Morgunblaðið - 13.11.1994, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 13.11.1994, Blaðsíða 34
34 SUNNUDAGUR 13. NÓVEMBER 1994 MORGUNBLAÐIÐ Ljóska 1/Eisru AFHveanj ée a? I SdO BOmA&RBKA þlG?\ AF þvi /vié£ þitafi si/o I Gmiau að srA neiMA ae> XO/MA þéR ÖR þ£SS UAA Áj HEI/hskvlego kupumsem L “ 'Pú KevoK, þe& ’ YAU-TAFI/ ] 06 vmsrþú AFffi/Ejtjv ás ©e EKKJ L&N6U BÚlfJN AB £EGM UPP?J VE6M ÞES6,AÐþAO KXJSi Altö MJOGpÐ S7A 6UFO- AAÓKJONN ÖTÖft EJEONU/U 'A þ&Z Þesar. þoy£K£> Tm FJÓLUBlAR !FÞAlAAN AFÆSlNGl t. rr ©KFS/Distr. BULLS , HÓFFUMIT i twsu VÍ£> ÞAf>.. VIÐBRUM SNIPNIR ^.-.^FWZtR HVOPH Ferdinand Smáfólk Viltu gjöra svo vel að halda á tepokanum... BREF TDL BLAÐSINS Kringlan 1103 Reykjavík • Sími 691100 • Símbréf 691329 Islensk ættfræði Frá Auðunni Braga Sveinssyni: NÝKOMIÐ er úr prentun ritið ís- iensk ættfræði, sem einnig ber heitið Icelandic Genealogy. Rit þetta hefur Kristín H. Pétursdóttir bókasafns- fræðingur, bókavörður og fyrrum bókafulltrúi ríkisins tekið saman. Er það hið myndarlegasta að ytri og innri búningi, alls 454 blaðsíður. Fátt er mynda í riti þessu. Nafna- skrá yfir aðalpersónur þær, sem fjall- að er um í ritum þeim, sem tekin eru til meðferðar, er í lok ritsins og telur um 60 blaðsíður. Fljótlega eftir að ég eignaðist rit- ið, tók ég að blaða í því. Eins og við er að búast, þegar um frumútgáfu er að ræða, eru hér ekki öll kurl komin til grafar. Ritið Faðir minn - bóndinn er þarna talið og innihalds getið vel og vandlega, en sleppt öðr- um bókum, sem heyra undir þessa ritröð, eins Faðir minn - kennarinn og Faðir minn - presturinn og Faðir minn - læknirinn. Þetta er bagaleg gleymska, eða fínnst höfundi ef til vill, að ættir bænda beri fremur að tíunda en embættismanna? Ritsafna Gísta Kristjánssonar, ráðunauts og ritstjóra, Atján konur og Sextán konur, er ekki getið, en Móðir mín - húsfreyjan, sem kom út í þremur bindum, er þarna talin með, hið prýðilegasta verk. Ég bjóst við að sjá þarna getið ritsafnsins Bóndi er bústólpi, er kom út í sjö bindum og Guðmundur Jónsson, fyrrum skóla- stjóri á Hvanneyri, sá um. En það var ekki finnanlegt. Þar er þó að fínna, líkt og í þeim ritum, sem ég hefí talið upp og ekki er getið í rit- inu íslensk ættfræði, miklar ætt- fræðilegar upplýsingar. Hver eru rök til að ritum þessum er sleppt? Varla getur hugsast, að höfundurinn, sem er jafn handgenginn bókum og kunn- ugt er, hafi ekki vitað af þeim. Hvernig stendur á því, að ævi- sagnaritsins „Aldnir hafa orðið“, sem kom út í 18 bindum, er sleppt? Sá sem vann það stórvirki, var Erlingur Davíðsson ritstjóri og rithöfundur á Akureyri. Þarna er um að ræða mikla námu persónulegra upplýsinga um fólk af öllu landinu. í eigu margra, óhætt að segja. Ekki sá ég þarna getið um „Nýjar kvöldvökur", nýjan flokk, sem út var gefinn á Akureyri 1960 til 1962, og birti allmarga ættfræðiþætti, og voru raunar hugsaðar sem ættfræðirit. Ég sá eftir því riti, er það hætti út- komu. Að því stóðu fræðimenn á sviði ættfræði, eins og Einar Bjarna- son, sá eini sem gegnt hefur prófess- orsembætti í ættfræði hérlendis. Þá er „Andvara" hvergi getið þama, en í honum hafa birst margar ævisögur og ættir manna raktar talsvert. Vera má, að höfundurnn hafí sleppt riti þessu, vegna þess að megnið af ævisögunum hefur birst í ritröðinni „Merkir Islendingar I og II“. Ævisögur eins og „Myndir dag- anna I—III“, eftir séra Svein Víking „Minningar" Huldu Á. Stefánsdótt- ur, einnig minningabækur Óskars Clausen, eru náma persónusögu og ættfræði, og hefði_ þess vegna vel mátt geta þeirra. Ég nefni rit þessi sem dæmi. Meira mun ég ekki nefna að sinni. Hér er þó um merkt rit að ræða, sem þörf var á. Á einni stað hefur ekki fyrr verið safnað jafn heildstæðum fróðleik um ættfræðiheimildir. Rit sem þetta verður að sjálfsögðu gefið út á ný, og þá endurbætt. Frum- kvæði Kristínar Hólmfríðar Péturs- dóttur ber að meta að verðleikum. AUÐUNN BRAGI SVEINSSON, félagi í Ættfræðifélaginu, Hjarðarhaga 28, Reykjavík. Trommutónleikar eða handbolti? (Hugleiðingar að leikslokum í Smára.) Frá Jóni Steinari Jónssyni: ERU HANDBOLTALEIKIR ætlaðir heymarskertu fólki og/eða þeim sem vilja verða skertir á heym? Þar sem „hljóðfæraleikararnir" sem tróðu upp á landsleik íslendinga og Dana í nýja íþróttahúsinu í Kópvavogi sl. fimmtudagskvöld voru ekki fjarlægð- ir eða afkjuðaðir er mér nær að halda að svo sé. Það ríkti mikil stemmning í íþróttahúsinu Smára þetta kvöld fyr- ir vígsluleikinn. Vörpulegir handbol- takappar stóðu teinréttir og þjóð- söngvar þjóðanna hljómuðu frábær- iega í flutningi skólakórs Kársnes- skóla. Áhorfendabekkirnir þéttsetnir. Flauta dómarans gall við og... þar með byijaði trommukonsertinn. Þrír menn með stórar, hljómmiklar trommur og áiíka marga kjuða af stærri gerðinni höfðu komið sér fyrir á áhorfendabekkjunum og var greini- lega mikið í mun að leyfa okkur hin- um, sem vorum komin til að horfa á handbolta, að njóta tónlistarhæfi- leika sinna. Mér var ekki kunnugt um að þarna ættu að fara fram klukkustundarlangur trommukon- sert og ég hafði alls ekki keypt mig inn á slíka uppákomu. En ég var þess heiðurs aðnjótandi að sitja í svo sem þriggja metra fjarlægð frá „hljóðfæraleikurunum" og gat því greint öll hárfín stílbrögð í leik þeirra. Eftir nokkurra mínútna leik var ég þó orðinn meira upptekinn af því að halda fyrir eyrun en nokk- urn tímann að reyna að greina þessi stílbrögð, hvað þá að fylgjast með handboltanum, en það var nú aðal- erindi mitt í Smára þetta kvöld. Ég bað nú og vonaði að „hljóðfæraleik- ararnir“ færu að þreytast eða verkja í eyrun eins og mig. En á þeim sást enginn bilbugur. Ég sá mér því þann kost vænstan að flýja og koma mér fyrir í síðari hálfleik eins langt í burtu frá þessum óþreytanlegu „hljóðfæraleikurum" og mér var auð- ið. Það hlýtur að vera krafa okkar sem erum svo lánsöm að vera ekki heymarskert að geta komið á völlinn og fylgst með jafn frábærum hand- bolta og spilaður er á íslandi án þess að verða útsett fyrir hávaðamengun á háu stigi eins og veruiegur hluti áhorfenda í Smára varð fyrir þetta kvöld. JÓN STEINAR JÓNSSON, heilsugæslulæknir.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.