Morgunblaðið - 30.11.1994, Qupperneq 10
10 MIÐVIKUDAGUR 30. NÓVEMBER 1994
MORGUNBLAÐIÐ
Þjófahylur í Gljúfurá.
Franskur stuðn-
ingur við Orra
FRANSKA ríkisstjórnin hefur nú
formlega lýst yfir stuðningi við
úthafskvótakaupanefnd Orra Vig-
fússonar, NASF. Það var tilkynnt
á blaðamannafundi í Frakklandi
nýlega. Samhliða að styðja við
bakið á NASF ætlar franska ríkið
að leggja háar fjárhæðir til upp-
byggingar laxastofna í Frakk-
landi, en fyrr á öldum gekk þar
lax í margar ár, ekki síst á Bretag-
neskaga og raunar víðar.
Netalagnir í sjó í ósamræmi
við verndun
Tvær ályktanir voru samþykkt-
ar á ársþingi Landssambands
stangaveiðifélaga fyrir
nokkru. Varðaði önnur
laxveiðar í sjó við
strendur landsins og
hin ágreining um Poka-
sjóð Landvemdar. í
fyrri ályktuninni er
skorað á landbúnaðar- __________
ráðherra að hann beiti
sér fyrir því að netalagnir til lax-
veiða í sjó verði keyptar upp eða
leigðar til upptöku nú þegar. „Hér
er fyrst og fremst átt við netalagn-
ir frá jörðunum Kúludalsá og
Innra-Hólmi við Hvalfjörð svo og
lagnir frá jörðunum Lambastöð-
um, Þursstöðum og Rauðanesi í
Borgarfirði. Veiðar þessar eru í
hróplegu ósamræmi við frum-
kvæði íslendinga að vemdun lax
í sjó, sem vakið hefur athygli á
alþj óðavettvangi. “
Háar fjárhæð
irtil uppbygg-
ingar laxa-
stofna í
Frakklandi
í hinni ályktuninni er harmaður
sá ágreiningur sem kominn er upp
um fjármögnun og verkefni Poka-
sjóðs Landverndar. „Aðalfundur-
inn skorar á stjórn Landverndar,
Kaupmannasamtökin, Samvinnu-
verslunina og Hagkaup að leita
leiða til að tryggja áframhaldandi
starfsemi Pokasjóðs Landvemdar,
þannig að verndun umhverfis
megi áfram njóta góðs af þessu
lofsverða átaki."
Stefnir í baráttu í
stjórnarkjöri í SVFR
Aðalfundur Stangaveiðifélags
Reykjavíkur var haldinn á Hótel
Loftleiðum á sunnudag. í stjóm-
arkjöri hlaut Friðrik Þ. Stefánsson
formaður rússneska kosningu tii
næsta árs. Hiti var hins_ vegar í
kjöri um sæti þeirra Ólafs H.
Olafssonar varaformanns, Krist-
jáns Guðjónssonar og
Þórólfs Halldórssonar.
Þeir náðu allir endur-
kjöri, en Magnús Jónas-
son umboðsmaður Orvis
á íslandi bauð sig einnig
fram. Beindist framboð
________ hans gegn Þórólfí Hall-
dórssyni, en óánægju
gætti með áframhaldandi setu
hans í stjóm, þar sem hann hefur
flutt til Patreksfjarðar og situr þar
nú sem sýslumaður. Töldu ýmsir
hann ekki í aðstöðu til að starfa
af þeim krafti sem nauðsynlegur
er vegna búsetu sinnar. Samþykkt
voru frávik frá auglýstri dagskrá
fundarins og opnuð var mælenda-
skrá áður en kjörið fór fram. Þar
tóku ýmsir til máls og féllu stór
orð. Það breytti þó engu um að
Þórólfur hélt velli.
Vesturbær - við sjávarsíðuna
Bráðhugguleg og skemmtilega endurnýjuð 4ra herb.
íbúð á 1. hæð í þríbýli við Sörlaskjól. Nýtt parket og
innréttingar. Hús í góðu standi. Ahvílandi 3,1 millj.
Verð 8,5 millj. Hún gæti farið fljótt þessi!
HÓLL, fasteignasala, sfmi 10090.
Grafarhoit - einbýli
við golfvöllinn
Vorum að fá í sölu um 250 fm húseign, auk 70 fm vinnu-
stofu á frábærum útsýnisstað í Grafarholti. Húsið skipt-
ist í stofur og 5 svefnh. Falleg ræktuð lóð. Einstakt
tækfæri fyrir golfara.
EIGNASALAN, Ingólfsstræti 12, s. 19540og 19191.
FRÉTTIR
íslensk sendinefnd kynnir sér þörf á
uPPbyggingu í Palestínu
Uggvænlegt
ástand skapast
á Gazasvæðinu
„ALLT SEM við teljum nauðsynlegt til að lifa er hér í lama-
sessi,“ sagði Þröstur Ólafsson, aðstoðarmaður utanríkisráð-
herra, er Morgunblaðið náði tali af honum í Palestínu, þar
sem hann var ásamt Magnúsi Péturssyni, ráðuneytisstjóra
í fjármálaráðuneyti, og Guðmundi Árnasyni, deildarstjóra í
forsætisráðuneyti.
Þegar Morgunblaðið náði tali
af Þresti í fyrrakvöld, hafði ís-
lenzka sendinefndin þá átt fundi
með ráðamönnum, þeirra á meðal
Hamal, aðalað-
stoðarmanni
Yassers Arafat;
næstæðsta yfir-
manni í ráðu-
neyti því sem fer
með uppbygg-
ingu á svæðinu;
borgarstjór-
anum í Gaza;
formanni félags
útgerðarmanna
og formanni _
verslunarráðs. í fyrradag átti
sendinefndin fund með fulltrúum
utanríkisráðuneytis ísraels og
kynnti fyrirætlanir Islendinga. Að
sögn Þrastar hafa allir viðmælend-
umir hafa reynst vinsamlegir og
jákvæðir í garð íslendinga.
92 milljónir frá fslandi
Þröstur sagði að ríkisstjórnin
hefði ákveðið að skipta þeim 92
milljónum, sem veija á til upp-
byggingar í Palestínu, þannig að
þriðjungur renni renni í gegnum
alþjóðlegar stofnanir til fjölþjóða-
aðstoðar. Afgangurinn renni til
aðila beint á svæðinu í gegnum
tvíhliða aðstoð. 10 milljónir hafa
runnið til verkefna ráðgjafastof-
unnar A1 Wadi, sem stofnsett var
af þremur íslenskum verkfræði-
stofum í samvinnu við arabíska
aðila. Engin ákvörðun liggur fyrir
um ráðstöfun þeirra 52 milljóna
sem eftir standa og verður hún
ekki tekin fyrr en sendinefndin
kemur heim. „Við höfum safnað
upplýsingum um það sem hefur
gengið þokkalega og það sem hef-
ur gengið illa. Þótt framlag okkar
sé ekki stórt verðum við að skoða
vandlega hvernig þessu verður
best varið.“
Tímasprengjan tifar
Að sögn Þrastar er mjög alvar-
legt ástand að skapast á Gaza
svæðinu og brýnt að aðstoð berist
sem fyrst. Þar er ekki hungur, en
skortur á flestu öðru. „Menn ótt-
ast að tímasprengjan sé að springa
í höndunum á þeim,“ sagði Þröst-
ur. „Kjör fólks hafa ekki batnað,
heldur þvert á móti hríðversnað
eftir að samkomulagið var undir-
ritað og heimastjórn komst á.“
Hann segir að ísraelsmenn hafa
svarað öllum hermdarverkum af
mikilli hörku og lokað landamær-
unum. Þannig hafí yfir 100 þúsund
verkamenn frá Gaza stundað
vinnu í Israel en nú fái um 10
þúsund manns að fara yfir og er
58% atvinnuleysi á Gaza.
í dag stendur til að sendinefnd-
in fari til fundar við borgarstjór-
ann í Nablush og yfirmann lög-
regluliðs Yassers Arafats í Jeríkó.
Tilgangurinn er að kynna sér
ástandið á Vesturbakkanum,
Nablush er palestínskt svæði en
undir ísraelsstjórn en Jeríkó er
undir heimastjórn.
Þröstur segir að þjóðir heims
hafí lofað aðstoð sem svarar um
700 milljónum bandaríkjadala en
af því hafa aðeins borist um 60
milljónir dala. Þeir fjármunir hafa
einkum farið til að halda uppi lög-
um og reglu á svæðinu. Ekki er
von um að úr rætist fyrr en meira
fjármagn berst til uppbyggingar,
að sögn Þrastar.
Þröstur
Ólafsson
21150-21370
LARUS Þ. VALDIWIARSSON. framkvæmdastjori
KRISTJAN KRISTJANSSON. loggiltur fasteignasali
Til sýnis og sölu - fjöldi annarra eigna á skrá:
Glæsileg eign - úrvalsstaður
Steinhús ein hæð 153,8 fm nettó v. Kvistaland. Innr. og tæki af bestu
gerð. Stór sólverönd. Góður bílsk. 46 fm. Tilboð óskast.
3ja herb. hæð í Þingholtunum
3. hæð um 90 fm sólrík. Nýtt parket, nýtt gler. Góð langtlán um
kr. 4,0 millj. Laus fljótlega.
Á vinsælum stöðum í Vesturborginni
Sólríkar 3ja og 4ra herb. íb. v. Meistaravelli og Hjarðarhaga. Tilboð
óskast. Vinsamlega leitið nánari upplýsinga.
í gamla, góða austurbænum
endurbyggö 3ja herb. jarðhæö (ekkert niðurgr.) í nágr. Landspítalans.
40 ára húsnlán kr. 3,1 millj. Frábær greiðslukjör. Tilboö óskast.
Skammt frá Vesturbæjarskóla
mjög góð efri hæð í þríbhúsi um 155 fm. Smíðaár 1967. Góður bílsk.
m. geymslu 37,4 fm. Skipti æskil. á góðri 3ja-4ra herb. íb. í borginni
eða nágr. Laus strax. Tilboð óskast.
Á söluskrá óskast m.a.:
2ja-5 herb. íb. í Vesturborginni, í grennd við nýja miðbæinn, í Smáíbúða-
hverfi eða Fossvogi. Eignir í gamla bænum af ýmsum stærðum. Mega
þarfnast endurbóta. Raðhús með 5-6 herb. íb. og tvöf. bílsk.
Traustir kaupendur. Góðar greiðslur fyrir rétta eign.
Góð einbhús, raðhús og sér-
hæðir ískiptum.
Vinsamlegast leitið nánari
upplýsinga.
AIMENNA
FASTEIGNASAIAW
LAUGAVEG118 SlMAR 21150-21370
Átakið Stöðvum
unglingadrykkju
Breytt við-
horf til
unglinga-
drykkju
nauðsyn
ÁTAKIÐ stöðvum unglinga-
drykkju hefur sent frá sér blað í
dagblaðsformi, sem gefið er út í
94 þúsund eintökum, og verður
það sent inn á hvert heimili í land-
inu. Með blaðinu verður dreift
happdrættismiða, en happdrætt-
inu er ætlað að standa straum af
kostnaði við rekstur átaksins, en
frumkvæði að því áttu foreldra-
samtökin Vímulaus æska og
Fræðslumiðstöð í fíknivörnum.
Verndari átaksins er frú Vigdís
Finnbogadóttir,
forseti Islands.
í blaðið skrifa
alls 23 einstakl-
ingar um ungl-
ingadrykkju og
skyld mál, en
blaðið er 28
blaðsíður. Um
80 aðilar eiga
aðild að blaðinu.
Vinningar í
happdrættinu
eru 10 Fiat
Punto-bifreiðar, en að sögn for-
svarsmanna átaksins er kostnaður
við happdrættið um 2% af miða-
verðinu, ef frá eru taldir vinning-
arnir, sem fengust með hagstæð-
um kjörum.
Átakið stendur í eitt ár
Átakir.u Stöðvum unglinga-
drykkju er ætlað að standa yfir í
eitt ár, en hvatinn að stofnun þess
er hin mikla og opinskáa drykkja
barna og unglinga, nú síðast
vegna mikillar aukningar í brugg-
un landa og sölu á honum til barna
og unglinga, segir í frétt frá átak-
inu. Markmiðið er fyrst og fremst
að koma á viðhorfsbreytingu hjá
þjóðinni hvað varðar áfengis-
drykkju barna og unglinga og
gera mönnum umbúðalaust grein
fyrir þessu vandamáli. í fréttatil-
kynningu aðstandenda átaksins
segir: „Við blasir sú nöturlega
staðreynd að drykkja meðal barna
pg unglinga er mjög almenn á
íslandi. Þetta ástand hefur verið
að festa sig í sessi undanfarin ár
og jafnvel er farið að líta á það
sem náttúrulögmál. Því verður
aðeins breytt með sameiginlegu
átaki allrar þjóðarinnar, hreinlega
þjóðarvakningu.“
Fylgstu meb í
Kaupmannahöfn
Morgunblabib
fæst á Kastrupflugvelli
og Rábhústorginu
-kjarni málsins!
Forsíða blaðs
átaksins
Stöðvum ung-
lingadrykkju.