæki
og félög, sem og vini Háskólans heima
og erlendis, að láta eitthvert fé af hendi
rakna í sjóð, sem varið verði til kaupa á
ritum fyrir safnið. Við undirrituð styðjum
heilshugar átak stúdenta og stofnun þjóðbókasjóðs.
S á sjóður mun b era ómetanlegan áv öxt.
/O
—
Benedikt Davíðsson
forseti Alþýðusambands Islands
Einar Sigurðsson
landsbókavörður
Finnbogi GuðmundSson
fyrrverandi landsbókavörður
Vigdís Finnbogádóttir
forseti íslands
Gylfí Þ. Gíslason
prófessor
Sigurður Líndal
prófessor
Ingibjörg Haraldsdóttir
formaður Rithöfundasambandsins
Jóhannes Nordal
formaður stjórnar Landsbókasafns Islands
Háskólabókasafns
Sveinbjörn Björnsson
rektor Háskóla Islands
Vésteinn Ólason
prófessor
GuðmunduriMagnússon
prófessor
Guðrún Agnarsdóttir
Iceknir
/l-'W SUd fii
Jón Sveinbjöri
jornsson
prófessor
Þorsteinn I. Sigfússon
prófessor
Sigmundur Gúðbjarnas
prófessor
jarnasón
'OfetOmv
^OoifQ
Þórarinn V. Þórarinsson
framkvœmdastjóri Vinnuveitendasambands Islands
7”
Gunnar G. Schram
prófessor
Sigríður Dúna Kristmundsdóttir
dósent
Þórólfur Þórlindsson
prófessor
Fjárfestum í framtíð okkar allra!
Fyrirtæki geta stutt þjóðarátak stúdenta með beinum framlögum eða með því að
„taka í fóstur“ tímarit að eigin vali og kosta áskrift þeirra í nokkur ár.
Fóstruð tímarit verða merkt gefendum sínum í safninu.
Framlög í þjóðbókasjóð stádenta stuðla að uppbyggingu þjóðbókasafnsins, sem nýtast mun
stúdentum, fræðimönnum, rannsóknastofnunum, fyrirtækjum og almenningi um allt land.
lelkiHitffiiáHtff kjóébékifjéðt ítéimi* tr 1119% * Ua4f banka Íflauáf, Vfftnrbæjarótibói
ÍlDI
Landsbanki
íslands
v. EJ
1
Stúdentaráð Háskóla íslands
®BÚNAÐARBANKINN
- Traiulur Imnki
f
KRAFTAVERK