Morgunblaðið - 30.11.1994, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 30.11.1994, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994 3 Það eru engar ýkjur að segja, að margt hafi drifið á daga dr. Karls Kortssonar. Hann komst til þroska í Þýskalandi Hitlers, lauk þar námi í dýralœkningum og var liðsforingi í dýralœkningasveitum þýska hersins 1940-45 á vígstöðvum víðsvegar í Evrópu. Þar beið dauðinn við hvert fótmál, en þó gáfust tœkifœri til að eiga samskipti við hið veika kyn. Sagan afástum dr. Karls og hinnar rússnesku Nínu er ógleymanleg. Sjálfur segir dr. Karl: „Ég er vinur kvenna og dýra, því að þessar lífverur þurfa mikla umhyggju og hlýju." Árið 1950 fluttist dr. Karl til íslands ásamt fjölskyldu sinni og var héraðsdýralœknir á Hellu í 35 ár við góðan orðstír. „Ætlar þú að drepa mig, lógguhundur“ „Það gceti verið að ég kaupi Olis í hádeginu“ Kristján Pétursson var einn þekktasti löggœslumaður landsins um árabil. Hér segir hann m.a. frá nokkrum sakamálum, sem ekki hefur verið fjallað um opinberlega áður. Kristján greinir einnig frá ýmsum spaugilegum og eftirminnilegum atvikum, sem gerðust á Keflavíkurflugvelli, þegar hann starfaði þar sem lögreglumaður og deildarstjóri í tollgœslunni. Síðast, en ekki síst, fjallar Kristján um það, sem miður fór í dómskerfinu. Hann og samstarfsmenn hans þóttu of duglegir við að upplýsa sakamál og vegna þess urðu þeir fyrir aðkasti af hálfu dómsyfirvalda og ýmissa fjölmiðla. Nafn Óla Kr. Sigurðssonar komst á hvers manns varir árið 1986 þegar hann keypti öllum að óvörum Olíuverslun íslands. Hann varð strax þekktur sem Óli í Olís og mjög umtalaður í íslensku samfélagi. Þetta er sagan um prentarann og Þróttarann af Hagamelnum sem gerði kaup aldarinnar og háði hatramma baráttu fyrir tilveru fýrirtœkis síns og hafði sigur en féll sjálfur í valinn langt fyrir aldur fram. Litríkur og œvintýralegur œviferill ofurhuga, allt frá bernsku til dauðadags, byggður á viðtölum við fjölda œttingja, vina og samstarfsmanna. Margar sögur spunnust um þennan mikla athafnamann í lifanda lífi. Hvað var satt og hvað var skáldskapur? í nóvember árið 1991 lagði hópur félaga í Heimsklúbbi Ingólfs upp í ferð til Suður-Afríku. Á ferðalaginu hreifst einn ferðafélagana, Margrét Margeirsdóttir, svo aflandi og þjóð að hún ákvað að veita fleirum hlutdeild í þessari ævintýraferð. í þessari bók er að finna ferðasögu Margrétar að viðbœttum sögulegum fróðleik um þetta stórbrotna land sem við íslendingar höfum hingað til fengið allt of einhliða mynd af í gegnum fjölmiðla. Aðrar myndir hafa fallið í skuggann, svo sem hin mikla náttúrufegurð landsins, gróður og dýralíf sem vart á sér hliðstœðu annars staðar á jörðinni. Þessi bók, með texta sínum og hundruðum litmynda, á eftir að opna nýja sýn til Suður-Afríku. ÁRMÚLA23 SÍMI 91-882400 *FAX 888994 AFGREIÐSLA Á AKUREYRI: FURUVELLIR 13 * SÍMI 96-24024 _r?íi vÍMYDllunj sílíh?? ílí sízilíj ISkjaldborg
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.