Morgunblaðið - 09.11.1994, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 09.11.1994, Blaðsíða 8
8 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Það er ekki ég, það ert þú sem átt að segja af þér. Þú ert meiri skúrkur en ég . . . Hrafn Gunnlaugsson á faraldsfæti með Hin helgu vé Þátttaka á þremur kvik- myndahátíðum framundan HIN helgu vé, mynd Hrafns Gunn- laugssonar, hlaut fyrstu verðlaun í Norrænu kvikmyndasamkeppn- inni á sunnudaginn. Hrafn er. nú á leið á kvikmyndahátíðir í Puerto Rico, á írlandi og Indlandi þar sem hann mun kynna mynd sína. Norrænu kvikmyndaverðlaunin sem afhent voru í 36. sinn síðast- liðið sunnudagskvöld hafa aldrei fallið íslendingi í skaut áður og segir Hrafn mikinn heiður að verð- laununum. „Þarna er verið að sýna bestu myndir Norðurlandanna og það því ákaflega skemmtilegt að fá þessi verðlaun, þetta er alvöru- kvikmyndahátíð og í dómnefnd sat virt fólk á þessu sviði,“ sagði Hrafn. Mynd hans, Hin helgu vé, keppti við hlið Bíódaga Friðriks Þórs Friðrikssonar sem fékk sér- stök verðlaun á hátíðinni. í umsögn dómnefndar um myndina segir að leikstjóranum hafi tekist á listrænan hátt og með sérlega knöppu formi að sýna mikilvægt tímaskeið í lífi drengs og af þvflíkum krafti börn geti beitt sér verði þau fyrir vonbrigð- um. Vinnur sér sess Hin helgu vé hlaut fyrr á árinu fem af aðalverðlaununum á kvik- myndahátíð í Portúgal. „Myndin hefur verið að vinna sér sess er- lendis og minnir mig dálítið á aðra mynd mína, „Hrafninn flýgur", sem ekki var sérlega vel tekið hér á landi þegar ég frumsýndi hana. Það var ekki fyrr en hún hafði sópað til sín verðlaunum í útlönd- um sem hún tók flugið hér heima en þá sýndi ég hana aftur við ágæta aðsókn. Menn voru að spauga með að ég hefði átt að frumsýna myndina ári síðar.“ Hrafn heldur utan til Puerto Rico eftir næstu helgi þar sem honum hefur verið boðið að sýna Hin helgu vé. Þaðan liggur leiðin til Dyflinar í írlandi og loks er afráðið að hann mun einnig taka þátt í kvikmyndahátíð í Bombay á Indlandi en þar verður hún ein af aðalmyndum hátíðarinnar. Hrafn verður því á faraldsfæti með mynd sína fram undir jól. „Þetta tekur mikinn tíma og kost- ar mikið fé, þannig að vissulega kemur verðlaunaféð sér vel,“ sagði hann en Hrafn fékk um eina millj- ón króna í verðlaun á Norrænu kvikmyndahátíðinni í Liibeck. „Þetta verður líka vonandi ágætis landkynning.“ Félag um glasafrjóvgun stofnað Mikilvægt að fá hingað tæki til að frysta fósturvísa Jóhanna Stella Bald- vinsdóttir NOKKRAR konur sem farið hafa í glasa- frjóvgun hérlendis hafa ákveðið að stofna félag þeirra sem þurfa á glasafijóvg- un að halda. í forystu fyrir undirbúningshóp væntanlegs félags er Jóhanna Stella Bald- vinsdóttir, en með henni starfa Svanhvít Þráinsdóttir, Hallveig Sigurðardóttir, Margrét Jó- hannsdóttir og fleiri. Tilgangur félagsins er að veita fólki sem bíður eftir að komast í aðgerð stuðning og fræðslu og eins að stuðla að því að aðstaða glasafijóvgunardeildarinnar verði bætt. „Félagið er hugsað sem eins konar stuðningshópur fyrir þá sem eru á biðlista eftir glasa- fijóvgun og eins fyrir þá sem hafa farið í glasafijóvgun án þess að fjóvgun hafi tekist. Við ætlum að beita okkur fyr- ir því að glasafijóvgunardeildin verði stækkuð. Það er mjög brýnt að deildin fái stærra húsnæði. Núverandi húsnæði deildarinnar er aðeins 70 fermetrar og er alger- lega óviðunandi fyrir þá miklu starfsemi sem þar fer fram. Mikið vantar einnig upp á að tækjabúnaður deildarinnar sé við- unandi. Það er algert forgangsmál að fá til lándsins frysti til að frysta fósturvísa. Væri hann til staðar væri hægt að flölga aðgerðum verulega og þar með stytta biðlist- ann. í um helming glasafijóvgun- araðgerða hér á landi eru afgangs fósturvísar sem er hent í stað þess að frysta þá og nota þá síðar í aðra aðgerð. Fyrir hveija aðgerð þarf konan að ganga í gegnum margra vikna dýra og erfíða sprautumeðferð, sem væri hægt að komast hjá ef hægt væri að frysta fósturvísa. Hver sprautu- meðferð kostar í kringum 40 þús- und krónur. Tækið kæmi því til með að spara umtalsverða fjár- muni.“ Hvað kostar þetta tæki? „Það kostar í kringum tvær milljónir króna. Félagið kemur til með að standa fyrir fjársöfnun svo að hægt sé að kaupa tækið. Við höfum stofnað reikning hjá Spari- sjóði Vélstjóra í þessu skyni. Núm- erið á reikningnum er 1175-05- 600900. Smá og stór framlög eru vel þegin. Við vonum að um leið og tækið kemur stækki deildin." Væri hægt að gera fleiri aðgerð- ir ef fósturvísafrystir- inn væri til? „Já, það er ekkert vafamál. Ég get tekið sjálfan mig sem dæmi. Eg er á biðlista eftir annarri aðgerð og kemst væntanlega að aftur 1996. Ef þetta tæki væri til þyrfti ég ekki að bíða svona lengi.“ Hvenær verður félagið stofnað? „Það verður gert mjög fljótlega. Fundurinn hefur enn ekki verið dagsettur. I framhaldi af stofn- fundi ætlum við að halda fund með aðstandendum. Við höfum orðið vör við að þeir gera sér oft ekki grein fyrir hvað glasafijóvgun er. Þeir vita t.d. ekki hvað fólk er búið að ganga í gegnum áður en það fer í meðferð. Við höfum hugsað þetta þannig að stofnaðir verði smærri hópar innan félagsins til að fjalla um ýmis mál. Það verður að hafa í huga að fólk, sem tengist glasa- fijóvgun, er á svo misjöfnum stig- um. Sumir eru búnir að fara og eiga sín böm, aðrir eru í meðferð og enn aðrir bíða. Biðin er oft erf- ið. Margir mikla þetta fyrir sér og halda að þetta sé meira mál en ► Jóhanna Stella Baldvinsdóttir er 28 ára gömul, verslunarmað- ur. Hún og maður hennar, Þór- arinn Halldórsson, eignuðust stúlku í desember á síðasta ári með t\jálp glasafrjóvgunardeild- ar Landspítalans. Þau hafa ákveðið að gera aðra tilraun til að eignast barn og eru á biðlista þjá deildinni. Þau munu væntan- lega komast að aftur árið 1996. þetta er. Síðan er allstór hópur sem enn hefur ekki tekist að eignast böm. Þetta er líka þannig hugsað að við sem höfum gengið í gegnum þetta veitum þeim sem bíða stuðn- ing og fræðslu." Nú fórst þú í aðgerð hjá glasa- fijóvgunardeildinni á síðasta ári. Fannst þú fyrir því að það vantaði stuðning fyrir þá sem fara í gegn- um aðgerð? „Já, þetta gekk ir\jög vel hjá mér, en það komu tímabil þar sem hefði verið gott að hafa einhvern til að spjalla við og fá uppörvun. Þessi hugmynd að stofna félag var að bijótast í mér meðan ég var í meðferðinni og meðan ég var ólétt.“ Hvað eru margir á biðlista í dag? „Það eru yfir 500 pör sem bíða eftir með gerð. Þannig að samtals era þetta yfir 1.000 manns. Þetta er einn lengsti biðlisti í heilbrigðis- kerfinu. Auk þess er stór hópur fólks sem fær ekki að fara á bið- lista vegna þess að glasafijóvgun- ardeildin hefur ekki aðstöðu né tæki til að hjálpa því.“ Hvað eru gerðar margar aðgerðir á ári? „Um 250 aðgerðir hafa verið gerðar á ári. í dag hafa um 200 böm fæðst eftir að foreldrar þeirra gengu í gegnum glasafijóvgun." Hvað þurfa konur að bíða lengi eftir að komast í aðgerð? „Það er um tvö og hálft ár.“ Eru uppi áform um að bæta húsnæðismál deildarinnar? „Það hafa verið uppi áform um það, m.a. að deildin fari I kjallar- ann þar sem mæðraskoðunin er í dag. En breytingar á þessu sviði ganga hægt fyrir sig og þetta hef- ur setið á hakanum, of lengi að okkar áliti.“ Hvernig hafa viðtökur verið við hugmyndum ykkar um þessa fé- lagsstofnun? „Mjög góðar. Ég hef fengið mik- ið af upphringingum sérstaklega frá fólki utan að landi. Það fólk hefur verið dálítið útundan og ekki fengið nægilegan stuðning. Það þarf oft líka að bera meiri kostnað en aðrir vegna ferða og húsnæðis." Yfir 200 glasabörn hafa fæðst hér á landi ■ V

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.