Morgunblaðið - 09.11.1994, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 09.11.1994, Blaðsíða 44
44 MIÐVIKUDAGUR 9. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ 'Jú Sýnd kl. 9 og 11.05 Bönnuð innan 16 ára. ÞAÐ GÆTI HENT ÞIG Það gæti hent þig að vinna helgarferð með Flugleiðum til New York með gistingu á hinu stórglæsilega Plaza-hóteli. Það eina, sem þú þarft að gera, er að svara tveimur laufléttum spurningum og skila þeim í afgreiðslu Stjörnubíós fyrir 13. nóvember. Þá kemst þú í vinn- ingspott sem dregið verður úr á Bylgjunni i beinni útsendingu þann 15. nóvember 1994. Svarseðilinn færðu þegar þú kaupir miða á myndina. Svarseðilinn færðu þegar þú kaupir miða á myndina. STJÖRNUBÍÓLÍNAN SÍMI 991065 Taktu þátt í spennandi kvikmyndagetraun. Verðlaun: Boðsmiðar á myndir í Stjörnubiói og „It could happen to you" filofax. Sýnd kl. 5. KR. 800,- F. FULLORÐNA KR. 500,- F. BÖRN FLUGLEIDIR Tmustur hlemkur frrðnfclayi Verð kr. 39.90 mínútan Já, það gæti hent þig, því þessi ótrúlega gamanmynd er byggð á raunverulegum atburðum. Lögga á ekki fyrir þjórfé en lofar gengilbeinunni að koma með það daginn eftir eða þá að skipta með henni lottóvinningnum sínum... ef svo ólíklega færi að hann fengi vinning. En viti menn, hann vinnur og það enga smáaura, heldur fjórar milljónir dala! Aðalhlutverk: Nicolas Cage, Bridget Fonda, Rosie Perez og Stanley Tucci. Leikstjóri: Andrew Bergman („The Freshman", „Floneymoon In Vegas"). Sýnd kl. 5, 7, 9 og 11. GETRAUN Faðir frá helvíti ► FLESTIR þeklga grínistann Rodney Dangerfield úr gaman- myndum á borð við „Back to Scho- ol“ og „Caddyshack". Það brá því nýrra við þegar Dangerfield var fenginn til að leika algjöran skúrk í umdeildri mynd Olivers Stones „Natural Born Killers". Dangerfield segist ekki hafa sóst eftir hlutverkinu og varla hafa séð nokkra af myndum Oli- vers Stones: „Oliver hringdi í mig og ég sem þekki ekki einu sinni myndirnar hans. Eg er allur í skemmtanabransanum. En hann hrósaði mér í hástert og vildi ólm- ur fá mig í þessa mynd sína og mér fannst ég allt í einu vera fyrsta flokks leikari. Ég fékk aldr- ei neitt handrit upp í hendurnar eða neitt þvíumlíkt. Það eina sem Oliver sagði var að ég ætti að leika pabbann frá helvíti og við þvx varð ég. Það var ég sem skáldaði upp allt það ógeðslega sem ég segi í myndinni og er virkilega vondur karl. Ég á skilið að vera drepinn!" Þrátt fyrir góða dóma fyrir leik sinn í hlutverki vonda karlsins hefur Dangerfield ekki í hyggju að leggja skúrkahlutverk fyrir sig í framtíðinni. GKÍ&3J Faxafeni 12. Sími 38 000 DU PONT bílalakk notað fagmönnum um land allt. Er bfllinn þinn grjótbarinn eða rispaður ? DU PONT lakk á áðabrúsa er meðfærilegt og endingargott. Costner stendur í skilnaði ► LEIKARINN vinsæli Kevin Costner og eiginkona hans Cindy eru að skilja eftir sextán ára hjónaband. Þau gáfu út sameig- inlega yfirlýsingu í siðustu viku þar sem segir: „Þetta var ekki auðveld ákvörðun og fyrir hönd allrar fjölskyldunnar biðjum við um að fá að njóta þeirrar virðing- ar að leysa úr þessum sorglega kafla lífs okkar sjálf.“ Hjónin, sem voru ástvinir þegar í æsku, eiga þrjú börn. í yfirlýsingu þeirra segir ennfremur: „Við höfum í fullkominni sátt leyst allt hvað varðar börnin okkar og fjármálin og skilnaðarsam- komulag hefur náðst.“ KEVIN Costner með eiginkonu sinni og börnum þegar alit lék í lyndi hjá fjölskyldunni. ------» ♦■■■♦--- Tónleikar á Kringlu- kránni TRÍÓ Ólafs Stephensen leikur í kvöld, miðvikudaginn 9. nóvember, á Kringlunkránni og hefjast tónleik- amir kl. 22. Tríóið, sem er skipað þeim Tóm- asi R. Einarssyni, kontrabassaleik- ara, Guðmundi R. Einarssyni, trommuleikara, og hljómsveitar- stjóranum Ólafi Stephensen, sem leikur á píanó, leikur hefðbundinn jass frá fimmta og sjötta áratugn- um í bland við nýrri verk. Fyrstu fermingarbömin í hvítum kyrtlum FJÖRUTÍU ár eru liðin síðan ferm- ingarbörn klæddust fyrst hvítum kyrtlum. Meðfylgjandi mynd er tek- in í Dómkirkjunni af fyrstu börnun- um sem fermdust í „þessum nýja litlausa búningi" eins og segir í frétt Morgunblaðsins fyrir fjörutíu árum. Þar segir ennfremur: „... og er ekki ólíklegt að svo verði [að fermingar- börn klæðist hvítum kyrtlum] alls- staðar hér á landi í framtíðinni." Nína hin ástsjúka ÓPERUSTÚDÍÓ Eugeniu Ratti og Jóhönnu G. Möller flutti óper- una „Nína hin ástsjúka" í konsertformi í Hafnarborg föstudaginn 21 og laugardaginn 22. október við góðar undirtektir. Það var lokaþáttur námskeiðs sem staðið hafði frá 25. september. Þau sem tóku þátt í flutningnum voru, aftari röð frá vinstri: Sigurjón Jóhannesson, Sigurður Bernhöft, Krislján Valgarðsson og Álfheið- ur Anna Brekkan. í fremri röð frá vinstri: Þuríður Baxter, Aðal- heiður Magnúsdóttir, Díana ívarsdóttir og Erna Blöndal. Auk þess söng kvennakór undir stjórn Margrétar Pálmadóttur og undirleikari var Gunnlaugur Þór Briem. FOLK

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.