Morgunblaðið - 13.11.1994, Qupperneq 1
80 SIÐUR B/C
260.TBL.82.ÁRG. SUNNUDAGUR13. NÓVEMBER1994 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Bændum
fækkar
HAFNI Svíar aðild að Evr-
ópusambandinu, ESB, í dag
mun störfum í landbúnaði og
matvælaiðnaði fækka um
45.000 og tekjur bænda munu
minnka um samaniagt 75
milljarða íslenskra króna.
Þetta er fullyrt í skýrslu frá
sænsku bændasamtökunum.
Niðurstaðan gengur þvert á
skoðanir norskra bændasam-
taka þar sem aðstæður eru
um margt svipaðar.
Gert er ráð fyrir þvi í for-
sendunum að verði niðurstað-
an í dag nei muni sænsk
stjórnvöld halda áfram að
draga úr niðurgreiðslum.
Býðst annað
tækifæri?
KANNANIR hafa sýnt að
stuðningsmenn og andstæð-
ingar ESB-aðildar eru álika
margir í Svíþjóð. Könnun
SKOP-stofnunarinnar í vik-
unni gaf hins vegar tii kynna
að 74% Svía teldu að þótt
aðild yrði felid í dag myndu
Svíar verða gengnir í sam-
bandið innan fjögurra ára.
Mikið hringt
ÞÓTT fjölmiðlar hafi verið
fullir af upplýsingum um
ESB undanfarin tvö ár í Sví-
þjóð hafa alls um 2.000
manns hringt daglega að
undanförnu í opinbera upp-
lýsingaþjónustu og tvær aðr-
ar stofnanir af sama toga.
Síðustu daga hefur mest
verið spurt um það hvort
landið gæti sagt sig úr sam-
bandinu. Svarið er að skýrar
reglur gildi ekki um úrsögn
en Jjóst að vilji einhver kom-
ast út muni hin löndin ekki
reyna að hindra það.
Unga fólkið
tortryggið
SVENSKA Dagbladet skýrði
frá því í gær að hópur ungl-
inga frá aðildarríkjum ESB
hefði undanfarið ferðast um
Svíþjóð tii að ræða við jafn-
aidra sína. Alit gestanna er
að sænskir unglingar haldi
að búðirnar muni fyllast af
lélegum mat ef landið gangi
i sambandið, eiturlyf flæða
inn og jafnframt að þýskir
hommar bíði eftir því að kom-
ast til Svíþjóðar til að stunda
þar saurlifnað.
Embættismenn í Brussel um þjóðaratkvæðagreiðsluna í Svíþjóð
Yerði svar kjósenda nei munu
Frakkar og Þjóðverjar reyna að efla
hugmyndir um „harðan kjarna“
Hefur mikil
áhrif á þróun
Evrópumála
Brussel. Reuter.
TALIÐ er að úrslit þjóðaratkvæð-
isins í Svíþjóð í dag um aðild að
Evrópusambandinu, ESB, geti
haft mikil áhrif á framtíðarþróun
sambandsins og Evrópumála.
Hafni Svíar aðildinni muni það
verða til þess að efla þá í aðildar-
ríkjunum sem vilja fara sér hægt
í samrunaþróuninni. Á hinn bóg-
inn muni ráðamenn Frakka og
Þjóðveija, sem flestir eru á því
að koma sem fyrst á einingu í
efnahags-, mynt- og stjórnmál-
um, leggja áherslu á að halda
fast við slíkar áætlanir án þátt-
töku allra þjóðanna, að sögn
ónefnds embættismanns í Bruss-
el.
„Segi Svíar nei mun það styrkja
efasemdarmenn í Danmörku og
sennilega einnig í Bretlandi, þetta
myndi takmarka athafnafrelsi
stjórnvalda í löndunum tveim,“
sagði hann og taldi að hugmyndir
um harðan kjarna nokkurra ríkja
sem vildu flýta samruna myndu
eflast.
Embættismenn í Brussel telja
að samþykki Svíar aftur á móti
aðild verði það til að styrkja nor-
ræna ríkjablokk sem muni þrýsta
á um að reglur í umhverfismálum,
heilbrigðismálum og öryggismál-
um verði hertar, einnig að félags-
leg réttindi verði aukin og jafn-
rétti eflt.
Gegn félagsmála-
undanþágum
Auk þess muni þessi lönd stuðla
að því að ákvarðanir í ESB verði
í meira mæli en hingað til teknar
fyrir opnum tjöldum. Talið er að
þau muni beijast gegn því á fyrir-
hugaðri ríkjaráðstefnu um fram-
Æ fleiri Svíar vantrúaðir á
að aðildin verði samþykkt
Kaupmannahöfn. Morgunblaðið.
SKOÐANAKANNANIR standa
glöggt og trú Svía á að aðild að
Evrópusambandinu, ESB, verði
samþykkt hefur hraðminnkað
undanfarnar vikur. I síðustu sjón-
varpsumræðunum, sem fram fóru
á föstudagskvöld, var ekki liægt
að segja að annar aðilinn kæmi
betur út en hinn.
Meðal þeirra sem beitt hafa sér
gegn aðild er barnabókahöfundur-
inn Astrid Lindgren og í dag fæst
úr því skorið hvort hún og skoðana-
systkin hennar eigi greiðari leið að
hjarta Svía en Ingvar Carlsson for-
sætisráðheiTa og fleiri ráðamenn.
Fari svo að munurinn verði mjög
lítill gætu menn þurft að bíða fram
á miðvikudag eftir endanlegum
úrslitum.
Af fimm skoðanakönnunum
sem birtar voru í gær sýndu þijár
3-4% forskot stuðningsmanna, ein
sýndi jafntefli, sú fimmta 2% for-
skot andstæðinga. Um leið var
birt könnun sem sýnir að nú trúa
aðeins 56% Svía á að aðildin haf-
ist í gegn í dag. Um síðustu mán-
aðamót var hlutfallið hins vegar
71%.
Þessi niðurstaða gæti haft slæm
áhrif á stöðu stuðningsmanna að-
ildar þar sem hikandi kjósendur
hneigjast oft til að styðja þann sem
fyrirfram virðist vera sterkari í
þjóðaratkvæði. Á móti kemur að
þessi vísbending gæti einnig hvatt
fólk til að mæta á kjörstað og
gæti það orðið stuðningsmönnum
til hagsbóta því að meðal andstæð-
inga er minni áhugi á málinu.
tíðarskipulag sambandsins er
hefst 1996 að einstök aðildarríki
geti fengið undanþágur frá félags-
málastefnu sambandsins eins og
Bretar fengu þegar Maastricht-
sáttmálinn um aukinn samruna
var samþykktur.
Spá andláti EES
Gert er ráð fyrir að Svíar muni-
reyna að fá stuðning við sameigin-
legar aðgerðir gegn fíkniefnum
og glæpum, einnig beijast fyrir
að tengsl við Eystrasaltsríkin þijú
verði efld.
Embættismenn hjá ESB sem
fréttamenn Reuters ræddu við
sögðu ennfremur inngöngu Svía
merkja að Evrópska efnahags-
svæðið, EES, myndi deyja drottni
sínum.
■ Sjáifstraust eða torti-yggni/16
Svenska Dagbladet
SKOKKARI í Stokkhólmi á leið fram hjá áróðursspjaldi stuðn-
ingsmanna ESB-aðildar Svía. Kannanir gefa til kynna að mjög
naumt verði á mununum í þjóðaratkvæðinu í dag.
ROFIN TENGSL
Viðurkenningar
daglegt brauð
EGGOGFLESK
VIDSKIPTI/ ATVINNULÍF
A SUNNUDEGI
I